Dagur - 17.03.2000, Side 1
Ossur fagnar mót-
frambodi Tryggva
Tryggvi Hardarson skilar inn framboöstiikynningu sinni í gær, skömmu áður en fresturinn rann út. mynd: e.úl.
Tryggvi telur það
SamfylMugiumi til
góðs að fá líf í undir-
búning stofnfimdar-
ins. Össur var tilbú-
inu í hörð og drengi-
leg átök. Guðmundur
Ámi er hlynntur for-
mannskjöri.
Tryggvi Harðarson, bæjarfulltrúi
Samfylkingarinnar í Hafnarfirði,
hefur ákveðið að gefa kost á sér
til formennsku í Samfylking-
unni. Hann nýtur stuðnings
Guðmundar Arna Stefánssonar,
enda vinur hans og samstarfs-
maður í pólitík í áraraðir. Ossur
Skarphéðinsson sagðist fagna
framboði Tryggva. Hann væri
mjög hæfur maður og hann
sagðist hlakka til formannsslags-
ins.
„Eg tel að það sé Samfylking-
unni til góðs að fá líf í undirbún-
ing stofnfundarins og koma inn
með nýjar áherslur og sjónar-
horn,“ sagði Tryggvi Harðarson í
samtali við Dag í gær.
Hann sagðist ekki hafa verið
undir neinum þrýstingi að gera
þetta, hér væri algerlega um að
ræða sína persónulegu ákvörð-
un.
„Það er ýmislegt sem ég vil
koma á framfæri og mun gera
það í kosningabaráttunni. Eg tel
líka heppilegt að þarna komi inn
menn sem eru ekki markaðir í
landsmálapólitíkinni á liðnum
árum,“ sagði Tryggvi.
Hann sagðist ætla í fundaferð
um landið til að kynna sig og sín
sjónarmið og hitta fólk að rnáli.
Síðdegis í gær var hann á fullu,
ásamt samstarfsmönnum, að
safna stuðningsfólki úr öllum
kjördæmum við framboð sitt.
Adrenalínið flæðir
„Ég var í þeim stellingum að fara
í hörð átök og drengileg í for-
mannsslagnum. Adrenalínið
flæðir enn um æðarnar þótt
komið hafi smá kyrrð í fram-
boðsmálin síðustu daga. Fram-
boð Tryggva kemur mér ekki alls-
kostar á óvart og í hreinskilni
sagt þykir mér það betra til þess
að fá fram mælingu í kosningu.
Ég hef aldrei óttast vopna-
glamm,“ sagði Össur Skarphéð-
insson, hinn frambjóðandinn til
formennsku í Samfylkingunni.
Hann sagðist aðspurður telja
framboð Tryggva sterkara en
framboð Lúðvíks Bergvinssonar.
„Ég tel það vera,“ sagði hann.
Þeir Guðmundur Arni Stef-
ánsson alþingismaður og Tryggvi
hafa starfað saman í bæjar-
málapólitíkinni í Hafnarfirði.
Guðmundur Arni var spurður
hvort hann myndi styðja Tryggva
í formannsslagnum?
„Ég er hlynntur því að í að-
draganda stofnfundar fari fram
formannskjör. Tryggvi er gamall
vinur minn og samstarfsmaður
sem alltaf hefur stutt mig í póli-
tíkinni," sagði Guðmundur Árni
Stefánsson.
„Ég held að það sé betra fyrir
væntanlegan formann að fá
kosningu heldur en að verða
sjálfkjörinn. Hann þarf að fá
mælingu," sagði Jóhanna Sigurð-
ardóttir.
Framboðsfrestur rann út
klukkan 18 í gær. Formannskjör-
ið verður svokölluð póstkosning
og kosningarétt eiga allir félagar
í A-flokkunum, samfylkingarfé-
lögunum, Þjóðvaka og Kvenna-
Iista. Kosningu á að vera lokið
21. apríl og síðan verður stofn-
fundurinn haldinn 6. maí.
- S.DÓR
Fíkniefna leitað á Fjólimni
Húsleit var gerð í fyrradag á
Fjólunni áfangaheimili SAA á
Akureyri vegna þess fíkni-
efnamáls sem Lögreglan á
Akureyri rannsakar nú. Sjö menn
voru handteknir, þrír voru úr-
skurðaðir í hálfsmánaðar gæslu-
varðhald þá um kvöldið en hin-
um fjórum sleppt um miðjan dag
í gær eftir yfirheyrslur. Ljóst er
að hald var lagt á nokkurt magn
amfetamíns, hass og E-taflna.
Samkvæmt lauslegri samantekt
hafa um 20 manns verið hand-
teknir á Akureyri það sem af er
árinu vegna fíkniefnamisferlis.
Gróflega má áætla að Lögreglan
á Akureyri hafi lagt hald á hátt f
60 grömm af amfetamíni á árinu,
yfir 100 grömm af hassi og nokk-
urt magn e-taflna, auk einhvers
af öðrum efnum. Þetta er talið
svipað og á undanförnum árum
og í samræmi við þróunina í
fíkniefnamálum. Þannig hafi
fjöldi fíkniefnamála á Akureyri
tvöfaldast milli áranna 1998 og
1999, þegar þau urðu 99. - HI
Guömundur Gunnarsson að störf-
um í Karphúsinu í gær. mynd: þúk
Hurðarbani
í Karphúsi
Svo virðist sem innihurðir og
búnaður nýja húsnæðis Ríkis-
sáttasemjara séu ekki nægilega
vel úr garði gerðar til að þola
átök samningamanna. I það
minnsta fékk Guðmundur
Gunnarsson, formaður Rafiðn-
aðarsambands íslands, hurða-
ramma í bakið eftir að hafa
skellt einni hurð svo fast á eftir
sér á leið út af samningafundi
með atvinnurekendum í vik-
unni. Sáu sitt óvænna
Astæðan fyrir því að Guð-
mundi rann svona mikið í skap
var vegna þess að honum þótti
sem atvinnurekendur hefðu ekki
unnið heimavinnuna sína nægj-
anlega vel í tengslum við gerð
nýs kjarasamnings, öndvert við
samninganefnd RSI. Það túlk-
aði hann sem svo að þeir hefðu
haft samningamenn RSI að fífl-
um svo vikum saman. Það var
meira en hann þoldi með þeim
afleiðingum að honum rann svo
í skap að hurðin lét undan þeg-
ar hann strunsaði brúnaþungur
út og skellti á eftir sér með
krafti. Þetta varð til þess að at-
vinnurekendur sáu sitt óvænna
og létu hendur standa fram úr
ermum og skiluðu tilboði til
RSÍ. Síðan þá hafa tilboð geng-
ið á milli manna.
Að sögn Guðmundur lét Þórir
Einarsson ríkissáttasemjari þau
orð falla eftir að hurðin gaf sig
að ágætt væri að fá svona prófun
á húsinu á meðan það væri enn
í ábyrgð! Sáttasemjari kallaði
síðan til iðnaðarmenn sem voru
við vinnu í húsinu að lagfæra
hurðina. Guðmundur segir að
það þurfi eflaust að laga hurð-
irnar eitthvað betur því þær
verði að þola venjulegan samn-
ingaumgang. - GRH
þegar hljómtæki skipta máli
Lágmúla 8 • Sími 530 2800
www.ormsson.is