Dagur - 17.03.2000, Síða 2

Dagur - 17.03.2000, Síða 2
2 - FÖSTUDAGVR 17. MARS 2000 FRÉTTIR Tt&pir Mótmælir hroka í garð kvenráðherra Dapurlegt að formað- ur Öryrkjabandalags- ius skuli lýsa slíkiun hroka í garð kvenna í pólitík, segir formað- ur nefndar um aukinn hlut kvenna í stjóm- málum, og vísar til ummæla Garðars Sverrissonar í Viku- viðtali. „Þetta er það dapurlegasta sem ég hef lengi séð á prenti gagnvart konum,“ sagði Hildur Heiga Gísladóttir, formaður nefndar um aukinn hlut kvenna í stjórn- málum, um þau orð sem Garðar Sverrisson formaður Oryrkja- bandalagsins, viðhefur um stjórnmálakonur í nýlegu viðtali í Vikunni. I viðtalinu gagnrýnir Garðar heilbrigðisráðherra og Iýsir síðan áliti sínu á henni og fleiri stjórn- málamönnum, einkum stjórn- málakonum, sem sitja í valda- stólunum í dag, svohljóðandi: HHdur Helga Gísladóttir: Kven- fjandsamleg og niðrandi ummæli Garðars. Garðar Sverrisson: Stjórnmálakon- ur i valdastólum fá ekki háa ein- kunn. „Svona stjómmálamenn fá ekki háa einkunn hjá mér og raunar finnst mér þessi skortur á pólitísk- um metnaði vera nokkuð ein- kennandi fyrir meirihluta þeirra kvenna sem tipla i kringum þá Halldór og Davið. ]>eim virðist finnast svo óskaplega gaman að vera með stóru strákunum að það er eins og það komist ekkert ann- að að en að laga hárið, varalita sig og brosa. Og ég get ekki að þvi gert að þegar ég sé þær allar sam- an komnar i fínu pelsunum sin- um verður mér sifellt hugsað til hve hárbeittur hann var titillinn á skáldsögu Vitu Andersen, Haltu kjafti og vertu sæt, þótt sliáldkon- unni hefði sennilega aldrei komið til hugar að þessi titill ætti eftir að verða lýsandi fyrir samskipti kynj- anna á vettvangi íslenskra stjórn- mála nærri aldarfjórðungi síðar. “ Ömurleg innmæli „Þessum kvenfjandsamlegu °g niðrandi ummælum Garðars um konur mótmæli ég alfarið. Þau eru svo ömurleg að ég ætla að vona að þessi maður taki orð sín til baka,“ sagði Hildur Helga. Hún telur ummælin til vitnis um það kynjamisrétti sem enn eigi sér stað í þjóðfélaginu. Karlremb- an í orðum Garðars sé samt svo einstök að hún hafi ekki átt von á að lenda í slíku lengur, hvað þá frá manni í þessari stöðu. „Hann er að gagnrýna að það sé verið að mismuna fólki og búa til stétta- skiptingu í þjóðfélaginu. En fell- ur svo sjálfur í þá gryfju að búa til ennþá meiri mismunun.“ Hildur Helga segir það jafn- réttismál að konur komist til valda í pólitík og nefndin sem hún stýrir hafi skilað árangurs- ríku starfi. Hlutur kvenna í stjórnmálum á Islandi hafi aukist verulega, ekki síst á Alþingi, þar sem konum hafi nú fjölgað í meira en þriðjung þingmanna. „Mér finnst afar dapurlegt að formaður Öryrkjabandalagsins skuli lýsa slíkum hroka í garð kvenna í pólitík. Og ég efast um að samtökin sem hann stýrir bakki hann upp í þessu máli.“ - HEI Stefán Geir Þorvaldsson, sölustjóri SkjáVarps, og Árni Gunnarsson, markaðsstjórl Flugfélags íslands, undirrita samninginn. Skiávarn Flugfélag Islands og Gagnvirk Miðlun, fyrir hönd SkjáVarps, hafa gert með sér samstarfs- samning sem felur í sér að á SkjáVarpi birtast staðbundnar upplýsingar um áætlun Flugfé- lags Islands á öllum útsending- arsvæðum SkjáVarps. Birtast komu- og brottfarartímar flugfé- lagsins eins og þeir eru á hverj- um áfangastað fýrir sig. Um leið hefja fyrirtækin samstarf um birtingu staðbundinna upplýs- inga undir liðnum „A döfinni" á vef Flugfélags Islands. Hjá SkjáVarpi er nú unnið að upp- setningu á skjáum í flugstöðvum á öllum áfangastöðum Flugfé- lags Islands utan Reykjavíkur og eru að því tilefni hafnar viðræð- ur við Flugmálastjórn, sem er eigandi flugstöðvanna. Aðeins 16 af 72 leikskólum opnir Forráðamenn barnanna á leikskólum borgarinnar verða margir hverjir að gera ráðstafanir vegna sumarlokana. Margir leikskólar verða ýmist lokaðir í 2 eða 4 vikur. Fram- kvæmdir eða starfs- mannahald. Þreyta og kvíði í starfsfóild. Um 2500 á biðlista. Allt útlit er fyrir að aðeins 16 leikskólar á vegum Reykjavíkur- borgar verði opnir í sumar en 56 verða lokaðir vegna framkvæmda eða starfsmannahalds. Þessar lokanir verða ýmist í 2 - 4 vikur. Guðlaugur Þór Þórðarson, borg- arfulltrúi sjálfstæðismanna og fulltrúi í Leikskólaráði, segir að áformaðar lokanir hafi aldrei verið meiri. Hann segir þetta til marks um skipbrot á stefnu R- Iistans í málefnum ieikskólans. Kristín Blöndal, formaður Leik- skólaráðs, vísar því á bug að fyr- irhugaðar lokanir séu meiri en nokkru sinni áður. Þreyta og kvíði Formaður Leikskólaráðs bendir á að það séu aðeins fjögur ár frá því að farið var að hafa leikskóla opna á sumrin. Fram að þeim tíma voru þeir alltaf lokaðir í mánuð á þeim árstíma. Hinsveg- ar sé það stefna borgaryfirvalda að hafa þá opna allt árið. Hún segir að helsta ástæðan fyrir áformuðum lokunum sé m.a. vegna þess starfsmannavanda sem hefur verið á leikskólunum í vetur. Af þeim sökum sé þreyta komin í starfsfólk sem einnig kvíði framvindu starfsmanna- mála að afloknum sumarleyfum. Hún segir að búið sé að taka ákvörðun um það eins og í fyrra að ef Ieikskólastjórnir treysta sér ekki til að hafa opið í sumar, þá muni þeir Ioka. Kristín bendir einnig á að á undanförnum sumrum hefðu um 20 leikskól- um verið lokaðir vegna viðgerða og svo sé eins í ár. Hún segir að starfsmannamálin séu engu að síður í mun betra horfi en verið hefur. Til marks um það vanti aðeins um 20 manns á móti 70 fyrr í vctur svo ekki sé minnst á þann vanda sem var sl. haust þegar vantaði um 240 manns í vinnu á leikskólum borgarinnar. Hún telur því að þessi mál séu öll að þróast til betri vegar. Langir biðlistar Guðlaugur Þór segir að því mið- ur neiti R-listinn að horfast í augu við þá staðreynd að stefna hans í leikskólamálum hafi beðið skipbrot. Máli sínu til stuðnings bendir hann á að hátt í 2500 börn séu á biðlistum. Hann seg- ir að þrátt fyrir að verið sé að byggja flotta og dýra leikskóla, þá vanti einfaldlega meiri fjármuni í þennan málaflokk ef vel eigi að vera. - grh Pólfaramir úr símsambandí Svo gæti farið að Norðurpólsfararnir, Haraldur Örn Ólafsson og Ingþór Bjarnason, verði án símasam- bands þar sem til stendur að taka Iridium-farsíma, sem þeir eru með, úr notkun. Samnefnt fyrirtæki hyggst hætta rekstri þessa kerfis. Verða þeir þá að notast við Argos-senditæki til að láta vita af sér. Tal- samband fæst ekki en hægt er að senda skilaboð og staðsetningu. Af göngugörpunum er það annars að frétta að á þriðjudaginn komust þeir yfir 4,82 km kafla og höfðu þá alls komist yfir 26,2 kílómetra. Eftir voru nærri 740 kílómetr- ar. Veðrið var áfram þokkalegt, logn en skýjað og 40 stiga frost. ísinn er erfiður yf- irferðar á Pólnum. Við undirskrift samningsins. Frá vinstri eru Sigurrós Ragnarsdóttir, sýning- arstjóri Bú-2000, Skúli Helgason framkvæmdastjóri og Þórunn Sigurðar- dóttir, stjóri M-2000, Jón Hákon Magnússon, stjórnarformaður Sýninga eht, Álfhildur Ólafsdóttir, forstöðumaður Upplýsingaþjónustu landbúnað- arins, og Sigurgeir Þorgeirsson, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna. Menning á Bú 2000 Nýlega var unairritaður samningur á milli Reykjavíkur-menningarborg- ar Evrópu árið 2000, og aðstandenda landbúnaðarsýningarinnar „Bú 2000 - landbúnaður er Iífsnauðsyn", sem fram fer í Reykjavík íjúlí nk., um aðild sýningarinnar að menningarborgarverkefninu. Sýningin fer fram í samvinnu við Landsmót hestamanna, sem haldið er á sama tíma í Víðidal. Búist er við tugþúsundum gesta, innlendum sem erlendum, í tengslum við þessa stórviðburði í sumar. Þrettán ár eru liðin frá því að landbúnaðarsýning var síðast haldin í Reykjavík. Skipuleggjandi Bús 2000 er Sýningar ehf. í samráði við Bændasamtökin.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.