Dagur - 17.03.2000, Qupperneq 6

Dagur - 17.03.2000, Qupperneq 6
ÞJÓÐMÁL Útgáfufélag: dagsprent Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson Ritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Aðstoðarritstjóri: birgir guðmundssón Framkvæmdastjóri: marteinn JÓNASSON Skrifstofur: strandgötu 3i, akureyri, GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVlK Sfmar: 460 6100 OG 800 7080 Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is Áskriftargjald m. vsk.: 1.900 KR. Á mánuði Lausasöluverð: iso kr. OG 200 kr. helgarblað Grænt númer: soo 7080 Netföng auglýsingadeildar: greta@dagur.is-augl@dagur.is-gestur@ff.is Simar auglýsingadeildar: CREYKJAV|K)S63-1615 Ámundi Ámundason CREYKJAVÍK)563-1642 Gestur Páll Reyniss. CAKUREYR 1)460-6192 Karen Grétarsdóttir. Simbréf auglýsingadeildar: 460 6161 Símbréf ritstjórnar: 460 6171CAKUREYRI) 551 6270 CREYKjAVlK) Sjálfstæði Hæstaréttar í fyrsta lagi Málflutningur ríkisins fyrir Hæstarétti í svonefndu Vatneyrar- máli vekur athygli. Fulltrúi ríkisins hélt því í reynd fram að valdið til að meta lögmæti kvótalaganna ætti að vera hjá stjórnmálamönnum en ekki hjá dómstólunum. Varla er hægt að skilja ummæli ríkissaksóknara öðru vísi en sem alvarlega tilraun til að takmarka valdsvið æðsta dómsstóls landsins í því skyni að þjóna pólitískum hagsmunum ríkjandi stjórnvalda á hveijum tíma. Slíkum tilraunum ber alfarið að hafna, enda er það meginatriði í nútíma samfélagi að dómstólar séu með öllu óháðir pólitíska valdinu. í öðru lagi Hlutverk dómstóla er að vernda borgaranna gegn lögleysu - hvort sem hún er höfð í frammi af einstaklingum, fyrirtækjum eða pólitískt kjörnum fulltrúum á Alþingi og í ríkisstjórn. Þess vegna er það í verkahring dómstólanna að meta hvort lög sem þingmenn samþykkja bijóti í bága við þau grundvallarréttindi íslenskra þegna sem skráð eru í stjórnarskrá Iýðveldisins. Skammt er síðan stjórnarskráin var endurskoðuð einmitt til að tryggja enn frekar víðtæk mannréttindi og jafnræði þegnanna. Þegar miklir hagsmunir eru í húfi má alltaf búast við að þeir sem hafa meirihlutavald á Alþingi á hverjum tíma freistist til að ganga á svig við einhver grundvallarréttindi. Ef slíkt gerist eru dómstólar landsins eina vörn almennings. í þriðjalagi Á tuttugustu öldinni voru dómstólarnir oft umdeildir, þar á meðal Hæstiréttur. Á stundum voru þeir gagnrýndir harðlega íyrir að ganga erinda ríkjandi stjórnvalda og vera ekki nægilega sjálfstæðir. Hin síðari ár hefur Hæstiréttur sýnt við ýmis tæki- færi að hann er óháður pólitíska valdinu og lætur ekki segja sér fyrir verkum. Þrýstingur öflugra hagsmunaafla hefur hins vegar aldrei verið meiri en einmitt í þessu máli. Ogerlegt er að spá fyrir um niðurstöðu Hæstaréttar, enda er málið að sjálf- sögðu vandasamt úrlausnar. En ábyrgð dómstólsins gagnvart þjóðinni er mikil. Elías Snæland Jónsson „Omarkvissni66 Ari Skúlason framkvkæmda- stjóri Alþýðusambandsins hefur Iýst því yfir í fjölmiðlum að gagnrýni stjórnarandstöð- unnar á ríkispakkann sem fylgdi kjarasamningum Flóa- bandalagsins og vinnuveit- enda, sé það sem hann kýs að kalla „ómarkviss". Garri hef- ur verið að velta fyrir sér hvað fælist í þessu hugtaki „ómark- viss“ eða „ómarkvissni", sem í þessu tilfelli er ekki hægt að skilja öðruvísi en svo að Al- þýðusambandið og einn af forkólfum Samfýlkingarinnar telji stjórnarandstöðuna vera á algerum villigötum. Ari talar af tilfinningaþunga um þá staðreynd að verið sé að lyfta upp persónuaf- slættinum í áföngum, sem sé nokkuð sem ríkisstjórnin hafi sjálfu sér ekki verið skuldbundin til að gera og segir því enga ástæðu vera til að gera lítið úr ávinningnum af framlagi ríkisstjórnarinnar. Föst við sinn Ari Skúlason. keip Stjórnarandstaðan situr hins vegar að sjálfsögðu föst við sinn keip og bendir á að ör- yrkjar og aldraðir hafa verið skildir eftir þannig að þeirra kjör muni ekki batna til sam- ræmis við aðra. Þannig er komin upp sú staða að allir þeir sem á undanförnum misserum hafa gefið sig út fý'rir að vera talsmenn fátæk- ari hluta samfélagsins eru komninr í hár saman út af einhverri tölfræði um það hvort ástandið sé að lagast eða ekki eða ef það sé að Iag- ast þá hversu mikið. Og auð- vitað hafa báðir rétt fyrir sér - að hluta. Oryrkjar og aldrað- ir eru vissulega að dragast enn meira aftur úr öðrum. En þeir eru líka að fá ákveðnar kjarabætur í gegnum aukinn persónuafslátt. Á meðan þetta rifrildi geysar, er kjarna málsins hins vegar drepið á dreif - fátæktinni. Fátæktin fæst ekki rædd af alvöru á hinum pólitíska vettvangi ekki einu sinni með „ómarkviss- um‘‘ hætti. Maxgir ómark- vissir Hvort sem Davíð Oddsson viðurkennir það cða ekki og hvernig sem líður rifrildinu innan stjórnarand- stöðunnar og innan verkalýðshreyfingar- innar, þá er það nú samt svo að ákveðinn hópur fólks í landinu býr við mjög erfið kjör - Iifir beinlínis í sárri fátækt. Það er þetta fólk sem þarf að hjálpa með einhverjum hætti og það er þetta fólk sem því miður virðist ætla að verða út- undan enn einu sinni. Það er ekki nóg að halda vandlæting- arfullar ræður um almennar hækkanir elli- og örorkulífeyr- is, því þessir hópar eiga í raun afar fátt sameiginlegt. Meiri- hluti gamals fólks er t.d. í góðum málum og stór hópur er meira að segja moldríkur. Það sem skiptir máli er auð- vitað að einangra vandamálið og einbeita sér að þeim sem raunverulega eru illa staddir. Allt annað er ómarkvisst. í dag eru það því fleiri en stjórnarandstaðan sem er ómarkviss, Ari og ASI og Dav- íð og drengirnir hans eru ekki síður ómarkvissir í sínum málflutningi. GARRI ODDUR ÓLAFSSON skrifar Löngum hefur verið litið svo á að úrskurðir Hæstaréttar hafi laga- gildi, að minnsta kosti að því marki, að þeir séu endanlegir og óafturkræfir dómar um tiltekið efni. En nú hefur Hæstiréttur ekki löggjafarvald og ber að kveða upp dóma samkæmt iög- um sem Alþingi hefur sett. En lögin sem koma frá löggjafar- samkundunni eru oft loðnari en svo, að það liggi í augum uppi hvað þau merkja og hvort túlka beri þau á þennan veg eða hinn. Því verða dómstólar að kveða upp úr um hvað Alþingi meinti með Iagasetningunni. Við þessar útlistanir á lögum starfar mikill fjöldi Iöglærðra manna, dómarar og dómarafull- trúar og dómsmálaráðuneytis- fulltrúar, málaflutningsmenn, sem sækja og verja rangan mál- stað sem réttlátan og dómstigin taka við hvert af öðru og komast að ólíkustu niðurstöðum. Dýrustu þorskar söguimar Yfir öllu þessu trjónar stjórnar- skráin sem geymir þau grund- vallarlög sem önnur lagasmíð byggir á, sem þýðir að ekki megi samþykkja nein lög á Alþingi sem brjóta í bága við ákvæði stjórnarskrárinnar. Löggjafinn má heldur ekki setja lög sem stangast á við önn- ur lög, sem eru í gildi. Skýrt og torskilið Allt er þetta afar einfalt og margbrotið í senn. Stjónarskráin er skýrt og auðskilið plagg. Samt deila löglærðir endalaust um hvað felist í einstökum ákvæðum hennar. Og síðan hvort tiltekin lög standast stjórn- arskrárákvæði eða einhverjar aðrar lagaklásúlur. Lagaskýrendur hafa farið á kostum í nokkra mánuði við að útskýra hvað felst í Vatneyrar- dómnum, þar sem undirréttur sýknaði sjómann af ákæru um að hafa veitt fisk utan kvóta. Há- marki náðu útlegginganar þegar málið var flutt fyrir Hæstarétti í fyrradag. Þar höfðu allir allt á hreinu, sækjandi og verjendur. Lög um stjórn fisk- veiða tómt rugl og út í hött. Kvótagjafír ríkis- valdsins lögleysur einar og alls kyns mannrétt- indi brotin með því að gefa einum veiðileyfi og meina öðrum að físka, sögðu verjendur. Á þessu er fjöldi manns búinn að japla árum saman án þess að vera virtir viðlits. En nú er sem sagt komið til kasta Hæstaréttar að skera úr um málið. Til Alþingis? En þá kom babb í bátinn. Ríkis- lögmaður kveður upp úr um að Hæstiréttur hafi ekki lögsögu í málinu því að Vatneyrardómur- inn sé pólitík en ekki dómsmál. Samkvæmt þessu kemur nú til kasta Alþingis að skera úr um hvort lögin um stjórnun fiskveiða séu gild lög eða lögleysa ein. Hæstiréttur verður þá væntan- Jega að dæma sjálfan sig frá mál- inu og afhenda Alþingi það sem pólitískt úrlausnarefni. Varla mun það einfalda málflutning- inn, en hægt væri að skafa agnúa af lögunum, svo sem að fiski- slóðin sé þjóðareign og annað smáræði til að róa sægreifa. Svo er til í dæminu að telja að málið heyri undir dómstóla og staðfesta Vatneyrarmálið eða dæma einhvern veginn allt öðru vísi. En hvernig sem fer er víst að þeir fáu þorskar sem Vatneyrin dró utan kvóta eru dýrustu fisk- kíló, sem nokkru sinni hafa verið dregin úr sjó við ísland. Hæstiréttur á ekki að fást v/ð pólitík. snmia svarað Ersú ákvörðun Skelj- ungs að hætta stuðningi við stjómmálaflokka til eftirhreytni? Stemgrímur J. Sigfússon sér ekki jákvætt að stórfyrirtæki fara að heltast þar út lestinni. Sérstaklega ef það er af ástæðum sem koma íslenskum ástæðum ekki við, en þessi ákvörðun Skeljungs er tekin vegna fyrir- mæla frá erlendum höfuðstöðv- um. Eg hef margoft varpað fram þeirri tillögu að stutt yrði betur við bakið á stjórnmálastarfsemi í landinu af almannafé, um leið og sett yrði þak á útgjöldin, eink- anlega í kosningum, og þá yrðu stjórnmálaflokkar ekki háðir stuðningi frá fyrirtækjum." Jóhannes Geir Sigurgeirsson stjónmrform. KEA ogfv. þingmaður. “Nei, ég tel þessa ákvörðun ekki til eftirbreytini. Eg held að einmitt sé bæði eðlilegt og æskilegt að sem flest fyrir- tæki styrki stjórnmálastarfi, þó ef til til vill með gegnsærri hætti en gert er í dag. En ef obbi fyrir- tækja fer hinsvegar að hætta þessum stuðningi þá erum við fyrst að bjóða hættunni heim, því þá gæti það gerst að stór og öflug fyrirtæki væru komin í þá stöðu að geta keypt sér pólítsk áhrif." Ari Edvald framkv.stjóri Samtaka atvitinulífsins. “Slíkt tel ég vera ákvörðun hvers fyrirtækis fyrir sig og Samtök at- vinnulífsins hafa enga stefnu mót- að í þessu. Hins- vegar finnst mér eðlilegt ef fyrir- tæki styrkja einstök málefni, svo sem Iíknarmál, íþróttir eða stjórnmál séu þau framlög frá- dráttarbær frá skatti sem rekstr- arkostnaður. Það er málefnalegt ef fyrirtæki marka skýra stefnu í framlögum sínum til einstakra mála - en mörg telja jákvætt að samsama sig ákveðnum mála- flokkum í styrkveitingum sín- um.“ Vilhjálmur Egilsson þingmaðurSjálJstæðisflokJts ogfram- kvæmdast. Verslunarráðs. “Nei, mér finnst það ekki. Mér fínnst að fyrir- tæki eigi að styrkja stjórn- málaflokka og taka þannig þátt í samfélagslegri starfsemi. Það er ekki eðlilegt að fyrirtæki skorist undan því að styðja þá starfsemi sem er eðlileg fyrir samfélagið, en vera síðan á sama tíma að gera kröfur til þess að lög og reglur stuðli að framförum í at- vinnulífi."

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.