Dagur - 17.03.2000, Qupperneq 15
INNLENT
Varðarmenn á Akureyri vilja endurskoðun framkvæmdastjórnar byggðamála, með tilliti til Byggðastofnunar. Ljóst
sé að stofnunin hafi ekki náð takmarkinu um að snúa búsetuþróun við.
„Byggðastofmin
hefur mistekist“
Mannau ðurinn lítils metinn
„Mannauður okkar er lítils metinn. Stöndum saman og jöfnum það
sem jafna ber,“ segir m.a. í yfirlýsingu sem ófaglærðir starfsmenn
Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga og Hvamms, heimilis aldraðra á
Húsavík, hafa sent frá sér. Þar er heils hugar tekið undir „eðlilegar
og sanngjarnar" kröfur VMSI. Þær séu í fullu samræmi við umtalað
góðæri og þá launaþróun sem hefur átt sér stað á vinnumarkaðnum.
Starfsmennirnir lýsa yfir fullum stuðningi við það verkafólk sem nú
stendur í kjarabaráttu og hvetja það til samstöðu um boðaðar aðgerð-
ir.
Frá ársfundinum. Á fremsta bekk eru m.a. Þorkell Helgason orkumála-
stjóri og Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra. - mynd: gva
Vörður, félag ungra sjálfstæðis-
manna á Akureyri, hélt nýlega
auka-aðalfund, og þar var Arn-
Ijótur Bjarki Bergsson endur-
kjörinn formaður, en aðrir
stjórnarmenn Þorvaldur Makan,
Kristjana Ólafsdóttir, Bergur
Guðmundsson og Dagný Hauks-
dóttir. Stjórnin sagði af sér á síð-
asta ári í kjölfarið á ályktun þess
efnis að enginn ætti að fá ís-
lenskan ríkisborgararétt nema
að kunna góða íslensku.
Gæðtn hagnýtt
í stjórnmálaályktun aðalfundar-
ins segir meðal annars að Varð-
armenn vilji að gæði landsins
verði hagnýtt í þágu Islendinga,
unnið verði að vexti og viðgangi
fullveldis og sjálfstæðis hins ís-
lenska lýðveldis á grunni jafn-
réttis, einstaklingsfrelsis og sér-
eignar. I landinu verði efld þjóð-
leg og víðsýn framfarastefna.
Vörður fagnar hugmyndun um
sameiningu RARIK og Rafveitu
Akureyrar og vonar að fleiri aðil-
um verð gert kleift að koma að
því máli. Vörður telur nauðsyn-
legt að réttur fólks til að standa
utan félaga sé virtur. Samnings-
frelsi á að gilda á vinnumarkaðn-
um sem annars staðar.
Varðarmenn vilja endurskoð-
un framkvæmdastjórnar byggða-
mála, með tilliti til Byggðastofn-
unar. Ljóst sé að stofnunin hafi
ekki náð takmarkinu um að snúa
búsetuþróun við. Markvissar að-
gerðir í samþykkt þingsályktunar
um byggðamál, sem beint sé að
rót vandans, gefi von um betri
tíð. Uppbygging við Lyjafjörð sé
mikilvæg fyrir landsmenn alla.
- GG
Lögregluskólinn
með Schengen
Tollverðir og aðrir löggæslumenn verða á námskeiðum bjá Lögregluskól-
anum um Schengen fram á vor, með aðstoð fjarfundabúnaðar sem ís-
lensk miðlun hefur sett upp.
Á næstu vikum fer fram fræðsla
í húsakynnum Lögregluskóla
ríkisins um Schengen-samstarf-
ið. Reiknað er með að 800-900
manns sitji námskeiðin, þ.e. lög-
reglumenn, lögreglustjórar,
flestir tollverðir, starfsmenn Út-
lendingaeftirlitsins og starfs-
menn Landhelgisgæslunnar. Á
vefsíðu lögreglunnar kemur
fram að þetta sé trúlega viða-
mesta verkefnið sem Lögreglu-
skólinn hefur tekið að sér.
Skipulagning er í höndum fram-
haldsdeildar skólans en henni til
aðstoðar hefur verið skipuð sér-
stök nefnd sem hefur gert tillög-
ur um kennsluefni og skipulag.
AIls verða haldin 12 námskeið
í skólanum, hvert 6 kennslu-
stunda langt og á sama tíma og
þau eru haldin í skólanum, fyrir
allt að 50 manns í einu, verður
þeim sjónvarpað með fjarfunda-
búnaði á nokkra staði utan höf-
uðborgarsvæðisins. Lögreglu-
i skólinn bindur miklar vonir við
þessa aðferð við að koma
fræðslu á framfæri og hugsa
menn sér þar gott til glóðarinnar
með ýmiss konar fræðslu sem
hægt er að koma á framfæri án
þess að allir komi í skólann.
Á námskeiðunum verður fjall-
að um sögu Schengen sam-
komulagsins og helstu atriði sem
snúa að löggæslu en þar eru
ýmis atriði sem löggæslustéttir
verða að kunna skil á til jafns við
kollega í öðrum löndum á
Schengen-svæðinu.
Aiikiii velta Orkustofnunar
Á ársfundi Orkustofnunar í vikunni var lögð fram ársskýrsla fyrir árið
1999. Heildarveltan jókst um 20% frá árinu 1998 og nam 925 millj-
ónum króna. Rekstrarafgangur nam 46,7 milljónum króna. Höfuð-
stóllinn jókst því um sömu fjárhæð, eða 7% af útgjöldum. Þá er búið
að telja til gjalda fjárfestingu í tækjum og búnaði að upphæð 41 millj-
ón króna. Framlegðin úr rekstri er því alls um 88 milljónir eða 13%
af veltu. Ársverk voru 97 og fjölgaði þeim um tæp 5 prósent milli ára.
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra setti ársfundinn, en yfir-
skrift hans var „Orkumál heimsins og Islands við aldahvörf.'1 Einnig
fluttu ávörp Þorkell Helgason orkumálastjóri, Gerald Doucet, fram-
kvæmdastjóri Alþjóða orkuráðsins, og ýmsir sérfræðingar Orkustofn-
unar. Þannig flutti Benedikt Steingrímsson áhugavert erindi um há-
hitarannsóknir en nýting jarðhita til raforkuvinnslu hefur aukist úr
50 Mw í 170Mw á síðustu tveimur til þremur árum. Þá var greint frá
nýjungum í vatnamælingum, sem m.a. hafa nýst við vöktun Kötlu.
í slenskt félag í erlendri kauphöll
Kauphöllin í Lúxemborg (LuxSE) hefur samþykkt að skrá hlutahréf-
Uppspretta Icelandic Capital Venture S.A. Með skráningu félagsins
er brotið blað í fjármálasögu íslands, að því er segir í tilkynningu frá
Kaupþingi, þar sem aldrei áður hafi hlutafélag í meirihlutaeigu ls-
lendinga fengið skráningu í erlendri kauphöll. Skráningin markar
einnig tímamót að öðru leyti því þetta er í fyrsta sinn sem fjármála-
fyrirtæki í eigu Islendinga sér um skráningu hlutafélags í erlendri
kauphöll en það var Kaupthing Luxembourg S.A. sem hafði umsjón
með skráningunni. Lagt hefur verið í töluverða undirbúningsvinnu
vegna þessa undanfarna mánuði. Viðræður við Verðbréfaþingið í
Lúxemborg hófust í júní á síðasta ári. OIl umsýsla Uppspretta
Icelandic Capital Venture S.A. fer fram hjá Kaupthing Luxembourg
S.A. en félagið hefur jafnframt gert fjárfestingarráðgjafarsamning við
Kaupþing hf. Framkvæmdastjóri félagsins er Hilmar Þór Kristinsson,
starfsmaður Kaupþings hf.
Uppspretta er áhættusækið fjárfestingarfélag sem stofnað var fyrir
einu og hálfu ári. Það hefur fjárfest í tólf óskráðum hlutafélögum en
þau eru:
Fjárfestingarfélag Vestmannaeyja hf., Fjárfestingarfélag Austur-
Iands hf., deCode genetics Inc., Þórsbrunnur hf., Icelandic Geno-
mics Inc., Víkingarhf., Bio Process A/S, Subway DanmarkA/S., Nor-
dic Industrial Park SIA, Stoke Holding S.A., Arctic Ventures og
Stjornu - Oddi hf. Hlutafé í Uppsprettu er um einn milljarður króna.
Sæplast kaupir keppinaut
Sæplast á Dalvík hefur gert samkomulag um kaup á öllum hlutabréf-
um í samkeppnisfyrirtækinu Nordic Suplly Container AS í Skodje við
Álasund, og er þetta þriðja norska fyrirtækið sem Sæplast kaupir á
þessu ári, en heildarvelta þeirra er um 110 milljónir norskra króna.
Fyrirtækið starfar á sama markaði og Sæplast, nýtir sömu tækni og
framleiðir sambærilegar vörur. Áætluð heildarvelta fyrirtækisins er
um 24 milljónir norskra króna, og eru fiskikör um tveir þriðju hluti
veltunnar. Með kaupunum skapast miklir hagræðingamöguleikar fyr-
ir Sæplast í Noregi. Mögulegt verður að fækka verksmiðjum og draga
þar með umtalsvert úr föstum kostnaði. Á sama hátt getur sölukerfi
Sæplasts annast sölu á vörum Nordic Supply Containers með litlum
aukakostnaði.