Dagur - 17.03.2000, Blaðsíða 17
FÖSTUDAGUR 17. MARS 2000 - 17
ÍÞRÓTTIR
United sýndi sitt besta
Leikinenn Mandiester
United sýndu frábær-
an leik, þegar liðið
vann 3-1 sigur á Fior-
entina í B-riðli Meist-
ardeildar Evrópu í
fyrrakvöld og augljóst
að liðið er óðum að
komast í gamla meist-
araformið.
Þegar ein umferð er eftir í annari
lotu riðlakeppni Meistaradeildar
Evrópu, hafa fjögur lið,
Barcelona, Manchester United,
Bayern Miinchen og Chelsea,
tryggt sér réttinn til að leika á 8-
liða úrslitum keppninnar.
Henning Berg og Dwight Yorke fagna marki þess síðarnefnda.
Roy Keane skoraði annað mark United.
United að komast í meistara-
formið
Evrópumeistarar Manchester
United, sönnuðu það í 3-1 sigur-
Ieiknum gegn Fiorentina á Old
Trafford í fyrrakvöld að Iiðið er
að ná sínu gamla meistaraformi
og virðist líklegt til að verja titil-
inn í ár. Þeir yfirspiluðu ítalska
liðið gjörsamlega í fyrrakvöld og
sýndu sinn Iangbesta Ieik á tíma-
bilinu, sérstaklega í fyrra hálf-
leik. Liðið lék eins og vel smurð
vél, þar sem fáa hnökra var að
sjá. Fiorentina átti þó fyrsta
markið í leiknum, en það gerði
Gabriel Batistuta með glæsilegu
skoti á 16. mínútu. Þrjú mörk
United, frá þeim Andy Cole, Roy
Keane og Dwight Yorke, fylgdu
svo í kjölfarið, sem hefðu gatað
orðið fleiri miðað við yfirburði
United á vellinum.
Ferguson í skýjunum
Alex Ferguson, framkvæmda-
stjóri Manchester United, var í
skýjunum yfir frammistöðu sinna
manna f leiknum og sagði að
hann hefði sjaldan séð liðið sitt
spila eins vel og að þetta væri
besti leikur þess á tímabilinu.
Hann er þó viss um að liðið eigi
enn eftir að bæta við sig, því mið-
að sé við að það sé í toppformi
um mánaðarmótin mars-apríl.
„Þó þið hafið séð mikið í kvöld,
þá hafið þið ekki séð það besta,"
sagði Ferguson kokhraustur við
blaðamenn eftir leikinn í fyrra-
kvöld. Ef það er rétt hjá Fergu-
son, þá er við miklu að búast, því
liðið lék frábæra knattspyrnu,
sérstaklega í fyrri hálfleik. Liðið
virðist á hraðri leið með að ná
sama formi og það komst í á síð-
ustu leiktíð, þegar það vann allt
sem í boði var. „Við höfum hagað
öllum æfingum og undirbúningi
miðað við að ná toppi á réttum
tíma og það virðist vera að ganga
eftir,“ sagði Ferguson.
Giggs aldrei betri
Frá því að hafa átt í mesta basli
vegna meiðsla og vandamála með
Ieikmenn fyrr í vetur, hefur
ástandið hjá United breyst í það,
að nú á Ferguson f mestum vand-
ræðum með að ákveða hvaða
leikmenn hann velur hverju
sinni. Eftir leikinn í fyrrakvöld
verður spennandi að sjá hvernig
hann stillir upp gegn Leicester í
ensku deildinni á laugardaginn,
eftir þær breytingar sem hann
gerði á Ieikskipulaginu gegn
Fiorentina. Þar lét hann fram-
herjana spila mjög utarlega og
Giggs, sem er í sínu besta formi í
langan tíma, koma upp miðjuna.
Þetta gerði Ferguson til að rugla
Italana í rfminu og það tókst
bærilega. Þar sem bæði Dwight
Yorke og Andy Cole skoruðu gegn
ítölunum á Ferguson erfitt með
að gera breytingar í fremstu víg-
línu. Þegar hann var spurður um
það, sagðist hann frekar gera ráð
fyrir því stilla upp sama byrjunar-
liði gegn Leicester. Það þýðir að
ég verð að skilja eftir leikmenn
eins og Teddy Sheringham, Ole
Gunnar Solskjær, Nicky Butt og
Quinton Fortune á bekknum.
Þess vegna er aldrei að vita nema
ég skipti um skoðun og stilli upp
gjörbreyttu liði á morgun," sagði
Ferguson.
Staðan og síðustu leikir:
A-riðiII:
Barcelona 5 4 10 15:4 13
Porto 5 2 1 2 7:9 7S
Prag 5 I 2 2 4:10 5
Hertha B. 4 0 2 3 3:7 2
Síðasta umferð 21. mars:
Hertha Berlin - Porto Sparta
Prag - Barcelona
B-riðilI:
Man. Utd. 5 4 0 1 10:4 12
Valencia 5 3 0 2 9:5 9
Fiorentina 5 2 1 2 4:5 7
Bordeaux 50 1 4 2:11 1
Síðasta umferð 21. mars:
Fiorentina - Bordeaux Valencia -
Man. United
C-riðilI:
B. Múnchen 5 4 10 13:6 13
Real M. 5 2 12 10:12 7
D. Kiev 5 2 1 2 8:8 7
Rosenborg 5 0 1 4 5:10 1
Síðasta umferð 22. mars.
Dynamo Kiev - B. Múnchen
Rosenborg - Real Madrid
D-riðill:
Chelsea 5 3 1 1 7:3 10
Lazio 5 2 2 1 8:3 8
Feyenoord 5 2 1 2 7:7 7
Marseille 5 1 0 4 2:11 3
Síðasta umferð 22. mars:
Chelsea - Lazio
Marseille - Feyenoord
ÍÞR ÓTTA VIÐTALID
Á von á að met fjúki
HafþórB.
Guðmundsson
upplýsingafuUtníi IMÍ
íslandsmótið ísutidi inn-
anhússferfram í sund-
laug Vamarliðsins á Kefla-
víkwflugvelli um helgina.
Að sögn Hajþórs B. Guð-
mundssonar upplýsinga-
fulltrúa mótsins á hann
von á skemmtilegu móti
oghýstvið að einhver met
munifalla.
- Hverjir hafa þátttökurétt á
ÍMÍ?
„Sundsambandið setur ákveð-
in Iágmörk fyrir mótið og þarf
sundfólkið að ná þeim á milli
móta frá ári til árs. Alls 102
sundmenn verða meðal þátttak-
enda í ár, en þeir koma frá ellefu
félögum víðsvegar að af landinu,
flestir frá SH, Keflavík og Ægi.
Keppt verður í 40 greinum að
boðsundunum meðtöldum og
eru skráningar alls 483. Þetta er
því sæmilega stórt mót og verður
örugglega mjög líflegt og
skemmtilegt."
- Hvað kemur til að leitað er
til Vamarliðsins með keppnis-
laug?
„Við héldum IMÍ á Keflavíkur-
flugvelli fyrir tveimur árum og
það gafst mjög vel. Laugin hent-
ar einna best allra keppninslauga
á Islandi til mótahalds og bíður
upp á besta aðstöðu og þá sér-
staklega fyrir áhorfendur. Síðasta
IMÍ-mót var haldið í Vestmanna-
eyjum í umsjón IBV, en nú sjá
Keflvíkingar um framkvæmdina í
samvinnu við SSI.“
- Áttu von á spennandi kepp-
ni?
„Eg á von á hörku móti og
mjög spennandi keppni í flestum
greinum. Flest allt besta sund-
fólk landsins verður meðal kepp-
enda og ef við tökum Olympíu-
hóp Sundsambandsins, sem tel-
ur tólf sundmenn, þá verða tíu
þeirra meðal keppenda á mótinu.
Aðeins Ríkharður Ríkharðsson,
sem stundar nám og æfingar í
Bandaríkjunum og Eydís Kon-
ráðsdóttir, sem stundar æfingar í
Ástralíu, verða ekkj með. Þau
synda reyndar á sambærilegum
mótum erlendis á næstunni,
þannig að þau eru Iöglega afsök-
uð. Við fáum óvænta og mjög
skemmtilega heimsókn á mótið,
sem er íslensk-ítölsk sundakona,
sem heitir Flora Christina
Montagni, sem hefur náð mjög
góðum árangri, við æfingar og
keppni á Ítalíu, þar sem fjöl-
skylda hennar býr. Flora, sem er
19 ára, hefur aldrei áður keppt
hér á landi, en þar sem hún á ís-
lenska móður og hefur ekki áður
keppt fyrir Italíu, er hún gjald-
geng með íslenska landsliðinu og
hefur nú ákveðið að synda fyrir
íslands hönd. Hún syndir aðal-
lega 200 og 400 m fjórsund, sem
eru hennar bestu greinar og
einnig er hún góð í baksundi og
skriðsundi og syndir þar einnig
lengri vegalengdir. Lára Hrund
Bjargardóttir hefur verið okkar
besta sundkona í þessum grein-
um og þarna fær hún gagnlegá
og góða samkeppni, sem á örugg-
lega eftir að koma þeim báðum
til góða. Þær hafa náð svipuðum
árangri og eiga báðar mjög góða
möguleika á að ná Ólympíulág-
mörkunum. Lára mun þó ekki
leggja mikla áherslu á fjórsundið
um helgina, þar sem hún mun
reyna við lágmörkin á Sweedish
Grand Prix mótinu í Gautaborg
eftir þrjár vikur, eins og reyndar
fleiri úr Ólympíuhópnum."
- Verður toppfólkð í sínu besta
formi?
„Þar sem árið í ár er Ólympíu-
ár, leggur okkar sterkasta sund-
fólk nú alla áherslu á að ná sett-
um lágmörkum inn á Ólympíu-
leikana. Það er því örugglega í
sínu besta formi, en spurning
hvar það er statt í ferlinu. ÓL-
lágmörkin eru miðuð við árangur
í 50 m laug og þar sem við eigum
enga slíka innilaug hér á landi,
verður sundfólkið að taka þátt í
mótum erlendis, eins og mótinu
í Gautaborg. Allur undirbúning-
inn er því miðaður við að vera á
toppnum á þeim mótum, sem er
mjög eðlilegt. En eins og ég
sagði, þá verður allur Ólympíu-
hópurinn með um helgina, nema
þau Eydís og Ríkharður og munu
krakkarnir örugglega gera sitt
besta. Það er þó ljóst að Örn
Arnarson, sem þegar hefur náð
lágmarkinu í 200 m baksundi,
mun aðeins keppa í boðsundun-
um, en hann þarf að hlífa sér
vegna eymsla í öxl.“
- Áttu von á einhverjum met-
um?
„Eg yrði ekkert hissa þó ein-
hver ný met yrðu sett. Til dæmis
hin unga og efnilega íris Edda
Heimisdóttir, sem nú er kominn
inn í Ólympíuhópinn, en hún er
líkleg til að slá gömlu metin
hennar Ragnheiðar Runólfsdótt-
ur í 100 og 200 m bringusundi.
Þetta eru met sem voru sett árið
1989 og því alveg kominn tími á
að slá þau. Eg veit að Iris Edda
stefnir að því og ég er bjartsýnn á
að henni takist það. Eg á líka von
á því að einhver met fjúki í boð-
sundunum og þar eru stelpurnar
úr SH líldegar í 4x50 skriðsundi
og fjórsundi. Eg á líka von á því
að Örn Arnarson og félagar í SH
muni gera atlögu að boðsunds-
metunum og að Örn muni þar
virkilega gefa í. Yngra fólkið á
líka eftir að láta að sér kveða á
mótinu og ég er viss um að við
fáum að sjá einhver óvænt ald-
ursflokkamet. Ekki vantar efni-
viðinn, enda er framtíðin í sund-
inu mjög björt.“
'UKjUf. ii«