Dagur


Dagur - 12.07.2000, Qupperneq 5

Dagur - 12.07.2000, Qupperneq 5
 MIÐVIKUDAGUR 12. JÚLÍ 2000 - S FRETTIR Áfangasigur hj á Kísiliójiunöramin Gunnar Örn Gunnarsson, framkvæmdastjóri Kísiliðjunnar: Gleðilegt og mikill sigur fyrir Kísiliðjuna. Skipulagsstjðri gefur grænt ljós á efnistöku Kísiliðjuuuar á nýju vinnslusvæði í Syðri- flóa. Efni til 25 ára. Ýmsir fyrirvarar þó settir. Skipulagsstjóri setur ýmsa fyrir- vara við umhverfisáhrif vegna kísilgúrvinnslu úr Mývatni en að uppfylltum skilyrðum fellst hann á kísilgúrvinnslu í ákveðnum hluta Syðriflóa. Annar úrskurður hefur fallið um málið. Skipulags- stjóri vill að svaeðið verði kortlagt nánar með tilliti til vistkerfis vatnsins og ýmsir rannsóknar- þættir dregnir saman og auknir. Eigi að síður er það mat fram- kvæmdastjóra Kísiliðjunnar að fyrirtækið hafi unnið sögulegan áfangasigur. ,Aðalniðurstaðan er að það er búið að heimila okkur námu- vinnslu á svæði 2 í Syðriflóa og það er mjög gleðilegt og mikill sigur fyrir Kísiliðjuna. Þar með er búið að taka undir okkar mál- flutning," segir Gunnar Orn Gunnarsson, framkvæmdastjóri Kísiliðjunnar. 25 ára framtíðaröryggi? Svokallað svæði 2 er í Syðriflóa en í þeim hluta vatnsins hefur verksmiðjan aldrei haft vinnslu- Ieyfi. Nú blasir við efnisþurrð í Ytriflóa en ef verksmiðjan fær heimild til að dæla á svæði 2 þýðir það mjög þykkan hráefnis- gúr sem talinn er nægja verk- smiðjunni til 20-25 ára að sögn Gunnars Arnar. Hann segist þó ekki líta svo á að verksmiðjan geti farið á þetta nýja svæði án nokkurra málalenginga. Alls séu um átta fyrirvarar settir en hann telji hægt að uppfylla skilyrðin. Fyrst muni fyrirtækið leita sér ráðgjafar í nánari túlkun úr- skurðarins. „Eg sé ekki betur en að við þurfum að ræða við iðnað- arráðuneytið vegna þess að ráðu- neytið gefur okkur nýtingarleyfi byggt á þessum úrskurði. Fljótt á litið er ég hins vegar ekki í vafa um að þetta sé sögulegur áfanga- sigur.“ Kísiliðjan hefur að sögn Gunn- ars Arnar varið um 40 milljónum í rannsóknir fyrir matsskýrslur og er það mikið fé fyrir ekki stær- ra fyrirtæki. Sum skilyrða skipu- lagsstjóra virðast kalla á enn meiri fjárútlát, ráða hluthafar við það? „Sumt af þessu er þegar til staðar eins og vöktunarrann- sóknir á fuglum og fiski en ann- að er svolítið óljóst. Við þurfum að fá úr því skorið hvað átt er við í sumum atriðanna, hvort þau séu framkvæmanleg fyrir okkur en ég er bjartsýnn á að svo sé,“ segir Gunnar Orn. Ekki alls staðar húrra Framkvæmdastjóri Kísiliðjunnar segir starfsmönnum mjög létt eftir úrskurðinn en þó þori menn ekki að hefja húrrahrópin fyrr en málið skýrist nánar. Ekki munu allir hrópa húrra. Kísilgúrtakan í Mývatni hefur ávallt verið um- deild og má ganga að því sem gefnu að ef fyrirtækið hefur dæl- ingu í Syðriflóa, muni sumir heimamanna verða ósáttir. Líf- fræðingar og aðrir í hópi nátt- úruverndarsinna hafa velt upp spuningum um skaðsemi fyrir- tækisins á lífríki Mývatns í tím- ans rás. Engin óyggjandi niður- staða hefur fengist í aðra hvora áttina, þrátt fyrir áratuga rann- sóknir. -BÞ Úlafur Ragnar Grímsson. Forsetiim á Ströndum Opinber heimsókn Ólafs Ragn- ars Grímssonar forseta í Strandasýslu hófst í gærmorgun og henni Iýkur í kvöld. Heim- sóknin hófst með því að Bjarni Stefánsson sýslumaður tók á móti Ólafi uppi á Holtavörðu- heiði. Þaðan lá leiðin í Brú í Hrútafirði, þar sem gamla sím- stöðin var skoðuð í nýju hlut- verki. Hádegisverður var síðan á Borðeyri, auk þess sem leikskól- inn þar og Riis-húsið voru heim- sótt. Síðdegis í gær var Ólafur m.a. viðstaddur nýstárlega hrútasýningu á bænum Húsavík og snæddi kvöldverð á Café Riis á Hólmavík. Ólafi var hvarvetna tekið með kostum og kynjum, Strandamenn í sumarskapi þrátt fýrir þungbúið veður. I dag ferðast forsetinn um Hólmavíkurhrepp og Arnes- hrepp, heimsækir Drangsnes og lýkur heimsóknni svo á Arnesi í kvöld með hátíðardagskrá. Umsj ónamefndar að skerast í lelldnn Úlga ríkir nú í leigubílabransanum. Formaður Frama ótt- ast að verði ekki grip- ið í taumana geti skálmöldin við Leifs- stöð endað með að farið verði að vara ferðamenn við ís- lenskum leignbíl- stjórum. „Að sjálfsögðu ætti umsjónar- nefndin á Reykjanesi að skerast þarna í leikinn, því þetta er alfar- ið þeirra svæði og þeir eiga að halda þarna uppi ákveðnum reglum, sem hún gerir ekki. Ég veit ekki til að hún hafi einu sinni komið saman síðan hún var sett á í haust,“ sagði formað- ur Frama og Bandalags ísl. leigu- hifreiðastjóra, Asgeir Þorsteins- son, þegar Dagur rætti við hann „skálmöldina" í fólksflutningum við Leifsstöð. Asgeir segir það ekki á valdi félaganna að skcrast í leikinn. Séu viðskiptavinir krafðir um of hátt gjald væri það lögreglumál. „En það hefur ekki reynt á slíkt svo ég viti.“ Frægir að endemum? - Gætu þessi læti jafnvel ekki leitt til þess að varað yrði við íslensk- um leigubílstjórum í ferðabæk- lingum, líkt og dæmi eru um í öðrum löitdum? „Eg vona að það komi aldrei til þessa hér, en með sama áfram- haldi hlýtur það að gerast. Og þá bitnar þetta á allri stéttinni, sem telur um 650 menn, þótt þetta eigi aðeins við um örfá bíl- stjóra. Þetta gerðist t.d. í Sví- þjóð, þar scm ferðamenn eru nú varaðir við að fara þar upp í leigubíl t.d. við flugstöðvar, án þess að hafa allt fyrirfram á hreinu." Hreinn dónaskapur Um það Ieigubílstjórar við Leifs- stöð neiti að keyra fólk til Kefla- víkur, eins og oft og víða hefur verið haldið fram segir Asgeir: „Slíkt er bara hreinn dónaskap- ur. Menn hafa þetta atvinnuleyfi til að þjóna fólki á því svæði sem það gildir á, og þeir eiga ekki að geta neitað svonalöguðu.*1 En svipað dæmi hafi komið upp hér í Reykjavík fýrir nokkrum árum, í kringum skemmtiferðaskipin. Menn hafi þá neitað farþegum um túr um í bæinn og bara vilj- að lengri túra t.d. í Bláa lónið eða Gullfossi. „Þetta var ná- kvæmlega sami dónaskapurinn. En það var tekið á málunum og talað við menn og þeir hættu þessu, að ég best veit.“ Sérstakt tilfelli.. Asgeiri líst ekki á þá hugmynd, sem samgönguráðherra hefur viðrað að hugsanlega þyrfti að endurskoða svæðaskiptinguna í ljósi síðustu atburða. Gera höf- uðborgarsvæðið og Suðurnesin að einu leigubílasvæði. „Eg Iít þannig á málin, að það er alveg sérstakt tilfelli sem er að gerast þessa dagana og menn mega ekki blína of mikið á það.“ Væri þetta eitt svæði óttast Asgeir að Reyknesingar yrðu bara suður- frá á sumrin, meðan þar er ágætt að gera, en í Reykjavík á veturna og enginn bíll suðurfrá til að sinna heimamönnum þar. Sem krefðust þá fleiri bíla. „Málið er að halda uppi þjónustunni. En ég sé ekkert vit í þvf að það sé alls staðar fullt af bílum og mcnn plokkandi augun hver úr öðrum og hafi jafnvel sára Iítið út úr dæminu. Og hvað þá?“ -HEI LÍU gefur þyrluvaktinni Landssamhand íslenskra útvegsmanna kom færandi hendi í gær í flugskýli Landhelgisgæslunnar og gaf þjTluvaktinni tækjabúnað að verðmæti ríflegra 1,6 milljóna króna. Búnaðurinn nefnist Lifepackl2 og inniheldur hjartarafsjá, stuðtæki og gangráð. Þetta er fullkominn búnaður og nýtist þyrluvaktinni vel til eftirlits og meðferðar sjúkra og slasaðra. A myndinni eru f.v. Friðrik Sigurbergsson, Magni Óskars- son, Jóhannes Pálmason, Páll Halldórsson, Friðrik Arngrímssön, Ei- ríkur Tómasson og Hjörtur Gíslason. -MYND: INGÓLFUR Vín, jámbraut og hauggas í horgarráði Borgarráð Reykjavíkur fundaði í gær. Þar var m.a. samþykkt að fram- lengja Ieyfi nokkurra veitingahúsa til að hafa opið um ótakmarkaðan tíma. Leyfið átti að renna út 19. júlí nk. en það var framlengt til 10 mánaða. Þá ákvað borgarráð að leggjast ekki gegn því erindi ÁTVR að fá að opna vínbúð á Spönginni í Grafarvogi, á því svæði sem Þyrp- ing, eignarhaldsfélag Hagkaupsfjölskyldunnar, hefur til umráða. Lagt var fram á fundi borgarráðs beiðni stjórnar veitustofnana að Iáta fara fram forval á aðilum til að gera hagkvæmnisathugun á járn- braut milli Reykjavíkur og Keflavíkur. Forvalið fari þá fram á evr- ópska efnahagssvæðinu. Málið hlaut ekki afgreiðslu í gær. Loks var lagður fram í borgarráði samningur milli Orkuveitu Reykjavíkur og Metans hf. um framleiðslu raforku úr hauggasi.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.