Dagur - 09.09.2000, Blaðsíða 6
6 - LAUGARDAGUR 9 . S E P T E M B F. R 2 00 0
Útgáfufélag:
Útgáfustjóri:
Ritstjóri:
A ðstoðarritstjóri:
Framkvæmdastjóri:
Skrifstofur:
Simar:
DAGSPRENT
EYJÓLFUR SVEINSSON
ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
BIRGIR GUÐMUNDSSON
MARTEINN JÓNASSON
STRANDGÖTU 3T, AKUREYRI,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
460 6100 OG 800 7080
Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is >
Áskriftargjald m. vsk.: 1.900 KR. Á mánuði
Lausasöiuverð: iso kr. og 200 kr. helgarblað
Grænt númer: 800 7080
Netföng auglýsingadeildar: karen@dagur.is-augl@dagur.is-gestur@ff.is
Símar augiýsingadeiidar: CREYKJAVfK)563-1615 Ámundi Ámundason
[REYKJAVÍK)563-1642 Gestur Páll Reyniss.
(AKUREYR 1)460-6192 Karen Grátarsdóttir
Símbréf auglýsingadeildar: 460 6161
Símbréf ritstjórnar: 460 6171(akureyri) 551 6270 creykjavík)
Pólltískt upphlaup
í fyrsta lagi
Sú staðreynd að sjálfstæðismenn hafa beitt ríkisvaldinu af fullri
hörku í berserksgangi sínum gegn Reykjavíkurlistanum, fer eðli-
lega afar illa í ýmsa framsóknarmenn og magnar þann pirring sem
einkennt hefur stjórnarsamstarfíð að undanfömu. Alfreð Þor-
steinsson, einn af leiðtogum framsóknarmanna í Reykjavík, hefur
brugðist við yfirgangi Sjálfstæðisflokksins með kröfu um að fram-
sóknarmenn leiti samstarfs til vinstri eftir næstu þingkosningar -
en tilhæfulausar árásir sjálfstæðismanna í borgarstjórn, ráðherra-
stólum og hjá Landssímanum hafa mjög beinst að þessum for-
ystumanni Framsóknarflokksins.
í ððru lagi
Hamagangurinn gegn Reykjavíkurlistanum er merki um þann
taugatitring sem ríkir innan Sjálfstæðisflokksins nú þegar styttist
í kosningar til borgarstjómar, en það yrði meiriháttar pólitískt áfall
fyrir flokkinn að tapa borginni í þriðja sinn í röð. A sama tíma
blasir við alvarleg forystukreppa innan borgarstjómarhóps sjálf-
stæðismanna. Margir borgarfulltrúar keppast um að vekja á sér at-
hygli í von um að fá að leiða flokkinn í komandi borgarstjórnar-
kosningum og grípa hvert tækifæri til að ráðast gegn meirihlutan-
um. Slík upphlaup snúast hins vegar oftar en ekki gjörsamlega í
höndum þeirra sem upphafið eiga og eru ólíkleg til að lyfta þeim
í foringjasætið.
í þriðja lagi
Meirihlutinn í borginni hefur brugðist skjótt við pólitískum árás-
um sjálfstæðismanna, bæði með því að stefna að víðtækum útboð-
um á símaþjónustu borgarinnar og eins með því að beina kastljós-
inu að þeim áhrifamönnum Sjálfstæðisflokksins sem kasta gijóti
úr glerhúsi. Herför sumra ráðherra Sjálfstæðisflokksins er einnig
farinn að hafa slæm áhrif á samskipti ríkisvaldsins við sveitarfélög
almennt og kann að torvelda skynsamlega endurskoðun á skipt-
ingu tekjustofna á milli ríkis og sveitarfélaga. Framsóknarmenn í
ríkisstjórninni hljóta að leggja kapp á að hindra slíka skemmdar-
starfsemi. Elías Snæland Jónsson.
Bessastaði út á land!
Það fór vist ekki framhjá
landsmönnum að í síðustu
viku kom mikil hersing tignar-
manna í heimsókn til lslands
og höfðu heimaráðamenn
varla undan í móttökustarf-
semi og kokkteilboðum og
flestir sótraftar á sjó dregnir í
þeim efnum. Hér voru á ferð á
sama tíma forseti Kínaþings,
Li Peng, for-
seti þýska sam-
bandsþingsins
Wolfgang Thi-
erse, forseti
Litháens,
Valdas Adam-
kus og að auki
litu þeir við
Klaus Buhler, forseti Vestur-
Evrópusambandsins, Schröder
kanslari Þýskalands og Fischer
utanríkisráðherra sama lands.
Flestum var tekið af gest-
risni og sumum boðið til
Bessastaða, á Þingvöll og að
Gullfossi, eins og Iandsmenn
sáu í sjónvarpinu. Og oftar en
ekki var þetta blessað fólk
staðsett undir regnhlífum og
hélt sér fast, því vindurinn tók
í og gat á hverri stundu svipt
því á loft upp, rétt eins og
Mary Poppins um árið.
Nöturlegt var og að sjá mót-
tökuathafnir á vindgnúnum
tröppum Bessastaða, þar sem
stormurinn færði fokdýrar
hárgreiðslur kvenna úr lagi og
svipti silkibindum upp úr boð-
ungum karla.
Þetta er náttúrlega ekki,
ekki, ekki þolandi.
Veðurbarðir gestir
Staðreyndin er auðvitað sú,
eins og dæmin sanna, að það
gengur ekki lengur að taka á
móti tignarmönnum á Bessa-
stöðum eða suðvesturhorninu
yfir höfuð. Allt of oft höfum
við séð kóngafólk og aðra af
sama sauðahúsi hrekjast und-
V
an veðri og vindum í opinber-
um heimsóknum á þennan
landshluta. Og yfirleitt er á
sama tíma uppstyttulaust blíð-
viðri fyrir norðan og austan.
Þannig að það liggur í hlutar-
ins eðli að ef hinir tiginbornu
gestir eða réttkjörnu ráða-
menn sem hingað koma,
mættu sjálfir velja sér við-
komustað, þá
væru Akureyri,
Húsavík og Eg-
ilsstaðir örugg-
lega ofar á list-
anum en
Bessastaðir og
Reykjavík.
Logn á tröppunmn
Hér eru góð ráð dýr, en Garri
býður þau ókeypis. Mikið
argaþras hefur staðið um
flutning opinberra fyrirtækja
út á land. Þessir flutningar
hafa gengið afar treglega, fyrst
og fremst vegna andstöðu
þeirra sem starfa hjá viðkom-
andi stofnunum í Reykjavík og
sú stofnun reyndar þótt vand-
fundin þar sem starfsmenn
eru fúsir til að taka þátt í svo
öfugum landsbyggðarflótta.
En ein slík stofnun er reyndar
til, þó enginn hafi á minnst,
sem sé forsetaembættið.
Við flytjum Bessastaði ein-
faldlega út á land með forseta,
Dorrit, manni og mús! Varla
færi Olafur allra landsmanna
að mótmæla því að fá tækifæri
til að fjarlægjast Jón Steinar og
Hannes Hómstein. Og um Ieið
væri búið að leysa móttöku-
vanda stórmenna sem héðan í
frá gætu sleikt sólskinið í logn-
inu á tröppum Bessastaða á
Sauðárkróki eða Vopnafirði, í
stað þess að þurfa að rigna
niður eða fjúka á haf út á
Álftanesinu. — GARRI
BJÖRN
Þ0RLÁKS-
S0N
SKRIFAR
Heilsa hlutabréfsins
Fréttir af íslenskum hlutabréfa-
markaði eru heldur daprar um
þessar mundir. Samanlagður
hagnaður hlutafélaga á Verð-
bréfaþingi Islands fyrstu sex
mánuði ársins er meira en tíu
sinnum minni en á sama tíma í
fyrra. Kaupþing segir horfurnar
ekki góðar og segir einn sérfræð-
inga fyrirtækisins að hjartalínurit
bréfanna kalli nánast á gjör-
gæslu.
Þetta eru slæm tíðindi fyrir ís-
lenskt efnahagslíf. Þátttaka al-
mennings hefur vaxið í eignarað-
ild fyrirtækja og margir fylgjast
ekki bara af þjóðhagslegum
áhuga með hreyfingunum á
hlutabréfamarkaði heldur eiga
einnig beinna fjárhagslegra
hagsmuna að gæta. Málið varðar
því stóran hluta þjóðarinnar, cn
ekki allan. Velmegun af hluta-
bréfabraski virðist t.d. aðallcga
hafa hlotnast fáeinum einstak-
lingum. , .......
Fólkið í næsta húsi er með
250.000 króna samanlagðar
mánaðartekjur. Hann starfar
sem kennari en
hún er hjúkka.
Hjónin veittu sér
þann munað að
eignast þrjú börn
og eftir sífelld hús-
næðisskipti á
leigumarkaði, var
ákveðið að Ijárfesta
í fasteign með
hjálp húsbréfa og lánastofnana.
Föst greiðslubyrði þessara hjóna
er um 80% af ráðstöfunarfé og
þá eru cngir peningar eftir til að
kaupa hlutabréf. Ekki heldur til
að eyða aukalega í lífeyrissparn-
að.
Við hliðina á þessu fólki búa
önnur hjón en í stærra húsi.
Hann er í góðri stöðu í svoköll-
uðum peningaheimi og hún star
far við ráðgjöf. Engum spurnum
fer, af hennar launum en vand-
séð er hvað réttlætir að hann
skuli vera með milljón á mánuði
fyrir jafnlangan vinnudag og
fólkið við hliðina.
Það vekur líka
spurningar að
þessi sami maður
hefur sagt á 4.
glasi að hann hafi
grætt tugi milljóna
á verðbréfum.
Hvað fór úr-
skeiðis hjá opin-
beru starfsmönnunum? Mennt-
un þeirra tók jafnlangan tíma og
hjá peningamanninum svokall-
aða. Mannkostir og greind þess-
ara aðila eru hin sömu en áhuga-
sviðin voru ólík. Öðrum er hegnt
fýrir að starfa í þágu samfélags-
ins en kapítalistinn hlýtur verð-
laun. Fyrir öðrum er borin virð-
ing. Hinum ekki.
Hvort er mikilvægara velferð
barnanna okkar eða heilsufar
hlutabréfanna? Svarið hlvtur að
liggja í kjarasamningum framtíð-
arinnar og löngu tímabærri við-
horfsbreytingu. Þótt misskipting
auðsins sé staðreynd í dag er
ekkert sérstakt sem segir íslend-
ingum að þannig eigi það að vera
um ókomna tíð. Ekki l’rekar en
gengi bréfanna er fallvalt og nú
tíu sinnum verra en í fyrra.
I gær birti Dagur l'rétt um til-
lögur starfshóps hjá Akureyrar-
bæ. Niðurstaða hópsins í Iauna-
málum bæjarins er að hugsan-
lega þurfi persónubundna samn-
inga við hvern og einn til að
hægt sé að keppa við almennan
vinnuniarkað. Kennarar og um-
önnunarfólk hafa ekkert eigin-
legt val heldur en á sama tíma
ef’ast enginn um mikilvægi starfa
þeirra. Reyndar telja velflestir að
hlutabréfabraskarar séu ckkí
ómissandi en öðru máli gegnir
uni hjúkrun, uppeldi og mýmörg
önnur vanmetin störf.
Fer hynþáttahatur á ís-
landi vaxandi?
SverrirPáll Erlendsson
memitaskólakennari áAkureyri.
„Lengi höfum
við Islendingar
haldið því fram
að við séum for-
dómalausir í
garð fólks af öðr-
urn kynstofnum.
En þegar á reynir verða því mið-
ur árekstrar og þeim fjölgar.
Ástæðurnar eru margar. Sumir
óttast um hagsmuni sína og við
höfum því miður notað fólk af
öðru þjóðerni sem ódýrt vinnu-
afl. Ein ástæðan enn gæti verið
sú að sumir telja að verið sé að
ógna norrænum uppruna okkar
Islendinga. Allt þetta þykir mér
fásinna, því ef við förum langt
aftur erum við Islendingar eins
og allt annað norrænt fólk frá
Asíu.“
Guðrún Ögmundsdóttir
þingmaðurSamJylkingar.
„Kynþáttafor-
dómar eru að
verða sýnilegri
og við því þurf-
um við að bregð-
ast og læra af
mistökum ann-
ara þjóða. Fyrst og síðast þurfum
við íslendingar að líta á þátttöku
fólks af erlendu bergi brotið sem
jákvætt innlegg. Og ég minni á
að þetta fólk skiptir verulegu
máli í gangvirki samfélagsins, til
dæmis í ferðaþjónustu, umönn-
unarstörfum, sjávarútvegi og
ekki síður menningarlífinu, til
dæmis er stór hluti hljóðfæra-
leikara í Sinfóníuhljómsveit ís-
lands einmitt útlendingar."
Hjálmar Sveinsson
útvarpsmaðnr.
„Vandinn er
vissulega til stað-
ar, en ég held að
hann sé ekki að
aukast - því út-
lendingum hér á
landi er að fjölga
og fólk er í æ ríkari mæli að upp-
lifa að við erum hluti af fjölþjóð-
legu samfélagi. En ef ég miða við
mína æsku þá man ég eftir því að
mikið var glápt á svart fólk á göt-
unum og enn er ég með sam-
viskubit yfir því að hafa ekki fyr-
ir mörgum árum, þá rétt um
fermingu, komið til hjálpar
Grænlendingi sem verið var að
gera at í Hafnaríjarðarstrætó.“
Sr. Pétur Þorsteinsson
prestur Óháða safnaðarins.
W „Þar sem ég
þekki vel til og
starfa, á Elli og
hjúkrunarheim-
ilinu Grund, þar
starfa nokkrar
súkkulaðilitaðar
stúlkur og ég fæ ekki betur séð
en |jar séu hvarvetna umvafðar
og allra eftirlæti. En sjálfsagt
gæti þctta breyst ef harðna
myndi á dalnum í íslensku cfna-
hagslífi, þá þætti sjálfsagt ein-
hverjum að útlendingar væru að
taka vinnu frá okkur Islending-
um. Kynþáttahatur er til staðar á
. tslajr(4i..“ , , „k,,,,..