Dagur - 14.10.2000, Qupperneq 5
LAVGARDAGUR 14. OKTÚBER 2000 - 29
FRÉTTIR
Nýi banMnn verði
tilbúiim um áramót
Viðskiptaráðherra greinir frá samþykkt ríkisstjórnarinnar á fréttamannafundi í gær.
Lagafmmvarp á leið-
inni sem gerir spari-
sjóðunum mögulegt
að sameinast. Óskað
eftir forúrskurði
samkeppnisráðs
vegna sameiningu
ríkisbankanna.
Valgerður Sverrisdóttir við-
skiptaráðherra skýrði frá því á
fréttámannafundi í gaer morgun
að ríkisstjórnin hefði ákveðið
að beina þeim tilmælum til
bankaráða Landslianka og Bún-
aðarbanka að hefja viðræður
um samruna bankanna. Jafn-
framt að bankaráðin óski eftir
forúrskurði samkeppnisráðs
samkvæmt 18. greina sam-
keppnislaga. Stefnt er að því að
nýr ríkisbanki taki til starfa um
áramótin.
I raun þýðir þetta að ákveðið
hefur verið að sameina ríkis-
bankanna. Og að vegna stærðar
Landsbankans er beðið um
þennan forúrskurð samkeppnis-
ráðs. Dagur hefur áður skýrt frá
því að þetta sé nauðsynlegt því
nýr ríkisbanki myndi verða með
um 60% af markaðnum sem er
of stór biti til þess að samkeppn-
isráð geti samþykkt samrunann.
Þess vegna eru allar líkur á að
taka verði Landsbréf og VIS út
úr Landsbankanum.
Viðskiptaráðherra staðfesti
að „líkur væru á að eitthvað
yrði að taka út úr Landsbank-
anum.“
Lagafrumvarp
um sparisjóðina
Valgerður staðfesti líka í gær að
í smíðum væri lagafrumvarp til
þess að gera sparisjóðunum
kleift að hagræða hjá sér með
sameiningu. Og eins og komið
hefur fram í fréttum Dags hef-
ur verið rætt um það bak við
tjöldin að sameina sparisjóðina,
Landsbréf, VIS og Frjálsa fjár-
festingarbankann og mynda
þannig öfluga peningastofnun,
álíka stóra og nýja ríkisbankann
og Íslandsbanka/FBA. Það er
tæplega tilviljun að Frjálsi fjár-
festingarbankinn opnaði í gær
og auglýsti sig myndarlega.
Varðandi samruna ríkisbank-
anna, sem ríkið á 2/3 hlutafjár
í, hefur viðskiptaráðherra sett á
laggirnar þriggja manna starfs-
hóp til að gæta hagsmuna ríkis-
ins í sameiningarferlinu.
Bankaráðin eiga að hafa náið
samstarf við þennan starfshóp
en hann skipa Þorgeir Orlygs-
son, ráðuneytisstjóri formaður
og einkavæðingarnefndar-
mennirnir Jón Sveinsson og
Hreinn Loftsson.
Valgerður Sverrisdóttir sagði
að stefnt væri að því að hafa til-
búið lagafrumvarp um samein-
ingu bankanna í desember þan-
nig að hægt væri að afgreiða
það fyrir jól því stefnan væri
sett á að nýr ríkisbanki yrði til
um áramót. - S.DÓR
Stjórn starfsmanna Búnaðarbanka
hefur ályktað um samrunann
Vilja eyða
óvissu fljótt
Stjórn Starfsmannafélags Búnað-
arbankans kom saman til fundar í
gær vegna sameiningar ríkisbank-
anna og sendi síðan frá sér eftir-
farandi ályktun þar sem lögð er
áhersla á að það sé enn skoðun
stjórnarinnar að hag eigenda, við-
skiptamanna og starfsmanna
bankans sé best borgið með
áframhaldandi rekstri Búnaðar-
bankans undir þeim sömu for-
merkjum og verið hefur. En úr
því sem komið sé telur stjórnin
ástæðu til að leggja áherslu á
nokkur atriði sem skipti máli. I
fyrsta lagi er lögð áhersla á að
ferlið sem sett var af stað í gær-
morgun gangi fljótt íyrir sig þan-
nig að óvissu verði eytt.
I öðru lagi að fulltrúar starfs-
manna bankanna eigi beina aðild
að þeim samrunaviðræðum sem
framundan eru. I þriðja lagi að
tryggt verði að sú hagræðing sem
stefnt er að því að ná fram með
samrunanum leiði ekki til Ijölda-
uppsagna starfsmanna.
Loks segir í samþykkt stjórnar-
innar: „Stjórn SBI gengur jákvæð
til þeirra viðræðna sem framund-
an eru vegna samruna bankanna
og lítur á fyrirhugaðan samruna
sem sóknarfæri fyrir bæði fyrir-
tækin á jafnréttisgrundvelli."
Saltfiskverðið hefur
hækkað uin 18%
Verð á saltfiski á
jjeim mörkuðum í
Evrópu sem íslend-
ingar eiga helst við-
skipti á er mjög hátt
um þessar mundir og
hefur hækkað um
18% frá því á sl.
vetri og fást nú um
510 krónur fyrir
kílóið af besta fiskin-
um.
Róbert Agnarsson; fram-
kvæmdastjóri hjá SIF, segir
skýringar á háu verði sé fyrst og
fremst að leita til þess að lítill
fiskur sé á ferðinni, ekki það að
neysla sé að aukast á helstu
markaðssvæðunum, s.s. í
Portúgal.
„Það er ekki að draga umtals-
vert úr saltfiskvinnslu á Islandi
heldur hefur útflutningur auk-
ist það sem af er ári miðað við
það sem var á árinu 1999. Hins
vegar hefur dregið veridega úr
saltfiskútflutningi Norðmanna
vegna þess að kvótinn þar hefur
minnkað og dregið úr vinnslu
svo heildarframboðið á saltfiski
hefur dregist saman. Það er
gjarnan þannig
að þegar verð
hækkar verður
saltfisku rinn
fýsilegri kostur
á kostnað fryst-
ingar. A móti
kemur að gengi
dollars hefur
styrkst veru-
lega og meira
fer af frystivör-
unni til Anter-
íku. Það getur
verið vænlegur
kostur að hafa
val á milli sölt-
unar og fryst-
ingar en þeim
hefur faekkað
umtalsvert sem
eru í hvoru
tveggja vegna
aukinnar sérhæfingar svo það
verða engar byltingarkenndar
breytingar í vinnslunni," segir
Róbert Agnarsson.
Gísli Svan Einarsson, útgerð-
arstjóri Fiskiðjunnar Skagfirð-
ings, segir að mjög lítið hafi
veiðst af bolfiski að undan-
förnu, aðallega þorski, og það
sem veiðist sé fremur smátt og
henti illa til saltfiskverkunar
enda skilar stóri fiskurinn alltaf
meiru í saltfiskinum. Saltfisk-
vinnsla cr ekki mikil hjá FISK,
aðallega frysting, svo áhrif
þessa háa
verðs eru ekki
mikil á heild-
arútflutnings-
verðmæti fyr-
irtækisins.
„Verð á
frystum afurð-
um hefur
lækkað í hlut-
falli við gengi
evrunnar sem
hefur verið
lágt, og það
veldur þeim
sem framleiða
á Evrópu-
markað viss-
um vandkvæð-
um. Ég held
hins vegar að
óhemju hátt
verð á saltfiski
megi rekja til skorts á saitfiski á
saltfiskmörkuðum á sama tíma
og við höfum verið að sjá
óhemju hátt verð á frosnunt
fiski, sem eitthvað er þó að dala
núna. Verðið hefur lækkað
vegna þess að gengi krónunnar
hefur verið svo sterkt. Það er
rnjög tregt fiskerí á togurum en
það er heilmikill fiskur á grunn-
slóð, eins og t.d. hér á Skaga-
firði," segir Gísli Svan Einars-
son.
- GG
Ólympíufarar á Bessastöðuin
Móttaka var fyrir íslensku olympíufar-
anna að Bessastöðum í gær. 1 ávarpi sínu
sagði Forseti Islands m.a. að hann von-
aðist til þess að árangur íþróttamann-
anna yrði til þess að efla íslenska íþrótta-
hreyfingu. Vala Flosadóttir, bronsverð-
launahafi í stangarstökki, var meðal þeir-
ra sem var í móttökunni en hún kom til
landsins í gær og var fagnað í Leifsstöð af
íþróttafólki úr IR og formanni félagsins
ásamt menntamálaráðherra, Birni
Bjarnasyni. Frjálsíþróttasamband ls-
lands mun á sunnudag afhenda þeim
Völu Flosadóttur og Vilhjálmi Einarssyni
viðurkenningar fyrir að hafa unnið til
verðlauna á Ólympíuleikum. Athöíhin
fer fram á Hótel Borg og mun Davíð
Oddsson, forsætisráðherra afhenda
verðlaunin að xdðstöddum öllum þeim
ólympíuíiirum Islands í frjálsum íþrótt-
um frá upphafi sem eiga heimangengt.
SÓL gegn stækkun álvers í HvaHirði
Samtökin um óspillt land í Hvalfirði, SÓL í Hvalfirði, hafa lýst yfir undr-
un sinni og áhyggjum af fréttum um mikla stækkun álversins á Grundar-
tanga í Hvallirði. 1 ályktun frá samtökunum segir m.a. Norðurál óski eft-
ir stækkun úr 90 þúsund tonnum í 300 þúsund tonn á næstu 3 árum.
SÓL í Flvalfirði mótmæla þessum hugmyndum, þar sem augljóst sé að
þeirra mati að lífríki Hvalíjarðar mun bera verulegan skaða af slíku álveri.
Ljóst megi vera að í hugmyndum um byggingu álvers í 300 þúsund tonn
á þremur árum felist aö mat á unihverfisáhrifum framkvæmdanna sé ætl-
að að vinnast á óeðlilega skömmum tíma, sem ekki vcrði þolað. Samtökin
minna einnig á Kyoto-bókunina um losun gróðurhúsalofttegunda og
benda á, að þær hugmyndir, sem nú eru uppi um uppbyggingu álvera aust-
anlands og vestan eru í hrópandi ósamræmi við samþykktar hugmyndir al-
þjóðasamfélagsins um minnkandi losun gróðurhúsalofttegunda. - GG
Vala Flosadóttir