Dagur - 26.10.2000, Blaðsíða 1
320 milljóiiir á ári
í lífeyri ráðherra
Lífeyrisskuldbinding-
ar ríkissjdðs vegna
sjóða þingmanna og
ráðherra hækkuðu uin
903 milljónir í fyrra
og voru 4 milljarðar
um áramót. Heildar-
skuldhindingar opin-
hera lífeyrissjóðakerf-
isins eru 145 miUj-
arðar.
Skuldir ríkissjóðs vegna lífeyris-
sjóða ráðherra og þingmanna
samsvara um tveimur þriðju af
öllum eignum Viðlagatryggingar
Islands, svo þeir þurfa varla að
búa við kröpp kjör í ellinni. Líf-
eyrisskuldbindingar ríkissjóðs
vegna Lífeyrissjóðs ráðherra
hækkuðu yfir 320 milljónir á síð-
asta ári. I árslok voru lífeyris-
skuldbindingar ríkisins vegna
þessa örlitla hóps orðnar 690
milljónir, eftir 89%
hækkun á aðeins einu
ári. Þetta kemur fram
í nýrri skýrslu Ríkis-
endurskoðunar.
Núverandi og fyrr-
verandi ráðherrar eiga
lfka fullan rétt í Líf-
eyrissjóði alþingis-
manna. Og skuldhind-
ingar ríkissjóðs vegna
hans hækkuðu um
nær 580 milljónir á
árinu. Svo aðeins á þessu eina
ári hækkuðu skuldir ríkissjóðs
um 903 milljónir vegna aukinna
lífeyrisréttinda þingmanna og
ráðherra. Það er til dæmis um
fimm sinnum hærri íjárhæð en
nýleg hækkun frítekjumarks líf-
eyrisþega (minni skerðing vegna
tekna maka) kostar ríkissjóð á
einu ári - eða um þriðjungur alls
örorkulífeyris sem Iífeyrissjóð-
irnir greiddu í fyrra.
RíMð greiðir um 80%
Lífeyrisskuldbindingar ríkissjóðs
vegna þingmanna og ráðherra
fóru yfir 4 milljarða í
fyrra (sem jafngildir
nær 20 þúsundum á
hvern framteljanda).
Þetta jafnast á við nær
tvo þriðju alls eigin
fjár Viðlagatryggingar
íslands (6,4 milljarð-
ar), en henni er ætlað
að standa undir öllum
tjónum vegna nátt-
úruhamfara á Islandi.
Eða meira en þriðjungi
lífeyrisskuldbindinga ríkissjóðs
vegna Lífeyrissjóðs hjúkrunar-
fræðinga, sem eru á þriðja þús-
und talsins) - en þær skuldbind-
ingar hækkuðu aðeins um 690
milljónir í fyrra.
I lífeyrissjóð ráðherra greiðir
vinnuveitandinn, það er skatt-
greiðendur, 80% á móti 4% fram-
lagi ráðherra sem öðlast full rétt-
indi á nokkrum árum eða „14
sinnum hraðar en í sjóðum okk-
ar venjulega fólksins,“ eins og
Guðmundur Gunnarssonar orð-
ar það á vefsíðu Rafiðnaðarsam-
bandsins.
Skuldbindingar ríkissjóðs
vegna sjö lífeyrissjóða opinberra
starfsmanna voru orðnar 145
milljarðar í fyrra, rúmum 50
milljörðum hærri en í ársbyrjun
1998. Hæsta upphæðin er
vegna B-deildar starfsmanna rík-
isins, 123 milljónir.
Ríkisendurskoðun segir að í
fyrra hafi farið fram trygginga-
fræðileg úttekt á sjóðstreymi B-
deildar lífeyrissjóðs starfsmanna
ríkisins og hjúkrunarfræðinga.
Hún hafi leitt í ljós að miðað við
lögbundnar greiðslur til sjóð-
anna muni þeir tæmast eftir 15-
20 ár (ráðherra- og þingmanna-
sjóðirnir eru Iöngu galtómir).
Eftir þann tíma yrði ríkissjóður
að hefja greiðslur vegna baká-
byrgðar sinnar. Eftir 1 5 ár gætu
þær numið um 6-7 milljörðum á
ári og einum 1 5 milljörðum á ári
eftir 30 ár. Og jafnvel þótt ið-
gjaldagreiðslur til sjóðanna væru
tvöfaldaðar þyrfti að bætast við
árlegt aukaframlag úr ríkissjóði.
-HEl
Gudmundur Gunnars-
son: Ráðherrará 14-
földum hraða.
Hættur
Rögnvaldur Skfði
Friðbjörnsson, bæj-
arstjóri Dalvíkur-
byggðar, hefur sagt
sig úr stjórn Kaup-
félags Eyfirðinga.
Rögnvaldur segir að
þetta sé gert að
vandlega athuguðu
máli í kjölfar
ákvarðana KEA í Dalvíkurbyggð.
„Þetta kemur sér illa fyrir
stjórn KEA að því leyti að við
söknum góðs félaga og öflugs
stjórnarmanns. Hann metur það
þannig að þarna séu of miklir
hagsmunaárekstrar og hann
verði að vinna að framgangi
málsins sem bæjarstjóri á Dal-
vfk,“ segir Jóhannes Geir Sigur-
geirsson, stjórnarformaður
KEA. I stað Rögnvalds kemur
Haukur Halldórsson í Svein-
bjarnargerði. -GG
Sjá umfjöllun um sameiningu
BGB-Snæfells og Samherja á
bls. 5
Enn bólar lítið á Vetri konungi og kunnu meyjarnar á myndinni að meta haustblíðuna.
Sigrún Jóhannesdóttir:
Oft erfitt að sjá afhverju beðið
er um kennitölu.
Ný log um
kennitöliir
Ný lög taka gildi um áramótin
þar sem m.a. er reynt að koma í
veg fyrir ofnotkun kennitölunn-
ar. Sigrún Jóhannesdóttir, fram-
kvæmdastjóri Persónuverndar,
segir engan vafa Ieika á því að
Island og hin Norðurlöndin
skeri sig frá öðrum Evrópuríkj-
um hvað þetta varðar. Skýring-
arnar séu e.t.v. þær að þessi lönd
hafi talið kennitöluleiðina þægi-
Iegasta en hættan sem fylgi sé
að meir sé hugsað um kerfið en
einstaklinginn.
Mikið var fjallað um kennitöl-
una á málþingi nýverið og voru
flestir sammála um að breyta
yrði hugsunarhætti íslendinga í
þessum efnum. Eins og fram
kom í viðtali Dags við Sigrúnu
fyrir skömmu, barst mikill fjöldi
ábendinga til Tölvunefndar á
meðan hún var og hét og leikur
grunur á að stóri bróðir eigi sér
fullmikil ítök í íslensku samfé-
lagi. Nú hefur Tölvunefnd verið
lögð niður en hinu nýstofnaða
embætti Persónuverndar er ætl-
að að leysa hlutverk nefndarinn-
ar af hólmi og eitt af þeim verk-
efnum er ofnotkun kennitölu.
Verður að eiga sér tilgang
„Það er ekki hægt að svara því
ennþá á hvaða þjónustusviðum
við gætum séð breytingar í þess-
um efnum. Lögin sem ganga í
gildi um áramótin fela einfald-
lega í sér ákvæði þar sem segir
að kennitölu eigi ekki að nota að
náuðsynjalausu. Tilgangurinn
verði að vera fyrir hendi,“ segir
Sigrún.
Eitt af því sem kemur upp í
hugann er hvort myndbanda-
Ieigum sé stætt á að krefjast
kennitölu en Sigrún segist ekki
geta metið hvort breytinga sé að
vænta í þeim efnum. Hún bend-
ir á að leigurnar séu meira og
minna samtengdar hvað varðar
vanskilaskrár og hugsanlega
fylgi þeim málaflokki hagræði
með notkun kennitölunnar. -BÞ
Lágmúlo 8 * Sfmi 530 2800
Myndlampi Black Matrix
Nicam Stereo
50 stöðva minni
Allar aðgerðir á skjá
Skarttengi
Fjarstýring
Islenskttextavarp
R N I R
RdDIO
Geislagötu 14 • Slml 462 1300
• Myndlampi Black Matrix
• Nicam Stereo
• 100stöðvaminni
• Ailar aðgerðir á skjá
• Skart tengi
• Fjarstýring
• Aukatengi fyrir hátalara
• fslenskt textavarp
• Myndlampi Black Matrix
• Nicam Stereo
• 100 stöðva minni
• Allar aðgerðir á skjá
•Skarttengi
• Fjarstýring
• Aukatengi fyrir hátalara
• Islenskttextavarp
www.ormsson.is