Dagur - 23.11.2000, Page 20
20- FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2 000
Daqur
ÞJÓÐMÁL
Hvað má 10 -15 mega-
watta virkjuit kosta?
JÓN ÞORVALDUR
HEIÐARSSON
edlisfræðingur
SKRIFAR
Nokkur umræða hefur veriö um
jarðgangnagerð hér á landi í fram-
haldi af langtímaáætlun í þeim
efnum sem kom fram síðasta vet-
ur. Sitt sýnist hverjum í þessum
efnum og er ég þar á meðal. Tel
ég að sh'kar áætlanir verði að taka
mið af framtíðarsýn okkar á byggð
landsins. Til lítils er að gera göng
fyrir byggðir sem hugsanlega og
jafnvcl sennilega verða horfnar
innan næstu 100 ára. Byggð við
Eyjafjörð stendur styrkari fótum
en víða annarsstaðar og því er það
framtíðarlausn að Siglufjörður
verði tengdur við þetta svæði með
göngum um Héðinsfjörð.
Hins vegar eru það önnur göng
sem hér eru gerð að umtalsefni.
Göng undir Vaðlaheiði
Ein af göngunum sem nefnd voru
á langtímaáætlun voru göng und-
ir Vaðlaheiði. Slík göng hafa ýmsa
augljósa kosti og verða nokkrir
þeirra nefndir hér. Vaðlaheiðar-
göng munu stytta þjóðveg nr. 1 á
milfi Eyjafjarðar og Þingeyjar-
sýslu um 14-16 km. Þannig mun
Húsavík og öll byggð í Þingeyjar-
sýslum kippast nær Eyjafjarðar-
svæðinu um þessa vegalengd.
Það >töí báðum byggðarlögunum
tif styrktar efnahagslega. Víkur-
skarð er eini fjallvegurinn á milli
Húsavíkur og Akureyrar og göngin
munu ieysa hann af hólmi sem
mun spara töluverðan snjóruðn-
ingskostnað. Eg veit ekki hve
mikill sá kostnaður er en gaman
væri ef einhver gæti komið slíkum
upplýsingum á framfæri.
Landleiðin um norðurströnd ís-
lands frá Austfjörðum til höfuð-
borgarinnar mun einnig styttast
um umrædda vegalengd og stærri
hluti af umferöinni til og frá Aust-
fjörðum mun fara norðurströnd-
ina frekar en suðurströndina.
Marga fleiri punkta mætti nefna
svo sem jákvæð áhrif á ferðaþjón-
ustu þar sem allar náttúruperlur
Þingeyjarsýslu verða aðeins nær
Eyjafjarðarsvæðinu með sína
þjónustugetu. Vaglaskógur yrði
steinsnar frá Akureyri sem dæmi.
Veggjald í göngin?
Þegar menn borga 1000 kr fýrir
að aka um Hvalfjarðargöng þá eru
þeir að borga um 24 krónur fyrir
hvern kílómetra sem þeir spara
sér. Ef veggjald um Vaðlaheiðar-
göng væri einungis sambærilegt
við þetta eða um 350 krónur þá
mundi það gefa tekjur sem væru
yfir 100 milljónir á ári ef meðal-
umferð er á milli 800 og 900 bílar
á dag. Þá er ekki gert ráð fyrir að
stærri bílar borgi hærra gjald.
Með hliðsjón af því sem gerðist
þegar Hvalfjarðargöng voru tekin í
notkun, er líklega óhætt að full-
yrða að umferð um göng verði
meiri en nú yfir Víkurskarð. Hve
mikil aukningin yrði veit enginn.
Ef við leikum okkur að tölunni
1000 bílar á dag að meðaltali, sem
ekki er óraunhæft, þá gefur 350
króna veggjald 128 milljóna
brúttótekjur á ári. Slíkar tekjur
ættu að geta staðið undir fjárfest-
ingu sem væri á bilinu f-2 millj-
TTOTTC-rp-TTTr
Yínbakkí
Skollahof
mm
Skidutóni
({•mTrasii
(Melar£
ýaldursheirhuQ
'M
m\Y&hfiéístai
ffl BödvbísgarðuV'o^
&Spðvarsi)es^ \ v i n %
[MiA 'V • Í-Vlí 1!
lárdarholt /• vv
■Gcæní$rjltÍKÍjfcv
mSyðribakkí' j
túland ir t
mholt ! I
.Litlihvammtr
=*Gilslxtkki \
(Míövil
'■) vv; : Gvem
.Vesturfjali:'/
{Sy'.ry! (Mai
sé Hofteigút
iraskáf;
Srakkukot*
/ySfð&prekka;
i Z'PrdsarbölfJ
’-yJ-iuilgíís stad írj
mGárdsyikA
MS\'fíinbjarna
Tl ' i
-.{ \ ÞónsstaÓ
lúlard Gþutsstaöi
cpagyerdareyri |
Dálksstadir^.
: jÁsgardiir;
Medalheifou.
JiSýALBA
'Si'tri-Skjáldarvik j
Forriastaöafjafl-
tatigtfsstaöir: 'Jí904- ‘
'Þdrs/nSrk.'
i kifeV,.VS X
LStaðarhníökHÍr^n^a'Í Í
-fJ/- MpÓruvéttir*! i
i ;i' #1;^
I
/ :. 'V i
Irautárhólt ,
'’áSunnuhlíÖ
(Bottfs
L V Hjatta:
(FinússU
... / Halldórs:
• - (Landam
Ém&m
%'' /tínsurv;. '•
Stóraduisíiaii -l-iosnv
ft i c,ö<
sratungur._
Gíæsil
Ipártökki
■r-v/'W-* ;
^j^yjGrjbtga^íl^. j
^Æktigáfarrd'/^-- \\ ,
&ÖSsa0aðir'/"':'S\i ■ <\t
!
// /tí' ' t/y BrchnihoJiZ
. StBinkófi
Qw/'y./Híxakbaejariccc,
'HravkbhX
i BttryQcrb
A$láksétaði
iiuM«wudl,ls ! ■ini'un
^SyóriSkfjlcfarvfk r Iréiðal
táqgarhóft y \ Xf ■"«
'AffyZBrabellÍr \
; KBÍofhstórycUir ffTf: '
dfágbóK} \ _hr: I
^gpyrrja'X 'yCrossanes&m'.
kpprX%/
" %
jftfés'lLundÚÞ-. t
&m'v/ ' ' 1:
/$4Grænahlíðl<,:
,/\k\ /■ .666 -
(%Wingsá|
thvarnmur j
Vtfm'/arftóf/J
lalHandsrtei
á/indlyeimffrl
llióaret
■ \^-~StcÍnþjr,
■ -* V '/■■ ■
iHáafeli / f 1
mgúþihgtýBVii-y ■
>$jð&stadir < .892
///0- ■ ■-■ ; v
s Belgsérfjall A
léTfsstddtK ’:<J \ .<
'lptíksstaéyf' 'h. “'i
éypangúr/A//
órvstadiry-. K
j\o • f A' Al&fyfihá
\ i'izi/MJÍHhyúmhjup
í J-iYárfcmtt
t "A 'Vagtar- -
i Ytragii’i
\ ÍFlósgitkþ
y/Grfótátgel
'NKotuAgssia
tvertíngssraðir
fer* pj
$ydrihó!l
Hjarðb
Þveré,
Myrtd: 1.
arðar. Þar sem göngin yrðu dýrari
en það þá yrði restin að koma af
vegaáætlun. Hvalfjarðargöngin
kostuðu um 5 milljarða ef allt er
talið og líklega munu Vaðlaheiðar-
göng kosta eitthvað svipað, þau
eru lengri en einfaldari.
I öllu falli er veggjald raunhæf-
ur möguleiki, tekjur af því eru
margfalt meiri en kostnaðurinn
við að innheimta það.
Virkjiin samhliða göngum
Samhliða Vaðlaheiðargöngum er
bægt að reisa meðalstóra virkjun
og slá þannig tvær flugur í einu
höggi. Hugmyndin cr þessi:
Göng kæmu í beinu framhaldi
af veginum sem liggur austur
yfir pollinn í botni Eyjafjarðar. 1
stað þess að beygja til vinstri eft-
ir að yfir brúna er komið þá væri
ekið rakleiðis inn í fjallið. Göng-
in Iægju beint undir Ytri-Varðgjá
og byrjuðu í hæð rétt yfir sjávar-
máli og kæmu út rétt fyrir neðan
Veturliðastaði í Fnjóskadal f
sömu hæð og Fnjóská rennur á
þeim stað. (Sjá mynd 1). Af
gömlum kortum sýnist mér að
það sé í um lOOm hæð yfir sjáv-
armáli. Þarna væri hægt að taka
eins stóran hluta af Fnjóská og
menn vilja og leiða í röri eftir
göngunum til Eyjafjarðar. (Sjá
mynd 2). í námunda við enda
ganganna Eyjafjarðarmegin væri
virkjun í svipaðri hæð og sjávar-
mál. I uppsláttarritum sé ég að
rennsli Fnjóskár fer sjaldan und-
ir 20 rúmmetra á sekúndu
(20m^/s). Algengt vetrarrennsli
er 20-30m^/s. Sennilega er það
miðað við rennsli hennar út í sjó
en rennslið við Veturliðastaðí er
eitthvað minna. Ef 15m^/s færu
niður til Eyjafjarðar eftir þessum
göngum og fallhæðin erlOOm þá
gefur það afl um 15MW. Miðað
við 88% nýtingu þessa afls með
virkjun Eyjafjarðarmegin þá ætti
slík virkjun að gefa um 13MW.
Það er líldega hátt í þá þörf sem
Akureyri hefur fyrir raforku.
Annar mögufeiki er að gera
göng sem hafa örlítinn halla og
Ieiða vatnið yfir til EyjaQarðar í
stokkum. (Sjá mynd 3). Það
þýddi að göngin kæmu út Eyja-
fjarðarmegin í umlOOm hæð yfír
sjávarmáli sem ekki er eins spenn-
andi samgöngulega séð. Það er
líka hægt að nota báðar aðferðir,
fyrri hluti leiðarinnar í stokkum
en þann seinni í röri. Eða öfugt
en þá þyrfti stöðvarhúsið að vera
neðanjarðar einhversstaðar á leið-
inni. Allt er þetta spurning um
hvaða kostur er hagkvæmastur.
Mynd: 2.
Mynd: 3.
Umhverflsáhrif
og hagkvæmni
í virkjunarmálum koma alltaf upp
tvær spurningar. Er dæmið hag-
kvæmt og hver verða umhverfísá-
hrifin?
Umhverfisáhrifin yrðu í grófum
dráttum þau að stór hluti
Fnjóskár hyrfi á móts við göngin
austanmegin, nánast eins og nið-
ur um niðurfall. Fnjóská yrði því
alltaf minna vatnsfall neðan við
þennan stað. Þetta hlýtur að hafa
einhver áhrif. Neikvæð áhrif
verða væntanlega á veiði í ánni þó
Fnjóská geti ekki talist fræg
veiðiá. Mér vitrari menn verða að
dæma um þennan þátt. Þegar lít-
ið er í ánni verður hún harla
bjálfaleg fyMr neðan Veturliða-
staði og mun einhveijum fínnast
það lýti. Á vorin og sumrin er
rennsfið þó oftast miklu meira en
þessir 1 5m-^/s og því verður
munurinn ekki eins merkjanleg-
ur. Aflt umframmagn mun fara
sinn venjulega farveg. Fleira
neikvætt sé ég ekki í fljótu
bragði, engin teljandi mannvirki
verða sjáanleg í Fnjóskadal með
þessari leið og jarðrask yrði nán-
ast ekkert.
Varðandi hagkvæmnina þá má
ætla af virkjunaráformum á
Austurlandi að stofnkostnaður
við hvert megavatt verði 100-
I 50 milljónir króna. Stofn-
kostnaður við f 3MW virkjun
mætti því vera 1,3-2 milljarðar
króna. Kostnaður við virkjun
sem þessa liggur aðallega í
þremur þáttum:
1. Stöðvarhúsið sjálft.
2. Pípa í gegnum göngin sem
væru hátt í 8km. Þar veltur
kostnaðurinn nokkuð á því hve
grönn slík pípa má vera. Það
veltur síðan á því hver rennslis-
hraðinn í pípunni má vera mik-
ill. Við meiri rennslishraða hlýt-
ur að verða meira þrýstingsfall í
pípunni og aflið verður því ekki
eins mildð og fallhæðin segir til
um.
3. Hærri göng. Til að pláss
sé fyrir pípuna í botni ganganna
þurfa þau að vera nokkuð hærri
en ella. Slík göng eru að sjálf-
sögðu aðeins dýrari.
Kostir við slíka virkjun
Kostir við að hafa slíka virkjun í
hlaðvarpa Akureyrar eru augljósir
ef gert er ráð fyrir að raforkan yrði
notuð á Eyjafjarðarsvæðinu.
Kostnaður við raforkuflutninginn
til Akureyrar er hverfandi. Það
hlýtur að vera eitt lóð á vogarskál
hagkvæmninnar. Eftir því sem ég
best veit þá er næsta virkjun nú
við Eyjafjarðarsvæðið Laxárstöðv-
ar sem eru í 40km loftlínu frá Ak-
ureyri.
Ahrif á byggð í Fnjósskadal
Ef Vaðlarheiðargöng kæmu á áð-
urnefndum stað er mjög stutt frá
Akureyri yfir í Fnjóskadal. Þá
kemur upp sú spurning hvort ekki
sé freistandi að eiga heima í nátt-
úrufegurðinni þar og sækja vinnu
til Akureyrar. An efa væru ýmsir
til í það, ekki er ófærðinni fyrir að
fara á veturna í gegnum göngin.
Landbúnaður í Fnjóskadal mun
án efa styrkjast með göngum.
Hann yrði í líkingu við það sem
nú er í nágrenni Akureyrar. Álílea
stutt yrði í Fnjóskadal frá Akureyri
og nú er í Hörgárdal. Það er alveg
ljóst að verð á jörðum í dalnum
mundi hækka.
Hitaveiturör um göngin?
Eitt atriðið sem vert er að hafa
bak við eyrað er að taka hita-
veiturör frá Fnjóskadal til Akur-
eyrar í gegnum göngin. Einhver
sagði mér að mun meiri jarðhiti
væri í Fnjósskadal en í Eyjafirði og
því auðveldara að taka heitt vatn
þar fyrir hitaveitu Akureyrar.
Ef sátt iim jarörask, hvað þá?
Fnjóskadalur og Bleiksmýrardalur
eru fallegir dalir en auðvitað má
halda pælingunum áfram og spyr-
ja: Ef sátt yrði um jarðrask, hvað
er þá hægt að gera?
Einn möguleiki er að reyna að
auka fallhæðina. Það væri hægt
að gera með stíflu í Fnjóská á
móts við göngin. lOm há stífla
mundi t.d. auka aflið um 10%.
Fyrir innan stífluna yrði síðan lít-
ið stöðuvatn sem ætti að geta ver-
ið prýði frekar en lýti. Eitthvað
land færi klárlega í kaf og senni-
lega þyrfti að færa einhverjar
byggingar (eða reisa aðrar í stað-
inn). Þetta á a.m.k. við um Vetur-
liðastaði. Hins vegar er dalurinn
tiltölulega hentugur þarna til að
gera snyrtilega stíflu. Eg geri mér
litla hugmynd um hvort þessi leið
er hagkvæm og verða aðrir að
reikna það út.
Annar möguleiki er hreinlega
miðlun á vatni Fnjóskár. Þá þyrfti
að gera miðlunarlón einhversstað-
ar á leið Fnjóskár niður að göng-
unum. Hins vegar gæti virkjunin
verið miklu stærri, sennilega 30-
40MW ef miðlað væri á milli árs-
tíðasveiflna í ánni. Mögulciki
væri einnig á að virkja útrennslið
úr slíku lóni. Með miðlunarlóni
er hægt að skammta stöðugt
magn af vatni niður Fnjóskadal-
inn sem gerði Fnjóská sennileg
mun betri veiðiá en nú er. Hin
miklu flóð sem hafa komið í
Fnjóská og valdið tjóni yrðu úr
sögunni.
Upp meö reiknivélamar
Eins og sjá má á þessari umfjöll-
un minni þá skortir mig bæði
öruggar forsendur og þekkingu
til að reikna dæmið til enda. Ég
skora því hér með á þá sem það
geta að athuga hvort eitthvert
vit er í þessu. Sérstaklega skora
ég á Rafveitu Akureyrar að reik-
na dæmið frá grunni. Komi í
Ijós að svona virkjun sé hag-
kvæm eykur það enn þrýsting á
að Vaðlaheiðargöng verði að
veruleika fyrr en ella.