Dagur - 19.01.2001, Blaðsíða 9

Dagur - 19.01.2001, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGVR 19. JANÚAR 200 1 - 9 FRÉTTIR Skrpulagsmál í nýju kastljósi Ingibjörg Súlrún Gísladóttir segir að það fari eftir því hversu þátttakan verður mikil í atkvæðagreiðslunni hvort niðurstaða hennar verður bindandi fyrír borgaryfirvöld eða ekki. Framtíð flugvallar í Vatnsmýri. Athygli á skipulag borgar í heild siimi. Viða- mildð kynuiugarstarf framundan. Sjónvarp- að á landsvísu lngibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri segir að ákvörðun um atkvæðagreiðslu um framtíð- arnýtingu Vatnsmýrinnar sé mjög jákvæð og hefur vakið at- hygli á skipuiagsmálum borgar- inar í heild sinni. Viðamikið kvnningarstarf er framundan hjá borginni vegna atkvæðagrciðsl- unnar sem fram fer að öllum lík- indum 17. mars n.k. Meðal ann- ars er áformað að sjónvarpa um allt land opnum fundi í Ráðhús- inu þar sem sérfræðingar kynna fvrir borgarfulltrúum kosti og galla þeirra valkosta sem kosið verður um. Stóru linurnar Borgarstjóri segir að áformuð at- kvæðagreiðsla hafi m.a. vakið upp miklar umræður um skipu- lagsmál borgarinnar, hvernig fólk vill sjá fyrir sér borgarsamfé- lagið, skipulag þess og þróun til framtíðar. H ún segist vera sann- færð um að atkvæðagreiðslan rnuni m.a. skila sér í því að skoð- anaskipti verði meiri en hingað til um stóru línurnar í skipulags- málum. Ekki aðeins um hin smærri mál sem oft hefur verið tekist á um í borginni eins og t.d. skipulag einstakra lóða og bygg- ingu einstakra mannvirkja. Hún segir að atkvæðagreiðslan og að- dragandi hennar muni því skipta sköpum fyrir þessa umræðu. Ræðst af þátttiiku Ingibjörg Sólrún segir að það fari eftir því hversu þátttakan verður mikil í atkvæðagreiðslunni hvort niðurstaða hennar verður bind- andi fyrir borgaryfirvöld eða ekki. Hún segir að ef meirihluti borgarbúa stendur á bak við þá niðurstöðu sem verður ofan á í kosningunum, þá verður að sjálf- sögðu litiö á það sem bindandi fyrir borgaiy'firvöld. Sérstaklega ef þátttakan er góð. ViðamiMl kyiming Kristín Amadóttir aðstoðarkona borgarstjóra segir að það sé hlut- verk borgarinnar að sjá til þcss allir valkostir verði kynntir á fag- legan hátt. Markniiðið sé að borgarbúar verði sem mest upp- lýstir um hvað vinnst og hvað ekki við mismunandi kosti. Fyrir utan samstarf við Ríkisútvarpið um sjónvarpsútsendingu á landsvísu hafa aðrar sjónvarps- stöðvar sýnt áhuga á að gera málinu góð skil. Þá er áformað að opna vef á netinu þegar ákvörðun um kjör- dag og valkosti liggur fyrir. A þessum veg verður safnað saman öllu því efni sem skrifað hefur verið um málið. Þá er ætlun að efna til kynningardaga í Ráðhús- inu þar sem þeir scm vilja kynna sjónarmið sín í málinu geta feng- ið bás. Einnig er ætlun að dreifa upplýsingabæklingi inná öll heimili borgarbúa - GRH Guðjón A. Kristjánsson. Frjálslynt landsþmg Landsþing Frjálslyndaflokksins verður haldið í dag og á rnorgun og fer það fram í Borgartúni 6. Guðjón A. Kristjánsson þing- maður flokksins og þingflokks- formaður segir að mörg mál og margt fróðlegt verði á döfinni á þessu landsþingi. „Við munum fara yfir nýjar skipulagsreglur flokksins og von- andi afgreiða þær en þær voru kynntar á síðasta landsþingi okk- ar. I öðru lagi ætlum við að setja flokknum nýja grunnstefnu. Við höfum verið að endurskoða það sem við köllum stefnuyfirlýsingu flokksins og útfærslur á ýmsum málaflokkum. Eg vonast til að fjörugar umræður verði um þessi mál og það hvernig við viljum sjá flokkinn þróast í framtíðinni," sagði Guðjón Arnar. „Sjávarútvegsmálin eru auðvit- að sá málaflokkur sem er fyrir- ferðar mestur hjá okkur og við munum berjast með oddi og egg fyrir okkar hugmyndum í sjávar- útvegsmálum," sagði Guðjón Arnar Kristjánsson. Hann sagðist ekki eiga von á öðru en að Sverrir Hermannsson verði kjörinn formaður flokksins áfram. - s.DÓR Imibrot sainiaöist en þjófnaður ekld Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt landskunnan síbrota- mann, í 6 mánaða fangelsi fyrir þjófnað, en hann var fundinn sekur um aö hafa brotist inn í íbúð við Freyjugotu. Hins vegar þótti ekki sannað að hann hefði stolið því sem ákært var úl af, GSM síma, 2 hálsmenum og 7 settum af eyrnalokkum, samtals að verðmæti um 400.000 krónur, og um 7.500 kanadískum dollur- um og var ákærði því aðeins sak- felldur fyrir þjófnaðartilraun. Var skaðabótakröfu frá Sjóvá-Al- mennum þar með vísað frá. Fingraför fundust innan á gluggakarmi í íbúðinni og þótti sannað að það væru fingraför Sigurðar, sem auk þess býr í húsi á næstu lóð. Sakborningurinn sjálfur sagðist ekkert muna til þess að hafa brotist inn umrætt kvöld, enda hafa verið búinn drekka sig ofuröivi og taka inn róandi lvf. Ibúi í Freyjugötuíbúð- inni bar hins vegar vitni um ferð- ir hins ákærða að því húsi. Þrátt fyrir takmarkaða sakfellingu leit dómarinn til langs og fjölbreytts sakaferils ákærða, sem hefur ver- ið refsað rúmlega sextíu sinnum, m.a. fyrir áfengislagabrot, fíkni- efnabrot, umferðarlagabrot, þjófnaði, fjársvik, skjalafals, lík- amsárásir, eignaspjöll, nytjastuld og ólögmæta meðferð fundins fjár. Af þessu eru 27 refsidómar fyrir auðgunarbrot. Síðast 4 rnánaða fangelsi í vor fyrir ölvun- arakstur og 6 mánaöa fangelsi í nóvember fyrir líkamsárás og var nú með hegningarauka dæmdur í 6 mánaða fangelsi. - Pt>G Sama verð í samkeppmimi Póst- og fjarskiptastofnun hefur samþykkt breytingar á verðskrá fyrir Landssímann hjá 118 og talsambandi við útlönd. Hafa breytingarnar þegar tekið gildi og, kostar nú 32ja sekúndna meðal- símtal við 1 18 kr. 53,50 krónur í stað 41,50. Upphafsgjald fer úr 15 kr. í kr. 27 en mínútugjald helst óbreytt, kr. 49,90. Hægt verður að fá áframtengingu fyrir 3 kr. en hún hefur hingað til kostað 19 krónur aukalega. Samhliða þessu breytist verð- skrá talsambands við útlönd. Meðalsímtal við talsambandið er tæpar 2 mínútur og nú kostar slíkt símtal kr. 340 en var áður 153 krónur. í prósentum talið þýðir þetta meira en 100% hækk- un. Upphafsgjaldiö hækkar úr 30 krónum í 60 krónur og mínútu- gjald úr 66 krónum í 150 krónur. Talsmenn Símans segja að mikið tap hafi verið á handvirkri þjónustu og því séu hækkanirnar nauðsynlegar. Til að ná fram aukinni hagræðingu hefur Sím- inn samið við Tele Danmark sem mun sjá um að veita upplýsingar um erlend símanúmer á kvöldin og um nætur. Markhúsið starfrækir einnig sfmaþjónustu, 1818, sem veitir upplýsingar um símanúmer. Að sögn Sigrúnar Guðmundsdóttur, vaktstjóra hjá Markhúsinu, er startgjald 1818 kr. 26.50 en mín- útugjaldiö 48.90 krónur. Það munar þvf hálfri krónu á start- gjaldi en einni krónu á mínút- unni ef borið er saman við 1 18. Samkeppnin virðist því ekki hafa breytt neinu fyrir neytendur. Reyndar hefur verð þessarar þjónustu hækkað verulega síðan aðeins eitt fy'rirtæki átti markað- inn. Þjónusta Markhússins er ríf- lega árs görnul og hefur reynst nægur markaður fýrir starfsem- ina að sögn vaktstjóra Markhúss- ins. - Ri> INNLENT Valtýr fékk Nýsköpimarverðlaunin Valtýr Stefánsson Thors læknanemi hlaut Nýsköpunarverðlaun forseta ís- lands fyrir áríð 2001, sem voru veitt við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær. Sex verkefni voru tilnefnd, en þau voru á meðal nokkuð á annað hundrað verkefna sem Nýsköpunarsjóður námsmanna styrkti á síðasta vori. - Verkefni Valtýs miða að þvi að meta áhrif lýsis á ónæmiskerfið. Á undanförnum árum hafa verið gerðar rannsóknir þar sem fram kemur að lýsi hafi verndandi áhrifgegn t.d. hjarta- og æðasjúkdómum og sykursýki. Aldrei hefur þó tekist að svipta hulunni af því hver töframáttur lýsisins ná- kvæmlega sé, eins og rannsókn Valtýs gengur út á að gera. - sbs. Týr, Sýn og Líf á frímerki „Þetta er fvrsta frímerki ársins (aldarinnar) ásamt tveim frímerkjum tileinkuðum nytjafiskum," segir í tilkynningu Landhelgisgæslunnar í tilefni þess að íslandspóstur hefur gefið út nýtt frímerki f tilefni 75 ára afmælis Landhelgisgæslu íslands síðar á þessu ári. A frímerkinu er mynd af Tý ásamt flugvélinni Sýn og þyrlunni Líf. Merkið er sér- stakt að því leyti að það er fyrsta íslenska frímerkið sem gefið er út án tilgreinds verðgildis. En merkið veröur selt á verði sem jafngildir burðargjaldi fy'rir 20 gr. bréf innanlands. Myndefni fiskamerkjanna er; grálúða (55 kr.) og ufsi (80 kr.). - HEI

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.