Dagur - 17.02.2001, Blaðsíða 4

Dagur - 17.02.2001, Blaðsíða 4
IV-LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2001 ry^ur KIRKJUSTARF Sunnudagur 18. febrúar ÁSKIRKJA Barnaguðsþjónusta kl. 11:00. Guðsþjónusta kl. 14:00. HJÚKRUNARHEIMILIÐ SKJÓL: Guðsþjónusta kl. 15:30. BÚSTAÐAKIRKJA Barnamessa kl. 11:00. Ungmennahljómsveit undir stjóm Pálma J. Sigurhjartarsonar. Guðsþjónusta kl. 14:00. DÓMKIRKJAN Guðsþjónusta kl. 11:00. Sr. Hjálmar Jóns- son. Dómkórinn syngur. Æðruleysismessa kl. 20:30. Sr. Anna S. Pálsdóttir predikar. Anna S. Helgadóttir og Bræðrabandið sjá um tónlist. GRENSÁSKIRKJA Barnastarf kl. 11:00. Messa kl. 11:00. Altar- isganga. Kirkjukór Grensáskirkju syngur. Kvöldmessa kl. 20:00. GRUND DVALAR- OG HJÚKRUNAR- HEIMILI Messa kl. 14:00. Lena Rós Matthíasdóttir, guðfræðinemi prédikar. Organisti Kjartan ðlafsson. HALLGRÍMSKIRKJA Fræðslumorgunn kl. 10:00. Kærleiksþjón- usta kirkjunnar. Hvað er það?: Ragnheiður Sverrisdóttir, djákni. Messa og barnastarf kl. 11:00. Félagar úr Mótettukór syngja. Frum- flutningur á Passíu eftir Hafliða Hallgrímsson kl. 17. Mótetturkór, einsöngvari og hljóm- sveit. Konsertmeistari Gerður Gunnarsdóttir. Stjórnandi Hörður Áskelsson. LANDSPÍTALINN Messa kl. 10:30. Sr. Ingileif Malmberg. HÁTEIGSKIRKJA Barnaguðsþjónusta kl. 11:00. Sr. Carlos A. Ferrer, Pétur Björgvin Þorsteinsson, fræðslu- fulltúi, Sólveig Halla Kristjánsdóttir, guð- fræðinemi og Guðrún Helga Harðardóttir, djáknanemi. Messa kl. 14:00. LANGHOLTSKIRKJA Kirkja Guðbrands biskups. Messa kl. 11:00. Biblíudagurinn. Eiríkur Hreinn Helgason syngur einsöng. í tilefni konudags bjóða karlar í söfnuðinum kirkjugestum í vöfflukaffi eftir messuna. Barnastarf í safnaðarheimilinu kl. 11. LAUGARNESKIRKJA Messa og sunnudagaskóli kl. 11:00. Krakkar frá leikskólanum Laugaborg taka lagið. Kór Laugarneskirkju syngur. Messa kl. 13:00 í dagvistarsalnum Hátúni 12. Fermingarstúlk- ur koma í messu og ræða um áhyggjur sínar og áhugamál. Þorvaldur Halldórsson og Margrét Scheving syngja. NESKIRKJA Messa kl. 11:00. Prestur sr. Frank M. Hall- dórsson. Kirkjubíllinn ekur um hverfið á undan og eftir eins og venjulega. Sunnu- dagaskólinn kl. 11:00 og 8-9 ára starfið á sama tíma. Safnaðarheimilið er opið frá kl. 10:00. SELTJARNARNESKIRKJA Guðsþjónusta kl. 11:00. Sunnudagaskólinn á sama tima. Viljum minna á bæna- og kyrrðarstund á miðvikudögum kl. 12. ÁRBÆJARKIRKJA Guðsþjónusta kl. 11. Barnaguðsþjónusta kl. 13.00. Börn, foreldrar, afar og ömmur sam- einast. Mikill söngur, sögustund og sprell að hætti Árbæinga. BREIÐHOLTSKIRKJA Barnaguðsþjónusta kl. 11. Messa Kl. 11. Tekið við gjöfum til Hins íslenska Biblíufé- lags. DIGRANESKIRKJA Messa kl. 11. Kór Digraneskirkju A hópur. Sunnudagaskóli á sama tíma. Kl. 20.30. Hjónakvöld. Ólafur Hákanson læknir, heldur fyrirlestur um breytingaskeið karla og kven- na. FELLA- OG HÓLAKIRKJA Guðsþjónusta kl. 11. Einar Sigurbjörnsson prófessor prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Guðmundi Karl Ágústssyni. Barna- guðsþjónusta á sama tíma. GRAFARVOGSKIRKJA Guðsþjónusta kl. 11:00. Prestur: Sr. Sigurð- ur Arnarson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Grafarvogskirkju syngur. Barnaguðs- þjónusta kl. 11:00 í Grafarvogskirkju. Prest- ur sr. Anna Sigríður Pálsdóttir. Barnaguðs- þjónusta kl. 13:00 í Engjaskóla. HJALLAKIRKJA Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Sr. Guð- mundur Karl Brynjarsson þjónar. Krakkar úr Lindaskóla syngja. Félagar úr kór kirkjunnar leiða safnaðarsöng. Barnaguðsþjónusta í Lindaskóla kl. 11 og í kirkjunni kl. 13. KÓPAVOGSKIRKJA Barnastarf i safnaðarheimilinu Borgum kl.11:00. Guðsþjónusta kl. 14:00. Kór Kópavogskirkju syngur og leiðir safnaðar- söng. SELJAKIRKJA Barnaguðsþjónusta kl. 11.00. Söngur, sögur og nýr límmiði. Guðsþjónusta kl. 14.00. AKUREYRARKIRKJA Guðsþjónusta kl. 11. Tekið við framlögum til Bibliufélagsins. Sunnudagaskóli kl. 11, fyrst í kirkju en síðan í Safnaðarheimili. Fundur Æskulýðsfélags kl. 17 í kapellu. GLERÁRKIRKJA Barnasamvera og messa kl. 11.00. Sameig- inlegt upphaf. Foreldrar hvattir til að mæta með börnum sínum. PÉTURSKIRKJA Messa laugardag kl. 18.00. Messa sunnu- dagkl. 11.00. HVÍTASUNNUKIRKJAN Sunnudagaskóli fjölskyldunnar kl. 11.30. Aldursskipt kennsla, allir fá eitthvað við sitt hæfi. Vakningasamkoma kl. 16.30. Fjölbreytt lofgjörðartónlist. Ólafur Zóphaníasson predikar. HJÁLPRÆÐISHERINN Sunnudagaskóli kl. 11.00. Bæn kl. 19.30. Almenn samkoma kl. 20.00. SJÓNARHÆÐ Sunnudagaskóli i Lundarskóla kl. 13.30. Al- menn samkoma á Sjónarhæð kl. 17.00. LAUFÁSPRESTAKALL SVALBARÐSKIRKJA: Kirkjuskóli laugardag kl. 11.00. GRENIVÍKURKIRKJA: Kirkjuskóli sunnudag kl. 13.30. MÖÐRUVALLAKIRKJA Guðsþjónusta verður fyrir allt prestakallið í Möðruvallakirkju kl. 11:00 f.h. (Athugið vel tímann!) Barn verður borið til skírnar. GRUNDAKIRKJA OG KRISTNESSPÍTALI Messa og kirkjuskóli verður í Grundarkirkju kl.13:30. Sama dag verður sungin messa á Kristnesspítala kl.15:00. STOKKSEYRARKIRKJA Barnaguðsþjónusta kl. 11.00. GAULVERJABÆJARKIRKJA Messa kl. 14.00. HVERAGERÐISKIRKJA Sunnudagaskóli kl. 11:00. HNLFÍ: Guðs- þjónusta kl. 11:00. KOTSTRANDAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14:00. Jón Ragnarsson. LÁGAFELLSKIRKJA Tai-ze guðsþjónusta kl. 20.30. Athugið breyttan tíma! Einsöngur: Þorvaldur Hall- dórsson. Barnaguðsþjónusta í safnaðar- heimilinu kl. 11.15. KEFLAVI'KURKIRKJA Skátaguðsþjónusta og aldursskiptur sunnu- dagaskóli kl. 11. Ylfingavígsla. Kór Keflavik- urkirkju leiðir söng. MINNINGARGREIN Guðmunda Sigurlaug Pétursdóttir laun f)TÍr þessi störf, ég held að Ég var stödd í Reykjavík. Síminn hringdi. Vinkona mín á Akureyri sagði: „Eg má til að segja þér að hún Munda okkar er dáin. „ Eg held að það hefði verið sama hver vinkvenna okkar hefði hringt, þær hefðu allar sagt Munda okkar, svo vinsæl var hún í okkar hópi. Þessi fregn var í rauninn gleðifrétt, fyrir hana og þá sem þótti vænst um hana, því að þau urðu örlög henn- ar síðustu árin að vera haldin hin- um einum hvimleiðasta sjúkdómi sem aldraðir fá, alsheimer. En svo undarlegt sem það kann að virðast varð ég angurvær, jafnvel Irngg. Það er gleðistund þegar lítið barn heilbrigt fæðist, en þegar líkfstrengurinn slitnar, þá lútuuum við höfði í viðingarskyni fyriir hin- um láta og alveldinu, hvert sem það svo sem er. Og minningarnaar hranast upp í hugann: I mínum huga eru þær svo sannarlega margar um Guðmundu Pétursdótttur og allar góðar. Leiðir okkar lágu fyrst sam- an fvrir meira en hálfri öld, fyrst í Reykjavík en þó einkum á Akur- eyri. Það vildi svo til að við fluttum þangað báðar með fjölskyldum okkar sama árið 1952. Hvorug okk- ar átti þar kunningjahóp, raunar stóð Munda betur að vígi því að hún hafði verið þar í skóla. En fljótlega urðu vinkonur Mundu líka vinkonur mínar og þetta var glaður og skemmtilegur hópur og sauma-klúbbur var stofnaður. Samgangur okkar Mundu varð býsna mikill þó að Munda og Finn- ur skipstóri. maðurinn hennar byg- gðu sér fljótlega hús lengst niðri á Eyri en mín fjölskylda prílaði upp á Suðurbrekku og hvorug fjölskyldan hefði bíl til umráða, en þetta voru glaðir og góðir dagar. A þessum árum starfaði á Akur- eyri kvenfélagið Hlíf oggengum við velflestar í það. Þá höfðu Hlífar- konur af miklli elju og dugnaði byggt fyrsta barnaheimilið á Akur- eyri. Það hét og heitir raunar enn Pálmholt. og stóð þá á fallegu túni nokkru ofan við byggðina. Fyrir mörgum áruni gaf félagið Akureyr- arbæ Pálmholt. Þar er enn rekinn leikskóli og húsið komið inn í þétta byggð. Ekki er mér nú grun- laust um að sumar þeirra kvenna sem ötulast stóðu að framkvæmd- unum hafi verið „vel giftar“ þ.e.s. átt laghenta eiginmenn sem hafi lagt þeim Iið meðan á byggingunni stóð. Þetta var sumardvalarheimili sem félagið rak um margra ára bil Eg held að mörg móðirin hafi orð- ið fegin að vita barnið sitt í öruggri gæslu , vitandi að það fengi hollan og góðan mat um hádegið. Gjaldi var mjög stillt í hóf. Mjög skömmu efttir að Munda gékk í félagið mátti með sanni segja að hún annaðist að mestu um rekstur Pálmholts. Hún var með uniboð lyrir DAS niðri í miðbæ, þar tók hún á móti umsóknum , tók á móti greiðslum þeirra sem gátu borgað og annaðist bókhald að mestu. Aldrei tók hún nein ánægjan hafi verið kaupið hennar. Um marga ára skeið var hún for- maður Kvenfélagsins Hlífar og þar stjórnaði hún af röggsemi og prýði. Nú síðustu árin hefir hún verið heiðursfélagi þóttt hún lægi ekki á liði sínu við að baka og taka þátt í félagsstörfunum meðan heilsan leyfði. Fvrir um það bil tíu árum príl- uðu svo Munda og Finnur líka upp á Suðurbrekkuna og við urðum ná- grannar. Ég held að mér sé óhætt að segja að fáir dagar liðu án þess að við hittumst eða töluðum sam- an í síma . Þegar ég hef verið að heiman finnst mér alltaf að ég þurfi að hringja til Múndu, þótt ég viti að í nokkur ár hafi ég ekki get- að það. Munda var mikil barna- gæla og þurfti þá auðvitað að fylgj- ast með því þegar barnabörnin mín fóru að koma í heimsókn. Rörn finna gjarnan hvað að þeim snýr,ég minnist þcss oft að börmin flugu upp um hálsinn á Mundu, jafnvel þó þau kæmu frá Ameríku og töl- uðu bara ensku. Ég veit að ég tala fyrir hönd allra Hlífarkvenna sem urðu þess að- njótandi að þekkja Guðmundu Pétursdóttur og við vottum henni virðingu og innilega þökk. Ég er þakklát fyrir að hafa átt samleið með henni öll þessi ár og fjölskyldu hennar votta ég samúð . Hóhnfríður Jónsdóttir Nú er hún farin hún Munda frænka mín, og ekki efndi ég lof- orðið sem ég gaf henni. Það vissi ég reyndar þegar ég gaf það. Við höfðum verið í heimsókn á Dvalar- heimilinu Hlíð hjá þcim föður- systrum mínum Stínu og Laugu og urðum samferða út. Við vorum hálf daprar, líklega voru við báðar að hugsa um það sem fraintíðin gæti borið í skauti sér. Við urðurn sam- ferða út að bílunum okkar og þá sagði Munda: „Þú verður duglega að heimsækja mig þegar ég fer á elliheimili" - og ég lofaði því, þó ég vissi að ég myndi ekki efna það. Ekki af því ég vildi það ekki, held- ur myndi ekki koma því í verk. Þær komu oft í heinisókn til okk- ar, þegar þær voru gestkomandi á Akureyri, systurnar Magga og Munda. Þær voru svo glæsilegar, fínar og skemmtilegar að ég var afar stolt af því að eiga þær fyrir frænkur. Svo fluttu þau norður, Munda og Finnur, og þá urðu sam- skiptin enn meiri. Hún kallaði mig alltaf frænku, svo hló hún og sagði: „þú ert eina manneskjan sem ég kalla bara frænku, það er eins og þú sér eina frænka niín.“ - Ég hef aldrei átt erfitt með að tileinka mér skyldleika fólk. Mamrna talaði svo oft urn systkinabörn, þremenninga, fjórmenninga og jafnvel fimm- menninga. Um að þessi og hinn væri skyldur öðrum af öðruni og þriðja, jafnvel fjórða og fimrnta lið og ég skyldi þetta alll. En þegar kom að skyldleika okkar Mundu versnaði í því. Ég hefði alveg sætt mig við að þau pabbi væru svstk- inabörn, en þegar þurfti að fara einhverjum ættliðum aftar vildi ég ekki vita meira. I huguni okkar systkinanna koni hún næst föður- systkinum okkar. Eftir að Munda og Finnur fluttu í Víðilundurinn kom ég nokkrum sinnurn í heimsókn til þeirra með öðrum, en aðeins einu sinni kom ég ein til að heinisækja Mundu og þá áttum við saman vndislega dag- stund. Nokkrum mánuðum síðar var hún komin á sjúkrahús og átti ekki afturkvæmt þaðan. Ég ætlaði alltaf að heimsækja hana en kom því ekki í verk. Var að hugsa um hvort sú heimsókn myndi veita henni ánægju, líklega var ég bara að reyna að réttlæta framkvæmda- leysið fyrir sjálfri mér. Að Ieiðarlokum kveð ég kæra frænku með söknuði og þakka af alhug alla þá elskusemi sem hún sýndi okkar systkinunum og okkar fjölskyldum. Hafðu þiikk fyrir allt og allt elsku frænka. Guðrún Sisiirðardóttir. Ástkær unnusti minn, elskulegur sonur okkar, bróöir, mágur, barnabarn og tengdasonur MAGNÚS BRYNJAR GUÐJÓNSSON, Móasíöu 6 a, Akureyri. sem lést af slysförum mánudaginn 12. febrúar veröur jarösunginn frá Akureyrarkirkju þriöjudaginn 20. febrúar kl. 13.30 Lísebet Hauksdóttir, Guöjón Stefánsson, Edda Friöfinnsdóttir,, Ingólfur Guöjónsson, Eva Guöjónsdóttir, Atli Már Kolbeinsson, ingunn Helga Hallgrímsdóttir, Auður Guöjónsdóttir, Haukur Sigurðsson, Jónína Kristjánsdóttir. Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og jaröarför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu SNJÓLAUGAR HJÖRLEIFSDÓTTUR Sérstakar þakkir sendum viö starfsfólki á Dvalarheimilinu Hlfö. Jóhanna María Björnsdóttir, Hjörleifur Björnsson, Björk Guömundsdóttir, Rósa Björnsdóttir, Ármann Sigurjónsson, Sigrún Björnsdóttir, Valgeir Þór Stefánsson, Júlíus Björnsson, Lísbeth Grönvaldt, Jófrföur Björnsdóttir, Kristinn Helgason, Daníel Björnsson, Guöný Guölaugsdóttir, Árni Björnsson, Þórey Agnarsdóttir, Ólafur Björnsson, Lilja Gunnarsdóttir, börn og barnabörn. Útfararskreytingar Býflugan og blómið kistuskreytingar, krossar, kransar, blómaskreytingar, blómvendir, Sími 461 5444 Glerárgata 28. Akureyri

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.