Dagur - Tíminn Akureyri - 10.01.1997, Blaðsíða 10
10- Föstudagur 10. janúar 1997 jDagur-'ÉHhmnn
KFÍ áfrýjar til
Dómstóls ÍSÍ
KFÍ hefur áfrýjað úrskurði
Dómstóls KKÍ vegna leiks
liðsins í úrvalsdeildinni í körfu-
knattleik við Grindavík og mun
málið verða tekið fyrir hjá
Dómstóli ÍSÍ á mánudaginn.
KFÍ kærði úrslit leiksins gegn
Grindavík, þar sem þeir töldu
að liðsstjóri Grindvíkinga væri
ekki löglegur með liðinu. ísfirð-
ingar höfðu sigur í héraðsdómi
þar sem þeim var dæmdur sig-
ur, en lyktir í Dómstóli KKÍ urðu
þær að úrslit leiksins skyldu
standa óbreytt og að Grindvík-
ingar héldu stigum sínum. gþö
Ólafur og Dagur fá
sig ekki lausa
*
Islenska landsliðið leikur tvo
vináttuleiki gegn Þýskalandi
dagana 1. og 2. febrúar og fara
leikirnir fram í Trier og Lud-
vigshafen. Ólafur Stefánsson og
Dagur Sigurðsson fást hins veg-
ar ekki lausir þar sem ekki var
hægt að hnika deildarleik hjá
Wupperthal.
Forbjörn Jensson mun lík-
Iega tilkynna landsliðshóp sinn
á mánudaginn, á sama tíma og
dregið verður í 4-liða úrslit Bik-
arkeppninnar.
Alexander áfram
Alexander Högnason hefur
skrifað undir þriggja ára
samning við Knattspyrnudeild
ÍA og þar með er ekki neinn
með lausan samning hjá félag-
inu. Alexander átti í viðræðum
við Grindvíkinga, en hann valdi
að vera áfram á Skipaskaga.
Skagamenn hafa einnig gengið
frá eins árs samningi við Ólaf
Adolfsson.
Patrekur og félagar
mæta Grossvaldstadt
Tusem Essen, lið Patreks Jó-
hannessonar, tryggði sér
fyrir skömmu sæti í 8-Iiða úr-
slitum þýsku bikarkeppninnar í
handknattleik. Dregið var í
fyrrakvöld og mun Essen mæta
Grossvaldstadt á útivelli. Dut-
enhofen mætir Eisenach. Hinar
viðureignirnar eru á milli Pful-
lingen og Lemgo og Bad
Schartzau og Meisungen. Bad
Schwartzau komst í undanúr-
slitin með sigri á liði Kristjáns
Arasonar, Wallau Massenheim
og aðeins þrjú 1. deildarlið eiga
sæti í 8-liða úrslitunum.
IJB/fe
Hamar
félagsheimili Þórs:
Salir til leigu
Tilvaldir til hvers
konar íþrótta- og tóm-
stundaiðkana.
Gufa - Pottur -
Búningsaðstaða
Hamar
sími 461 2080
M>HV
Pétur Guðmundsson kúluvarpari og Jón Arnar Magnússon tugþrautarmaður voru þeir einu sem héldu fullum styrk allt árið hjá Afreksmannasjóði ÍSÍ,
Pétur og JónAmar fengu
mest úr Afreksmannasjóði
Pétur Guðmundsson kúlu-
varpari og Jón Arnar
Magnússon tugþrautar-
maður fengu hæstu styrkina úr
Afreksmannasjóði ÍSÍ á nýliðnu
ári. Þeir voru einu íþrótta-
mennirnir sem voru á A-styrk
alla tólf mánuði ársins og fengu
í sinn hlut 80.000 krónur á
mánuði, eða samtals 960 þús-
und krónur á árinu.
Styrkir afreksmannasjóðs
námu rúmum 7,8 milljónum á
nýyfirstöðnu ári og voru afhent-
ir sérsamböndunum og voru
flestir þeirra eyrnarmerktir
einstökum íþróttamönnum.
Styrkir til frjálsíþróttahreyfing-
arinnar voru fyrirferðarmestir
og numu rétt tæpum helmingi
þeirrar Qárhæðar sem Afreks-
mannasjóðurinn útdeildi. Níu
frjálsíþróttamenn fengu styrki
úr sjóðnum. Auk þeirra Péturs
og Jóns Arnars, fékk Guðrún
Arnardóttir A-styrk Ijóra síð-
ustu mánuði ársins auk 200
þús. kr. eingreiðslu fyrr á árinu.
Þá voru fjórir íþróttamenn á B-
styrk að upphæð 40 þúsund
krónur á mánuði. Þeir eru Vé-
steinn Hafsteinsson kringlu-
kastari, Sigurður Einarsson
spjótkastari, júdómaðurinn
Vernharð Þorleifsson og skíða-
maðurinn Kristinn Björnsson.
Annars er skiptingin þannig:
Frjálsíþróttasambandið 3.520.000
Jón Arnar Magnússon 960.000
KARFA • Urvalsdeild
Öruggur sigur Tinda-
stólsmanna gegn Þór
Tindastóll sigraði Þór með
tuttugu stiga mun í slag
norðanliðanna í úrvals-
deildinni, sem fram fór á Sauð-
árkróki í gærkvöldi. Lokatölur
urðu 96:76.
Tindastólsmenn höfðu yfir-
höndina lengst af og náðu um
tíma tólf stiga forskoti í fyrri
hálfleiknum. Þórsurum tókst að
minnka muninn niður í fimm
stig í leikhléi, 46:41.
Síðari hálfleikurinn var í
járnum framan af, Þórsliðinu
tókst aldrei að jafna leikinn.
Tvívegis munaði þremur stigum
á liðunum þegar um sex mínút-
ur voru liðnar af hálíleiknum.
Eftir það sigldu heimamenn
framúr og tryggðu sér yfir-
burðasigur og tvö dýrmæt stig í
baráttunni um sæti í úrslita-
keppninni.
„Það er aldrei að vita hvern-
ig þessi leikur hefði farið ef við
hefðum náð að jafna í byrjun
síðari háltteiksins. Við fengum
góð tækifæri til þess en vorum
of bráðir á okkur og þegar það
gekk ekki upp þá misstu leik-
menn móðinn,“ sagði Gunnar
Sverrisson, aðstoðarþjálfari
Þórs.
Nýr Kani til UBK
Bandaríkjamaðurinn Clifton
Bush mun verða eftirmaður
Andre Bovain hjá Breiðabliks-
liðinu. Bush er 1,95 m á hæð og
getur leikið flestar stöður á
vellinum. Hann er mikil skytta
og sagan segir að hann hafi
slegið mörg af þeim metum sem
Scottie Pippen, stjarnan hjá
Chicago Bulls, átti hjá Central
Arkansas-háskólanum. Bush
mun væntanlega leika fyrsta
leik sinn á mánudaginn, gegn
Njarðvík.
UMFT-Þór 96:76
Stig Tindaslóls: Arnar Kárason 26,
Pétur Guðmundsson 960.000 Sundsambandið 625.000
Guðrún Arnardóttir 520.000 Styrkur vegna Ólympíuhóps
Vésteinn Hafsteinsson 240.000 (Eydís og Magnús Konráðsbörn,
Sigurður Einarsson 240.000 Arnar Freyr Ólafsson og
Einar Vilhjálmsson 200.000 Logi Jes Kristjánsson) 500.000
Martha Ernstdóttir 200.000 Elín Sigurðardóttir 125.000
Vala Flosadóttir 200.000
Styrkur vegna Ólympíu- Skíðasambandið 540.000
undirbúnings 1.000.000 Kristinn Björnsson 240.000
Styrkur til A-landsliðs SKÍ 300.000
fþróttasamband fatlaðra 676.000 Badmintonsambandið 500.000
Styrkur til afreksíþróttafólks Broddi Kristjánsson og
b/b.UUU Árni Þór Hallgrímsson 300.000
Elsa Nielssen 200.000
Júdósambandið 640.000
Vernharð Þorleifsson 240.000 Fimleikasambandið 300.000
Bjarni Friðriksson 200.000 Rúnar Alexandersson 300.000
Styrkur vegna Ólympíu-
undirbúnings 200.000
Arnar Kárason skoraði 26 af stigum
Tindastóls gegn Þór í gærkvöld.
Cesaro Pizzini 21, Wayne Buckinham
17, Lárus Dagur Pálsson 15, Skarp-
héðinn Ingason 6, Stefán Guðmunds-
son 6, Ómar Sigmarsson 3, Óli Barð-
dal 2.
Stig Þórs: Fred Williams 35, Konráð
Óskarsson 16, Böðvar Kristjánsson
11, Ilafsteinn Lúðvíksson 5, Högni
Gylfason 2, Einar Valbergsson 2, John
Carraglia 2, Davíð Hreiðarsson 1.
Önnur úrslit urðu þessi í úr-
valsdeildinni í gærkvöldi:
Grindavík-Haukar 107:84
ÍR-Keflavík 77:78
ÍA-KR 79:69
Um helgina
KARFA
Úrvalsdeild:
Föstudagur
KFÍ-Skallagrimur kl. 20
I.augardagur
Stjörnuleikur KKÍ í meist-
araílokki karla fer fram í Laug-
ardalshöll á laugardaginn
klukkan 15.
BLAK
1. deild karla:
Föstudagur
Þróttur R.-Þróttur N. kl. 21:30
Laugardagur
Stjarnan-Þróttur N. kl. 16:00
1. deiid kvenna:
fSHOKKf
Unglingamót á Akureyri
íshokkimót Brynju og Skautafé-
lags Akureyrar verður haldið á
Skautasvellinu á Akureyri um
helgina og verður þar keppt í
öllum unglingaflokkum. Þetta
er í ijórða sinn sem SA og
Brynja halda þetta mót í sam-
einingu. Þátttakendur á mótinu
verða frá Skautafélagi Akureyr-
ar og Reykjavíkur og Birninum
og fjöldi þátttakenda verður um
140. Mótið hefst klukkan 7:40 í
fyrramálið og leikið verður til
kukkan 18. Á sunnudaginn
hefst keppni klukkan 10:00 en
úrslitaleikirnir hefjast klukkan
12:50 á sunnudaginn. Mótsslit
verða um klukkan 16:30.