Dagur - Tíminn Akureyri - 14.02.1997, Síða 3
|Dbtgur-'3lTOtmrt
Föstudagur 7. febrúar 1997 - 3
F R É T T I R
Áfengisvarnir
íþróttafélögin án bama
Þórarinn Tyrfingsson hefur byltingarkenndar hugmyndir um skipulag íþróttaskóla.
Þórarinn lyrfingsson,
yfirlæknir SÁÁ á Vogi,
segir íþróttahreyfing-
una verða að taka
hraustlega á vímu-
efnavandanum.
s
g held því fram að banna
eigi íþróttafélögunum að
koma nálægt krökkum á
grunnskólaaldri. Iþróttahreyf-
ingin ætti að flytjast inn í skól-
ana. íþróttafólögin geta þá tek-
ið við eftir að grunnskóla lýkur.
Það segir þó um leið að ég tel
að íþróttastarf er mikilvægt. í
því starfi lærir fólk samskipti og
ákveðnar reglur sem gilda í líf-
inu og eru af hinu góða,“ sagði
Þórarinn Tyrfingsson, yilrlækn-
ir SÁÁ að Vogi í Reykjavík, en
samtökin vinna nú ásamt
íþróttafélögunum í Reykjavík
forvarnastarf gegn vímuefnum.
„íþróttahreyfingin þarf að
vinna sér traust aftur og verða
trúverðug hvað þetta varðar.
Vissulega er víða pottur brotinn
varðandi íþróttafólk, áfengis-
vandamál hafa herjað á ein-
staklingana og heilu liðin í heild
sinni,“ sagði Þórarinn Tyrfings-
son. Hann segist ekki í vafa að
ungmenni sem hefur leiðst í
óreglu eigi sér traustan bak-
hjarl þar sem íþróttirnar séu.
íþróttastarflð eigi hins vegar að
virkja til forvarna í auknum
mæli. Það sé hins vegar nötur-
legt að úr forvarnasjóði sé veitt
3 milljónum til þessa starfs.
Mætti hann ráða væru það 50
milljónir, enda hópur íþrótta-
fólks stór og mikið í húfi.
„Ef íþróttahreyfingunni tæk-
ist þó ekki væri annað en að út-
rýma áfengi úr keppnisferðum
væri hreyfingin strax í góðum
málum. Síðan þarf hún að
greina vanda þeirra sem eru að
flosna upp vegna vímuefna.
Skilgreina þarf hvernig koma
má til móts við slíka einstak-
linga, en til þessarar vinnu þarf
meira fé,“ sagði Þórarinn.
„Það er mikið atriði að menn
geri sér grein fyrir því að
grunnskóli landsins, það sem
við kölluðum áður gaggó, 8. 9.
og 10. bekk, mistekst að greina
grunnþarfir barnanna, skólinn
skynjar ekki hvert áhugi
barnanna beinist. Þetta skóla-
stig virðist vera okkur erfitt
þessa dagana. Skólinn er und-
antekningarlítið óttalega leiðin-
legur. Krökkunum eru falin
verkefni sem hreint ekki eru við
þeirra hæfi. Samt er þarna inni
í skólunum fólk sem virkilega
vill vel. En þarna er viðvera
krakkanna stutt, og í skólanum
fer að mínu viti ekki fram nægi-
lega mikið uppörvandi starf að
til dæmis tónlistarkennslu, leik-
list og íþróttum," sagði Þórar-
inn Tyrfingsson.
Hann segir að grunnskólann
eigi að nota sem tæki til að
koma til móts við áhugamál og
þarfir barnanna. -JBP
Akureyri
Grænlenski togarinn í slipp á Akureyri, þegar verið var að prufu-
keyra vélar hans í gær skemmdist Slippkanturinn verulega.
Mynd: GG
Milljónatjón á
Slippkantinum
Milljónatjón varð á
Slippkantinum, sem
svo er kallaður, við
höfnina á Akureyri fyrir há-
degi í gær. Togari frá græn-
lenska fyrirtækinu Royal
Greenland sem legið hefur
við kantinn frá því um ára-
mót, eftir að hafa verið í
slipp í bænum, var að prufu-
keyra hjá sér vélina og sneri
skrúfunni af miklu afli.
Þrýstingur og sog frá skrúf-
unni rótaði upp miklu
magni af jarðvegi, aur og
möl, af botninum og við
kantinn þannig að grófst
undir hann. Þegar undir-
stöðunni hafði verið sópað
burt seig bryggjudekkið
sjálft og skemmdist. Rann-
sóknardeild Lögreglunnar á
Akureyri var kvödd á stað-
inn eins og tíðkast í slíkum
tilfellum og lá málið ljóst
fyrir í gærkvöldi að öðru
leyti en því hvernig tjónið
yrði gert upp.
Eins og áður segir er um
umtalsvert tjón að ræða sem
talið er að muni kosta millj-
ónir. Verið var að klára að
ganga frá skipinu til sölu til
Dalvíkur þar sem það á að
koma í staðinn fyrir Blika.
Hafnarfjörður
Endanlegur klofningur
Menn Jóhanns Berg-
þórssonar kjörnir í
mikilvægar nefndir í
stað manna Magnús-
ar Gunnarssonar.
Menn Jóhanns G. Berg-
þórssonar og Ellerts
Borgars Þorvaldssonar,
úr þeim anga Sjálfstæðisflokks-
ins í Hafnarfirði sem situr í
samstarfi við Alþýðuflokkinn,
voru á þriðjudaginn kosnir
listakosningu í hafnarstjórn og
skólanefnd bæjarins í stað sjálf-
stæðismanna úr hinum armin-
um. Svo virðist sem klofningur
Sjálfstæðisflokksins í Firðinum
sé þar með endanlegur. Kosn-
ingin verður kærð til félags-
málaráðuneytis.
Magnús Gunnarsson, oddviti
sjálfstæðismanna í minnihlut-
anum, sagði í
gær að hann
og félagar
hans væru
ósáttir við
þessa kosn-
ingu, sem
engan veginn
stæðist lög að
þeirra mati.
Félagsmála-
ráðuneytið sem taldi bæjar-
stjórn í Hafnarfirði geta skipt
um menn í stjórnum líkt og
Húsvíkingar hafa gert, hafi fellt
rangan úrskurð gagnvart Hafn-
arfirði.
Þorgils Óttar Mathiesen var
formaður skólanefndar og fékk
aftur kosningu í nefndina, en
Ragnheiður Kristjánsdóttir,
varabæjarfulltrúi sjálfstæðis-
manna, vék úr nefndinni.
í hafnarstjórn gerðist sama.
Valgerður Sigurðardóttir, sjálf-
stæðiskona, fór aftur inn, en
hinn fulltrúi ílokksins, Sigurður
Þorvarðarson, náði aðeins kjöri
sem varafulltrúi. Inn í hafnar-
stjórn fóru Jóhann G. Bergþórs-
son og Trausti Lárusson, oft
kenndur við Dverg. í skólanefnd
fór Rúnar Brynjólfsson fyrir Jó-
hann G. Bergþórsson. f báðum
nefndum verða formannsskipti.
Listakosning fór fram á bæj-
arstjórnarfundinum, sem stóð
fram á rauðanótt með viðeig-
andi orðaskaki og lagatilvitnun-
um. A-listinn var listi Alþýðu-
flokks og hluta Sjálfstæðis-
flokks, meirihlutamanna.
„Meirihluti bæjarstjórnar
spurði ráðuneytið ekki um úr-
skurð um þessar tvær nefndir,
sem sækja styrk sinn í íslensk
lög. Ég tel að mér beri að óska
eftir nýjum úrskurði varðandi
þessar nefndir. Þetta hefur
ákveðið fordæmisgildi og við
viljum fá þetta á hreint. Málum
var öðrum vísi háttað hjá tann-
læknunum á Húsavík,“ sagði
Magnús Gunnarsson í gær. -JBP
Norðurland
Hafís fjarlægist í austanátt
Hættan á að hafís verði
landfastur við norður-
strönd landsins hefur
ljarlægst í bili. Sterk austanátt
hefur sveigt ísinn frá landi og
eins er spáð hagstæðri vindátt
næstu 8 til 10 daga. Sjávarhiti
er þó mjög lágur úti fyrir Vest-
ijörðum, og mun lægri en und-
anfarin ár, samkvæmt upplýs-
ingum frá togaraskipstjóra þar.
Þar með eykst hættan á lag-
skiptingu sjávar og að í kjölfar-
ið myndist lagnaðarís ef vindar
og hitastig mynda óhagstæð
skilyrði en vindur hefur mikil
áhrif á yfirborðssjóinn og
strauma í honum. Sjávarhiti
fyrir Norðurlandi er nokkuð
hærri en fyrir Vestijöröum, sem
er góðs viti. GG