Dagur - Tíminn Akureyri - 14.02.1997, Síða 7
JDagur-Stnmm
Föstudagur 14. febrúar 1997 - 7
ERLENDAR FRÉTTIR
Noregur
Kína
Vill sætta Kóreu
Einn af ráðamönnum
Norður-Kóreu segist
hafa flúið til þess
að reyna að bjarga
þjóð sinni.
Háttsetti embættismaður-
inn frá Norður-Kóreu,
Hwang Jang Yop, sem
leitað hefur hælis í sendiráði
Suður-Kóreu í Beijing, sagðist í
gær hafa leitað hælis til þess að
hann geti aðstoðað við að koma
á sáttum í samskiptum Suður-
og Norður-Kóreu.
Óvopnaðir kínverskir lög-
reglumenn stóðu vörð um bygg-
inguna í Beijing í gær þar sem
Hwang dvelst, en Suður-Kórea
krafðist þess að hert yrði á ör-
yggismálum eftir að 10 Norður-
Kóreubúar reyndu að komast
inn í bygginguna í fyrrinótt, að
því er virtist í því skyni að ná í
Hwang, sem bar þó ekki árang-
ur.
Hwang er 72 ára og stjórn-
völdum í Suður-Kóreu reiknast
svo til að hann sé sá tuttugasti
og fjórði í röðinni í valdapíram-
ída Norður-Kóreu. í þriggja
blaðsíðna yfirlýsingu sagðist
Hwang hafa ákveðið að yfirgefa
landið eftir „langt og erfitt hug-
arstríð" tl þess að hann geti
veitt aðstoð sína við að koma á
sáttum milli ríkjanna og ræða
við stjórnvöld í Suður-Kóreu um
það hvernig hægt sé „að forða
þjóð okkar frá eymdarástandi“.
Hann viðurkenndi að sjálfsagt
myndu fjölskylda sín og aðrir
telja sig vitskertan, en spurði
hvort eitthvert vit sé í því að
segjast hafa byggt upp paradís
fyrir verkamenn og bændur
þegar verkamenn og bændur
svelta heilu hungri.
Kínversk stjórnvöld hvöttu til
þess að allir aðilar haldi ró
sinni, en þau eru í vanda stödd
vegna málsins, þar sem þau
eiga erfitt með að taka afstöðu
til annars hvors aðilans. Annars
vegar hafa þau átt náin tengsl
við kommúnistaríkið í Norður-
Kóreu um langa hríð og vilja
ógjarnan að þar falli skuggi á,
en hins vegar hafa þau á síð-
ustu árum verið að auka við-
skiptatengsl sín við Suður-Kór-
eu til mikilla muna og eiga mik-
ið undir þeim.
Rússland
Njósnamyndir á Netið
Ljósmyndir sem teknar
voru af jörðinni úr gervi-
hnöttum rússneska hers-
ins, og voru áður flokkaðar sem
hernaðarleyndarmál, verða
brátt aðgengilegar á Internet-
inu endurgjaldslaust, og var
undirritaður samningur þess
efnis á miðvikudag við banda-
ríska hugbúnaðarfyrirtækið
Microsoft. Rússnesku fréttastof-
urnar ITAR-Tass og Interfax
skýrðu frá þessu í gær.
Myndirnar voru teknar á
þessum áratug, og munu vera
þær bestu sinnar tegundar sem
almenningur hefur aðgang að.
Á hverri mynd sést um 2ja
milljón ferkflómetra svæði, eða
um það bil eitt prósent af yfir-
borði jarðarinnar, auk þess sem
sér myndir eru af öllum borg-
um þar sem íbúaijöldi er meiri
en hálf milljón.
Fyrstu myndirnar koma á
Netið síðar á þessu ári, og eru
þær af borgum víða um heim,
m.a. London, Róm, Los Angeles,
Washington og San Francisco.
Auk Microsoft eiga bandaríska
fyrirtækið Aerial Images og
rússneska geimferðastofnunin
Sovinformsputnik.
Forsetanum vel tekið í Björgvin
Rektor Björgvinjarháskóla
í Noregi afhenti forseta
íslands í gær gjöf að upp-
hæð 100 þús. nkr. til uppbygg-
ingar Snorrastofu í Reykholti í
Borgarfirði. Sagðist rektorinn
með þessu vilja leggja áherslu á
náin tengsl íslendinga og Norð-
manna. Þá tilkynnti deildarfor-
seti stjórnmálafræðideildar
skólans að veittur yrði þriggja
mánaða rannsóknarstyrkur til
íslendings til dvalar við deild-
ina. Styrkur sá er 23 þúsund
nkr. á mánuði - og ferðakostn-
aður er greiddur að auki.
f ávarpi sem herra Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti fs-
lands, flutti í Björgvinjarhá-
skóla sagði hann að sér væri
ánægja að taka á móti hinni
höfðinglegu gjöf til Snorrastofu
í Reykholti. „Við íslendingar
metum mikils þann stórhug
sem Norðmenn hafa sýnt við
uppbyggingu Snorrastofu í
Reykholti, allt frá því Ólafur
krónprins heimsótti Reykholt í
árdaga íslenska lýðveldisins ....
Við Guðrún Katrín heimsóttinn
Reykholt fyrir rúmri viku ...
sóttum þar guðsþjónustu og
ræddum við heimamenn um
framtíðaráform um uppbygg-
ingu staðarins og áform um að
halda veglega á lofti verkum
Snorra Sturlusonar,“ sagði for-
seti íslands.
Hann sagði ennfremur að
mikilvægt væri að byggja upp í
Reykholti aðstöðu til að kynna
verk Snorra fyrir nýjum kyn-
slóðum Norðmanna og öðrum
þeim sem þangað koma í fróð-
leiksferðir - og jafnvel það sem
Forsetahjónin skoða rannsóknaaðstöðu í Björgvin.
Mynd: GTK
kalla má pílagrímsferðir.
í stjórnmálafræðideild há-
skólans í Björgvin var forseta
íslands afhent gjöf í minningu
stjórnmálafræðingsins Stein
Rokkan. Hann starfaði við skól-
ann og var einn helsti og
fremsti stjórnmálafræðingur
Norðurlanda á sinni tíð - sem
og einn af helstu frumkvöðlum
félagsvísinda á öldinni. Sagði
forseti íslands að Stein, sem
lést langt um aldur fram, hefði
haft mikil áhrif á sig. - „Hag-
fræðin hafði verið aðalgrein
mín til BA prófs, en stjórnmála-
fræðin aukagrein. Þessi stund
með Stein réð hinsvegar þeim
örlögum mínum að helga
stjórnmálafræðinni stóran hluta
af lífsstarfi mínu,“ sagði forseti
fslands. -sbs.
ÚTSALA!
ÚTSALA!
20-70%
afsláttur í
sérvörudeild
Hrísalundur sér um sína
*