Dagur - Tíminn Akureyri - 14.02.1997, Síða 10

Dagur - Tíminn Akureyri - 14.02.1997, Síða 10
10- Föstudagur 14. febrúar 1997 ^Dagur-'ŒtttTOm HANDBOLTI Skagadóm- araribikar- úrslitum Gunnar Viðarsson og Sigur- geir Sveinsson, frá Akranesi munu dæma úrslitaleik karla í Bikarkeppni HSÍ, á milli Hauka og KA, sem fram fer í Laugar- dalshöllinni annan laugardag. Dómarar á úrslitaleiknum í kvennaflokki, sem er á milli Hauka og Vals, verða Hafsteinn Ingibergsson og Gísli Jóhanns- son, sem eru frá Keflavík. Stefán og Rögnvald í Drammen Stefán Arnaldsson og Rögnvald Erlingsson munu dæma síðari viðureign norska Iiðsins Dram- men og franska liðsins US Cret- eil í 8-liða úrslitunum í Borga- keppni Evrópu, sem fram fer í Noregi á sunnudaginn. Jafnt varð í fyrri leik liðanna, í Frakklandi, 24:24, og norska liðið er því heldur líklegra til að komast áfram. UM HELGINA HANDBOLTI 1. deild karla: Laugardagur ÍBV-ÍR kl. 16:30 1. deild kvenna: Laugardagur ÍBA-KR kl. 16:30 Fram-FH kl. 15:00 Fylkir-ÍBV kl. 14:30 2. deild karla: Föstudagur Þór-Ármann kl. 20:00 ÍH-KR kl. 20:00 Keflavík-Hörður kl. 20:30 KARFA Úrvalsdeildin Föstudagur ÍA-Tindastóll kl. 20 UMFN-KFÍ kl. 20 BLAK 1. deild karla: Föstudagm Þróttur N.-Stjarnan kl. 20:00 Laugardagur ÍS-KA kl. 14:00 Þróttur N.-Stjarnan kl. 15:30 1. deild kvenna: Föstudagur Þróttur N.-Vikingur kl. 21:30 Laugardagur Víkingur-Þróttur kl. 14:00 FRJÁLSAR Meistaramót íslands innanhúss í karla- og kvennaflokki verður haldið í Baldurshaga og í Kaplakrika um helgina. GLÍMA Bikarglíma íslands, sú 25. í röðinni, verður haldin að Laug- arvatni á morgun og hefst klukkan 14. Búist er við því að keppendur verði á annað hundrað talsins, en glímt verð- ur í íjórum flokkum karla og þremur flokkum kvenna. Glímd verður jafnaðarglíma með út- sláttarfyrirkomulagi. FIMLEIKAR Skrúfumótið hefst á morgun í íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi og lýkur á sunnudaginn. Það er Fimleikadeild Gróttu sem sér um framkvæmd mótsins. i / Þ R 0 T T I R HANDBOLTI Naumt hjá KR Þorbjörn Jensson, landsliðsþjálfari, met- ur möguleika ís- lensku liðanna á að komast áfram í Evr- ópukeppninni. Morgundagiu-inn er sann- kallaður Evrópudagur hjá KA og Stjörnunni, en þá fara fram síðari leikir lið- anna í 8-liða úrslitum Evrópu- mótanna í handknattleik. Liðin hafa aldrei náð jafn langt á Evr- ópumótum eins og í ár, en sú þraut að vinna sér sæti x undan- úrslitum keppninnar reynist ör- ugglega erfið fyrir bæði liðin, sem eiga útileiki fyrir höndum. KA leikur gegn ungverska liðinu Fotex Veszprém í Evrópukeppni bikarahafa klukkan 14 að ís- lenskum tíma, og þremur tímum síðar leikur Stjarnan síðari leik sinn í EHF-keppninni gegn spánska Iiðinu Academica Vigo. Þorbjörn Jensson, landsliðsþjálf- ari, var fenginn til að meta möguleika íslensku liðanna á sæti í undanúrslitunum. Öflug vörn lykilatriði „KA-menn þurfa að glíma við gífurlega erfltt verkefni, því þetta ungverska lið hefur mikla hefð á bak við sig í Evrópu- keppni og hefur meðal annars orðið Evrópumeistari. Það var nánast engin vörn hjá KA í fyrri leik liðanna og það er algjört lykilatriði að spila góðan varn- arleik ytra. Ef ég þekki Alfreð Gíslason, þjálfara KA, rétt þá er Sergei Ziza leikmaður KA í baráttunni við Zoltán Vergendi hjá Fotex Veszprém, í fyrri leik liðanna um síðustu helgi. Mynd. jhf hann örugglega mjög óánægður með þennan þátt og kemur til með að leggja mikla áherslu á hann,“ segir Þorbjörn. „Annað atriði, sem skiptir miklu máli fyrir KA-menn er að halda hraðanum niðri, KA- liðið er mikið sóknarlið og hættir til að ljúka sóknum sínum á stutt- um tíma.“ Þorbjörn sagðist búast við því að maður yrði settur til höfðs Róberti Julian Duranona, þegar KA-liðið væri í sókn. „Hann er lykilmaður í sókiúnm og gefur margar sendingar á Leó Örn á línunni. KA-menn mega búast við því að hann verði tekinn úr umferð frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu,“ sagði Þorbjörn. Hann taldi að erfiðir leikir að undanförnu hjá KA, ættu ekki að hafa áhrif á leik liðsins á morg- un og heldur ekki tapið gegn Valsmönnum í fyrrakvöld. „Það er mín reynsla, að þeir leikir sem eru að baki fylgja mönnum ekki í Evrópukeppninni." Spænsk lið eru miklu sterkari á heimavelli „Spænsk lið er gífurlega sterk á heimavelli. Það er eins og um tvö ólík lið sé að ræða, eftir því hvort maður mætir þeim á heima- eða útivelli. Stjarnan fékk góð tækifæri í heimaleikn- um, en spilaði þá lokakaflann óskynsamlega og náði ekki að „dempa“ sig niður. Möguleikar Stjörnunnar eru kannski ekki miklir á að komast áfram, en þeir felast í því að þeir nái að halda leiknum mjög mikið niðri og spila eins fáar sóknir og hægt er,“ sagði Þorbjörn. llann sagði að Stjörnumenn mættu búast við því að Valdimar Grímsson, yrði tekinn úr umferð allan leikinn, því það hafi geíist Vigo-mönnum mjög vel í leiknum í Garðabæn- um xim síðustu helgi. Jakob meiddur KA-maðurinn Jakob Jóns- son, tognaði á úlnlið í leiknum gegn Val í fyrra- kvöld og hann fer því ekki með liðinu til Ungverjalands. Sömu sögu er að segja um Sverri Björnsson, sem enn er að ná sér eftir fíngurbrot. Aðeins tólf leikmenn KA héldu til Reykjavíkur í gær, en flogið verður utan nú í morgunsárið. KA-menn verða síðan á ferðalagi í all- an dag, millilent verður í Amsterdam og þaðan liggur leiðin til Búdapest. Síðasti áfangi ferðarinnar, til Veszprém, verður með lang- ferðabíl, en búist er við því að hópuiánn verði kominn þangað kl. 20 í kvöld að ungverskum tíma, eða kl. 19 að íslenskum tíma. KA- menn munu taka létta æf- ingu í höllinni í kvöld, en á morgun fá leikmenn liðsins sitt erfíðasta verkefni í Evr- ópukeppni til þessa. Búist er við því að allt að þrjú þúsund áhorfendur fylgist með leiknum, sem einnig verður sýndur beinni útsendingu á ungversku einkastöðinni Duna. lslensk- ir sjónvarpsáhorfendur eiga þess kost að fylgjast með leiknum í beinni útsendingu á Rikissjónvarpinu og hefst útsendingin klukkan 14. leiknum og við það virtist sem Þórsarar misstu sjálfstraustið. Það bætti síðan ekki stöðuna hjá Þór að Bandaríkjamaðurinn í liðinu, Fred Williams fékk sína fjórðu villu í upphafí hálfleiks- ins. Hann varð síðan að yfirgefa völlinn átta mínútum fyrir leikslok. Shawn Smith skoraði 23 stig fyrir Hauka og Pétur Ingvars- son var með 15 stig. Williams var með 21 stig fyrir Þór, Kon- ráð Óskarsson gerði 14 stig og Hafsteinn Lúðvíksson 12. Grindavíkursigur gegn ÍR IR-ingar réðu leiknum í Grinda- vík frá fyrstu minútu til leik- hlés, en þá höfðu ÍR- ingar for- ystuna 38:52. Sú forysta dugði ÍR skammt, því það tók heima- liðið aðeins tvær og hálfa mín- útu af síðari hálfleiknum, til að jafna metin. Eiríkur Önundar- son, sem skoraði nítján stig fyrir ÍR í fyrri hálfleiknum, náði sér ekki á strik í síðari hálfleik og Tito Baker gat sig lítið hreyft úr góðri gæslu Péturs Guð- mundssonar. Grindvíkingar litu hins vegar aldrei um öxl og innbyrtu öruggan sigur. Herman Mayers átti stórleik og skoraði 33 stig fyrir Grindavík. Eggert Garðarsson skoraði 22 stig fyrir ÍR og var þeirra besti maður. gg/gþö/fe Úrslit í úrvalsdeildinni í gærkvöld: Grindavík-ÍR 90:74 KR-Skallagrímur 78:77 Breiðabiik-Keflavík 71:111 Haukar-Þór 88:65 íslensku liðin verðaað halda hraðanum niðri KR-ingar, sem tapað höfðu þremur leikjum í röð imnu nauman sigur á Skallagrími, þegar liðin mætt- ust í íþróttahúsinu á Seltjarnar- nesi í gærkvöld. Liðin skiptust á forystunni nær allan leik- tímann, en KR-ingar höfðu þó frumkvæðið á lokamínútunum. Skallagrímur náði að minnka murtinn í 78:77 með körfu Tómasar Holton tólf sekúndum fyrir leikslok, en KR-ingum tókst að halda boltanum út leik- tímann og innbyrða dýrmætan sigur í baráttunni um sæti í úr- slitakepprúnni. Jonathan Bow skoraði 21 stig fyrir KR, en Joe Rhett var stigahæstur gestanna með 18 stig. Hafsteinn Lúðvíksson og félagar hjá Þór stóðu upp í hárinu á Haukunum í fyrri hálfleik í leik liðanna, en í þeim síðari voru það Hafnfirðingarnir sem gáfu tóninn. Mynd:jHF Þórsarar veittu Hauk- um viðnám fyrir hlé Þórsarar veittu Haukaliðinu kröftuga mótspyrnu og voru sterkari aðilinn framan af leiknum. Gestirnir spiluðu sterkan varnarleik og höfðu um tíma ellefu stiga forskot x' fyrri hálfleiknum, en sá munur var kominn niður í tvö stig í leik- hléi, 36:38. Haukarnir spiluðu stífa pressuvörn í síðari hálf- HANDBOLTI KARFA • Úrvalsdeíld

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.