Dagur - Tíminn Akureyri - 14.02.1997, Qupperneq 10
10- Föstudagur 14. febrúar 1997
^Dagur-'ŒtttTOm
HANDBOLTI
Skagadóm-
araribikar-
úrslitum
Gunnar Viðarsson og Sigur-
geir Sveinsson, frá Akranesi
munu dæma úrslitaleik karla í
Bikarkeppni HSÍ, á milli Hauka
og KA, sem fram fer í Laugar-
dalshöllinni annan laugardag.
Dómarar á úrslitaleiknum í
kvennaflokki, sem er á milli
Hauka og Vals, verða Hafsteinn
Ingibergsson og Gísli Jóhanns-
son, sem eru frá Keflavík.
Stefán og Rögnvald í
Drammen
Stefán Arnaldsson og Rögnvald
Erlingsson munu dæma síðari
viðureign norska Iiðsins Dram-
men og franska liðsins US Cret-
eil í 8-liða úrslitunum í Borga-
keppni Evrópu, sem fram fer í
Noregi á sunnudaginn. Jafnt
varð í fyrri leik liðanna, í
Frakklandi, 24:24, og norska
liðið er því heldur líklegra til að
komast áfram.
UM HELGINA
HANDBOLTI
1. deild karla:
Laugardagur
ÍBV-ÍR kl. 16:30
1. deild kvenna:
Laugardagur
ÍBA-KR kl. 16:30
Fram-FH kl. 15:00
Fylkir-ÍBV kl. 14:30
2. deild karla:
Föstudagur
Þór-Ármann kl. 20:00
ÍH-KR kl. 20:00
Keflavík-Hörður kl. 20:30
KARFA
Úrvalsdeildin
Föstudagur
ÍA-Tindastóll kl. 20
UMFN-KFÍ kl. 20
BLAK
1. deild karla:
Föstudagm
Þróttur N.-Stjarnan kl. 20:00
Laugardagur
ÍS-KA kl. 14:00
Þróttur N.-Stjarnan kl. 15:30
1. deild kvenna:
Föstudagur
Þróttur N.-Vikingur kl. 21:30
Laugardagur
Víkingur-Þróttur kl. 14:00
FRJÁLSAR
Meistaramót íslands innanhúss
í karla- og kvennaflokki verður
haldið í Baldurshaga og í
Kaplakrika um helgina.
GLÍMA
Bikarglíma íslands, sú 25. í
röðinni, verður haldin að Laug-
arvatni á morgun og hefst
klukkan 14. Búist er við því að
keppendur verði á annað
hundrað talsins, en glímt verð-
ur í íjórum flokkum karla og
þremur flokkum kvenna. Glímd
verður jafnaðarglíma með út-
sláttarfyrirkomulagi.
FIMLEIKAR
Skrúfumótið hefst á morgun í
íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi
og lýkur á sunnudaginn. Það er
Fimleikadeild Gróttu sem sér
um framkvæmd mótsins.
i
/ Þ R 0 T T I R
HANDBOLTI
Naumt hjá KR
Þorbjörn Jensson,
landsliðsþjálfari, met-
ur möguleika ís-
lensku liðanna á að
komast áfram í Evr-
ópukeppninni.
Morgundagiu-inn er sann-
kallaður Evrópudagur
hjá KA og Stjörnunni, en
þá fara fram síðari leikir lið-
anna í 8-liða úrslitum Evrópu-
mótanna í handknattleik. Liðin
hafa aldrei náð jafn langt á Evr-
ópumótum eins og í ár, en sú
þraut að vinna sér sæti x undan-
úrslitum keppninnar reynist ör-
ugglega erfið fyrir bæði liðin,
sem eiga útileiki fyrir höndum.
KA leikur gegn ungverska liðinu
Fotex Veszprém í Evrópukeppni
bikarahafa klukkan 14 að ís-
lenskum tíma, og þremur tímum
síðar leikur Stjarnan síðari leik
sinn í EHF-keppninni gegn
spánska Iiðinu Academica Vigo.
Þorbjörn Jensson, landsliðsþjálf-
ari, var fenginn til að meta
möguleika íslensku liðanna á
sæti í undanúrslitunum.
Öflug vörn lykilatriði
„KA-menn þurfa að glíma við
gífurlega erfltt verkefni, því
þetta ungverska lið hefur mikla
hefð á bak við sig í Evrópu-
keppni og hefur meðal annars
orðið Evrópumeistari. Það var
nánast engin vörn hjá KA í fyrri
leik liðanna og það er algjört
lykilatriði að spila góðan varn-
arleik ytra. Ef ég þekki Alfreð
Gíslason, þjálfara KA, rétt þá er
Sergei Ziza leikmaður KA í baráttunni við Zoltán Vergendi hjá Fotex
Veszprém, í fyrri leik liðanna um síðustu helgi. Mynd. jhf
hann örugglega mjög óánægður
með þennan þátt og kemur til
með að leggja mikla áherslu á
hann,“ segir Þorbjörn.
„Annað atriði, sem skiptir
miklu máli fyrir KA-menn er að
halda hraðanum niðri, KA- liðið
er mikið sóknarlið og hættir til
að ljúka sóknum sínum á stutt-
um tíma.“
Þorbjörn sagðist búast við því
að maður yrði settur til höfðs
Róberti Julian Duranona, þegar
KA-liðið væri í sókn. „Hann er
lykilmaður í sókiúnm og gefur
margar sendingar á Leó Örn á
línunni. KA-menn mega búast
við því að hann verði tekinn úr
umferð frá fyrstu mínútu til
þeirrar síðustu,“ sagði Þorbjörn.
Hann taldi að erfiðir leikir að
undanförnu hjá KA, ættu ekki að
hafa áhrif á leik liðsins á morg-
un og heldur ekki tapið gegn
Valsmönnum í fyrrakvöld. „Það
er mín reynsla, að þeir leikir
sem eru að baki fylgja mönnum
ekki í Evrópukeppninni."
Spænsk lið eru miklu
sterkari á heimavelli
„Spænsk lið er gífurlega sterk á
heimavelli. Það er eins og um
tvö ólík lið sé að ræða, eftir því
hvort maður mætir þeim á
heima- eða útivelli. Stjarnan
fékk góð tækifæri í heimaleikn-
um, en spilaði þá lokakaflann
óskynsamlega og náði ekki að
„dempa“ sig niður. Möguleikar
Stjörnunnar eru kannski ekki
miklir á að komast áfram, en
þeir felast í því að þeir nái að
halda leiknum mjög mikið niðri
og spila eins fáar sóknir og hægt
er,“ sagði Þorbjörn. llann sagði
að Stjörnumenn mættu búast við
því að Valdimar Grímsson, yrði
tekinn úr umferð allan leikinn,
því það hafi geíist Vigo-mönnum
mjög vel í leiknum í Garðabæn-
um xim síðustu helgi.
Jakob meiddur
KA-maðurinn Jakob Jóns-
son, tognaði á úlnlið í
leiknum gegn Val í fyrra-
kvöld og hann fer því ekki
með liðinu til Ungverjalands.
Sömu sögu er að segja um
Sverri Björnsson, sem enn
er að ná sér eftir fíngurbrot.
Aðeins tólf leikmenn KA
héldu til Reykjavíkur í gær,
en flogið verður utan nú í
morgunsárið. KA-menn
verða síðan á ferðalagi í all-
an dag, millilent verður í
Amsterdam og þaðan liggur
leiðin til Búdapest. Síðasti
áfangi ferðarinnar, til
Veszprém, verður með lang-
ferðabíl, en búist er við því
að hópuiánn verði kominn
þangað kl. 20 í kvöld að
ungverskum tíma, eða kl. 19
að íslenskum tíma. KA-
menn munu taka létta æf-
ingu í höllinni í kvöld, en á
morgun fá leikmenn liðsins
sitt erfíðasta verkefni í Evr-
ópukeppni til þessa.
Búist er við því að allt að
þrjú þúsund áhorfendur
fylgist með leiknum, sem
einnig verður sýndur beinni
útsendingu á ungversku
einkastöðinni Duna. lslensk-
ir sjónvarpsáhorfendur eiga
þess kost að fylgjast með
leiknum í beinni útsendingu
á Rikissjónvarpinu og hefst
útsendingin klukkan 14.
leiknum og við það virtist sem
Þórsarar misstu sjálfstraustið.
Það bætti síðan ekki stöðuna
hjá Þór að Bandaríkjamaðurinn
í liðinu, Fred Williams fékk sína
fjórðu villu í upphafí hálfleiks-
ins. Hann varð síðan að yfirgefa
völlinn átta mínútum fyrir
leikslok.
Shawn Smith skoraði 23 stig
fyrir Hauka og Pétur Ingvars-
son var með 15 stig. Williams
var með 21 stig fyrir Þór, Kon-
ráð Óskarsson gerði 14 stig og
Hafsteinn Lúðvíksson 12.
Grindavíkursigur
gegn ÍR
IR-ingar réðu leiknum í Grinda-
vík frá fyrstu minútu til leik-
hlés, en þá höfðu ÍR- ingar for-
ystuna 38:52. Sú forysta dugði
ÍR skammt, því það tók heima-
liðið aðeins tvær og hálfa mín-
útu af síðari hálfleiknum, til að
jafna metin. Eiríkur Önundar-
son, sem skoraði nítján stig
fyrir ÍR í fyrri hálfleiknum, náði
sér ekki á strik í síðari hálfleik
og Tito Baker gat sig lítið hreyft
úr góðri gæslu Péturs Guð-
mundssonar. Grindvíkingar litu
hins vegar aldrei um öxl og
innbyrtu öruggan sigur.
Herman Mayers átti stórleik og
skoraði 33 stig fyrir Grindavík.
Eggert Garðarsson skoraði 22
stig fyrir ÍR og var þeirra besti
maður. gg/gþö/fe
Úrslit í úrvalsdeildinni
í gærkvöld:
Grindavík-ÍR 90:74
KR-Skallagrímur 78:77
Breiðabiik-Keflavík 71:111
Haukar-Þór 88:65
íslensku liðin verðaað
halda hraðanum niðri
KR-ingar, sem tapað höfðu
þremur leikjum í röð
imnu nauman sigur á
Skallagrími, þegar liðin mætt-
ust í íþróttahúsinu á Seltjarnar-
nesi í gærkvöld. Liðin skiptust á
forystunni nær allan leik-
tímann, en KR-ingar höfðu þó
frumkvæðið á lokamínútunum.
Skallagrímur náði að minnka
murtinn í 78:77 með körfu
Tómasar Holton tólf sekúndum
fyrir leikslok, en KR-ingum
tókst að halda boltanum út leik-
tímann og innbyrða dýrmætan
sigur í baráttunni um sæti í úr-
slitakepprúnni. Jonathan Bow
skoraði 21 stig fyrir KR, en Joe
Rhett var stigahæstur gestanna
með 18 stig.
Hafsteinn Lúðvíksson og félagar hjá Þór stóðu upp í hárinu á Haukunum í
fyrri hálfleik í leik liðanna, en í þeim síðari voru það Hafnfirðingarnir sem
gáfu tóninn. Mynd:jHF
Þórsarar veittu Hauk-
um viðnám fyrir hlé
Þórsarar veittu Haukaliðinu
kröftuga mótspyrnu og voru
sterkari aðilinn framan af
leiknum. Gestirnir spiluðu
sterkan varnarleik og höfðu um
tíma ellefu stiga forskot x' fyrri
hálfleiknum, en sá munur var
kominn niður í tvö stig í leik-
hléi, 36:38. Haukarnir spiluðu
stífa pressuvörn í síðari hálf-
HANDBOLTI
KARFA • Úrvalsdeíld