Dagur - Tíminn Akureyri - 22.02.1997, Qupperneq 2
14 - Laugardagur 22. febrúar 1997
|Dagur-®mmtn
Fyrir smáfólkið
Úrslit í Tónabæ
Dekur- og daðurdagar eru
ekki bara fyrir fullorðna
heldur er sjálfsagt að
dekra svolítið við börnin líka.
Hvernig líst ykkur á tillögurnar
sem á eftir fara?
Tanja tatarastelpa
í dag kemur „Tanja tatara-
stelpa" í heimsókn í Ævintýra-
Kringluna í Reykjavík. Tanja
hefur farið víða en eins og flest-
ir vita eru tatarar þekktir fyrir
að ferðast um heima og geima.
Það er alveg öruggt að Tanja
hefur frá ýmsu að segja. Ólöf
Sverrisdóttir, leikkona, samdi
leikþáttinn og hefur sýnt á leik-
skólum og víðar. Leikritið hefst
klukkan 14:30 í dag. Aðgangs-
eyrir er 300.
Á skíðum skemmti ég
mér
Nú er um að
gera að
nota allan
snjóinn og
bregða sér á
skíði. Bruna
nokkrar
ferðir niður
brekkurnar
og dekra
svo við sig
og sína með kakói og kleinum
þegar heim er komið.
Fyrir stálpuðu börnin er Tóna-
bær staðurinn til að heimsækja
í dag. Æsispennandi úrslit verði
í íslandsmeistarakeppninni í
frjálsum dönsum hjá krökkum
10-12 ára í dag. Keppnin hefst
klukkan tvö í Tónabæ. Eldri
krakkar verða með skemmtiat-
riði og Magnús Scheving kynnir
en keppendur eru 85 talsins.
Stelpur í skákkeppni
Stelpur og strákar, og allir
skákáhugamenn athugið.
Grunnskólaskákmót stúlkna
verður haldið á sunnudaginn í
húsnæði Skáksambandsins að
Faxafeni 12 og byrjar taflið
klukkan tvö eftir hádegi. Keppt
verður í tveimur aldursflokk-
um, 12 ára og eldri og 11 ára
og yngri, þannig að allar geta
fundið eitthvað við sitt hæfi.
Æskan og hesturinn
Hvaða barn hefur ekki gaman
af „ho ho“? Þeir sem búsettir
eru á höfuðborgarsvæðinu geta
lagt leið sína í Reiðhöll Gusts í
Kópavogi. Þar standa hesta-
mannafélög standa fyrir dag-
skrá sem ber yfirskriftina
„Æskan og hesturinn." Þar
verður ýmislegt sem gleður
augað eins og hindrunarstökk,
hlýðniæfingar og fleira. Dag-
skráin stendur frá eitt til fimm
og er frítt inn á svæðið.
Munið
áonudagim
Konudagsblóm í úrvali
Gleðjum þessarelskur
meðgóðrígjöfl
Opið sunnudag frá kl. 8-21
*
AKUR
Kaupangi v/Mýrarveg • Sími 462 4800
ggj \ö'í
VtiBP
Bryndís Baldursdóttir, til vinstri, og Þóra Björg Magnúsdóttir. „Það er þungt að vakna við áhyggjur heilsuleysis,
þó ekki bætist ofan á áhyggjur vegna fjárhagsþrenginga .** Mynd: GS
Hjálpum Herdísi
bætist ofan á áhyggjur vegna
fjárhagsþrenginga," segja Þóra
Björg og Bryndís. - Opnaður
hefur verið bankareikingur í
Brekkuafgreiðslu Landsbanka
íslands á Akureyri, kjörbók nr.
63100. Reikningurinn er á
nafni Herdísar, sem er til heim-
ilis að Einholti 2b á Akureyri.
„Hvernig aðgerðin í Kaup-
mannahöfn hefur tekist til er of
fljótt að fullyrða um. En auðvit-
að biðjiun við þess öll að Guð
gefi góðan bata og Herdís geti
notið nýra systur sinnar. Það er
ekki á okkar valdi að ráða við
illlæknandi veikindi, en hins-
vegar getum við létt fjárhags-
byrðinni af Herdís - ef við
stöndum saman,“ segja Bryndís
og Þóra Björg. -sbs.
Herdís Hauksdóttir er ein
af þessum mörgu sjiík-
lingum sem fáir vita af.
Hún hefur sinnt vinnu sinni og
reynt að lifa h'finu eins og að-
stæður hennar hafa leyft. Nú í
febrúar fór hún til Kaupmanna-
hafnar, ásamt foreldrum sínum
og eldri systur. Þar gengust þær
systur undir aðgerð - og þar gaf
eldri systir Herdísar henni ann-
að nýra sitt - enda voru nýru
Herdísar nánast óstarfhæf,"
segja Bryndís Baldursdóttir og
Þóra Björg Magnúsdóttir á Ak-
ureyri.
Þær stöllur hafa, ásamt fleir-
um, stofnað til íjársöfnunar til
styrktar Herdísi Hauksdóttur.
„Það er þungt að vakna við
áhyggjur heilsuleysis, þó ekki
Stofnað hefur
verið til
fjársöfnunar á
Akureyri til
styktar Herdísi
Iíauksdóttufl
sem hefur átt við
erfið veikindi að
stríða.
Vetrarleikar á Leirutjöm
Mikið stendur til hjá
íþróttadeild hesta-
mannafélagsins Léttis á
Akureyri í dag. Fjöldi hesta-
manna á öllum aldri mun safn-
ast saman ásamt hestum sínum
á ísnum á Leirutjörn, austan
við svæði Skautafélags Akur-
eyrar, og gera sér glaðan dag.
Ástæðan er hinir árlegu
Vetrarleikar sem félagið hefur
staðið fyrir undanfarin ár. Dag-
skráin í dag byrjar klukkan eitt.
Fyrst verður keppt í tölti á ís í
barna-, unglinga-, ung-
mennaflokki og einnig tveimur
fullorðinsflokkum. Síðan verða
stóðhesta- og hryssusýningar.
Síðasti dagskrárliðurinn er
skeiðkappreiðar en áætlað er
að leikunum ljúki milli íjögur
og fimm. „Svo er bara að vona
að veðrið verði gott,“ segir
Höskuldur Jónsson, sem er einn
þeirra sem staðið hefur í undir-
búningi.
Matthías Gestsson hefur
fylgst með Vetrarleikunum und-
anfarin ár og einnig ískappleik-
unum sem haldnir voru áður en
Vetrarleikarnir komu tfl. Hann
segir muninn á því að vera á ís
og venjulegum reiðvelli tölu-
verðan. „Það þykir gott að
hleypa á ís en hins vegar getur
verið hætta á að hrossin fari
flöt í beygjum. Því þarf að hafa
þau sérstaklega vel járnuð þeg-
ar keppt er á ís,“ segir Matthí-
as. AI
Tölt á ís. Frá Vetrarleikum Léttis 1995.