Dagur - Tíminn Akureyri - 22.02.1997, Síða 19

Dagur - Tíminn Akureyri - 22.02.1997, Síða 19
^Dagur-'QRmtmt Laugardagur 22. febrúar 1997 - 31 Stúlknastórveldi að myndast Umsjónarmaður Magnús Geir Guðmundsson Spice Girls í öllu sínu ögrandi veldi. Þær uppfylla vafalaust ekki kröfur margra kvenfrelsis- sinna hvað ímynd og útlit snertir, en eru þó á góðri leið með að ná öllu sínu fram til jafns við karlpoppstjörnur og rúmlega það. Þar spilar og fleira inn í en bara ímynd og sætt útlit. - Spice Girls eru á góðri leið með að leggja undir sig poppheiminn Það fer vel á því þar sem hinn ramm- íslenski konudagur er á morgun, að konum sé gert hátt undir höfði að þessu sinni. Ekki það að það sé ekki gert venjulega, það er reynt eftir getu, en það má samt alltaf gera betur. Svo er nú staðreynd, að „hið veikara kyn er sífellt, sem betur fer, að sækja í sig veðrið og er það meira en vel. I tönlistinni er þetta ekki hvað síst áberandi og eru þær sífelt fleiri konurnar sem ná vel að hasla sér völl og rúmlega það. Það er reyndar svo komið að kvenstjörnur í poppinu og rokkinu eru alveg jafn vinsælar og karl- stjörnur og ef eitthvað er, eru þær nú að verða fengsælli en þeir. í ofanálag virðist svo margt benda til þess, að hreint kvennastórveldi sé að myndast í formi hljómsveitar að nafni Spice Girls. Poppheimurinn undirlagður Með áræðni, djörfung, hispursleysi, taumlausri gleði og ánægju í sínu lauf- létta og dansfléttaða poppi, eru nefni- lega fimm ungar breskar stúlkur á aldr- inum 21 til 24 ára nú komnar langleið- ina með að leggja undir sig poppheiminn og flest sem í honum er. Þær Jerry, Mel- anie, Melaine C., Victoria og Emma, eiga það allar sameiginlegt (eins og meðfylgjandi mynd ber með sér) að vera vel snoppufríðar og á það auðvitað sinn þátt í uppgangi þeirra. En þær liafa líka fleira til brunns að bera, semja allt sjálf- ar, lög og texta og eru í flestu eða öllu sínir eigin „herrar“. Þær fara sem sagt sínu fram og það nákvæmlega eins og þær sjálfar vilja og láta ekkert að því er virðist aftra sér. Þannig sýnist manni að þær hafi fyllt í eitthvert gat sem fyrir var og það stórt, gat sem myndast hefur ein- faldlega vegna þess að kvennahljóm- sveitir hafa ekki fyrr komið fram sem Spice Girls. Það sem er m.ö.o. að gerast, að ungir karlar eru loksins fyrir alvöru að éignast kvenátrúnaðargoð, sem standa undir nafni og eru sambærileg við, svo nærtækt dæmi í tíma sé tekið, Take That. Slíkt hefur vart gerst fyrr, þannig að á nokkurn hátt er um jafnrétt- isávinning að ræða. Margar af stórsöng- konum samtímans, Madonna, Whitney Houston, Celine Dion, Alanis Morrisette o.fl. hafa vissulega hrifið margan dreng- inn um heim allan, en þeirra vinsældir eru einhvern veginn bara öðru vísi vaxn- ar og með öðrum blæ. Þeirra vinsældir eru auðvitað líka breiðari, en það eru þær einnig svo sannarlega að verða hjá Spice Girls. Eitt stórt ævintýri Þegar litið er á feril Spice Girls líkist hann í fáum orðum sagt, einu stóru ævintýri, sem átt hefur sér stað á ótrú- lega skömmum tíma. Það eru ekki nema sjö mánuðir frá því að fyrsta smáskífan kom út með stelpunum, Wannabe, og vissu þá fáir utan Bretlands a.m.k. hverjar þær voru. Jarðvegurinn hafði þó verið vel undirbúinn og þær þá þegar skapað sér orðspor fyrir líflega fram- komu með meiru. Færði það þeim samn- ing við Virgin-útgáfuna, sem eins og frægt varð af fréttum er í eigu loftbelg- skappans Richards Bransons. Eins og hrakfarir hans reyndust miklar með því tiltæki, þá var happafengur hans með af taka Spice Girls upp á sína arma, af sama skapi mikill, ef ekki meiri. Fór Wannabe rakleiðis á toppinn í heima- landinu þegar hún kom út í júlí og það gerðu einnig tvær aðrar smáskífur sem komu út í kjölfarið á árinu 1996, Say you’ll be there og 2 becomes 1. Tvær fyrrtöldu smáskífurnar reyndust svo vera númer tvö og flmm yfir best seldu smáskífur ársins í Bretlandi á síðasta ári. Fyrsta stóra platan, Spice, kom svo út í seinni hluta nóvembermánaðar og rauk eins og smáskífurnar beint á topp sölulistans. Reyndist hún svo vera átt- unda mest selda platan í Bretlandi yfir árið. Heimsyfirráð að hætti Bítlanna Er nú svo komið, að á þessum aðeins röska sjö mánaða útgáfuferli hafa stúlk- urnar í Spice Girls selt yfir 8 milljónir af smáskífuninn þremur og um 6 milljónir af stóru plötunni, sem eins og áður sagði, er aðeins um þriggja mánaða gömul. Flæða vinsældir þeirra gjörsam- lega út um allt þessa dagana og hafa hvergi dalað. Eru fræðingar í poppinu farnir að ganga svo langt að spá því að Spice Girls geti náð viðlíka hylli og sjálfir Bítlarnir. Kann það eflaust að hljóma út í hött í eyrum margra, en samt er það nú þannig að stúlkurnar eru nú þegar farn- ar að ná svipuðum árangri og í sumum tilfellum jafnvel betri. Wannabe hefur t.d. náð á toppinn í hvorki fleiri né færri en rúmlega 30 löndum í flestum ef ekki öllum heimsálfum, sem er til jafns við Liverpoolgoðin. í Bandaríkjunum, þar sem alltaf er svo mikilvægt að festa sig í sessi, eru þær svo þessa dagana að „mála bæinn rauðan“ og hafa þar slegið Bítlunum við. Wannabe gerði nefnilega enn betur en fyrsta smáskífa þeirra fyrir rúmum 30 árum, I wanna hold your hand, gerði. Fóru þær beint í 11. sæti Billboardlistans, en Bítlarnir fóru á sín- um tíma í það 17. í síðustu viku náði svo lagið á toppinn, aðeins þremur vikum eftir útkomu. Tahð er svo næsta víst að Spice fylgi þessum árangri eftir í kjölfar- ið. Það segir svo meira en meira en mörg orð um uppganginn í Bandaríkjun- um, að jafn frægt og virðulegt tímarit og Time, leggur heilar þrjár síður undir umíjöllun um Spice Girls fyrir skömmu. Slíkt gerist nær aldrei þegar um eina hljómsveit er bara að ræða og oftast er bara hálf síða eða svo látin nægja í hverju tölublaði. Hvort hins vegar stúlk- urnar ná að standa undir þessum gríð- arþunga frægðarinnar til langframa verður tíminn að leiða í ljós, en í dag bendir ekkert til annars en að þær verði sannkaUað stúlknastórveldi í poppheim- inum. 11 GAIXID 1 LUKKA diiiiijfeiiujLi aáií k á.i 1 Lí.ÍlUA iAlÍLAÍh ÍíIMIÍA A f f nr t f 'f ?T : fc, P O P P ká. i , A . i ál ri ii, W ’ .1 i U i i , i 1 iá i ii A . 1 i ., u á í i, ki ir m ir ’TF’ ’’firrf'nf1 Eins og þeir vita sem grannt fylgjast með í tón- listinni bæði hér heima og erlendis, þá er eitt allra vinsæl- asta lagið á íslandi og víðar þessa dagana Don’t speak með bandarísku skapopp/pönksveit- inni No Doubt. Fínt lag þar sem góð laglína fer saman með nokkuð svo kröftugum flutningi. Fetar Don’t speak þar með í fót- spor Just A Girl, sem vakti svo um munaði athygli á hljóm- sveitinni og varð eitt vinsælasta lag síðasta sumars. Eru bæði þessi lög á fyrstu plötu No Dobt, Tragic Kingdom, sem upphaf- lega kom út í Bandaríkjunum síðla ársins 1995. Það tók því sinn tíma hjá sveitinni að vekja athygli og raunar miklu meiri en það sem hér segir af. Ekki aðeins leið langur tími frá út- gáfu Tragic Kindom þar til plat- an fór að seljast að ráði með velgengni Don’t speak, heldur þurfti hún að þrauka í mörg ár við erfið skilyrði, áður en hún fékk tækifæri til útgáfu. Það kom loks 1995 og hefur hin Gwen Stefani hefur átt vaxandi vinsældum að fagna ásamt féiög- um sínum í No Doubt að undan- förnu. þokkafulla söngkona sveitar- innar, Gwen Stefani, átt sinn þátt í því auk velgengninnar í kjölfarið. Ilefur Gwen og félög- um hennar gengið allt í haginn á síðustu mánuðum og stóra platan rokselst. Hefur hún að undanförnu verið í toppsætinu í Bandaríkjunum og í Bretlandi var platan á miklu skriði og náði alla leið í níunda sæti sölu- Ustans. Gamla máltækið sem segir að sígandi lukka sé best, á því vel við um No Doubt. Líkt og stelpurnar í Spice Girls (sem líka prýða hér síðuna) og reyndar margar fleiri tónlistar- konur um þessar mundir, er Gwen Stefani ásamt félögum enn ein staðfestingin á „kvennaby 1 tingu nni“ sem nú á sér stað í tónlistarheiminum. Og er það bara ekki hið besta mál? • Courtney Love, söngkona Hole, sem upp á síðkastið hefur verið að vekja athygli sem leikkona í myndinni „Réttarhöldin yfir Larry Flynn“, hefur að undanförnu verið að vinna nýja plötu með sveitinni sinni. Hún tók sig til fyrir skömmu og samdi eitt stykki lag handa annarri söngkonu sér eldri og forn- frægari, Stevie Nicks, ásamt öðrum. Verður lagið væntan- lega á nýrri plötu frá Nicks, sem kemur út innan tíðar. Plötu Hole er síðan að vænta seinna á árinu. • Það eru fleiri en Björk sem fá að finna fyrir því að ekki má sýna hvað sem er í sjón- varpinu. Önnur söngkona, sérstök eins og Björk, Skin, ásamt félögum sínum í Skunk Anansie, fékk nefnilega líka á sig bann hjá MTV fyrir mynd- bandið við sitt nýjasta smá- skífulag, Hedoism (Just bec- ause you feel good). Ástæð- an? Tvær stúlkur sjást í svip kyssast innilega og það var of mikið af því góða fyrir „sið- prúða” aðstandendur popp- sjónvarpsins. Kann þetta að hafa eyðilagt fyrir laginu, sem fór strax í 13. sæti í fyrstu viku, en hrapaði jafn- harðan þá næstu. • Gamli sönggarpurinn úr Free og Bad Company fyrr á tíð, Paul Rodgers, hefur nú nýverið sent frá sér nýja plötu, sem einfaldlega nefn- ist, Now. Er hún með frum- sömdu efni, en það síðasta sem kappinn sendi frá sér var plata til heiðurs blúsjöfr- inum Muddy Waters og kom út fyrir röskum tveimur árum eða svo. Skin. Bönnuð, en áreiðanlega ekki frekar en fyrr af baki dott- in.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.