Dagur - Tíminn Akureyri - 18.03.1997, Síða 6

Dagur - Tíminn Akureyri - 18.03.1997, Síða 6
18 - Þriðjudagur 18. mars 1997 M E N N I N G O G 1®agur-'2Iímimt L I S T I R Villa í völimdarhúsi Leikfélag Reykjavíkur: VÖLUNDARHÚS eftir Sigurð Pálsson. Leikstjóri: Þórhildur Þorleifsdóllir. Leikmynd: Steinþór Sigurðsson. Lýsing: Lárus Björnsson. Búningar: Þórunn Jónsdóttir. Frumsýnt á Stóra sviði Borgarleikhússins 14. mars. Gunnar Stefánsson skrifar S tilefni aldaraímælisins réði Leikfélagið nokkra höfunda til að skrifa leikrit. Það er virðingarverð nýbreytni. Hins vegar er þetta auðvitað áhætta og ekki unnt að tryggja góðan afrakstur fyrirfram. Því miður hefur ekki tekist nógu vel til í þetta sinn. Þrátt fyrir nokkra glampa þótti mér Völundarhús Sigurðar Pálssonar í meginat- riðum misheppnað verk, lang- dregið, óhnittið og sundurlaust. Sigurður er auðvitað einkum ljóðskáld sem alkunnugt er og í einstökum atriðum leiksins má sjá lýrískar svipmyndir ekki ólaglegar. En dramatískur þráður Völundarhúss er slakur og slitróttur og persónugerð næsta ófullburða. Nú má segja sem svo að natúralísk persónu- sköpun sé alls ekki markmið höfundar í verki sem þessu. En á móti kemur þá að orðlistin og leikur hugmyndanna verður að halda áhuganum vakandi, text- inn verður alltént að hafa eitt- hvert bragð, vera þéttur og lif- ÞJÓÐLEIKHIÍSIÐ Stóra sviðið kl. 20.00 KÖTTUR Á HEITU BLIKKÞAKI eftir Tennessee Wiliams 4. sýn. fimmtud. 20. mars. Uppselt. 5. sýn. föstud. 4. apríl. Uppselt. 6. sýn. sunnud. 6. apríl Nokkur sætl laus. VILLIÖNDIN eftir Henrik Ibsen Laugard. 22. mars. Örfá sæti laus. Laugard. 5. apríl. ÞREK OG TÁR eftir Ólaf Hauk Símonarson Sunnud. 23. mars. Síðasta sýning Örfá sæti laus KENNARAR ÓSKAST eftir Ólaf Hauk Símonarson Föstud. 21. mars. Síðasta sýning LITLI KLÁUS OG STÓRI KLÁUS eftir H.C. Andersen Laugard. 22. mars kl. 14.00. Nokkur sæti laus. Sunnud. 6. apríl kl. 14.00. Smíðaverkstæðið kl. 20.30 LEITT HÚN SKYLDI VERA SKÆKJA eftir John Ford Föstud. 21. mars Laus sæti. Laugard. 22. mars Uppselt. Athygli er vakin á að sýningin er ekki við hæfi barna. Ekki er hægt að hleypa gestum inn í salinn eftir að sýning hefst. Miðasalan er opin mánudaga og þriðju- daga kl. 13-18, frá miövikudegi tíl sunnu- dags kl. 13-20 og til 20.30 þegar sýning- ar eru á þeim tíma. Einnig er tekið á móti símapöntunum frá kl. 10 virka daga. r J tŒ TSiTFfl WjRIRiSil Uti’?*] S 5 ^ LsifijjsiLSfii LEIKFÉLAG AKUREYRAR Kór Leikfélags Akureyrar Kossar og kúlissur Samkomuhúsið 90 ára Söngur, gleði gaman Laugard. 22. mars kl. 20.00. Síðasta sýning Athugið breyttan sýningartima. Afmælistilboð MiSaverS 1500 krónur. Börn yngri en 14 ára 750 krónur. MiSasalan er opin alla virka daga nema mánud. kl. 13.00-17.00 og fram aS sýningu sýningardaga. Simsvari allan sólarhringinn. Sími í miSasölu: 462 1400. ^agur-Ctmtmt - besti tími dagsins! andi. Á það skorti allmikið. Síð- ari hluti lotunnar fram að hléi var beinlínis orðinn þungbær í leikhúsinu þrátt fyrir góða við- leitni leikaranna og mikla yiir- ferð þeirra um sviðið. Má kenna Jökul Völundarhús leiksins er smækkuð mynd af íslandi nú- thnans. Það er í eigu manns sem Völundur heitir (náttúr- lega) og hann ætlar því stóra hluti: „Þetta hús verður tileink- að tuttugustu öldinni í þessari borg. Miðstöð minninganna... Þú kemur hingað og hverfur á vit minninganna. Draumanna." Hann ætlar að kalla fortíðina inn í hús og gera hana lifandi og tölvuvædda. En Völundur, sem ólst upp í verkamannabú- stöðunum við Hringbraut, er fulltrúi hverfandi kynslóðar. Nýja tímann varðar ekkert um minningar og sögu. Fulltrúar hans eru fjárhættuspilarar þrír sem hafast við í kjallaranum, furðulegar fígúrur, svokallað Tríó, Leó, foringinn, áður mála- liði í útlöndum, fíílið Barði og svo Ylfa sem er alveg óskiljan- leg. Til þeirra hefur komið ná- ungi sem heitir Daníel Samúels- son eða Jón Daníel Jónsson, maður sem hefur spilað hátt og tapað og skipt um nafn og kennitölu. Síð- an er enn einn hópur í húsinu: Vala er lítið eitt yngri en Völ- undur. IJún á ruglaða móður sem liflr í for- tíðinni og svo dótturina Betu leikkonu sem er í slagtogi við fé- laga sína, hús- næðislausan leikhóp, að æfa Ieikrit um fortíðina, byggt á dagbók ömmunnar. Þar er sagt frá því þegar Indriði Waage æfði Sex persónur leita höfund- ar eftir Pirandello árið 1926! Þarna kemur fram viðkvæmnis- leg nostalgía, dálítið í ætt við verk Jökuls Jakobssonar. Sá er þó munurinn að Jökull kunni að spinna þennan þráð en hér kubbast hann jafnharðan sund- ur. Hvers vegna gormælt- ur? Sumt í leiknum var býsna hag- anlega gert, nefni ég þar eink- um byrjun annars atriðis ann- ars þáttar, þar sem beitt var látbragðsleik svo að gaman er að. Og yfirleitt ber sýningin vott um góða fagmennsku í vinnu- brögðum - sem sjálfsagt er - og útsjónarsemi af hálfu leikstjór- ans. Sú hugmynd að loka saln- um við Stóra sviðið og láta áhorfendur sitja þar en leikinn fara fram á rými baksviðs var býsna vel út- færð. Maður fékk að vísu nokkuð óljósar hugmyndir um stærð sviðsins, en fyrir Völund- arhús hentar þetta leikrými hreint ekki illa. Atriðið þar sem Völundur leiðir Daníel í spegla- salinn var skemmtilegt. í sviðs- tæknilegu tilliti er með sýning- unni fitjað upp á athyglisverðri nýjung í Borgarleikhúsinu sem í þessu gekk bærilega upp. Um frammistöðu leikaranna er fátt að segja. Þeir skiluðu hlutverkunum eftir hætti og varla von að mikið væri hægt að smíða úr jafn rýrum efnivið, þar sem flestar persónurnar eru klisjur sem maðm hefur séð oft áður. Dæmi um það er amman rugl- aða sem Guðrún Ásmundsdóttir átti auðvitað létt með að sýna. Valgerður Dan (Vala), er eins konar Marta í Völundarhúsinu og mæðist í mörgu, en fátt um hennar túlkun að segja enda persónan flöt eins og flestar aðrar. Helst var mergur í hlut- verki Völundar og Pétur Einars- son fór með það af íþrótt, gæddi karlinn í raun meira lífi en vænta mátti af textanum sem honum er lagður í munn. En hvers vegna er Völundur látinn vera gormæltur? Fjörutíu ára leikaf- mæli Þorsteinn Gunnarsson fór skörulega með Leó; - hann var raunar heiðraður á frumsýn- ingu vegna fjörutíu ára leikaf- mælis og veitir það tilefni til að þakka honum margar góðar stundir í leikhúsinu. - Sigurður Karlsson virtist hafa gaman af að fara með hlutverk Barða og sýndi á sér óvænta hlið. Hanna María Karlsdóttir er hin furðulega kvenpersóna Ylfa. - Af leik- urunum í leikn- um mæddi mest á Betu, Halldóru Geir- harðsdóttur. Þar er álitleg leikkona á ferð sem leikhúsin virðast samtaka um að veðja á. Hún ræður yfir verulegri kunn- áttu og hefur vald á líkamlegri tjáningu, en að vísu fannst mér nokkuð langt gengið í alls kon- ar rokum, bæði raddlega og í hreyfingum; þar er við leik- stjórann að sakast. Og hvað átti flengingin að þýða? Aðrir leik- arar eru Guðlaug Elísabet Ól- afsdóttir, Ari Matthíasson, Björn Ingi Hilmarsson og Þór- hallur Gunnarsson sem hér eru í eins konar æfingabúðum því varla verður neitt bitastætt unnið úr hlutverkunum. Það virðist vera markmið þessa verks að bregða upp myndum og vekja spurningar um hvað satt er og hvað sjón- hverfing í nútímanum. Hér er því lagt upp af allmiklum metn- aði og leikhúsið hefur að sínu leyti tekið vel við. Það er því leiðara að slíkt framtak skyldi ekki skila sér í markvissari og hugtækari sýningu. „Þrátt fyrir nokkra glampa þótti mér Völ- undarhús Sigurðar Páls- sonar í meginatriðum misheppnað verk, lang- dregið, óhnittið og sund- urlaust. “ „Helst var mergur í hlut- verki Völundar og Pétur Einarssonfór með það af íþrótt, gœddi karlinn í raun meira lífi en vœnta mátti af textanum sem honum er lagður í munn. “

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.