Dagur - Tíminn Akureyri - 18.03.1997, Page 8

Dagur - Tíminn Akureyri - 18.03.1997, Page 8
Á laugardaginn hélt Páll Pétursson á Höllustöðum upp á 60 ára afinœli sitt ífélagsheimilinu á Blönduósi. Um fiögur hundruð manns mœttu á staðinn og samglöddust ráðherranum m.a. með söng: „Hce lengi, lengi lifi hann/sem listir allar kann. “ Þá var Páll„landsins besti björn“ og Palli afi sem fór á honum Rauð. „Jú, jú við erum alveg til í að brosa fyrir þig“, svona flest okkar! „Jú, það er rétt hjá þér við erum þjóðieg og sæt og tilbúin í myndatöku." Kristín á Höllustöðum, dóttir Páls, og sonurinn í þjóðbúningum. Myndir.mar Páll á hestavísuna Fálki hefur hug minn glatt hamingjan mér gafhann. Það veit Guð ég segi satt svona vil ég haf’ann. Afkvæmasýning hét þessi dagskrárliður. Hér kyrja börn og barnabörn Páls afmælissönginn sem sunginn var eftir frægu lagi úr Dýrunum í Hálsaskógi. Það er Ólafur Pétur, eldri sonur Páls, sem fer fyrir söngn- um og barnið á handlegg hans lætur ekki trufla sig. Páll og Sigrún Magnúsdóttir tóku auðvitað undir afmælissönginn og stigu á svið með afkvæmum Páls á sýningunni. „Góði Palli, kappinn knár / þú ert sextíu ára í ár.“ Sextugsafmœlissálmur tilPáls á Höllustöðum. Hér er mannval í kvöld, hér á mœlskan öll völd, og hér mun enginn veizluföng hunza. Nú við hyllum þann mann, sem af hugrekki vann og sem hér um bil aldrei varð klumsa. Ég í œskunnar reit talsvert upp til þín leit. Þinna átthaga hlýddir þú kalli. Það var erjað og plœgt, skyldan ávallt var rœkt, jafht við œrnar sem hesta á stalli. Af þvífeitur þú ert er ei Jrásagnarvert þó að fullþröngt sé skorinn þinn stakkur. Þótt í landsföður stól skíni lukkunnar sól þá er Ijúfasti sessinn þinn hnakkur. Laus úr íhaldsins klóm fœrðu ágœtan dóm. Hljómi áfram þín djarfmœlta raustin! Heilsu ágœtri með rœkta anda og geð, njóttu örœfadýrðar á haustin! Sálminn orti og söng Pétur Pétursson, bróðir Páls, en Áskell Jónsson, hinn nœr nírœði lagasmiður, samdi lagið til Páls. m hTn , Var 9amli bærinn á Höllustöð SÍXKSf03 h,*s*"n 9,rn"*!i' *kki Pétur Pétursson var veislustjóri og hér syngur hann sextugsafmælissálm til bróður síns við und- irleik Heiðmars Jónssonar. Það er til nóg af mat, gjöriði svo vel að fá ykkur attur. Menn tóku hvatningu og nutu góðra veiga með. „Og dósir voru Viking frá / til veislu lagðar gylltar / af bjór og víni bestu þær / til barma voru fylltar.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.