Dagur - Tíminn Akureyri - 18.03.1997, Síða 9

Dagur - Tíminn Akureyri - 18.03.1997, Síða 9
Jla9ur-®tmímt Þriðjudagur 18. mars 1997 - 21 1907 Skemmtilegt sumar framundan Nú styttist í að knattspyrnuvertíðinn heijist og það má með sanni segja að þetta verði sumar ungmenna- félaganna. Fjögur unginenna- félög verða mikið í sviðsljósinu og má þar fyrst nefna Leiftur frá Ólafsiírði. Leiftur hefur verið að sækja í sig veðrið undanfarin ár og margir eru á því að í sumar blandi þeir sér virkilega í baráttuna um fslandsmeistara- titilinn. Ólafsfirðingar hafa fengið til sín menn eins og Arnar Grétarsson, Daða Dervic og Lazorik en þeir tveir fyrrnefndu hafa átt nokkuð víst sæti í íslenska landsliðinu. Skallagrímur tryggði sér sæti í Sjóvá-Almennar deildinni eftir harða rimmu við Þrótt Reykjavík. Ólafur Jóhannesson virðist vera að gera góða hluti og það verður gaman að fylgjast með því hvort Borgnesingar feta í fótspor nágranna sinna frá Akranesi. Dalvíkingar unnu sér sæti í 1. deildinni (var 2. deild) í sumar og er stefnan sett á að halda sér þar. Björn Friðþjófsson, formaður knatt- spyrnudeildar, sagði í samtali við blaðamann fyrr í vetur að reynt yrði að nota leikmenn sem alist hefðu upp hjá félaginu en auðvitað þyrftu þeir eitthvað að styrkja sig ef þeir ætluðu ekki beint niður aftur. KVA er sameinað lið Austra Eskifirði og Vals Reyðarfirði. KVA gerði sér lítið fyrir og vann 4. deildina s.l. sumar án þess að tapa einum einasta leik. KVA munu leika í 2. deildinni í sumar og það verður gaman að sjá hvernig þessi litlu bæjarfélög standa sig þar. Fréttir úr starfi UMFÍ Á héraðsþingi HSK í Gunnarshólma voru úrslit úr kjöri íþróttamanns HSK árið 1996 kunngjörð og fyrir valinu varð Sigríður Anna Guðjónsdóttir, frjálsíþróttakona úr Umf. Selfossi. Hún náði mjög góðum árangri á árinu, setti meðal annars íslandsmet í þrístökki kvenna bæði innan- og utanhúss. Þing HSÞ var haldið um helgina og var Anna Sigrún Mikaelsdóttir kjörin formaður en fráfarandi formaður, Ketill Tryggvason gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Þá var Kristján Yngvason sæmdur gullmerki UMFÍ fyrir góð störf í þágu hreyfingarinnar. Það voru ungmennafélög sem tryggðu sér deildarmeistaratilinn í karla- og kvennaflokki í handbolta. Stjörnustelpur úr Garðabæ unnu titilinn eftir harða rimmu við Hauka en það voru svo strákarnir í Umf. Aftureldingu sem nældu sér í deildarmeistaratitilinn í karla- flokki, einnig á kostnað Ilauka. Á aðalfundi Umf. Heklu var Björgvin Helgason valinn íþróttamaður ársins. Umsjón Jóhann Ingi Árnason s: 568-2929 Gistiaðstaða UMFÍ Nú lyftist brúnin eflaust á mörgum gestum þjónustumiðstöðvar UMFÍ því skömmu eftir áramótin voru teknar þar í notkun sturtur. Einnig var gistirýmið málað í desember og til stendurað bæta aðstöðuna frekar með ijölgun kojum, eldhúsáhöldum og öðrum innanstokksmunum. Fyrir þá sem ekki þekkja skal það upplýst að í gistiaðstöðunni er svefn- pokapláss og eldunar- aðstaða og stendur hún til boða öllum aðildar- félögum UMFÍ gegn mjög vægu gjaldi. Nánari upplýsingar fást í síma 568-2929 Meistaramtlslandsog Grmnskólamótið í glímu Það var mikið fjör í íþróttahúsi þeirra Fjölnis- manna um síðustu helgi en þar fóru fram tvö ijölmcnn glímumót á tveimur dögum. Á laugardeginum fór fram Grunnskólamótið í glímu þar sem um 100 krakkar kepptu í sjö aldursflokkum. Það var hart barist bæði hjá strákunum og stelpunum en í lok dagsins stóðu eftirtaldir uppi sem sigurvegarar; 4. bekkur Halldór Guðjónsson Ilúsaskóla Halldóra Markúsdóttir Barnaskóla Gaulverjab. 5. bekkur Guðni Jensson Fljótshlíðarskóla Gréta Þórisdóttir Melaskóla 6. bekkur ívar S. ívarsson Melaskóla Harpa Særós Pálsdóttir Laugalandsskóla Hugrún Geirsdóttir Barnaskóla Gaulverjab. 7. bekkur Heimir Hansson Ilamraskóla Andrea Ösp Pálsdóttir Laugalandsskóla 8. bekkur Einir Freyr Helgason Lauglandsskóla Inga Gerða Pétursdóttir Grunnsk. Skútustaðahrepps 9. bekkur Jón Smári Eyþórsson Grunnsk. Skútustaðahrepps Tinna Björk Guðmundsdóttir Grunnskóla Sauðárkróks 10. bekkur Stefán Geirsson Sólvallarskóla Selfossi Hvað finnst uiigmennafélaganum? Finnt þér það rétt ákvörðun að hafa fritt inn fyrir áhorfendur á Landsmót UMFÍ í Borgarnesi i sumar? Sigurður Geirdal Bæjarstjóri Kópavogi Ég ilutti nú á sínum tíma tillögu um að þátttökugjald yrði á keppendur eins og nú hefur verið ákveðið. Ég held að þetta só skref í rétta átt en eitt er víst að það verður að ná tekjunum með öðrum leiðum. Reynir Karlsson íþróttafulltrúi ríkisins Það þarf auðvitað að tryggja innkomu fyrir útgöldum mótsins en ég held að það sé ekkert sjálfsagt að fjölskyldur komi og borgi stórfé inn á svona mót. Þátttökugjald á keppendur vegur upp á móti. Sigurlaug Þóra Hermannsdóttir stjórnamaður UMFÍ Að sjálfsögðu var það rétt ákvörðun. Það hefur stundum kostað svo mikið á mótið að fjölskyldur hafa ekki haft ráð á að koma. Núna verður Landsmótið sannkallað fiölskyldumót þar sem við gefum öllurn kost á að koma og vera með. Steinunn Eysteinsdóttir Grunnskóla Hólmavíkur Á sunnudeginum tók svo meiri alvara við þegar 49. Meistarmót fslands fór fram. Þar voru mættir allir bestu glímumenn landsins og hefur þátttaka á mótinu aldrei verið meiri. Alls voru þátttakendur 135 sem er mikil aukning en gamla metið var 99 þátttakendur. Keppni var jöfn og spennandi í mörgum flokkum en samt bar upp úr úrslitagb'man í +90 kilógramma flokki þar sem Ingibergur Sigurðsson og Arngeir Friðriksson áttust við. Þeir kappar glímdu í tæpar sex mínútur en þá hafði Ingibergur loksins betur. En lítum á sigurvegara mótsins; Hnokkar Guðni Jensson Umf. Þórsmörk Piltar Júb'us Jakobsson Umf. Víkverja Sveinar Benedikt Jakobsson Umf. Víkverja Drengir Ólafur H. Kristjánsson IISÞ Unglingar Pétur Eyþórsson HSÞ -68 kg Sigurður Nikulásson Umf. Víkverja -74 kg Helgi Kjartansson Hvöt -81 kg Arngeir Friðriksson HSÞ -90 kg Helgi Bjarnason KR +90 Ingibergur Sigurðsson Umf. Vi'kverja Hnátur Sigrún Edda Ármanssdóttir Umf. Fjölni Telpur Auður Ösp Pálsdóttir íþf. Garpi Meyjar Inga Gerða Pétursdóttir HSÞ -60 kg Karólína Ólafsdóttir Umf. Laugdæla +60 kg Karólína Ólafsdóttir Umf. Laugdæla

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.