Dagur - Tíminn Akureyri - 20.03.1997, Blaðsíða 9

Dagur - Tíminn Akureyri - 20.03.1997, Blaðsíða 9
|Dagur-®tmóm Fimmtudagur 20. mars 1997 - 9 PJÓÐMÁL Vaxtabætur - enn aðför að eigendum félagslegra íbúða Unnar Jónsson skrifar S Aundanförnum mánuðum og árum hefur mikið ver- ið rætt og ritað um vanda félagslega íbúðakerfisins. Sumt af því sem þar hefur komið fram á rétt á sér og annað er byggt á vanþekkingu. Mest á óánægjan þó rætur að rekja til þess að stjórnvöld hafa sífellt verið að breyta þeim forsendum sem kerfið byggir á. Þar hefur gerst það sama og víða annars staðar t.d. í heilbrigðiskerfinu og skólakerfmu, að framlög rík- isins hafa minnkað og reikning- urinn verið sendur þeim sem þjónustunnar njóta, í þessu til- felli eigendum félagslegra íbúða. Afleiðingarnar eru eins og áður sagði óánægja og sum- staðar flótti úr félagslega kerf- inu, bæði vegna þess að það er ekki eins hagstætt og það var áður fólki með meðaltekjur og þar undir, og einnig vegna stöð- ugs neikvæðs áróðurs, sem m.a. félagsmálaráðherra hefur verið óþreytandi að taka undir og reyndar ala á. Þær breytingar sem stjórn- völd hafa gert og hafa mest áhrif á kostnað og greiðslubyrði eigenda félagslegra íbúða eru þessar helstar: Fyrning hækk- uð, vextir hækkaðir og nú síðast skerðing vaxtabóta. Fyrning hækkuð Fyrning (afskriftir) hœkkuð úr 0,5% á ári og í 1%, um tíma var fyrningin reyndar 1,5% en var fljótlega breytt aftur í 1% eins og hún er nú. Afleiðingar þessarar breyt- ingar fyrir eigendur félagslegra íbúða eru þær að eignarmynd- un verður mun hægari. M.ö.o. eigendur íbúðanna fá minna til baka við sölu íbúðanna. Þeir sem voru svo óheppnir að selja sínar íbúðir á meðan fyrningin var 1,5% og höfðu átt þær í nokkur ár, töpuðu tugum eða hundruðum þúsunda. Vextir hækkaðir ur 1% í 2,4% Afleiðingar vaxtahækkunarinn- ar eru þær að greiðslubyrði af einni milljón á mánuði var um kr. 2.400.- en hækkaði í um kr. 3.100,- M.ö.o. greiðslubyrði var hækkuð um 30% Önnur afleiðing vaxtahækk- unarinnar er hægari eignar- myndun. Vaxtabætur skertar Útspil ríkisstjórnarinnar í skattamálum - til að greiða fyr- ir kjarasamningum! Eitt af því sem útspilið felur í sér er lækkun á frádrætti tekna frá vaxtabótum úr 6% í 3%, frá- dráttur vegna eigna er afnum- inn, en í hans stað tekin upp ný viðmiðun við fasteignamat. Frá- dráttur frá vaxtagjöldum nein- ur nú 1,5% af fasteignamati íbúðar. Afleiðingar þessa útspils fyr- ir flesta eigendur félagslegra íbúða, og reyndar aðra tekju- lága hópa einnig, eru þær að vaxtabætur lækka verulega. Afleiðingar þessa utspils fyrir flesta eigendur félags- legra íbúða, og reyndar aðra tekju- lága hópa einnig, eru þær að vaxta- bætur lækka verulega. Ástæðan er sú að 1,5% af fast- eignamati íbúðar er oftast mun hærri upphæð en 3% af tekjum þeirra sem búa í félagslegum íbúðum. Því lægri sem tekjurn- ar eru því meiri skerðing verð- ur á vaxtabótunum. Kemur verr við lands- byggðina Samanburður á kostnaði við fé- Þjóðarkökunni skipt - aldrei aliir ánægðir. lagslega íbúð og íbúð á frjálsum markaði, sérstaklega á lands- byggðinni verður enn óhag- stæðari. Ástæðan er sú að á undanförnum árum hafa fé- lagslegar íbúðir víða um land verið hátt hlutfall nýbygginga. Fasteignamat nýrra íbúða er hærra en á gömlum íbúðum, og því verður frádráttur frá vaxta- bótum hjá eigendum nýlegra félagslegra ibúða meiri en vegna eldri íbúða á frjálsum markaði. Ætla sveitarfélögin og verkalýðshreyfingin að þegja? Öll þessi atriði hafa í för með sér meiri kostnað við að eiga félagslega íbúð og má ætla að hið nýja útspil auki enn á vanda sveitarfélaga sumstaðar á landsbyggðinni, sem hafa átt í vandræðum með að selja fé- lagslegar íbúðir. Þó hefur ekki verið annað að skilja á t.d. fé- lagsmálaráðherra en vandinn hafi verið ærinn fyrir. Þessi hluti af útspilinu ætti reyndar, ef allt væri með felldu, að sigla samningum við mörg verka- lýðsfélög algjörlega í strand, sérstaklega þau sem hafa lág- launahópa innan sinna vé- banda. Það er því vel skiljanlegt að ríkisstjórnin hafi ekki viljað spila þessu út áður en búið var að leggja iínurnar í kjarasamn- ingunum. Einstæðar mæður tapa mestu Áhrifin af breytingu vaxtabóta- kerfisins koma líklega ekki eins illa út fyrir neinn hóp en ein- stæðar mæður. Margar þeirra hafa litlar skattskyldar tekjur og hafa fengið næstum alla vexti endurgreidda, því verða þær mjög illa leiknar af þessari breytingu. Eftirfarandi tafla sýnir áhrifin í krónum talið á ársgrundvelli miðað við mis- munandi forsendur um íbúðar- verð og tekjur. Náttúrulögmál eða krukk Af þessu má ljóst vera að það er ekki náttúrulögmál að fé- lagslega íbúðakerfið hefur orðið óhagstæðara en það var fyrir nokkrum árum. Ástæðan er fyrst og fremst sú að stjórnvöld hafa með sífelldu krukki gert það óhagstæðara, og það hefur komið verst við þá sem hafa lægstar tekjur. íbúðarverð 8.000.000 íbúðarverð 5.000.000 Lánsupphæð 7.200.000 Lánsupphæð 4.500.000 Fast. mat 5.500.000 Fasl. mat 4.000.000 Núv. keríi Nýtt kerfi Mism. Tekjur 0 172.800 90.300 82.500 500.000 142.800 75.300 67.500 1.000.000 112.800 60.300 52.500 1.500.000 82.800 45.300 37.500 2.000.000 52.800 30.300 22.500 3.000.000 0 300 -300 Núv. kerfi Nýtt kerfi Mism. 108.000 ' 48.000 60.000 78.000 33.000 45.000 48.000 18.000 3.000 15.000 Afkoma kúabænda Sverrir Bjartmarz skrifar Um þessar mundir eru kúabændur að átta sig á að óbreytt ástand fram- leiðslukerfisins þýðir aðeins eitt, afkoman fer niður ár eftir ár þar til menn gefast upp. Það mun draga alla bændur niður í svaðið og gera þá alla að ómögum. Hingað til hafa bændur treyst því að Bændasamtök ís- lands geri góða samninga við ríkissjóð til þess að bjarga mál- unum. Það er nú óðum að breytast. Ýmsir aðilar hafa skrifað greinar í Bændablaðið og víðar og óskað eftir að stjórn Bændasamtakanna komi fram með sínar tillögur/hug- myndir um framtíð íslensks landbúnaðar. Lítið hefur verið um svör hingað til og bændur eru að vakna upp við vondan draum. Búskapur á fslandi lýt- ur sömu markaðslögmálum og aðrar vörur og þjónusta. Því verður ekki breytt, sama hversu lengi forysta BÍ reynir að láta sem ekkert sé og telji bændum trú um að verlags- grundvöllur, verðskerðing, verðmiðlun, sjóðagjöld, flutn- ingsjöfnun og sukk í þeim dúr muni halda uppi búskap á ís- landi um aldir. Á aðalfundi Landssambands kúabænda 1995 hélt ég erindi sem hagfræðingur Bændasam- taka íslands um stöðu kúa- bænda. Þá var vel ljóst að af- koma þeirra hafði verið á nið- urleið og héldi því áfram ef að ekkert yrði að gert. Þar setti ég fram ýmsar hugmyndir til þess að stoppa/hægja á þessari þró- un sem var augljós öllum sem vildu sjá. Á fundinum vildu ýmsir afskrifa mig sem nýút- skrifaðan frá Ameríku sem skildi ekki sérstöðu íslensks landbúnaðar. Af öðrum fundar- gestum mátti heyra að gott væri að ferskir vindar væru farnir að blása úr Bændahöllinni. Þeir vindar náðu ekki að blása mjög lengi þar sem ég hætti störfum hjá BÍ eftir tæplega tveggja ára vinnu þar. Stjórn Bændasamtakanna hefur ekki treyst sér til þess að auglýsa stöðu hagfræðings lausa til umsóknar, þar sem ólíklegt er að sá aðih fyndist sem að væri tilbúinn að skrifa nafn sitt undir þá samninga sem þeir gera. Þó svo að það heiti að auka eigi hagfræðileið- beiningar til bænda þá er ekki þorandi að ráða hagfræði- menntaðan aðila sem að væri svo ekki til friðs. Hinn venjulegi bóndi skilur alls ekki hvernig sukkað er með peningana sem teknir eru af honum í hin ýmsu sjóðagjöld. Forysta bænda vill halda áfram slíkri gjaldtöku í sjóði sem gef- ur þeim tækifæri til að útdeila peningum og kaupa sér völd. Að einfalda og hagræða í land- búnaðarkerfinu, eins og gera átti með sameiningu Búnaðar- félags íslands og Stéttasam- bands bænda, er því í andstöðu við hagsmuni forystunnar og því er augljóst að árangurinn er lítill sem enginn. Það er farinn að styttast tíminn sem fyrsta stjórn Bændasamtaka íslands hefur til þess að efna öll þau fyrirheit sem bændum var lof- að með sameiningunni og bændur orðnir óþreygjufullir eftir árangri. Ég skora á bænd- ur og aðra þá sem að tengjast landbúnaði á einhvern hátt að láta í sér heyra um afkomu og framtíð bænda á íslandi.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.