Dagur - Tíminn Akureyri - 02.04.1997, Blaðsíða 15
|Dagur-'2Imtimt
Miðvikudagur 2. apríl 1997 - 27
UPPAHALDS UTVARPS- OG SJONVARPSEFNIÐ
UTVARP•SJONVARP
Kolbrún
Bergþórs-
dóttir - held-
ur með
Kamerún í
fótboltanum
og Enska
sjúklingnum
á Óskarshá-
tíðinni.
Ég er hálfgerð vídeóleiga
Irauninni horfi ég sáralítið
á sjónvarp - nema þá
fréttirnar og kannski ein-
staka viðburði og eftirlætis-
þætti. Ég hef óskaplega
gaman af kvikmyndum og
finnst sjónvarpið vanrækja
gamlar kvikmyndir. Ég hef
eignast 500 til 600 gæða-
kvikmyndir, gamlar klass-
ískar. Ég er að verða hálf-
gerð vídeóleiga, skal ég
segja þér, hef verið að lána þetta
kunningjum og vinum. Svona eru
konur misnotaðar," segir Kolbrún
Bergþórsdóttir, blaðamaður og gagn-
rýnandi, og hlær dátt.
„Ég var reyndar fram eftir allri
nótt að horfa á Óskarinn og það var
vel þess virði. Enski sjúklingurinn,
sem er mín eftirlætismynd, hreppti
flest aðalverðlaunin. Hvflík nótt! Ég er
keppnismanneskja og hugsa sem svo
að mín mynd, eða minn maður eða
mín kona, verði að vinna núna.
- Þú ert keppnismanneskja. Horf-
irðu þá á ensku knattspyrnuna?
„Nei, nei, nei. Ég horfi aldrei á
íþróttir. Ja, nema þá á Ólympíuleika,
Evrópukeppni og heimsmeistaramót,
af því að ég er nú keppnismanneskja.
Ég lærði íþróttaglápið af engum öðr-
um en ritstjóranum ykkar fyrir mörg-
um árum þegar hann var með Rás 2.
Örg húsmóðir í vesturbænum var að
skammast yfír endalausum íþróttum.
Þá ráðlagði Stefán Jón henni að velja
sér eftirlætislið til að halda
með. Ég tók þetta ráð hans
alvarlega og það hefur dug-
að mér vel. Ég hef verið
ákafur aðdáandi Kamerún í
fótboltanum - og með Manc-
hester United held ég vegna
þess að það félag lenti í
hryllilegu flugslysi árið áður
en ég fæddist. Svona hugsa
bara konur, á tilfinninganót-
unum, og af sannri jafnaðar-
mannahugsjón. Svo er ég reyndar
skotin í Brasilíumönnum í fótbolta,
þeir eru miklir listamenn.
„í fréttunum stendur Stöð 2 sig vel,
sérstaklega er ég hrifin af erlendum
fréttum hjá Agli Helgasyni. Það er
auðvitað alltaf gaman að heyra frétta-
menn tala mjög góða íslensku,“ segir
Kolbrún.
Kolbrún hlustar svolítið á útvarp,
fréttir þegar hún hefur tök á, en oft á
klassíska tónlist.
„Ég hlusta líka á Bryndísi Schram
á sunnudögum, hún er með fína
þætti. Og Kristján Þorvaldsson hlusta
ég oft á og er ánægð með þættina
hans.
Kolbrún trúði okkur fyrir því innan
sviga að hún horfði ævinlega á
„manninn með axlaböndin" á Stöð 2 -
og tæki hann upp á myndband. „Ég
liorfi auðvitað oft á þessi myndbönd
með foringjanum af Vesturgötunni,"
sagði Kolbrún. „Enda er ég aðdáandi
JBH númer eitt.“
FJÖLMIÐLARÝN
Vinstra blaðið
Vikublaðið, vinstra blað á mánu-
dögum, kemur nú vafið inn í
plast innum lúguna hjá rýni
einu sinni í viku. Er það vel og gaman
að fylgjast með vinstriblaðamennsku
á íslandi. - En því miður hefur ekki
verið mikið um almennilega pólitík í
blaðinu í þessar tvær vikur því blaðið
er undarlega nokk orðið mun líkara
Helgarpóstinum eftir að Páll Vil-
hjálmsson yfirgaf blaðið og fór yfir á
Helgarpóstinn. Þessi líkindi felast að-
allega í töffaraskap sem erfitt er að
lýsa nánar enda deyr froskurinn ef
hann er krufinn.
í síðasta blaði fundust þó kannski
frekar líkindi við stúdentapólitíkina
og þeirra snepla þar sem Framsókn-
arflokkurinn var tekinn á beinið fyrir
að lofa og efna ekkert. Þetta var svo
sem ágætt en nokkuð í „sjáiði söku-
dólginn virkilega ekki“ stfl sem verður
alltaf svo upphafinn og leiðinlegur.
Háð hefði átt betur við.
Ein grein þótti rýni langáhugaverð-
ust í blaðinu en þar var greint frá því
að söngvarinn frægi í Pulp mun leika í
íslenskri bíómynd fyrir hreina hjarta-
gæsku og ekki þiggja krónu fyrir.
Þetta er stórmenni og því stórfrétt en
það stakk rýni að blaðamaður skuli
segja Pulp unglingahljómsveit þegar
stærsta áhangendagrúppan í Bret-
landi er á milli 20 og 25 ára og þetta
er staðfest í aðdáendaklúbbnum
hvorki meira né minna. En hvað um
það Pulp-greinin var „skúbb" og gott
vinstra skúbb þá vikuna.
ÁHUGAVERT
Sjónvarpið kl. 20.40. Landsleikur í handbolta
Undirbúningur karlalandsliðsins í handbolta fyrir heimsmeistaramótið í
Kumamoto í Japan stendur nú sem hæst og á miðvikudag og fimmtudag leikur
landsliðið í tvígang við Kínverja. Það sást vel í seinni leiknum gegn Egyptum á
dögunum að liðið er að smella saman og Kínverjar eru lakari á pappírnum en
Egyptar og ættu því að verða auðveldari bráð. Þorbjörn þjálfari Jensson er enn
að smyrja tannhjólin og reyna nýja menn og auðvitað verða allir í toppformi
þegar á hólminn er komið.
N V A R P I Ð
13.30 Alþlngi. Bein útsending frá þingfundi.
16.30 Viðskiptahornið.
16.45 Leiðarljós
17.30 Fréttlr.
17.35 Sjónvarpskringlan.
17.50 Táknmálsfréttir.
18.00 Myndasafnið.
18.25 Undrabarnið Alex (12:39) (The Secret
World of Alex Mack). Myndaflokkur um
13 ára stúlku sem öðlast einstaka hæfi-
leika eftir að ólöglegt genabreytingarefni
sprautast yfir hana.
18.50 Kötturlnn Felix (7:13) (Felix the Cat).
Bandarískur teiknimyndaflokkur um kött-
inn Felix og ævintýri hans.
19.20 Nýjasta tækni og vísindi. í þættinum
veröur fjallað um trjágrisjun með sprengi-
efni, afljósritunarvél, vatnsknúna vatns-
dælu, flutningaísbrjót og óvenjulegt
gervihné. Umsjón: Siguröur H. Richter.
19.50 Veður.
20.00 Fréttir.
20.30 Víkingalottó.
20.40 Landsleikur í handbolta. Bein útsending
frá seinni hálfleik í viðureign ísiendinga
og Kinverja.
21.20 Bráðavaktin (8:22) (ER III). Bandarískur
myndaflokkur sem segir frá læknum og
læknanemum í bráðamóttöku sjúkra-
húss. Aðalhlutverk: Anthony Edwards,
George Clooney, Sherry Stringfield, Noah
Wyle, Eriq La Salle, Gloria Reuben og
Julianna Margulies.
22.10 Á elleftu stundu. Viðtalsþáttur T umsjón
Árna Þórarinssonar og Ingólfs Margeirs-
sonar. Dagskrárgerö: Jón Egill Bergþórs-
son.
23.00 Ellefufréttir og dagskrárlok.
S T Ö Ð 2
09.00
09.15
13.00
14.40
15.00
15.30
16.00
16.25
16.50
17.15
17.35
18.00
18.05
Línurnar í lag.
Sjónvarpsmarkaðurinn.
Töfrar. (Beli, Book and Candle). Gillian
Holroyd er nútímanorn sem býr í New
York. Dag einn kemur hún auga á mynd-
arlegan útgefanda, Shep Henderson, og
ákveöur að ná honum á sitt vald hvað
sem það kostar.
Sjónvarpsmarkaðurinn.
Cranberries - EPK. Þáttur um írsku
hljómsveitina Cranberries.
Preston
Svalur og Valur.
Steinþursar.
Artúr konungur og riddararnir.
Glæstar vonir.
Sjónvarpsmarkaðurinn.
Fréttir.
Nágrannar.
18.30 Stuttmyndadagar. Kvikmyndafélag ís-
lands, Stöð 2 og Reykjavíkurborg standa
að Stuttmyndadögum að þessu sinni.
Áhorfendur geta greitt myndunum at-
kvæði og gildir það að hálfu á móti vali
þriggja manna dómnefndar.
19.00 19 20
20.00 Melrose Place
20.50 Cure - EPK. Nýr sjónvarpsþáttur um
bresku hljómsveitina Cure.
21.10 Ellen (25:25).
21.40 Vargur í véum
22.30 Fréttlr.
22.45 Eiríkur.
23.05 Töfrar. (Bell, Book and Candle). Sjá um-
fjöllun að ofan.
00.50 Dagskrárlok. (It Could Happen To You)
Sjá umfjöllun að ofan.
01.15 Dagskrárlok.
S Y N
17.00 Spítalalíf. (MASH)
17.30 Taumlaus tónlist.
18.30 Knattspyrna í Asíu. (Asian Soccer
Show). Fylgst er með bestu knattspyrnu-
mönnum Asíu en þar á þessi íþróttagrein
auknum vinsældum að fagna.
19.30 Nánar auglýst síðar.
21.00 Hulin fortíð. (Silhouette). Spennumynd
með JoBeth Williams, Corbin Bernsen og
Stephanie Zimbalist í aðalhlutverkum.
Tónlistarmaðurinn Nancy Parkhurst er
komin frá Boston til Los Angeles til að
bera kennsl á lík systur sinnar, Ann, sem
féll fýrir hendi morðingja. En í líkhúsiö er
einnig kominn maður að nafni Paul
Gatlin sem heldur þvi fram að hin látna
sé eiginkona hans, Liz Gatlin. Ljóst er aö
annað þeirra hefur á röngu að standa og
upphefst nú frekari rannsókn á þessu
dularfulla máli. Nancy er lika staðráðin í
að komast aö sannleikanum og tekur til
við að leysa gátuna en teflir um leið
sjálfri sér í mikla hættu. Leikstjóri er Eric
Till. 1994. Bönnuð börnum.
22.30 Ástríðudansinn (e). (Lap Dancing). Ljós-
blá mynd úr Playboy-Eros safninu.
Stranglega bönnuð börnum.
00.00 Spítalalíf (e). (MASH).
00.25 Dagskrárlok.
©
ÍKISUTVARPIÐ
08.00 Fréttir. - Hér og nú - Aö utan. 08.30
Fréttayfirlit. 08.35 Víðsjá. 09.00 Fréttir. 09.03
Laufskálinn. 09.38 Segðu mér sögu, Vala eftir
Ragnheiði Jónsdóttur. 09.50 Morgunleikfimi.
10.00 Fréttir. 10.03 Veðurfregnir. 10.15 Ár-
degistónar. 11.00 Fréttlr. 11.03 Samfélagið í
nærmynd. 12.00 Fréttayfirlit á hádegi. 12.20
Hádegisfréttir. 12.45 Veöurfregnir. 12.50 Auð-
lind. 12.57 Dánarfregnir og auglýsingar. 13.05
Póstfang 851. Þráinn Bertelsson svarar sendi-
bréfum frá hlustendum. 13.40 Litla gríska
hornið. Grikkinn Sorbas, tónlist úr samnefndri
bíómynd. 14.00 Fréttir. 14.03 Útvarpssagan,
Lygarinn. eftir Martin A. Hansen (17). 14.30 Til
allra átta. Tónlistfrá ýmsum heimshornum.
15.00 Fréttir. 15.03 Leit að uppruna - kjörson-
ur segir frá. Fléttuþáttur i umsjá Evu Maríu
Jónsdóttur. 15.53 Dagbók. 16.00 Fréttir.
16.05 Tónstiginn. 17.00 Fréttir. 17.03 Víösjá.
18.00 Fréttir. Víðsjá heldur áfram. 18.30 Lesið
fyrir þjóðina: Úr æfisögu síra Jóns Steingríms-
sonar (15). 18.45 Ljóð dagsins. 18.48 Dánar-
fregnir og auglýsingar. 19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Auglýsingar og veöurfregnir. 19.40
Morgunsaga barnanna endurflutt. - Barnalög.
20.00 Kvöldtónar. 21.00 Út um græna grundu.
22.00 Fréttir. 22.10 Veðurfregnir. 22.15 Orö
kvöldsins: Guðmundur Hallgrímsson flytur.
22.20 Tónlist á síðkvöldi. 23.00 Söngkonan í
svarta kjólnum. Þjóðlagasöngkonan Engel
Lund. 24.00 Fréttir. 00.10 Tónstiginn. 01.00
Næturútvarp á samtengdum rásum til morg-
uns: Veöurspá.
BYL G J A N
09.05 Hressandi morgunþáttur með Valdísi
Gunnarsdóttur. Fréttir kl. 10.00 og 11.00.
12.00 Hádegisfréttir frá fréttastofu Stöövar 2
og Bylgjunnar. 12.10 Gullmolar Bylgjunnar í
hádeginu. 13.00 íþróttafréttir. Það er íþrótta-
deild Bylgjunnar og Stöövar 2 sem færir okkur
nýjustu fréttirnar úr Iþróttaheiminum. 13.10
Gulli Helga - hress að vanda. Fréttir kl. 14.00,
15.00 og 16.00. 16.00 Þjóðbrautin. Síðdegis-
þáttur á Bylgjunni í umsjá Snorra Más Skúla-
sonar, Skúla Helgasonar og Guðrúnar Gunnars-
dóttur. Fréttir kl. 17.00. 18.00 Gullmolar. Mús-
íkmaraþon á Byl^junni þar sem leikin er ókynnt
tónlist frá árunum 1957-1980 19.00 19 20.
Samtengdar fréttir Stöðvar 2 og Bylgjunnar.
20.00 Kristófer Helgason spilar góöa tónlist,
happastlginn og fleira. Netfang:
kristofer@ibc.is 24.00 Næturdagskrá
Bylgjunnar.
R A S 2
09.03 Lísuhóll. 12.00 Fréttayfirlit og veöur.
12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Hvítir máfar.
14.03 Brot úr degi. Umsjón: Eva Ásrún Alberts-
dóttir. 16.00 Fréttir. 16.05 Dagskrá: Dægur-
málaútvarp og fréttir. Starfsmenn dægurmála-
útvarpsins og fréttaritarar heima og erlendis
rekja stór og smá mál dagsins. 17.00 Fréttlr. -
Dagskrá heldur áfram. 18.00 Fréttir. 18.03
Þjóðarsálin - Þjóöfundur i beinni útsendingu.
Siminn er 568 60 90. 19.00 Kvöldfréttir.
19.32 Milli steins og sleggju. 19.55 íþrótt-
arásin. Landsleikur í handbolta viö Klnverja.
22.00 Fréttir. 22.10 Plata vikunnar og ný tón-
list. Umsjón: Andrea Jónsdóttir. 24.00 Fréttir.
LANDSHLUTAÚTVARP Á RÁS 2 8.10 8.30 Og
18.35-19.00 Útvarp Norðurlands. 18.35-19.00
Útvarp Austurlands . 18.35-19.00 Svæðisút-
varp Vestfjarða.