Dagur - Tíminn Akureyri - 12.04.1997, Blaðsíða 3

Dagur - Tíminn Akureyri - 12.04.1997, Blaðsíða 3
ÍDagur-ÍEmmm Laugardagur 12. apríl 1997 - III ÍSLENDINGAÞÆTTIR HAGYRÐINGAR FÓLK í ÆTTUM Spaugstofugrín (eða galdrafár nútímans) Spaugstofunnar sprellimál spilla ró hjá þjóðum. Af þeim logar eldabál hjá öllum mönnum, góðum. Biskupstetrið brá við skjótt, - bœldar hvatir ólga. Máttifara um miðja nótt að magna seið á dólga. Á því verður enginn stans, ég œtla að segja bara. Klónaði bréf til kristins manns, sem kann með völd aðfara. Undirheimar aldrei meir eflaust ná að dáðum. í heitum pottum hafa þeir heilmikið af ráðum. Séra Þórir, segja menn, sœmdir hlyti af stefnum. Sama ráð nú eygja enn af illum sökum gefnum. Þá mun fólkið ekki oft iðka gláp á kvöldin. Refsivöndinn reiða á loft réttlát yfirvöldin. Siða-Vörður Dalafólkið III Svo segir í fornri heimild að Langanes er norðast í Austfirðingafjórðungi - þar gengur Helkundu heiði eftir nesinu fram - var þar settur upp hamar Þórs á heiðinni sem fjórðunga skilur. Ströndin sunnanvert frá Langanesi fyrir botni Bakkaflóa heitir Langanesströnd frá fornu fari. Par úti fyrir mætast hlýir og kaldir hafstraumar og verð- ur þokusælt og úrkomur miklar þegar vindur blæs af hafi en undra hlýtt og þurrt í sunnan og suðvestanátt. Þarna hefur byggð verið mest við sjóinn, hlunnindi af reka og stutt til miða en heiðar- býli að baki byggðinni. Á eitt þeirra settist Árni Gíslason frá Kolgrímastöðum og bjó á Miðfjarðarnesseli og Fossi, afbýli frá Skeggjastöðum. Hann hafði áður búið í Saur- bæjarhreppi en líklega þótt þar þröngbýli. Hann þráði heiðar- faðminn og fluttist norður 1846 með konu sinni, Sigríði Guð- mundsdóttur frá Gullbrekku. Árni var sagður hagleiksmaður og vefari. Meðal barna hans var Guðríður, átti Árna Þorkelsson og var langamma systkinanna Auðuns, Ingveldar og Þórarins Haraldsbarna sem enn búa í þessari sveit, á Þorvaldsstöðum, næsta bæ við Skeggjastaði. Er margt fólk komið af Guðríði. Hún var ljósmóðir í sinni sveit. Bróðir hennar var Gísli bóndi í Kverkártungu, átti mörg börn. Hann var afi Oddnýjar Guðmundsdóttur kennara, kannski síðasta farkennara á íslandi og Gísla Guðmundsson- ar, lengi þingmanns fyrir Fram- sóknarflokkinn og hann var langafi Odds Gunnarssonar verslunarstjóra í Húsgagnahöll- inni í Reykjavík. í Kverkártungu er fæddur þjóðskáldið Örn Arnar (Magnús Stefánsson), móðir hans giftist Þórarni, syni Guðríðar Árna- dóttur. Við Kverkártungu er kenndur nafnkunnur draugur, Tungubrestur, og er talið að hans hafi orðið vart fram á þessa öld. Ef einhver skyldi verða hans var skal þess getið að hann gef- ur sig til kynna með brestum eins og þegar vel þurrum viði er brennt. Frá honum segir í Gráskinnu hinni meiri. Kverkártunga fór í eyði 1937 og var aldrei lagður akvegur þang- að né heldur komu þangað vél- knúin tæki. Ingibjörg Gísladóttir barst vestur í Húnavatnssýslu á svip- aðar slóðir og Þorsteinn bróðir hennar. Hún átti Ólaf Pálsson, bjuggu í Eiríksstaðakoti 1845, það er um miðjan dal í Svartár- dal. Dóttir þeirra var María, átti Svein Guðmundsson og var þeirra son Níels bóndi, síðast í Þingeyrarseli, afi Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur borgar- stjóra, einnig Ólafur, átti Mál- fríði Gilsdóttur frá Krossnesi. Önnur dóttir Ingibjargar og Ólafs var Guðrún, átti Jón Ólafsson. Meðal þeirra barna voru Ingibjörg Ósk, lengi fram- kvæmdastjóri KFUK í Reykja- vík, Halldór trésmiður í Reykja- Guðríður Árnadóttir, Ijósmóðir. vík, faðir Guðrúnar Jónínu, skólastjóra og alþingismanns Örn Arnar, skáld (Magnús Stef- ánsson er kirkjubókarnafnið). Kvennalistans, og Ólafur, bjó á Kárastöðum í Hegranesi, átti Sigurlaugu Jónasdóttur sem nú hefur orðið þekkt að því að spá í garnir. Guðrún Jónína Halldórsdóttir, skólastjóri og alþingiskona. Guðmundur Gíslason var vinnumaður á Grenjaðarstað og víðar, átti Sigríði Jónsdóttur. Hann íluttist á efri árum með sonum sínum til Kanada. Þeir kölluðu sig Goodman þegar þangað kom og má finna þeirra getið í Almanaki Ólafs Thor- geirssonar. Guðrún Gísladóttir yngri frá Kolgrímastöðum fiuttist vestur í Húnaþing, átti Jón Árnason frá Skottastöðum, bjuggu í Kóngs- garði og Höll í Svartárdal (hverskonar nöfn voru þetta?) Sigurgeir sonur þeirra var bóndi í Akrahreppi en synir hans voru Eiríkur bóndi í Akra- hreppi en hans synir voru Ei- ríkur bóndi á Varmalandi, Stað- arhr. d. 1974, átti mörg börn, og Valdimar Stefán bóndi á Gunnfríðarstöðum, d. 1967. Sigurgeir Jónsson átti barn með Hannínu Hannesdóttur, systur Elívoga-Sveins, það var Þóra Sigurlaug, átti Flosa Sigurðsson bónda á Hrappsstöðum í Ljósa- vatnsshreppi. Jóhannes Gíslason frá Kol- grímastöðum bjó á Húsavík Gísli Guðmundsson, alþingis- maður. 1870. Kristjana dóttir hans ílentist þar, var móðir Þorvalds Pálssonar, bónda í Akurseli og Hraunkoti, síðast á Þórshöfn. Önnur börn Jóhannesar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri. fluttust til Kanada. Vitað er að afkomendur þeirra voru margir en verða varla taldir héðan af. Um fólkið sem hér hefur ver- Oddný Guðmundsdóttir, kennari. ið greint mætti sitthvað fleira segja. En það bíður enn síns tíma að rekja betur þennan þátt í hinum Ijölskrúðuga vef kynslóðanna og þá gæti þessi umfjöllun orðið dáh'til uppi- staða. Er þó hætt við að sums staðar kunni að verða bláþræð- ir í vefnum en hér verður stað- ar numið að sinni. ás.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.