Dagur - Tíminn Akureyri - 15.04.1997, Page 1

Dagur - Tíminn Akureyri - 15.04.1997, Page 1
 Akureyri í sól og sumaryl i Það voru 25 stig á mælinum móti sól,“ sagði bensínaf- greiðslumaður á Akureyri meðan heimamenn tóku sig til og þvoðu bílana. Snjór bráðnar hratt úr ÍJöllum þegar þíð sunnanátt kemur með „18 stig í forsælu" að sögn sama heimild- armanns á bensínstöð. „Nú er þetta búið,“ bætti hann við og reynist vonandi veðurglöggur, átti við veturinn, en sagði samt áhugasömum bíleigendum sem spurðu hvort óhætt væri að fara af snjódekkjum að athuga fyrst trygginguna. Leit svo þýðingar- miklu augnaráði á viðstadda og sagði þetta eiga sórstaklega við fólksbfla. Svo töluðu menn meira um blíðuna og umbrotsmaður á Degi-Tímanum leit ánægður á veðurkort dagsins í dag: 12 stig! Grunnskólar Kærir til RLR Einar Magnússon, skóla- stjóri Hagaskóla, hefur skrifað skólastjórum grunnskólanna í Kópavogi bréf í framhaldi af átökum milli nemenda úr Þinghólsskóla og Hagaskóla í síðustu viku. Hann mun ræða við Guðmund Odds- son, skólastjóra Þinghólsskóla, og vonast til að takist að leysa málið með því að sýna ungling- unum fram á hversu alvarlegt einelti er. Átök brutust út milli nem- enda úr Þinghólsskóla og Haga- skóla í síðustu viku og endaði með því að kalla varð til lög- reglu. Nemendur úr Kópavogi áttu að sækja tónleika í Há- skólabíói en nemendur úr Hagaskóla töldu þá komna til að hefna ófara fyrr í vikunni og Ijölmenntu að bíóinu. Nemandi, sem varð fyrir ein- elti í Þinghólsskóla í fyrra, hef- ur gengið í Hagaskóla í vetur. Búist er við að hún kæri at- burðina til RLR. -GHS Þormóður Einarsson veðjaði við félaga sína að ef KA yrði íslandsmeistari í handbolta, myndi hann stökkva út í sundlaug Akureyrar i KA-búningnum. Hann efndi heit sitt í hádeginu í gær en eflaust hafa starfsmenn laugarinnar verið með í ráðum. Ekki er annað að sjá en Þormóði líki vel í vatninu og má geta þess að þetta er ekki í fyrsta skipti sem Þormóður veðjar djarft til vinnings. Bp/Mynd gs Aðaifundur ÚA ÚA stefnir upp „Kolkrabbinn kemur í bæinn," sögðu menn á Akureyri í gær: Friðrik Jó- hannsson, Hörður Sigurgestsson, Indriði Pálsson, Hjalti Geir Kristjánsson og Benedikt Sveinsson. Mynd: GS Jón Þórðarson endur- kjörinn formaður en Benedikt Jóhannes- son og Friðrik Jóhannsson kjörnir í stjórn sem fulltrúar aukins hlutafjár stærstu hluthafa. ✓ aðalfundi Útgerðarfé- lags Akureyringa í gær kom fram að gert er ráð fyrir hallalausum rekstri á þessu ári. „Áætlanir þessa árs gera ráð fyrir verulega bættri rekstrarafkomu en þó er gert ráð fyrir að reksturinn verði í járnum. Við bindum vonir við að þær aðgerðir sem þegar hef- ur verið gripið til og breytingar sem gerðar verða á næstu mán- uðum skili sér í því að félagið verði gert upp með viðunandi hagnaði árið 1998,“ sagði Guð- brandur Sigurðsson fram- kvæmdastjóri. ÚA var rekið með 123 milljóna króna tapi á sl. ári. Jón Þórðarson, stjórnar- formaður, sagði helstu ástæður vera erfið ytri skilyrði hefð- bundinnar landvinnslu og þá sérstaklega í frystingu sem er einn af hornsteinunum í rekstri fyrirtækisins og óviðunandi af- komu af rekstri frystitogara fyr- irtækisins í Smugunni og á Flæmingjagrunni. Litlar sem engar umræður urðu á fundin- um þrátt fyrir slæma útkomu. Ný andlit í stjórn Jón Þórðarson, forstöðumaður sjávarútvegssviðs Háskólans á Akureyri, var endurkjörinn stjórnarformaður, en aðrir stjórnarmenn eru Halldór Jóns- son, Kristján Aðalsteinsson, Benedikt Jóhannesson og Frið- rik Jóhannsson. Jón, Halldór og Kristján voru í fyrri stjórn, Benedikt kemur inn fyrir SH og Friðrik fyrir Burðarás. Breytt stórnarskipan endurspeglar miklar breytingar á eignarhlut í fyrra: Akureyrarbær sem átti meirihluta í fyrirtækinu seldi hluta bréfanna og á nú 20%. Aðrir stærstu eigendur eru eignarhaldsfélag Eimskips, Burðarás hf., með 19,55%, Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna hf. með 10,48%, ÚA með 9,85%, Hampiðjan hf. með 6,29% og Illutabréfasjóðurinn hf. með 3,2%. Bæta á rekstur í sumar verður landvinnsla ÚA endurskipulögð og er markmið- ið að auka framleiðnina um- talsvert með sjálfvirkni og bættu vöruflæði í vinnslu- rásinni. Heildarafli togara félagsins nam 19.472 tonnum á móti 22.783 tonnum á árinu 1995, minnkaði um 3.311 tonn og er skýringanna fyrst og fremst að leita í verulegum niðurskurði á karfakvóta, minni ýsuveiði og hruni á grálúðu. GG

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.