Dagur - Tíminn Akureyri - 15.04.1997, Síða 3
(®agur-‘31imtmt
Þriðjudagur 15. apríl 1997 - 3
F R É T T I R
Lögregla
Umfangsmiklar að-
gerðir lögreglu í mið-
borginni, talið að þrír
menn hafi náð milljón
af verslunarmanni.
Umfangsmikil lögregluað-
gerð fór fram í gærmorg-
un í miðborg Reykjavíkur,
þegar þrír menn höfðu rænt
starfsmann 10-11 verslunar-
keðjunnar sem var á leið til
skrifstofu fyrirtækisins við Suð-
urlandsbraut/Álfheima með
peninga úr banka. Mennirnir
biðu mannsins í stigagangi
hússins. Virðast þeir hafa vitað
um peningasendinguna, eina
milljón að sagt var, en eigandi
10-11 vildi ekki staðfesta þá
tölu.
Fjölmargir lögreglubflar, ein-
kennisklæddir lögreglumenn og
liðsmenn sérdeildarinnar, svo-
nefnd Víkingasveit, þustu að
verslunarhúsi við Brautarholt í
gærmorgun. Nærliggjandi göt-
um var lokað og vegfarendur
inntir eftir persónuskilríkjum.
Einn maður gripinn
Einn maður var í haldi í gær-
kvöld hjá lögreglunni vegna
málsins, umráðamaður Mazda-
bfls, sem sást á undarlegu
ferðalagi í hverfinu við Faxafen
og Suðurlandsbraut, en fannst
stuttu síðar í porti við Brautar-
holt.
Eftir að hafa hrifsað pening-
ana af starfsmanni verslunar-
keðjunnar þustu þremenning-
arnir af stað hlaupandi frá
staðnum að íbúðahverfi í ná-
gremiinu. Einkennisnúmer bfls
sem þótti tortryggilegur á þess-
um slóðum var tilkynnt lögreglu
af árvökulum vegfarendum.
Lögreglan fór að heimili eig-
anda bflsins sem býr í sama
Blönduós
Bjarni Pálsson, fyrrverandi póstmeistari á Blönduósi, með tikina
Láku, sem skírð er í höfuðið á vini Bjarna, Þorláki. Húsið í baksýn,
heimili Bjarna, er eitt af elstu íbúðarhúsum Blönduóssbæjar. Myn&. as
Vöruskipti
Pínulítið hagstæð
Vöruskipti íslendinga við
útlönd voru hagstæð um
600 milljónir í febrúar
síðastliðnum, en á sama tíma í
fyrra voru þau hagstæð um 2,8
milljarða. Fyrstu 2 mánuði
þessa árs voru fluttar út vörur
fyrir tæpa 22 milljarða en inn
fyrir rúma 20 milljarða. Út-
flutningurinn var 15% verð-
mætari en á sama tíma í fyrra,
en stærstan þátt í því á sala
Flugleiða á einni af vélum sín-
um. Verðmæti útfluttra sjávar-
afurða var nánast það sama og
í fyrra, en verðmæti útfluttra
iðnaðarvara jókst um 12%.
Verðmæti kísiljárns jókst um
53% og áls um 4%.
Heildarverðmæti vöruinn-
flutnings var 22% meira á föstu
gengi en í fyrra. Innflutningur á
íjárf'estingarvöru, einkum til
stóriðju, átti mestan þátt í
auknum vöruinnflutningi.
Akranes
Tveir slösuðust
í gassprengingu
Tveir menn slösuðust þeg-
ar gassprenging varð í
vélarrúmi Elliða GK í
Akraneshöfn á laugardag.
Menn voru við vinnu í vélar-
rúmi en höfðu farið í kaffi um
10 leytið. Þegar þeir komu til
baka virðist sem gas hafl lekið
úr kút sem þeir voru með og
þegar þeir fóru að vinna aftur
varð sprengingin.
í gær átti annar mannanna
að fá að fara heim af sjúkrahúsi
en hinn, sem liggur á Landspít-
alanum í Reykjavík, lá þar
áfram. Þeir hlutu brunasár og
urðu fyrir höggum.
Lögreglan
leitar ræningja
Gómaður í gær. Lögreglan hafði mikinn viðbúnað og stöðvaði fjölda
manna á förnum vegi. Myn± e.ói.
húsi og mótorhjólaverslunin Þar fannst bifreiðin í húsasundi.
Gullsport að Brautarholti 4c. Eigandi Gullsports sagði í
gær að hann hefði fengið vægast
sagt slæma auglýsingu í þessari
aðgerð, sem var mynduð í bak
og fyrir. Lögreglumenn voru
fjölmargir inni í búðinni.
Búð fær slæma
auglýsingu
„Þessi drengur sem var hand-
tekinn hérna í húsinu vann hjá
mér fyrir sjö átta mánuðum og
er ekkert viðkomandi búðinni
lengur," sagði kaupmaðurinn.
„Strákurinn keyrði inn í port-
ið og ætlaði að fela bflinn. Lög-
reglan hélt fyrst að þetta tengd-
ist okkur eitthvað og við leyfð-
um þeim að valsa hér um allt,“
sagði kaupmaðurinn í Gull-
sporti. Hörður Jóhannesson hjá
RLR tók undir það að Gullsport
tengdist ekki málinu.
RLR vildi annars sem minnst-
ar upplýsingar gefa í gær um
yfirheyrslur yfir bfleigandanum.
Til dæmis ekki hvort játning
lægi fyrir. -JBP
Kópavogur
Samkeppni urn hjúkrimarheiniilið
Sunnuhlíð telur
framhjá sér gengið
þegar Skjól og Eir
ætla að reisa heimili
fyrir 56 gamalmenni í
Kópavogi.
sama tíma og bæjaryfir-
völd í Kópavogi hafa ekki
svarað 2 ára gömlu bréfl
Sunnuhlíðarsamtakanna um
stækkun hjúkrunarheimilis aldr-
aðra, Sunnuhlíðar, um 17 rúm,
hefur Kópavogskaupstaður sam-
þykkt að ganga til samninga við
Skjól, Eir, VR, Öryrkjabandalagið
og SÍBS um byggingu nýs hjúkr-
unarheimilis í Kópavogi þar sem
verða 56 pláss.
Gunnar Birgisson, formaður
bæjarráðs Kópavogs, siigði í gær
að innlagnir í dag væru varla
miðaðar lengur við bæjarmörk á
höfuðborgarsvæðinu. Hins vegar
væri mikil þörf fyrir rými á
hjúkrunarheimilum, til dæmis
væru 12 Kópavogsbúar á bráða-
lista í dag. Á sama tíma væru
ævinlega 10 pláss laus hjá
Sunnuhlíð. Gunnar sagði að bær-
inn hefði ítrekað sett íjármagn í
Sunnuhlíð og sæi ekki eftir því.
Hins vegar vantaði skýringar á
erfiðum rekstri heimilisins.
Ekkert á móti Skjóli og
Eir
„Þessi samningur er við VR,
SÍBS og Öryrkjabandalagið, sem
eru eigendur að Skjóh og Eir.
Þessir aðilar hafa áhuga á að
reisa heimili í Kópavogi sem við
höfum að sjálfsögðu ekkert á
móti. Varðandi tilboð Sunnuhlíð-
ar fórum við í ráðuneytið til að
fá að vita hvort við fengjum
framkvæmdaleyfi á þann rekst-
ur. Það var ekkert gefið út á það.
Ef það leyfi fæst á undan heimih
Skjóls og Eirar, þá er það hið
besta mál,“ sagði Gunnar Birgis-
son.
Bréfi Sunnuhlíðarsamtakanna
fylgdi frumteikning að stækkun-
inni og rökstuðningur þess að
um ódýra framkvæmd væri að
ræða, viðbyggingu suður og
austur af hjúkrunarheimilinu
sem reis fyrir 15 árum og sam-
nýtingu þjónustu við 55 rými
Sunnuhlíðar.
Sérkennilegt að nýta
ekki samtök bæjarbúa
„Það er ekki okkar að hlutast til
um hvað löglega kjörin
bæjaryfirvöld gera. Við
höfum lítið um þetta
að segja, Sunnuhlíðar-
samtökin kreíjast
einskis, en reyna sitt
besta. Mörgum finnst
það þó óneitanlega
einkennilegt að bæjar-
stjórnin skuli ekki nýta
sér frjáls samtök bæj-
arbúa,“ sagði Ásgeir
Jóhannesson, forsvars-
maður víðtæks hóps Qölmargra
félaga og samtaka í Kópavogi,
sem á sínum tíma hrintu af stað
átakinu í Sunnuhlíð með öflug-
um stuðningi bæjarbúa.
Ásgeir segir að kaupstaðnum
hafði láðst í tvö ár að svara bréfi
samtakanna sem hlyti að teljast
fremur óviðurkvæmilegt. For-
maður bæjarráðs mætti á fundi
fulltrúaráðs og lofaði svari, en
það hefur látið á sér standa.-JBP
Gunnar Birgisson
formaður bæjarráðs Kópavogs
Þessir aðilar hafa
áhuga á að reisa
heimili í Kópa-
vogi sem við höf-
um að sjálfsögðu
ekkert á mólt
Landbúnaður
Átök vegna áburðarmálanna
/
g hef nú einsett mér að
skipta mér ekki af áburð-
armálum, þar sem ég á
sæti í stjórn Áburðarverksmiðj-
unnar í Gufunesi. En það er hins-
vegar haugalygi sem Þorsteinn
Þórðarson, sölustjóri ísafoldar,
segir að ég hafi fengið því fram-
gengt að KEA keypti ekki áburð
frá ísafold," segir Sigurgeir
Ilreinsson, formaður Búnaðar-
sambands Eyjaijarðar.
Hart stíð geysar nú á áburðar-
mai'kaönum milli ísafoldar hf. og
Áburðarverksmiðjunnar í Gufu-
nesi. Samkvæmt upplýsingum,
sem blaðið fékk í gær, kostar
tonnið af Græði 9, sem er algeng
áburðartegund, 19.370 kr. hjá
ísafold og einnig getur komið til
4% staðgreiðsluafsláttur. Hjá
Áhurðarverksmiðjunni kostar
tonmð af sömu tegund 28.241 kr.
Ýmis afsláttarkjör eru í boði, svo
sem afsláttur ef kaupandi sækir
áburðinn í Gufunes og fær flutn-
ingsstyrk. Að ýmsum forsendum
gefnum er Græðir 9 ódýrastur
hjá Kaupfélagi Ái'nesinga á Sel-
fossi, og kostar þar 20.457 kr.
Sigurgeir Hreinsson segir að á
fundi BE, hafi verið samþykkt
áskorun til KEA um að útvega og
selja eyfirskum bændum áburð á
því ódýrasta verði sem byðist.
„Einsog ég segi þá er ég í frekar
þröngri stöðu til að tala um þetta
áburðarmál. En ég tel að tals-
menn ísafoldar fari ekki með rétt
mál þegar segjast bjóða 15 til
18% lægra verð en Áburðarverk-
smiðjan gerir. Þá hefur ekki verið
tekið tillit til ýmissa afsláttar-
kjara sem hún býður,“ segir Sig-
urgeir. -sbs.