Dagur - Tíminn Akureyri - 15.04.1997, Qupperneq 3

Dagur - Tíminn Akureyri - 15.04.1997, Qupperneq 3
(®agur-‘31imtmt Þriðjudagur 15. apríl 1997 - 3 F R É T T I R Lögregla Umfangsmiklar að- gerðir lögreglu í mið- borginni, talið að þrír menn hafi náð milljón af verslunarmanni. Umfangsmikil lögregluað- gerð fór fram í gærmorg- un í miðborg Reykjavíkur, þegar þrír menn höfðu rænt starfsmann 10-11 verslunar- keðjunnar sem var á leið til skrifstofu fyrirtækisins við Suð- urlandsbraut/Álfheima með peninga úr banka. Mennirnir biðu mannsins í stigagangi hússins. Virðast þeir hafa vitað um peningasendinguna, eina milljón að sagt var, en eigandi 10-11 vildi ekki staðfesta þá tölu. Fjölmargir lögreglubflar, ein- kennisklæddir lögreglumenn og liðsmenn sérdeildarinnar, svo- nefnd Víkingasveit, þustu að verslunarhúsi við Brautarholt í gærmorgun. Nærliggjandi göt- um var lokað og vegfarendur inntir eftir persónuskilríkjum. Einn maður gripinn Einn maður var í haldi í gær- kvöld hjá lögreglunni vegna málsins, umráðamaður Mazda- bfls, sem sást á undarlegu ferðalagi í hverfinu við Faxafen og Suðurlandsbraut, en fannst stuttu síðar í porti við Brautar- holt. Eftir að hafa hrifsað pening- ana af starfsmanni verslunar- keðjunnar þustu þremenning- arnir af stað hlaupandi frá staðnum að íbúðahverfi í ná- gremiinu. Einkennisnúmer bfls sem þótti tortryggilegur á þess- um slóðum var tilkynnt lögreglu af árvökulum vegfarendum. Lögreglan fór að heimili eig- anda bflsins sem býr í sama Blönduós Bjarni Pálsson, fyrrverandi póstmeistari á Blönduósi, með tikina Láku, sem skírð er í höfuðið á vini Bjarna, Þorláki. Húsið í baksýn, heimili Bjarna, er eitt af elstu íbúðarhúsum Blönduóssbæjar. Myn&. as Vöruskipti Pínulítið hagstæð Vöruskipti íslendinga við útlönd voru hagstæð um 600 milljónir í febrúar síðastliðnum, en á sama tíma í fyrra voru þau hagstæð um 2,8 milljarða. Fyrstu 2 mánuði þessa árs voru fluttar út vörur fyrir tæpa 22 milljarða en inn fyrir rúma 20 milljarða. Út- flutningurinn var 15% verð- mætari en á sama tíma í fyrra, en stærstan þátt í því á sala Flugleiða á einni af vélum sín- um. Verðmæti útfluttra sjávar- afurða var nánast það sama og í fyrra, en verðmæti útfluttra iðnaðarvara jókst um 12%. Verðmæti kísiljárns jókst um 53% og áls um 4%. Heildarverðmæti vöruinn- flutnings var 22% meira á föstu gengi en í fyrra. Innflutningur á íjárf'estingarvöru, einkum til stóriðju, átti mestan þátt í auknum vöruinnflutningi. Akranes Tveir slösuðust í gassprengingu Tveir menn slösuðust þeg- ar gassprenging varð í vélarrúmi Elliða GK í Akraneshöfn á laugardag. Menn voru við vinnu í vélar- rúmi en höfðu farið í kaffi um 10 leytið. Þegar þeir komu til baka virðist sem gas hafl lekið úr kút sem þeir voru með og þegar þeir fóru að vinna aftur varð sprengingin. í gær átti annar mannanna að fá að fara heim af sjúkrahúsi en hinn, sem liggur á Landspít- alanum í Reykjavík, lá þar áfram. Þeir hlutu brunasár og urðu fyrir höggum. Lögreglan leitar ræningja Gómaður í gær. Lögreglan hafði mikinn viðbúnað og stöðvaði fjölda manna á förnum vegi. Myn± e.ói. húsi og mótorhjólaverslunin Þar fannst bifreiðin í húsasundi. Gullsport að Brautarholti 4c. Eigandi Gullsports sagði í gær að hann hefði fengið vægast sagt slæma auglýsingu í þessari aðgerð, sem var mynduð í bak og fyrir. Lögreglumenn voru fjölmargir inni í búðinni. Búð fær slæma auglýsingu „Þessi drengur sem var hand- tekinn hérna í húsinu vann hjá mér fyrir sjö átta mánuðum og er ekkert viðkomandi búðinni lengur," sagði kaupmaðurinn. „Strákurinn keyrði inn í port- ið og ætlaði að fela bflinn. Lög- reglan hélt fyrst að þetta tengd- ist okkur eitthvað og við leyfð- um þeim að valsa hér um allt,“ sagði kaupmaðurinn í Gull- sporti. Hörður Jóhannesson hjá RLR tók undir það að Gullsport tengdist ekki málinu. RLR vildi annars sem minnst- ar upplýsingar gefa í gær um yfirheyrslur yfir bfleigandanum. Til dæmis ekki hvort játning lægi fyrir. -JBP Kópavogur Samkeppni urn hjúkrimarheiniilið Sunnuhlíð telur framhjá sér gengið þegar Skjól og Eir ætla að reisa heimili fyrir 56 gamalmenni í Kópavogi. sama tíma og bæjaryfir- völd í Kópavogi hafa ekki svarað 2 ára gömlu bréfl Sunnuhlíðarsamtakanna um stækkun hjúkrunarheimilis aldr- aðra, Sunnuhlíðar, um 17 rúm, hefur Kópavogskaupstaður sam- þykkt að ganga til samninga við Skjól, Eir, VR, Öryrkjabandalagið og SÍBS um byggingu nýs hjúkr- unarheimilis í Kópavogi þar sem verða 56 pláss. Gunnar Birgisson, formaður bæjarráðs Kópavogs, siigði í gær að innlagnir í dag væru varla miðaðar lengur við bæjarmörk á höfuðborgarsvæðinu. Hins vegar væri mikil þörf fyrir rými á hjúkrunarheimilum, til dæmis væru 12 Kópavogsbúar á bráða- lista í dag. Á sama tíma væru ævinlega 10 pláss laus hjá Sunnuhlíð. Gunnar sagði að bær- inn hefði ítrekað sett íjármagn í Sunnuhlíð og sæi ekki eftir því. Hins vegar vantaði skýringar á erfiðum rekstri heimilisins. Ekkert á móti Skjóli og Eir „Þessi samningur er við VR, SÍBS og Öryrkjabandalagið, sem eru eigendur að Skjóh og Eir. Þessir aðilar hafa áhuga á að reisa heimili í Kópavogi sem við höfum að sjálfsögðu ekkert á móti. Varðandi tilboð Sunnuhlíð- ar fórum við í ráðuneytið til að fá að vita hvort við fengjum framkvæmdaleyfi á þann rekst- ur. Það var ekkert gefið út á það. Ef það leyfi fæst á undan heimih Skjóls og Eirar, þá er það hið besta mál,“ sagði Gunnar Birgis- son. Bréfi Sunnuhlíðarsamtakanna fylgdi frumteikning að stækkun- inni og rökstuðningur þess að um ódýra framkvæmd væri að ræða, viðbyggingu suður og austur af hjúkrunarheimilinu sem reis fyrir 15 árum og sam- nýtingu þjónustu við 55 rými Sunnuhlíðar. Sérkennilegt að nýta ekki samtök bæjarbúa „Það er ekki okkar að hlutast til um hvað löglega kjörin bæjaryfirvöld gera. Við höfum lítið um þetta að segja, Sunnuhlíðar- samtökin kreíjast einskis, en reyna sitt besta. Mörgum finnst það þó óneitanlega einkennilegt að bæjar- stjórnin skuli ekki nýta sér frjáls samtök bæj- arbúa,“ sagði Ásgeir Jóhannesson, forsvars- maður víðtæks hóps Qölmargra félaga og samtaka í Kópavogi, sem á sínum tíma hrintu af stað átakinu í Sunnuhlíð með öflug- um stuðningi bæjarbúa. Ásgeir segir að kaupstaðnum hafði láðst í tvö ár að svara bréfi samtakanna sem hlyti að teljast fremur óviðurkvæmilegt. For- maður bæjarráðs mætti á fundi fulltrúaráðs og lofaði svari, en það hefur látið á sér standa.-JBP Gunnar Birgisson formaður bæjarráðs Kópavogs Þessir aðilar hafa áhuga á að reisa heimili í Kópa- vogi sem við höf- um að sjálfsögðu ekkert á mólt Landbúnaður Átök vegna áburðarmálanna / g hef nú einsett mér að skipta mér ekki af áburð- armálum, þar sem ég á sæti í stjórn Áburðarverksmiðj- unnar í Gufunesi. En það er hins- vegar haugalygi sem Þorsteinn Þórðarson, sölustjóri ísafoldar, segir að ég hafi fengið því fram- gengt að KEA keypti ekki áburð frá ísafold," segir Sigurgeir Ilreinsson, formaður Búnaðar- sambands Eyjaijarðar. Hart stíð geysar nú á áburðar- mai'kaönum milli ísafoldar hf. og Áburðarverksmiðjunnar í Gufu- nesi. Samkvæmt upplýsingum, sem blaðið fékk í gær, kostar tonnið af Græði 9, sem er algeng áburðartegund, 19.370 kr. hjá ísafold og einnig getur komið til 4% staðgreiðsluafsláttur. Hjá Áhurðarverksmiðjunni kostar tonmð af sömu tegund 28.241 kr. Ýmis afsláttarkjör eru í boði, svo sem afsláttur ef kaupandi sækir áburðinn í Gufunes og fær flutn- ingsstyrk. Að ýmsum forsendum gefnum er Græðir 9 ódýrastur hjá Kaupfélagi Ái'nesinga á Sel- fossi, og kostar þar 20.457 kr. Sigurgeir Hreinsson segir að á fundi BE, hafi verið samþykkt áskorun til KEA um að útvega og selja eyfirskum bændum áburð á því ódýrasta verði sem byðist. „Einsog ég segi þá er ég í frekar þröngri stöðu til að tala um þetta áburðarmál. En ég tel að tals- menn ísafoldar fari ekki með rétt mál þegar segjast bjóða 15 til 18% lægra verð en Áburðarverk- smiðjan gerir. Þá hefur ekki verið tekið tillit til ýmissa afsláttar- kjara sem hún býður,“ segir Sig- urgeir. -sbs.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.