Dagur - Tíminn Akureyri - 15.04.1997, Qupperneq 4
4 - Þriðjudagur 15. apríl 1997
JDagur-'ffiímmn
r
Hafnarfjörður
Verkakvennafélagið Framtíðin
Auglýsing
um framboðsfrest
Hér með er auglýstur frestur til að skila tillögum um
stjórn, varastjórn, trúnaðarmannaráð, varatrúnaðar-
mannaráð, endurskoðendur og varaendurskoðend-
ur í Verkakvennafélaginu Framtíðin í Hafnarfirði fyr-
ir næsta starfsár. Fullskipuðum framboðslista ásamt
meðmælendalista, skal skila á skrifstofu félagsins,
Strandgötu 11, ekki síðar en kl. 12 á hádegi
miðvikudaginn 23. apríi 1997.
AKUREYRARBÆR
Slökkvistöð Akureyrar
Starfsmenn óskast til sumarafleysinga í slökkvilið
Akureyrar, starfið felst m.a. í brunavörslu og sjúkra-
flutningum.
Umsækjendur þurfa að hafa meirapróf og uppfylla
ákveðin skilyrði sbr. m.a. reglugerð um menntun,
réttindi og skyldur slökkviliðsmanna og samþykkt
fyrir slökkvilið Akureyrar.
Laun samkvæmt kjarasamningi Landssambands
slökkviliðsmanna eða STAK og Launanefndar sveit-
arfélaga.
Upplýsingar um starfið gefa slökkviliðsstjórar á
Slökkvistöð Akureyrar, Árstíg 2, í síma 462 3200 og
starfsmannastjóri í síma 462 1000.
Umsóknareyðublöð fást í starfsmannadeild Akureyr-
arbæjar í Geislagötu 9.
Umsóknarfrestur er til 25. apríl 1997.
Starfsmannastjóri.
INNKAUPASTOFNUN
REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3-101 Reykjavík
Sími 552 5800 - Bréfsími 562 2616
Netfang: isr@rvk.is
ÚTBOÐ
F.h. Hitaveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í
aflspenna fyrir 3. áfanga Nesjavallavirkjunar. Gögn-
in Power Transformers 40/40/20 MVA, 132/11/11 kV
eru á ensku. Verkið felst í hönnun, framleiðslu og af-
hendingu á tveimur þrívefju aflspennum. Spennana
skal afhenda fob 1.5.1998.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi
3, frá þri. 15. apríl n.k.
Opnun tilboða: fimmtudaginn 29. maí 1997, kl. 14:00
á sama stað.
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað
eftir tilboðum í húsgögn í fjóra leikskóla Reykjavík-
urborgar. Um er að ræða húsgögn í tvo nýja fjögra-
deilda leikskóla og tvær viðbyggingar við eldri leik-
skóla.
Útboðsgögn fást á skrifst. vorri frá þriðjud. 15. apríl
n.k. gegn 5.000 kr. skilatr.
Opnun tilboða: þriðjudaginn 6. maí 1997 kl. 15:00 á
sama stað.
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað
eftir tilboðum í viðgerðir og endursteypu á stéttum
við Vesturbæjarlaug. Um er að ræða brot og endur-
steypu á stéttum með hitalögn.
Útboðsgögn fást á skrifstofu vorri gegn 10.000,- kr.
skilatryggingu.
Opnun tilboða: þriðjudaginn 29. apríl 1997, kl. 15:00
á sama stað.
Margar brýr eru á
óskalistanuin
Margar brýr á óskalista
Sunnlendinga, tvær
Þjórsárbrýr og Hvítárbrú.
Miklu af vegafé kjjördæmisins
ráðstafað fyrirfram.
Mismunandi sjónarmið eru meðal sunn-
lenskra sveitarstjórnarmanna um hvar
byggja skuli nýjar brýr á Þjórsá. Fyrir ligg-
ur að byggja þurfi nýja brú við Þjótanda í stað 50
ára gamallar brúar sem þar er. Meðal annars
vegna jarðskjálftahættu telja menn einnig að sé
nauðsyn að kanna möguleika á byggingu annarrar
brúar yfir ána á móts við Þjórsárholt í Gnúpverja-
hreppi.
„Núverandi brú við Þjótanda er einbreiður
vandræðagripur og þjónar alls ekki umferðar-
þunga dagsins í dag,“ sagði
Steingrímur Ingvarsson, um-
dæmisstjóri Vegagerðar ríkisins
á Suðurlandi. Ný brú við Þjót-
anda yrði staðsett sunnar en
núverandi brú er. Á aðalfundi
Samtaka sunnlenskra sveitarfé-
laga í síðustu viku var svo nefnt
að nauðsyn væri að fá nýja brú
til viðbótar yfir Þjórsá. „Ein brú
á Þjórsá í byggð getur torveldað
samgöngur á hættutímum og
tafið fyrir nauðsynlegu hjálpar-
starfi. Einnig mun ný brú renna
styrkari stoðum undir aukið
samstarf í félags- og atvinnu-
málum,“ segir í ályktun.
Fyrirhugað er á næstu árum
að byggja nýja brú á Hvítá, sem
tengja myndi saman Biskups-
tungur og Hrunamannahrepp.
Þessi brú er enn ekki komin inn
á vegaáætlun. Þrýst er á að far-
ið verði í smíði hennar innan
fárra ára, ekki síst með tilliti til
sameiningar sveitarfélaga í
uppsveitum Árnessýslu. Kostn-
aður við Hvítárbrú er áætlaður
um 350 millj. kr. og svipað
myndi Þjótandabrú kosta.
Kostnaður við stórfram-
kvæmdir í vegamálum, s.s. brú-
argerð, er Ijármagnaður að 2/3
hlutum úr stórverkefnasjóði.
Þriðjungur greiðist af úthlutuðu
vegafé hvers kjördæmis, en í ár
eru um 200 millj. kr. í þeim
potti Sunnlendinga. Talsverðu
hefur verið ráðstafað fyrirfram,
því sveitarfélög hafa lánað rík-
issjóði til brýnna framkvæmda
heima í héraði og nú þarf að
standa skil á þeim lánum.
Helstu vegaframkvæmdir
sem fyrirhugaðar eru á Suður-
landi í sumar eru uppbygging
Hlíðavegar í Biskupstungum.
Einnig stendur til að ljúka upp-
byggingu Þjórsárdals- og Land-
vega, en umferð þar er mikil og
þung m.a. vegna vikurflutninga.
-sbs.
LANDBÚNAÐARRÁÐUNEYTIÐ.
Opinn fundur
með landbúnaðar- og umhverfisráðherra Guð-
mundi Bjarnasyni verður haldinn f féiagsheim-
ilinu Ýdölum, Aðaldal, fimmtudaginn 17. apríl
kl. 20.30.
Á fundinn mæta einnig starfsmenn ráðuneytisins
og gera grein fyrir einstaka verkefnum sem unnið
er eð.
Allir velkomnir.
Landbúnaðarráðuneytið.
Aðalfundur
Skagstrendings hf.
verður haldinn þriðjudaginn 22. apríl 1997 í Fells-
borg, Skagaströnd, og hefst kl. 14.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 11. gr. samþykkta
félagsins.
2. Tillaga um 10% hækkun hlutafjár með útgáfu jöfn-
unarhlutabréfa.
3. Tillaga um heimild til aukningar hlutafjár.
4. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá hluthöfum sem bera á fram á aðalfundi,
skulu vera komnar í hendur stjórnarinnar eigi síðar en
7 dögum fyrir aðalfund.
Dagskrá og reikningar félagsins munu liggja frammi á
skrifstofu félagsins 7 dögum fyrir aðalfund.
Stjórn Skagstrendings hf.