Dagur - Tíminn Akureyri - 19.04.1997, Blaðsíða 12

Dagur - Tíminn Akureyri - 19.04.1997, Blaðsíða 12
24 - Laugardagur 19. apríl 1997 Ert þú að tapa réttindum ? Eftirtaldir lífeyrissjóðir hafa sent sjóðfélögnm yfirlit um iðgjaldagreiðslur á árinu 1996: Lífeyrissjóður Austprlands Lífeyrissjóður jramreiðslumanna Lífeyrissjóðurinn Hlíf Lífeyrissjóður Norðurlands Lífeyrissjóður sjóiúanna Lífeyrissj. verkafólks í Grindavík Lífeyrissjóður Vestfirðinga Lífeyrissjóður Vesturlands Lífeyrissjóður Bolungarvtkur Lífeyrissjóðurinn Framsýn Lífeyrissjóður matreiðslumanna Lifeyrissjóður rafiðnaðarmanna Lífeyrissjóður Suðurnesja Lsj. verkalýðfélaga á Suðurlandi Lífeyrissjóður Vestmannaeyinga Sameinaði lífeyrissjóðurinn FAIR ÞU EKKIYFIRLIT en dregið hefur verið af launum þínum í einn eða fleiri af ofangreindum lífeyrissjóð- um, eða ef launaseðium ber ekki saman við yfirlitið, skalt þú hafa samband við viðkomandi lífeyrissjóð hið allra fyrsta og eigi síðar en 1. maí nk. Við vanskil á greiðslum iðgjalda í lífeyrissjóð er hætta á að dýrmæt réttindi tapist. Þar á meðal má nefna: ELLILÍFEYRI • MAKALÍFEYRI • BARNALÍFEYRI • ÖRORKULÍFEYRI Gættu réttar þíns / lögiim um ábyrgðarsjóð launa segir meðal annars: Til þess að iðgjöld laúnþega njóti ábyrgðar ábyrgðasjóðs launa vegna gjaldþrota, skulu launþegar innan 60 daga frá dagsetningu yfírlits ganga úr skugga um skil vinnuveitenda til viðkomandi lífeyr- issjóðs. Séu vanskil á iðgjöldum skal launþegi innan sömu tímamarka leggja lífeyrissjóði til afirit launaseðla fyrir það tímabil, sem er í vanskilum. Komi athugasemd ekki ffam ffá launþega er við- komandi lífeyrissjóður einungis ábyrgur fyrir réttindum á grundvelli iðgjalda þessara að því marki sem þau fást greidd, enda hafi lífeyrissjóðnum ekki verið kunnugt um iðgjaldakröfúna. TILBOÐ A SMAAUGLYSINGUM - besti tími dagsins! . FYRSTA BIRTING 800 KR. • ENDURBIRTING 400 KR. ttt- .. Ofangreind verð miðast við staðgreiðslu eöa VISA / EURO Símfauglýsingadeildarer 460 6100 - Fax auglýsingadeildar er 460 6161 |0agur-dIútrám jP^tgur-'SIhCTtmt \Iii(iii|atiil— Þessi er tilvalin fyrir fjalla- ferðirnar í sumar. Gott að setja fyllinguria í kvöldið áður og þá þarf ekkert að gera að morgni gönguferðar annað en að skella brauðhleifnum í bak- pokann. Svona förum við að: 1 stk. stór brauðhleifur 2 rauðar paprikur 2 gular paprikur agúrka 2-3 stórir tómatar mozzarellaostur 20 fersk basilblöð 5 msk. ólífuolía Skerið paprikurnar í tvennt og hreinsið kjarnann úr. Hvolfið helmingunum í ofnskúffu og grillið þar til ysta lagið er farið að sviðna. Kælið og afhýðið. Skerið nokkrar gúrkusneiðar, penslið með ólífuolíu og grillið þar til heitar í gegn. Sneiðið síðan tómata og ost. Notið beittan brauðhníf til að skera toppinn af brauðhleifn- um. Takið varlega miðjuna úr brauðinu en skiljið eftir ca. 2'A cm þykkt lag af brauð innani við skorpuna. Penslið síðan innri hliðar brauðhleifsins með því sem eftir er af ólífuolíunni. Raðið fyrst einu lagi af agúrkusneiðum, þá papriku, osti, tómötum og basillaufum í hleifinn. Kryddið létt með salti og pipar af og til. Þrýstið var- lega á fyllinguna til að koma sem mestu fyrir. Setjið toppinn á brauðinu of- an á aftur og veijið síðan öllu saman inn í álpappír. Geymið í ísskáp í a.m.k. 3 klukkutíma. Síðan er bara að taka álpappír- inn af, skera í sneiðar og borða.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.