Dagur - Tíminn Akureyri - 17.05.1997, Side 3

Dagur - Tíminn Akureyri - 17.05.1997, Side 3
^DagurÁÍRmmrt SOGUR 0 G SAGNIR i Laugardagur 17. maí 1997 - III ráðherra. Allt bendir til þess að ekkert meira haíi verið aðhafst varðandi byggingu íbúðar- og hesthússins á Höfða, því að í brunamati frá 1919 er getið um hesthús á lóð- inni auk hlöðu. Árið 1941 er hesthúsið enn við lýði og þá er einnig getið um bifreiðageymslu á lóðinni. Brillouin flutti úr húsinu 1913 og af landi brott í þann mund er fyrri heimstyrjöldinn byrjaði. Árið 1910 eru taldir til húsa á Höfða: Jana Paul Brillouin, franskur konsúll, fæddur 1. ágúst 1875 í Rochefot Frakklandi, Martha Gudrun Brillouin húsfrú, fædd 16. september 1885 í Lille Hammer Noregi, Ragna Alice Elodin Brillouin, fædd 20. febrúar 1907 í Rochefort, Ragna Emilie Grönstad ekkjufrú, fædd 25. sept- ember 1853 í Kristiania Noregi, Signe Sundby ráðskona, fædd 20. september 1885 Stege, Mön, Danmark, Sigríður Magnúsdóttir vinnukona, fædd 20. júlí 1889 í Reykjavík, Sigurður Guðmunds- son, vinnumaður, fæddur 12. júlí 1883 í Merkinesi Hafnarfirði og Gaston Claus bjargráðamaður, fæddur 30. apríl 1880 í París Frakklandi. Árið 1913 eru aðeins taldir tveir íbúar í Höfða: Sigen Sund- bye ráðskona og Sigurpáll Ólafs- son vinnumaður, fæddur 25. jan- úar 1893 að Sogni í Ölfusi. í janúar 1914 kaupir Lands- bankinn Konsúlshúsið eins og það var nefnt á meðan konsúllinn franski bjó þar. Þá var farið að dragast saman hjá Franska Spít- alafélaginu og húsið selt á upp- boði en lóðin var enn í eigu Spít- alafélagsins. Einar Benediktsson skáld og sýslumaður sem fæddur var 21. október 1864 að Elliðavatni, flyt- ur í húsið 1914. Samkvæmt manntali frá því ári búa þar auk hans, Valgerður Benediktsdóttir, kona hans, fædd 15. júní 1881 í Reykjavík. Börn þeirra; Einar Valur, Margét Svala, Benedikt Örn, Ragnheiður Erla, Stefán Már og Katrín Hrefna. Ennfremur eru á heimilinu: Ingunn Magnúsdóttir kennslukona, fædd 4. ágúst 1889 á ísafirði, Valgerður Guðmunds- dóttir, námsmey, fædd 2. janúar 1889 að Báruhaug Bessastaða- hreppi, Friðrika Einarsdóttir vinnukona, fædd 4. ágúst að Oddakoti Garðahreppi og Val- gerður Magnúsdóttir vikatelpa, fædd 16. janúar að Hraðastöðum Mosfellssveit. Einar Benediktsson nefndi húsið Héðinshöfða eftir æsku- heimili sínu í Suður-Þingeyjar- sýslu. En Einar og Qölskylda bjuggu ekki í húsinu nema til 1917. Næstu íbúar voru Ingólfur Jónsson verslunarmaður, fæddur 13. september 1874 í Reykjavík og kona hans Kristín Richter Jónsson, fædd 22. apríl 1877 í Stykkishólmi en samkvæmt manntali eiga þau heima á Hóð- inshöfða I tvö ár, ásamt börnum sínum þremur og fleira fólki. Næst á eftir þeim koma hjónin Jón Bjarnason og Steinunn Bald- vinsdóttir auk Ijögurra annara heimilismanna. Þau voru í húsinu í tæpt ár. Samkvæmt manntali 1920 eru engir íbúar á Héðinshöfða. Árið 1921 flyst fyrsti borgar- stjóri Reykjavíkur í húsið, Páll Einarsson dómari ásamt Ijöl- skyldu sinni.IHann var borgar- stjóri á árunum 1908 til 1914). Páll hafði verið bæjarfógeti á Ak- ureyri en var að taka við störfum sem dómari í hæstarétti sem þá var nýstofnaður. Páll og kona hans Sigríður Einarsdóttir bjuggu í húsinu til 1924 en þá kaupir það Matthías Einarsson læknir og kona hans Ellen L. Einarsson. Þau eiga heima í húsinu ásamt börnum sínum og vinnufólki til ársins 1938. Matthías var yfir- læknir á Landakotsspítala. Það mun hafa verið í tíð Matthíasar Einarssonar sem nafnið á húsinu var stytt úr Héðinshöfða í Höfða. Eftir að Matthías og fjölskylda fluttu frá Höfða leigði hann breska ríkinu eignina og en það keypti síðan bæði lóðina og húsið 1942. Fram til ársins 1951 var það bústaður aðalræðismanns en síðan sendiherra Breta. Winston Churchell forsætisráðherra Breta kom til íslands sumarið 1941 og kom þá að Höfða. Ingólfur Espólín kaupir Höfða af breska ríkinu árið 1952 og býr þar til 1962 en borgarsjóður kaupir húsið 1958 til niðurrifs. En Höfði var ekki rifinn og átti Gústaf E. Pálsson borgarverk- fræðingur hugmyndina að því að gera húsið upp og koma í upp- runalegt horf og hafa þar mót- tökustað fyrir borgina. Teiknistof- an Höfði var þar til húsa fyrstu árin eftir að borgin eignaðist hús- ið en þar var unnið að skipulagi Reykjavíkur. Árið 1967 var byrjað á við- gerðum á húsinu. Húsið hafði verið klætt með bárujárni en þeg- ar járnið var tekið af kom í ljós að gamla vatnsklæðningin var mun heillegri en búist var við. Klæðningin var þá látin halda sér en ysta holrúm einangrað með polyurethan froðu með því að boruð voru göt á klæðninguna og froðunni dælt inn. Loft íbúðarher- bergja voru klædd með striga og pappa og máluð með eldvarnar- málningu. Einnig voru settar rósettur í loftin og skrautlistar. Á hæðinni hafa þrjú herbergi í vest- urhlið hússins verið sameinuð í eitt, þar er nú borðsalur. f tíð Ing- ólfs Espólíns höfðu innveggir og innrihlið útveggja verið klæddir með asbestplötum (sem þótti fínt á þessum tíma). Við endurbætur á húsinu voru plöturnar látnar halda sér en strigi límdur á þær. Síðan var neðri hæðin máluð en sú efri veggfóðruð. Stigahúsið hafði verið málað bleikt og varð að sandblása viðinn til þess að ná málningunni af. Yfir dyrum húss- ins eru skreytingar og nafn Brill- ouin konsúls er yfir dyrum inn í viðhafnarstofuna. Sögusagnir um reimleika á Ilöfða hafa lifað með þjóðinni í nokkra áratugi. Ekki ber mönn- um saman um hvaða íbúum hússins þær tengjast en sagt er að breski sendiherrann hafi kvartað yfir því að hvítklædd kona væri á ferli í húsinu. Stúlku- klettur er örnefni sem merkt er inn á sjókort frá 1788 og er húsið Höfði á þeim slóðum. Ekki er vit- að af hverju kletturinn fékk þetta heiti. í kringum Höfða var hlaðinn grjótgarður úr grásteini og stend- ur hann enn að mestu leyti uppi. Öndvegissúlur, listaverk eftir Sig- urjón Ólafsson, standa í túnfætin- um. í stofunni til hægri við viðhafn- arstofuna sátu þeir Ronald Reag- an og Mikhael Gorbatsjof á haustdögum 1986 og bundu enda á kalda stríðið. Þá komst Höfði og ísland allt í heimspressuna svo um munaði. Núna hefur sú ánægjulega ákvörðun verið tekin hjá borgar- yfirvöldum að efna til skoðunar- ferða að Höfða fyrsta sunnudag hvers mánaðar. Panta þarf þát- töku í Ráðhúsi Reykjavíkur eða í síma 563 2005. Ekki verður farið með fleiri en fimmtfu manns í hverja skoðunarferð. Hluti af upprunarlegu innréttingunni kom í Ijós þegar húsið var endurbyggt. HAGYRÐINGAR Sfldveiðikapphlaup Þó að veiðin virðist drœm, og valdi mörgum baga og söluvonin sýnist slœm sem og þessa daga, ösla skipin œgisslóð eins og naut í mýri ef aldan syngur samin Ijóð um síldarævintýri. Nýir samningar Samningsramminn sýnist mér sem og fleirum, glataður. - Verkalýður alltaf er upp úr skónum plataður Drifskaftið vantar í Dagsbrúnarmenn, dugurinn horfinn og þorið. Skröpum við dauðann úr skelinni enn með skelfingarsvip út í vorið. Pétur Stefánsson Efnahagsmál: Erlendir íjárfestar Það er sorg og meinið mesta í margra huga, því er ver, ef útlendingar ekki festa allt sitt fé á landi hér. Horfur Sínum huga hafa lyft í hœðir margir bísnessmenn. Horfur eru fifftífifftí að fjármagnstekjur vaxi enn. Afkoma Ekki mun ég aumur deyja eða líða fœðuskort, því að ég á - þér að segja - þrettán fögur greiðslukort. Búi Þingmenn gleymast fljótt Er það svona, eins og gengur enn um þingmannsleið: Engir tala um þá lengur, eftir gengið skeið. Reykingar Að kreista reyk úr hvítum hólki er kjánalegur vani, sem veldur heilsuveilu ífólki og verður margra bani. „Greiðum skuldir - eyðum ei“ Þéttum okkar þjóðarfley; þá mun reisn á knerri. „Greiðum skuldir, eyðum ei - ágœtt ráð hjá Sverri. Auðunn Bragi Sigurður Geirdal - um Auðun Braga: Ýmsum fremri, að ég tel: orðhagur og laginn. Auðunn Bragi yrkir vel, eins og fyrri daginn.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.