Dagur - Tíminn Akureyri - 17.05.1997, Síða 5

Dagur - Tíminn Akureyri - 17.05.1997, Síða 5
^Dagur-'ðlTOróm Laugardagur 17. maí 1997 - V S Ö G U R 0 G S A G N I R dimmur og lágur, huglítill og nískur, aðgætinn og mikill ætt- fræðingur, hægur í framgöngu og smáskrítinn. Benedikt Sveinsson, assess- or, meðalmaður á hæð og grannur, grannleitur, eins og bólugraíinn, hrokkið svart hár, snör augu og svört og eins og eldur brenni úr augum hans, illur í skapi og harður, hrein- lyndur og ræðir eftir sannfær- ingu, hraðmæltur og hvass. Halldór Friðriksson, skóla- kennari, lítill á vöxt, hvítleitur í framan, langt nef, bogið, lengri neðri vörinn, íljótur og snar, nokkuð vindhanalegur, hroða- legur og rustalegur í látbragði og klæðnaði. Arnljótur Ólafsson, stór vexti, svart- og hrokkinhærður með svart skegg mikið, herða- breiður. Hann var smá- og hýr- eygður, seinmæltur og ekki lið- ugt um mál, hæðinn og klókur, en góður í viðmóti og sést ekki fyrir með skildinga. Sveinn Skúlason, meðalhár og grannur, hvítleitur og lang- leitur, langt nef og að mestu beint, jarpur á hár, óhrokkið, móleit augu og lítil. Hann var skarpur maður og góðmenni og frómlundaður, en latur og værugjarn og enginn fyrir- hyggjumaður, slétt og hægt málfæri, heldur við öl. Jón á Gautlöndum, stór vexti og vel limaður, fallegur á'fæti og eins í andliti, svart- og hrokkinhærður, en hærðist um þrítugt, rómurinn hár og snjall. Hann var gáfumaður og lesinn, gestrisinn og höfðingi í lund og vænn maður, hvatlegur, hneigður til öls og nokkuð á velli við það og sést ei fyrir um peninga og veit þá af sjálfum sér. Magnús Andrésson, stór vexti og lotinn, hvítur á hár, óhrokkið, hvítleitur í andliti, langt nef, ófríður um munn og andlit, smá- og svarteygður, hægur í framgöngu, sléttorður og eins og smástami. Hann er vel að sér, vænn maður og frómlundaður, drykkjumaður. Stefán Jónsson, meðalmaður vexti og fallegur, lánlegur, með slétt andlit og bogið nef. Hann er vel að sér og hygginn, að- gætinn og hægur í orði, en meinyrtur, svarthærður, val- menni, en þó að eðlisfari svinn- ur. Ólafur á Sveinsstöðum var kominn af þingi þegar ég kom þar. Hann var meðalmaður vexti, rauð- og hrokkinhjærður, rauðfreknóttur og eins á skegg, frískur og snar, íjótmæltur og vel að sér. Ásgeir Einarsson er nokkuð hár og þrekinn, svarthærður, holdugur í andliti, togin- og rauðleitur, með lítið æxli á enn- inu fyrir ofan augabrúnina hægri. Hann er vel hygginn og meinyrtur, íljótlyndur, spaug- samur og skemmtinn. Hann er búmaður og umsvifamikill í bú- sýslu. Hann er auðugur af fé. Indriði Gíslason, bróðir Kon- ráðs lektors, er lágur og gildur, breiðvaxinn, dökkt hár og skegg, lotinn í framgöngu, skarpur maður og hagyrtur, dimmur rómurinn, skapmikill og kátur og hroðafenginn í orði í sinn hóp. Árni Einarsson, hár og grannur, svartur á hár og brýr, píreygður og liggja augun djúpt, toginleitur, nefið beint og þunnt. Hann er hægur í fram- göngu og vel hygginn. Guðmundur Brandsson, lág- ur og gildur, kringlu- og rauð- leitur, þykkt nef og hafið upp að framan, augum smá og snör og liggja djúpt, mjög undirleit- ur, gáfaður vel og skáld og einna minnugastur þingmanna, málfæri dimmt, nokkuð liðugt um mál, nískur og yfir höfuð búralegur. Jón Sigurðsson á Haugum, lágur en flatvaxinn, svartur á hár og skegg, skinndökkur, glansandi augu, nef þunnt og beint, skrafar mikið, meðallagi vel að sér en skáldmæltur. Björn Pétursson, stór vexti og digur, jarpt hár, en rauðleitt skegg og mikið, kringluleitur og rauðleitur, ljós augu, róm- mikill, lítill gáfumaður, en álít- ur sig þó vera með heldri mönnum, meinhægur, en hneigður til drykkjuskapar og þá ör á fé. Páll Sigurðsson, lágur en gildur, kringluleitur, með smá og snör augu, dökkt hár, bárótt enni, harðlegur og einarðlegur í orði, rómurinn snarpur, harð- mæltur, gáfaður og lesinn, hreinlyndur og harðgeðja, en þó vænn maður, drykkjumaður og þá stífur á sinni skoðun. Gísli Brynjólfsson, lítill og pervisalegur, ljóshærður, skegglaus, magur- og hvítleitur, snör og skörp augu, líkaminn æfinlega á iði, hátt og snjallt málfæri og liðugt um það. Þeg- ar hann heldur ræðu er eins og hann lesi hana á bók, en ekki eru ræður hans eins grundaðar eins og þær eru áheyrilegar. Hann er góður í viðmóti, vindhanalegur, en góður drengur. Helgi Thorder- sen biskup er hár og gildur, hefur ístru, fríður ásýnd- um og snjallt mál- færi. Hann var góð- ur prédikari á fyrri árum, lítill þing- maður, drykkju- garn og svinnur, en þægilegur í við- móti. Jón Hjaltalín landlæknir er hár og gildur, höfðing- legur ásýndum, málsnjall og hefur góðan og skáldleg- an talanda, stífur á meiningu sinni, en frjálslyndur, skemmtinn og kát- ur, ör á fé. Páll Sigurðsson. Drykkjumaður og stíf- ur á sinni skoðun. Gísli Brynjólfsson. Vindhanalegur en góð- ur drengur. Helgi Thordarsen. Lítill þingmaður og drykkju- gjarn. Jón Hjaltalín. Stífur á meiningu sinni. GAMLA MYNDIN Hver kannast við fólkið? Ef lesendur Dags-Tímans þekkja einhverja á þeim myndum sem hér birtast eru þeir vinsamlega beðnir að snúa sér til Minjasafnsins á Akureyri, annað hvort með því að senda bréf í pósthólf 341, 602 Akureyri aða hringja í síma 462 4162 eða 461 2562 (símsvari). 5 kg kr 319 Verð áður 455“

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.