Dagur - Tíminn Akureyri - 17.05.1997, Side 6

Dagur - Tíminn Akureyri - 17.05.1997, Side 6
VI - Laugardagur 12. apríl 1997 MINNINGARGREINAR Jkgur-®TOmm Jón Geir Lúthersson bóndi Sólvangi Jón Geir Lúthersson fæddist að Vatnsleysu í Fnjóskadal 8. júlí 1914. Hann lést á heimili sínu 7. maí síðastliðinn. Foreldrar hans voru Lúther 01- geirsson, f. 17. ág. 1889, d. 14. maí 1922, og Þórunn Páisdóttir, f. 24. apr. 1892, d. 6. jan. 1978. Jón Geir var elstur barna Lúth- ers og Þórunnar en næstur hon- um kom Olgeir, Vatnsleysu, f. 26. okt. 1915, d. 22. jún. 1996; þá Margrét, Akureyri, f. 3. des. 1917 og Lúlley Esther, Akureyri, f. 24. feb. 1922. Hálfbróðir Jóns, sonur Þórunnar og seinni manns hennar Ingimars Krist- jánssonar, er Ingi Þór Ingimars- son á Neðri-Dálksstöðum, f. 23. des. 1925. Fyrri kona Jóns var Bergljót Indriðadóttir frá Skógum, f. 9. feb. 1920, d. 9. júh' 1943. Þeim varð ekki barna auðið. 17. júní 1945 kvæntist Jón Ásdísi Stefánsdóttur frá Hall- gilsstöðum, f. 28. ág. 1923). Þau stofnuðu nýbýlið Sólvang úr landi Hallgilsstaða árið 1946. Börn Jóns og Ásdísar eru: 1) Bergsveinn, Sólvangi, f. 7. okt. 1945,. 2) Ingvar, Sólvangi, f. 3. nóv. 1946. 3) Þórdís Hólmfríður, Akureyri, f. 9. maí 1949, maður hennar Birgir Jónasson, dætur þeirra Ásdís og Björg, barn Ás- dísar Arna Baldvinsdóttir. 4) Ingunn, Kópavogi, f. 30. des. 1950, maður hennar Magnús Skúlason, synir þeirra Hlynur og Skúli. 5) Sigrún, Akureyri, f. 27. okt. 1953, maður hennar Ólafur Haukur Baldvinsson, dætur þeirra Sólrún María, Haf- dís og Dagný. 6) Aðalheiður Erla, Akureyri, f. 17. maí 1957, maður hennar Óskar Helgi Al- bertsson, börn þeirra Kári Páll, Björk og Ásdís Helga. 7) Þór- unn, Sólvangi, f. 1. nóv. 1961, maður hennar Rúnar Jóakims- son, börn þeirra Arnar Geir, Hrönn, Silja og Líney. 8) Sólveig, Grenivík, f. 25. mars 1964, mað- ur hennar Friðbjörn Axel Pét- ursson, börn þeirra Erla, Jón Geir og Bergsveinn Ingvar. 9) Steinunn Harpa, Akureyri, f. 24. apr. 1969. Það er svo margt. Heilt mynda- albúm í huganum. Situr við end- ann á eldhúsborðinu með píp- una. Ilmur af Half and Half. Hann kallar á okkur og við fáum að blása á eldspýtuna. Bíltúr á Volgunni með rauða flauelsá- klæðinu á heitum sumardegi. Með nikkuna inni í Okkar her- bergi. Við stóra þunga skrifborð- ið að færa inn í ærbókina. Segir okkur fréttir af kindunum okkar. Að segja sögur. Hlæjandi. Hrein- skilinn og á stundum óvæginn í orðum. Iljartahlýr. Afi er stór maður í minning- unni, þótt ekki hafi hann verið hár í loftinu, og við dáðum hann. Einhvern pata höfðum við af því að hann hefði eitthvað unnið við vegagerð á yngri. árum og þar með þótti okkur það ljóst að hann hlyti að hafa gert veginn yfir Vaðlaheiði, svo til einn og óstuddur, en það var leiðin sem við þurftum að aka til að komast í sveitina í þá tíð. Ekki nóg með það, heldur var tilfinningin líka sú að hann hlyti að hafa smíðað bogabrúna við Vaglaskóg (þar sem myndin framan á einni af hljómplötu Karlakórsins Goða er tekin, afi er fyrir miðju í ljós- brúnum fötum). Það hefði hins vegar orðið að teljast hið merki- legasta afrek, þar sem brúin er smíðuð árið 1907, sjö árum áður en hann fæddist. En sú vitneskja barst okkur til eyrna í seinni tíma og er í rauninni algjört aukaatriði. Afi var skemmtilegur sögu- maður. Við sáum hann til að mynda ljóslifandi fyrir okkur þar sem hann ungur að árum gerði sér ferð út á frosinn bæjarhólinn til að æfa heljarstökk aftur fyrir sig. Sú ferð endaði á öfugum enda. í annan tíma kenndi hann sjálfum sér að synda í ísköldum polli við bæinn og lýsti hann því jafnframt á mjög myndrænan hátt. Ef við lokum augunum finnum við þétt faðmlag og hlýjar hendur sem taka um okkar. Heyrum vin- gjarnlegu orðin sem alltaf fylgdu okkur úr hlaði. í þetta sinn fylgj- um við þér. Elsku afi, þú ert ávallt með okkur. Þínar Ásdís og Björg. Jón Geir Lúthersson, bóndi á Sól- vangi í Fnjóskadal, sem lést hinn 7. maí sl., verður til moldar bor- inn í dag frá Hálskirkju í Fnjóskadal. Honum og konu hans, Ásdísi Stefánsdóttur, tengdaforeldrum mínum, á ég sem slíkum mikla skuld að gjalda og því langar mig til að reisa honum svolítinn bautastein, þó ekki væri nema örlitla þústu, úr máli og letri. Sumarið kalda 1979 kom ég í fyrsta sinni á Sólvang þar sem Jón Geir og Ásdís bjuggu þá fé- lagsbúi með sonum sínum, þeim Bergsveini og Ingvari. f Fnjóska- daiinn hafði ég aldrei komið fyrr og því voru viðbrigðin mikil, einkum vegna þess að mér fannst skrítið að hafa ekki sjóinn daglega fyrir augum eins og ég var vanur og svo óx stærðin á búinu mér verulega í augum. Sem strákur var ég nokkur sum- ur í sveit hjá góðu fólki á litlum bæ, í lítilli sveit vestur á Strönd- um en aldrei áður hafði ég haft kynni stórbúskap líkum þeim sem rekinn var á Sólvangi, og er enn. Þarna var, í mínum augum, auðvitað, sem ekki er Þingeying- ur, allt stórt í sniðum enda um að ræða bú sem komst iðulega í tölu tíu afurðamestu búa landsins; stór túnflæmi, mikill vélakostur, stór áhöfn og ekki síst stór og samhent fjölskylda. Var engu lík- ara en maður væri staddur á stóru samyrkjubúi þar austur frá þegar allir voru að verki við hey- skapinn, unnu af kappi og gengu bræður og systur í öll útiverkin. Ætla mætti að svo stórt bú væri verk nokkurra kynslóða en svo var nú aldeilis ekki. Þegar mig bar að garði voru rétt um þrjátíu og fimm ár liðin frá því Jón Geir og Ásdís reistu nýbýlið Sólvang úr landi Hallgilsstaða og má því ljóst vera að þvf fólki er ekki fisjað saman sem á tiltölu- lega fáum árum breytir beitar- móum í eina af afurðamestu bú- jörðum landsins. Til þess þarf marga kosti umfram dugnað og áræði; það þarf líka mikinn vilja- styrk, útsjónarsemi og sátt á milli móður náttúru og þeirra sem eiga sitt undir duttlungum henn- ar. Þetta var líka á þeim árum þegar bændur voru hvattir til þess að framleiða sem mest og best. Þeim Sólvangsbændum búnaðist líka vel og átti Jón Geir í fórum sínum nokkur viðurkenn- ingarskjöl sem honum hlotnuðust fyrir góðan árangur í sauðljár- rækt. Hann var líka orðlagður fyrir það hversu laginn hann var við dýr og var oft til hans leitað um aðstoð, t.a.m. þegar kýr eða kindur áttu í erfiðleikum við burð. Strax við fyrstu kynni okkar afsannaði Jón Geir það orðspor sem af Þingeyingum fer þegar hann hálft í hvoru afsakaði bú- skaparlagið, ekki af neinu upp- gerðar lítillæti, heldur vegna þess honum fannst að það mætti alltaf gera meira og betur til þess að renna styrkari stoðum undir búreksturinn og kröfurnar sem hann gerði til sjálfs sín og til sinna voru eftir því. Þetta viðhorf finnst mér öðru fremur vera til marks um jákvæðan metnað en einnig rika ábyrgðartilfinningu, sem Jón Geir varð kornungur að tileinka sér eftir sviplegt fráfall föður síns. Mér fannst alltaf eins og Jón Geir væri ávallt reiðubú- inn að bregðast við stóru og smáu sem kynni að fara úrskeið- is í rekstrinum og að í rúnum ristu andliti hans væru stöðugir áhyggjudrættir, nema þegar hann hampaði litlu afabarni en þá var eins og allar áhyggjur hyrfu á braut. Það fór enda ekki hjá því að honum væri falin enn meiri ábyrgð því árum saman sat hann í hreppsnefnd Hálshrepps. Tví- vegis var hann í framboði til al- þingis; af fullri einurð í fyrra sinnið en í hið síðara var honum boðið sæti í virðingarskyni sökum aldurs og sem fulltrúa stéttar sinnar. Hann varð sannur her- stöðvaandstæðingur og snemma róttækur og varð að eigin sögn þeim mun róttækari eftir því sem árunum Ijölgaði og hefði þess vegna getað setið ofar á fram- boðslista. Þótt búið væri stórt var íbúð- arhúsið lágreist og lítið að sjá utan frá en þó rúmar það á góð- um stundum fjölskylduna alla; börnin níu, sístækkandi hóp barnabarna, barnabarnabarn - og svo tengdasynina sem stund- um láta lítið fyrir sér fara í (]öl- menninu - en við áttum alltaf vís- an skilning hjá tengdaföðurnum! Jón Geir var ekki með há- vaxnari mönnum en þó var öllum ljóst að þar fór enginn meðal- maður. Slíkur var styrkur hans, svo sterk var skaphöfnin að sjálf- ur taldi hann ástæðu til þess vekja annað slagið athygli á því að hann væri nú ekki mjög hár í loftinu! Á sínum yngri árum þótti hann einnig knár og eitt sinn stóð honum til boða að stunda fimleikanám í Skandinavíu en því varð hann að hafna þar sem hann þurfti að sjá fyrir búi með móður sinni og yngri systkinum. Þegar ég kynntist Jóni Geir hafði hann dregið mikið úr lík- amlegri vinnu, einkum vegna brjóskeyðingar í hnjám sem háði honum lengi. Líkaminn var far- inn að gefa sig eftir áratuga strit en til andans var engan bilbug á honum að finna. Vandfundinn finnst mér sá maður sem verið gæti viðræðubetri en Jón Geir; hann sagði frábærlega vel og skemmtilega frá, tungutakið gott og hressilegt og því var hann verðugur fulltrúi þeirrar aka- demíu almennings í landinu sem Laxness sagði að gerði formlega akademíu, skreytta titlum og gráðum, með öllu óþarfa og ef ekki beinlínis hjákátlega. Hann var gæddur ágætri skynsemi, til- svör hans voru meitluð, bein- skeytt og hvöss en stundum mátti kenna vissrar kaldhæðni í orðum hans og dómhörku en aldrei ill- kvittni. Jón Geir var mjög músíkalsk- ur og hafði alla tíð yndi af söng og hljófæraleik. Hann var virkur í kórastarfi; söng í kirkjukór, karlakór og nú síðast rúmlega áttræður í blandaða sönghópnum Sálubót, sem honum fannst bera nafn með rentu. Hann var sjálf- menntaður harmonikkuleikari og skemmti samferðamönnum sín- um við ýmis tækifæri í meira en hálfa öld, spilaði oft fyrir dansi og gekk þá stundum á milli sveita með hljóðfæri sitt á bak- inu. Veiðiferðir með Jóni Geir út á Flateyjardal og Flateyjardals- heiði eru mér minnisstæðar fyrir margt. í þessum ferðum, sem því miður urðu alltof fáar, naut hann sín vel enda þekkti hann hvar- vetna til á þessum slóðum og með einstakri frásagnargáfu sinni gæddi hann landslagið mun meira lífi og lit en ella. Mér stóð nákvæmlega á sama um hvort ég veiddi einum fiskinum fleiri eða færri því þessar ferðir voru svo skemmtilegar, umhverfið fallegt og loftið heilnæmt og nærandi. Þessara ferða kem ég til með að sakna, sem og mannsins vita- skuld og nærveru hans, hollra ráða og þess jákvæða og góða viðmóts sem hann sýndi mér alla tíð. Jón Geir vissi snemma í vetur að hverju dró og mætti þeim tíð- indum með stakri karlmennsku og æðruleysi sem hann sýndi til sinnar síðustu stundar. Kirkju- staðurinn Háls er fyrir miðjum dal; útsýni þaðan er mikið og fagurt út Fnjóskadal, til vesturs heim að Vatnsleysu, þar sem Jón Geir fæddist, og til austurs sér heim að Sólvangi, þar sem hann lést. f upphafi þessa skrifs kvaðst ég ætla að reisa honum lítinn bautastein í orðum en ég hef þó ekki gert annað en að benda á þann minnisvarða sem hann reisti sjálfum sér, það er arfleifð hans sem er stórt bú og stór hóp- ur afkomenda þar sem sérhver getur staðið fyrir sínu, svo notuð séu hans eigin orð. Ekki síst hef- ur hann gefið okkur dýrmæta minningu um góðan mann. Jón Geir taldi sig vera gæfu- mann en þó vil ég halda því fram að enginn geti orðið slíkur gæfu- maður sem hann var nema leggja sitt af mörkum til þess að svo geti orðið. Framlag Jóns Geirs er með þeim hætti að á þessu kalda vori megi tileinka honum sömu eftirmæli og annar maður hlaut, sem ekki var síður þarfur sinni þjóð, það er að ...þó að hríði í heila öld, / harðspor- arnir sjást í snjónum. Óskar H. Albertsson. Eitt líf kviknar þá annað deyr. Enn einn veturinn er liðinn í ald- anna skaut. Með vorkomunni lifnar gróður jarðar, söngur fugl- anna verður fegurri með hverj- um degi sem líður, börnin una sér við útileiki og framtíðin virð- ist öll bjartari. Það á þó ekki við um alla. Liðinn vetur var þungbær fyrir Jón Geir Lúthersson, bónda í Sól- vangi í Fnjóskadal. Þó árferði hafi ekki verið til að hafa áhyggj- ur af, þá var heilsufari þessa aldraða höfðingja þannig komið, að eftir því sem á veturinn leið, þá þvarr heilsan. Aðeins náði hann þó að finna angan vorsins. Örfáum dögum áður en hann lést, sást til hans akandi um sveitina, eins og hann gerði svo oft seinni árin, til að fylgjast með snjóalögum eða gróðurfari, fuglasöng og búfénaði og heilsa upp á sveitungana. Jón Geir var tæplega 83 ára er hann lést. Hann ólst upp hjá for- eldrum sínum á Vatnsleysu í Fnjóskadal, ásamt íjórum systk- inum. Eins og á svo mörgum sveitaheimilum í þá tíð sóttu menn til sjávar til búdrýginda. Sjö ára gamall missti Jón föður sinn, er bátur, sem hann var á, fórst. Fjölskyldunni var þó haldið saman og búskapi haldið áfram í Vatnsleysu. Tápmikil og mynd- arleg systkini uxu úr grasi og hjálpuðu til við búskapinn. fþróttir voru Jóni í blóð born- ar. Fremur lágvaxinn, grannur og kvikur í hreyfingum, þá var honum ýmislegt til lista lagt á því sviði, og ekki allt til eftirbreytni. Ilann var ungmennafélagsmaður og sótti flest landsmót ung- mennafélaganna í um 30 ár. Allt til æviloka voru íþróttir eitt helsta áhugamál hans. Jón kvæntist Ásdísi Stefáns- dóttur frá Hallgilsstöðum, hand- an Fnjóskár, hinn 17. júní 1945. í landi Hallgilsstaða reistu Jón og Ásdís bú sitt á fimmta áratugn- um og nefndu Sólvang. Land var brotið til ræktunar. Bústofninn óx jafnt og þétt. Börnin urðu alls níu, fyrst tveir synir, síðan sjö dætur. Þótt oft hafi eflaust verið þröngt í búi, þá hafa börnin einnig gagnast vel við bústörfin, þegar þau höfðu aldur og þroska til. Synir Jóns og Ásdísar, Berg- sveinn og Ingvar, stofnuðu félags- bú í Sólvangi með foreldrum sín- um er þeir urðu fulltíða. Atorku- mönnum dugði ekki partur úr Hallgilsstaðalandi. Keypt var eyðijörðin Garður fyrir mynni Flateyjardalsheiðar. Garður ligg- ur að afrétti Hálshreppinga, Flat- eyjardalsheiði. Hefur það verið til mikilla þæginda fyrir Sól- vangsmenn að geta sleppt fé í Garði á vorin og leyfa því renna út á heiði eftir því sem aðstæður leyfðu. Jón og Ásdís drógu sig út úr félagsbúinu fyrir nokkrum árum. Dóttir þeirra, Þórunn, og Rúnar Jóakimsson, eiginmaður hennar, gerðust þá aðilar að fé- lagsbúinu og reistu sér íbúðar-

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.