Dagur - Tíminn Akureyri - 17.05.1997, Síða 7

Dagur - Tíminn Akureyri - 17.05.1997, Síða 7
 Laugardagur 12. apríl 1997 - VII MINNINGARGREINAR Bjöm Gestsson hús í Sólvangi. I’rátt fyrir annríki við bústörf gaf Jón sér tíma til annarra hugðarefna. Fyrr á árum lók hann talsvert á harmonikku á skemmtunum. Var þá oft gengið með nikkuna á bakinu í aðrar sveitir. Jón greip alltaf af og til í nikkuna, síðustu árin þó fyrst og fremst fyrir barnabörnin. IJann söng á sínum tíma í Karlakórn- um Goða og síðstu árin í kirkjukór og blönduðum kór. Tónlist og söngur var sameigin- legt áhugamál Jóns og Ásdísar. Heimili þeirra hefur alla tíð verið mjög gestkvæmt. Á sumrin er al- gengt, að 10 - 15 bifreiðar sjáist á hlaðinu í Sólvangi um helgar. Jón vildi fá börnin og ljölskyldur þeirra í heimsókn og var annt um. að veitingar væru ávallt nægar. Jón hafði ákveðnar skoðanir á ílestum málum. Voru umræður gjarnan íjörugar og heitar, þar sem hann var annars vegar. Hann hafði góða frásagnarhæfi- leika og var skemmtilegur í við- ræðum. Stjórnmál og þjóðfélags- mál hvers konar lét hann sig varða. Ilann var á framboðslistum fyrir Samtök frjálslyndra og vinstrimanna og Alþýðubanda- lagið í nokkrum alþingiskosning- um. Þá sat hann í hreppsnefnd Hálshrepps í mörg ár. Eftir að Jón dró sig út úr hin- um daglega búrekstri fyrir all- mörgum árum átti hann því láni að fagna að geta búið áfram á sínu heimili í Sólvangi. Þannig gat hann fylgst áfram með hinum daglegu störfum og gefið góð ráð. Jón var stirður til gangs mörg síðustu árin, en notaði bflinn því meira til að fylgjast með gangi mála. Margar ferðirnar voru farnar á hverju sumri út á Flat- eyjardalsheiði til að fylgjast með afréttarfénu og renna fyrir fisk. í lok síðasta árs varð ljóst hvert stefndi með heilsu Jóns Geirs. Hann kaus að dvelja á heimili sínu meðan hann fengi nokkru um það ráðið. Þar naut hann umönnunar, ástúðar og hlýju eiginkonu og barna til hinstu stundar. Með Jóni er genginn merkileg- ur maður, sem ávallt var gaman að hitta. Hans er nú sárt saknað af ljölskyldu og vinum. Margt verður öðruvísi í Sólvangi eftir fráfall Jóns, en minningin um þennan góða mann mun lifa. Magnús Skúlason. Ljóð og lag Aö Ijósum perluskeljum á lífsins fjörusandi sér leika börnin fagran œskudag. Og dularfull er gátan dem draumur þeirra gegmir en dýrðlegt þeirra bjarta sólskinslag Svo stœkka börn og þroskast er straumur tímans niðar og stœrri leikir hrífa brjóstsins þel. Og tigin djúpsins alda sig teggir inn á sandinn og tgnir þeirra hvítu perluskel. En gullintónar vaka og glaðir bernskuleikir ei glegmast langan. þungan œvidag. Og tigin Igftist aldan með tregaljóð ífangi sem texta við hið bjarta sólskinslag. Guöfinna Jónsdótlir frá Hömrum Elsku pabbi og afi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Við erum rík af minningum um „besta pabba og afa í heimi“. Þórunn, Rúnar, Arnar Geir, llrönn, Silja og Líney. Björn Gestsson fæddisl 2. maí, 1918 að Vermundar- stöðum í Ólafsfirði. Hann lést á dvalarheimilinu Hlíð 6. maí síðastliðinn. Þegar hann var mánaðargam- all fluttu foreldrar hans Sigrún Júlíusdóttir og Gestur Vilhjálms- son að Bakkagerði í Svarfaðar- dal, þar sem þau bjuggu allan sinn búskap. Björn var næst elst- ur flmm systkina, þau eru; Hlíf í Reykjavík, Ríkarður í Bakka- gerði, nú Iátinn, Jóhanna María á Seltjarnarnesi og Kristín á Dal- vík. Björn kvæntist 27. nóvember 1943 eftirlifandi eiginkonu sinni Sigríði Magnúsdóttur, fædd 14. mars 1923 á Björgum í Hörgár- dal. Þau eignuðust ílmm börn, 1) Magnús, fæddur 16. aprfl 1944, k.h. Fanney Margrét Þórðardótt- ir, 2) Gestur, fæddur 3. desember 1945, k.h. Ingibjörg Kjartansdótt- ir, 3) Sigrún, fædd 1. mars 1952, dáin 8. janúar 1953, 4) Sigrún Lára, fædd 23. júlí, 1954, m.h. Jón Aðalsteinsson, 5) Kristín, fædd 8. júní 1964. Barnabörnin eru ellefu og barnabarnabörnin eru orðin sex. Björn var bóndi á Björgum frá 1947 til 1984, en þau hjónin fluttu þaðan til Akureyrar 1988. Útför hans fór fram frá Akur- eyrarkirkju föstudaginn 16. maí. Það er víðsýnt af hlaðinu á Bakkagerði í Svarfaðardal. Byggð- in á Austurkjálkanum blasir við augum, allt frá Ytra-Hvarfi að Skáldalæk út undir sjó. Skíðadal- urinn opnast til suðurs og Stóllinn, fjallpíramídinn mikli fyrir miðjum dal, sem ætti að vera í skjaldar- merki Svarfdælinga, hefur álíka seiðmagn og Snæfellsjökull. Árið 1919 hófu ung hjón, Gest- ur Vilhjálmsson frá Bakka og Sig- rún Júlíusdóttir frá Syðra-Garðs- horni, búskap í Bakkagerði og þar áttu þau eftir að búa farsælu búi í tæp sextíu ár. Þau eignuðust fimm börn: Hlíf, Björn, Ríkharð, Jó- hönnu Maríu og Kristínu. Aðal Bakkagerðisfjölskyldunnar var eindrægni og iðjusemi og hlutu systkinin þann arf í heimanmund. Sigrún í Bakkagerði var frænka okkar systkinanna í Syðra-Garðs- horni og samgangur mikill á milli ijölskyldnanna á bæjunum. Systk- inahóparnir á þeim voru jafnstórir og nokkuð jafnaldra. Björn hlaut skólagöngu sína í Grundarskóla hjá Þórarni kennara á Tjörn, síðan hjá Pétri Finnboga- syni frá Hítardal og Stefáni Bjarm- an í Unglingaskóla Svarfdæla, sem þá var haldinn á Bakka. Hann stundaði nám í Hólaskóla og varð búfræðingur þaðan árið 1941. Björn var félagslyndur og vinsæll og tók virkan þátt í félagsskap unga fólksins í sveitinni. Krossmessumorguninn 1939 kom ég út á hlað heima og sá þar kominn Björn frænda, sem nú var ráðinn kaupamaður hjá okkur um sumarið. Hugsaði ég gott til þeirra samvista og varð heldur ekki fyrir vonbrigðum. Björn var ljúflyndur og skemmtilegur, talaði vandað mál og seinmæltur nokkuð; fum- laus og vandvirkur. Ilonum var gefinn sá eiginleiki að kunna að sjá hina spaugilegu fieti á tilver- unni gleggra en margur annar og veitti oft samferðamönnunum hlut í þeirri náðargáfu, því hann sagði vel frá. Guðmundur ráðunautur Steindórsson hofur sagt mér að þegar hann var kaupamaður eitt sumar hjá Birni og Sigríði frænku sinni, þá búandi hjónum á Björg- um í Hörgárdal, hafi Björn tíðum sagt kímilegar sögur yfir hádegis- verðinum, helst utan úr Svarfaðar- dal og að það hafi verið svo vart og skart að hann hafi nokkurn tímann sagt sömu söguna tvisvar liðlangt sumarið. Björn var vel giftur. Eftirlifandi kona hans, Sigríður Magnúsdóttir, er frá Björgum í Hörgárdal, dóttir hjónanna Magnúsar Sigurðssonar, lengi bónda þar og vegaverkstjóra og Láru húsfreyju Guðmundsdótt- ur. Þau Björn og Sigríður fóru að búa á Björgum árið 1947 og reistu sér vandað og fallegt einbýlishús. Þau ráku þar stórt og arðsamt bú, aðallega kúabú, til ársins 1987 er þau fluttu til Akureyrar. Allmörg fyrstu árin bjuggu þau í tvíbýli við eldri hjónin. Alltaf var gott og notalegt að koma í Björg, þar var mikil gestrisni. Bjargarbændur fylgdust vel með nýjungum í bú- skap. Á sjötta áratugnum reistu þeir t.d. eitt fyrsta hjarðíjós (lausagönguQós) á landinu, og þótti viðburður á sínum tfma. Björn veiktist af berklum á miðjum aldri og afleiðingar þess háðu honum alla tíð síðan þó að hann stundaði búskapinn eftir sem áður af alúð og skyldurækni. Birni og Sigríði var Ijögurra barna auð- ið. Þau eru: Magnús, Gestur, Sig- rún og Kristín. Síðustu æviárin var Björn mjög þrotinn að heilsu. Ég kveð þennan ágæta frænda minn með þökk fyrir samfylgdina. Við Þuríður vottum Sigríði og öðrum ástvinum hans innilega samúð. Minningin um hann lifir og vermir. Júlíus J. Daníelsson Nú hefur hann elskulegur afi minn kvatt þetta jarðlíf og sálin hans loksins fengið frelsi á ný. Mikið er gott að vita til þess að nú getur þú farið að glettast á ný og segja sög- ur. En á sama tíma er sorgin og söknuðurinn mikill, því við höfum misst svo mikið. Minningarnar um þig eru margar og allar svo yndislegar, það sem þú gast alltaf verið þolin- móður og góður við okkur barna- börnin, alltaf fengum við að skott- ast með þér, í fjósinu, ijárhúsun- um, við girðingavinnu, heyskap og svo auðvitað smölun. Þær voru ótal sögurnar sem þú sagðir okkur af alls konar fólki, og öll ævintýrin eins og um hana Búkollu, og bræð- urna nafna þína Einbjörn, Tví- björn, Þríbjörn, þar var aðal gam- anið fólgið í því að sjá hvort þór tækist að fara með síðustu rulluna án þess að fipast, svo lilóstu þínum dillandi hlátri í lokin. Ósjaldan sungum við saman lög eins og Ég fer líka í sveit eða Rúgbrauð með rjóma á . Já, alltaf virtist þú líka hafa tíma til að hlusta á það sem lá manni á hjarta og þó þú værir orð- inn veikur síðustu árin, þá lagðir þú alltaf mikið kapp á að fylgjast með því sem við vorum að gera. Þegar ég hafði verið heilt ár í Bandaríkjunum, þá veit ég að þú fylgdist með mér allan tímann því þegar ég hitti þig eftir að ég kom heim þá varstu alveg með það á hreinu hvar óg hafði verið og hafð- ir ýmsar spurningar um þetta ijar- læga land. Elsku afi við munum öll geyma minninguna um þig í hjarta okkar. Elsku amma þinn missir er mikill, megi góður Guð styrkja okkur öll. Hin langa þraut er liðin nú loksins hlaustu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sœll er sigur unninn og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. Fyrst sigur sá er fenginn, fyrst sorgar þraut er gengin, hvað getur grœtt oss þá? Oss þykir þungt að skilja, en það er Guðs að vilja, og gott er allt, sem Guði er frá. V. Briem Þín Hanna Berglind. Nú þegar Björn á Björgum er lát- inn, fljúga ýmsar minningar í gegnum hugann. Hann var ein- staklega blíður og góður maður, en alltaf stutt í grín og glens hjá honum. Það var ekki ósjaldan sem sagt var heima: eigum við ekki að skreppa í Björg og haldið var af stað og tóku þau Sigga móðursyst- ir mín og Björn á móti okkur eins og höfðingjum. Oft fékk ég að gista og man óg að þegar ég byrjaði í skóla, þá þótti mér það verst hvað það var bindandi, því þá gat óg ekki farið í Björg eða austur í Reyki, þar sem hin móðursystir mín bjó og gist þegar mig lysti. Það var alltaf ijölmennt við eld- húsborðið á Björgum og allir áttu sín sæti og Björn við endann á borðinu. Alltaf var gaman að hlusta og heyra sögurnar hans og létta stríðni með tilheyrandi orð- sprokum. Það fór ekki fram hjá neinum hvað hann unni ijölskyldu sinni. Það er mér minnisstætt að hann sagði alltaf: Sigríður mín, með sérstakri áherslu og blíðu. Ég man að ég hugsaði sem barn: Birni þykir rosalega vænt um Siggu . Elsku Sigga, Krístín, Sigrún, Gestur og Magnús og ijölskyldur. Þið eigið minningu uin góðan Qöl- skylduföður sem unni ykkur öllum og öllum leið vel í návist. Blessuð só minning Björns. Svandís. Mágur minn, Björn Gestsson frá Björgum, andaðist þann 6. maí síðastliðinn eftir langt og erfitt veikindastríð. Þegar sólin er kom- in hátt á loft, jörðin að lifna og fyrstu sprotar trjánna að byrja að þrútna þá hlýtur að vera líkn fyrir gamlan mann, sem þrotinn er að kröftum að loka augunum í hinsta sinn og komast í ljósið og birtuna hinum megin. Björn var mikill mannkosta- maöur. Hann hafði tamið sér óendanlegt langlundargeð, sást sjaldan skipta skapi og reyndi ávallt að miðla málum ef svo bar undir. Hann var barngóður. Er óhætt að segja að hann vildi láta öllum líða vel, sem hann hafði í sinni umsjá, bæði mönnum og málleysingjum. Ilann var mikill ijölskyldufaöir og alltaf var stutt í glaðværðina og glettin og skemmtileg tilsvör. Það er gaman að láta hugann reika til áranna þegar við systur vorum enn í föðurhúsum. Pabbi hafði ráðið til sín kaupamann, ungan búfræðing, Björn Gestsson frá Bakkagerði í Svarfaðardal. llann varð strax hvers manns hug- ljúfi. Um haustið var hann heit- bundinn Sigríði systur minni og þau giftu sig 27.11. 1943 og eign- uðust 5 börn. Síðan hafa þau búið í ástríku hjónabandi og stutt hvort annað í gegnum súrt og sætt. Björn varð strax einn af íjöl- skyldunni. Hann reyndist okkur systrum sem besti bróðir og for- eldrum okkar var hann afar góður, enda bjuggu þau félagsbúi á með- an foreldrar okkar voru við bú- skap. Oft var glatt á hjalla þegar Ijölskyldurnar komu saman hjá Siggu og Birni. Mikil gestrisni ríkti hjá þeim hjónum og átti hann þar stóran hlut að máli. Sjúkdómssaga hans er búin að vera ströng og þjáningamikil. Hann barðist við tvo illvíga sjúk- dóma. Berklana sem ungur maður og síðan Parkisonsveikina á efri árum. Þessi fátæklegu orð eru þakkar- orð mín og fjölskyldu minnar til þessa góða manns, fyrir alla hans hlýju og vináttu í gegnum árin. Við biðjum guð að blessa fjölskyldu hans. Far þú ífriði, friður guðs þig blessi. Hafðu þökkfyrir allt og allt Pálína. Hinsta kveðja. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð þinn náðar kraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virzt mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson). Elsku Björn mágur! Loksins er kallið komið. Nú líð- ur þór vonandi vel. Ég vil þakka þér öll þín gæði, frá því fyrsta að ég kynntist þér. Þegar ég var um tíu ára aldur komstu að vinna hjá pabba og mömmu á Björgum. Seinna giftust þið Sigga systir. Allir tóku þér heils hugar í fjölskyld- unni, enda varst þú mörgum mannkostum búinn. Lundbetri mann var vart hægt að finna, og kom það sér oft vel í um 30 ára fé- lagsbúskap á Björgum. Þótt þú gengir í gegn um allskyns erfiðleika, heilsuleysi á unga aldri og ýmsar raunir, þá gastu alltaf verið með spaug og létt gaman til að lffga upp á sálina hjá þeim sem þú umgekkst. Fyrir um það bil áratug greind- ist þú með parkinssonssjúkdóm. Þá brá manni heldur í brún að sjá þig missa ört þína fyrri hæfileika. Þegar þú hefur losnaö úr sjúk- dómsQötrunum verður þér von- andi létt um sporin í nýjum heim- kynnum. Ég votta þór Sigga mín og ijöl- skyldunni allri, innilega samúð, en vona að þið getið ornað ykkur við minningarnar um frábæran íjöl- skylduföður. Far þú í friði vinur, hjartans þakkir fyrir mig og mína jjöl- skyldu. Magga mágkona.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.