Dagur - Tíminn Akureyri - 20.06.1997, Síða 15
JDagur-'QIœtmn
Föstudagur 20. júní 1997 - 27
LÍF
FJÖR
HVAÐ ER í BOÐI?
Fjölbreytt
dagskrá á Nelly’s café
Fjölbreytt dagskrá er nú í gangi á Nelly’s Café í Reykjavík. Þar
stendur yfir myndlistarsýsning þar sem Vapen sýnir verk sín. Á
sunnudag er á dagskránni liðurinn Dansleiðs Nonna, þar sem gestir
verða leiddir inn í dansveröld og frábæra stemmningu.
Fyrirlestur og friðarljóð
Sunnudaginn 22. júní verður dagskrá í Norræna húsinu sem hefst kl.
16 á því að sálfræðingurinn Russell Bradshaw, prófessor við City
University of New York, heldur fyrirlestur sem hann nefnir Intuition -
intellect. Þar fjallar hann m.a. um rannsóknir sem gerðar hafa verið á
vitundinni, æðri vitund og sambandi hugar og hjarta.
Eftir stutt hlé verður Ijóða- og tónlistardagskrá í umsjá Guniliu An-
gerud Bradshaw, þar sem flutt verða Ijóð eftir indverska höfundinn
Sri Chinmoy. Ljóðin fjalla um leitina að friði. Aðgangur er ókeypis og
frjálst að sækja annan eða báða dagskrárliðina.
LANDIÐ_________________________________
Hjálpræöisherinn
Flóamarkaður Hjálpræðishersins er opinn i dag
kl. 10-17. í boði er fatnaður á smáa sem stóra á
mjög vægu verði. Markaðurinn er til húsa að
Hvannavöllum 10 og þar er einnig tekið á móti
fatnaði alla daga vikunnar.
Söngur og sólstöðukaffi
Kvennakórinn Lissý heldur söngskemmtun á
sunnudaginn kl. 15 að Breiðumýri í Reykjadal.
Stjórnandi kórsins er Hólmfríður Benediktsdóttir
og undirleikari Helga Bryndís Magnúsdóttir.
Einsöngvari er Hildur Tryggvadóttir en auk
hennar syngja þær Þóra Ólafsdóttir, Kristín
María Hreinsdóttir og Hólmfríður Benedikts-
dóttir.
Alþýöubandalagið
Á laugardaginn ætla félagar og stuðningsmenn
Alþýðubandalagsins á Norðurlandi eystra
ásamt fjölskyldum sínum að eyða saman degi í
Hrísey við leik og störf. Fólk er hvatt til að vera
á staðnum fyrir eða um hádegi.
Kl. 13 hefst fundur sem sérstaklega verður
helgaður sveitastjórnarmálum og undirbúningi
undir sveitarstjórnarkosingar að ári. Nánari
upplýsingar gefur Gunnlaugur Júliusson í síma
465-1251.
Ferðaþjónustan Öngulsstöðum
Sunnudaginn 22. júní kl. 14 verður opnuð list-
munaverlsun í tenglsum við Ferðaþjónustuna á
Öngulsstöðum III. Þar verða m.a. á boðstólum
vörur frá völdu íslensku handverksfólki. Á sama
tíma sýnir Sveina Björk Jóhannesdóttir textíl-
hönnuður lokaverkefni sitt frá Myndlista og
handíðaskólanum. Þá verður opnaður fyrsti vísir
að búvélasafni en þar er um að ræða dráttarvél-
ar í eigu Baldurs Steingrímssonar og Kristins
Ásgeirssonar. Við opnunina syngur Jóna Fann-
ey Svavarsdóttir nokkur lög við undirleik Guð-
jóns Pálssonar.
Sólstöðuhópurinn
Þriðja sumarhátíð Sólstöðuhópsins „( hjartans
einlægni" verður haldin helgina 20.- 22. júní
næstkomandi, að Laugalandi í Holtum. Mark-
mið Sólstöðuhópsins er að vekja fólk til um-
hugsunar um lífsgildi eins og ást, vináttu, frið,
sameiningu, fjöiskyldutengsl, börnin okkar,
tengsl manna í millum, virðingu, trú o.s.frv. Allar
nánari upplýsingar eru veittar í síma 553 3001.
Sólstöðuganga
Sólstöðuganga verður á Staðarhnjúk í Möðru-
vallafjalli á laugardaginn. Lagt af stað frá
Möðruvöllum 3, kl. 19.00.
Jónsmessuvaka
Jónsmessuvaka verður í Baugaseli í Barkárdal
mánudaginn 23. júní. Upp i Baugasel fara menn
annaðhvort gangandi, ríðandi eða á jeppum.
Hittast menn við Bug í Hörgárdal kl. 21 og þar
verður sameinast í jeppa. ( Baugaseli verður
svo dvalið fram yfir miðnætti við leik og spjall.
Takið með ykkur nesti og verið vel klædd. Allir
velkomnir.
Loks er rétt að minna á Þorvaldsskokkið sem
verður á laugardaginn 5. júlí. Það er ætlað
göngumönnum, skokkurum og hlaupurum og
er þá Þorvaldsdalurinn farinn enda á milli, frá
Fornhaga í Hörgárdal að Stærra-Árskógi á Ár-
skógsströnd.
Fiðla og gítar
Næstkomandi laugardag munu Laufey Sigurð-
ardóttir fiðluleikari og Páll Eyjólfsson gítarleikari
halda tónleika í Miðdalskirkju í Laugardal og
hefjast þeir kl. 15. Á efnisskrá þeirra eru m.a.
verk eftir Corello, Paganini, Ibert og fl. Aðgang-
ur að tónleikunum er ókeypis. Sama kvöld
munu þau leika fyrir matargesti á Hótel Eddu
Menntaskólanum Laugarvatni.
Söngsveitin Drangey
heldur tónleika ásamt einsöngvurum í félags-
heimilinu Bifröst á laugardaginn kl. 20.30.
Stjórnandi er Snæbjörg Snæbjarnardóttir, und-
irleikari Árni Elvar og einsöngvarar Friðbjörn G.
Jónsson og Árni Gunnarsson. Söngsveitin býð-
ur bæjarbúum og gestum til þessarar skemmt-
unar svo lengi sem húsrúm leyfir og vonumst
við eftir að sem flestir sjái sér fært að vera með
okkur þessa kvöldstund.
Sólstöðugangan 1997
í kvöld á miðnætti hefst hin árlega Sól-
stöðuganga. Að þessu sinni verður farið frá
tveim stöðum samtímis, Kjalarnestöngum og
Hrakhólmum á Álftanesi og gengið með strönd
Kollafjarðar og Skerjafjarðar í áföngum allan
sólarhringinn. Hóparnir sameinast á Valhúsa-
hæð á Seltjarnarnesi um miðnætti annað kvöld.
Þeir sem koma í göngurnar verða á eigin veg-
um og geta því farið í þær og úrþegar þeim
hentar.
Gengið frá Messing á Kjalarnestöngum og
Hrakhólmum á Álftanesi kl. 12 á miðnætti.
Héraðsmót UMSB
Héraðsmót UMSB 1997 verður haldið á Skalla-
grímsvelli í Borgarnesi laugardaginn 21. júní og
sunnudaginn 22. júní. Keppni hefst kl. 14 á
laugardeginum og kl. 12 á sunnudeginum.
Keppt verður í karla- og kvennaflokkum.
Þetta er fyrsta Héraðsmótið í frjálsum íþróttum
á nýjum og glæsilegum Skallagrímsvelli og í
raun æfing fyrir Landsmótið, bæði fyrir kepp-
endur og áhorfendur heima í héraði.
HÖFUÐBORGARSVÆDIÐ
Ragna sýnir hjá Sævari Karli
Ragna St. Ingadóttir opnnaði sýningu í Galleri
Sævars Karls í Bankastræti 9 í Reykjavík
fimmtudaginn 19. júní. Sýning stendur saman
af innsetningum og er opin alla daga frá kl. 10
til 18.
Tóif listakonur
Tólf listakonur í Gallerí Listakoti að Laugavegi
70 í Reykjavík hafa unnið að þróun og vinnslu
listrænna minjagripa síðastliðið ár. Þær hafa
unnið í hina ýmsu miðla og útkoman er fjöldi
verka sem hentar bæði innlendum sem erlend-
um til gleði og gjafa. í dag, laugardaginn 21.
júní kl. 14:00, verður sýning opnuð á verkum
listkvennanna tólf í Gallerí Listakoti. Hún stend-
ur fram til laugardagsins 5. júlí og er þar opið
frá kl. 10 til 18 á virkum dögum og laugardaga
frá 10 til 16.
Ný spor hjá Tolla
Á laugardaginn kl. 15 opnar Tolli málverkasýn-
ingu í Gallerí Horninu, Hafnarstræti 15. Sýningin
þer yfirskriftina Ný spor og þar fetar Tolli að
nokkru aðrar slóðir en á undanförnum sýning-
um. Tolli hefur haldið fjölda sýninga víðs vegar
innan lands sem utan.
Vorhefti Skírnis
Vorhefti Skírnis 1997 er komið út. Þar má meðal
annars finna greinar um forngríska spekinginn
Díógenes, mörk skynsemi og brjálsemi, goða-
veldið og geislakoisgreiningar á íslenskum forn-
leifum. Þá eru í heftinu fjögur áður óbirt Ijóð eftir
Sigfús Daðason.
Áskrifendur Skírnis eru þessa dagana að fá ein-
tak sitt sent í pósti, aðrir geta nálgast heftið hjá
útgefanda, Síðumúla 21, eða í helstu bókaversl-
unum.
Sýning Gjörningaklúbbsins
( Gerðubergi stendur nú yfir sýning Gjörninga-
klúbbsins, en hann skipa þær Jóní Jónsdóttir,
Dóra ísleifsdóttir, Sigrún Inga Hrólfsdóttir og
Eyrún Sigurðardóttir. Þær útskrifuðust allar frá
Myndlista- og handíðaskóla íslands á síðast-
liðnu ári. Gjörningaklúbburinn hefur verið starf-
ræktur síðan í febrúar 1996 og hefur framið
marga gjörninga og sýnt víða. Aðal markmið
klúbbsins er að dreifa ást, hjartahlýju og góðum
straumum og fer hann bæði troðnar og ótroðn-
ar slóðir til að ná settu marki.
Bítlaárin
Á morgun, laugardag, verður sérstök aukasýn-
ing á stórsýningunni „Bítlaárin 1960- 1970“
sem sýnd var sl. vetur á Hótel Islandi við frá-
bærar undirtektir. Stórsöngvararnir Björgvin
Halldórsson, Bjarni Arason, Ari Jónsson og
Pálmi Gunnarsson flytja lög frá árum ’68 kyn-
slóðarinnar ásamt Söngsystrum. Hljómsveitar-
stjórn er í höndum Gunnars Þórðasonar.
Sherlock Holmes á hijóðbók
Hljóðbókaklúbburinn hefur gefið út hljóðbókina
Ævintýri Sherlock Holmes eftir sir Arthur Conan
Doyle í flutningi Rúriks Haraldssonar leikara. (
hljóðbókinni birtast þrjár sögur úr safni ævintýra
Sherlock Holmes, en þær heita: Blái
gimsteinninn, Þumalfingur vélfræðingsins og
Betlarinn með varaskarðið. Rúrik Haraldsson
fer á kostum í túlkun sinni á þessum sígildu
sakamálasögum og má segja að þær öðlist nýtt
líf í meðförum hans.
Loftur Guðmundsson íslenskaði sögurnar sem
komu út í prentaðri útgáfu fyrir hartnær hálfri
öld og nutu þá mikilla vinsælda.
Laugardagsgangan
Vikuleg laugardagsganga Hana nú í Kópavogi
verður á morgun. Lagt af stað frá Gjábakka,
Fannborg 8, kl. 10. Nýlagað molakaffi.
Mjólk er góð
Næstkomandi sunnudag verður glatt á hjalla á
Árbæjarsafni. Þá munum við rifja upp gamla
verkkunnáttu með aðstoð eldri borgara og ann-
arra góðra gesta. Dregnir verða fram gömlu
strokkarnir okkar, skilvinda og fleiri gömul áhöld
og gestum sýnt hvernig vinnsla mjólkur fór fram
á árum áður. Þessi mjólkurvinnsla með gamla
laginu fer fram í Árbæ og þar verður gestum
boðið að bragða á ylvolgu flatbrauði með ný-
strokkuðu smjöri. Kl. 17 verður hægt að fylgjast
með mjöltum, en þá verður kýrin okkar, hún Bú-
kolla, handmjólkuð.
Jónsmessuhátíð í Viðey
Á laugardagsmorgun kl. 10 verður hefðbundin
gönguferð. Nú verður farin falleg leið um norð-
urströnd Heimaeyjarinnar austur á Sundbakka.
Rústirnar af þorpinu sem þar var fyrr á öldinni
verða skoðaðar. Eftir hádegi verður svo Jóns-
messuhátíð Viðeyingafélagsins.
Staðarskoðun verður bæði á laugardag og
sunnudag. Hestaleigan verður að starfi báða
dagana og veitingar til sölu í Viðeyjarstofu.
Bátsferðir verða á klukkustundarfresti frá kl. 13.
TÓNLEIKAR • LEIKLIST • KVIKMYNDIR • MESSUR • 33DE G S LÍF • FUNDIR