Dagur - Tíminn Akureyri - 17.09.1997, Síða 3
Jlctgur-SmTOm
Miðvikudagur 17. september 1997 - 15
LIFIÐ I LANDINU
HELGARPÓSTURINN
Kemur ekkí oftar út
s
g mun ekki fara af stað með
Helgarpóstinn aftur. Ef maður
reynir útgáfu á nýju blaði þarf
að safna til þess peningum. Pað tekur
lika tíma að kynna hugmyndina og
sannfæra menn um að það sé skyn-
samlegt að fara út í þetta,“ sagði Páll
Vilhjálsson, fyrrverandi ritstjóri Helg-
arpóstsins, í samtali við Dag-Tímann
Ifann sagðist sannfærður um að
þótt Helgarpósturinn hætti að koma
út muni einhverjir koma með nýtt
flmmtudagsblað.
„Ég hef raunar fyrir því heimildir
að menn sem áður hafa staðið að
slíkri útgáfu séu að skoða málið,“
sagði Páll.
Hann var spurður hvort Helgar-
pósturinn væri í raun gjaldþrota.
Ilann segir svo ekki vera, lítgáfufyrir-
tækið Lesmál eigi fyrir skuldum. Pá
bendir hann á að enginn af lána-
drottnum fyrirtækisins hafi farið
fram á gjaldþrot.
„Tilsjá, eignarhaldsfélag Alþýðu-
bandalagsins í Lesmáli, krafðist
gjaldþrots. Þá lagði Jón Magnússon,
lögmaður og stjórnarmaður í Les-
máli, það til á stjórnarrfundi Lesmáls
að kanna hvort rétt sé að krefjast
gjaldþrots. Ég hef fyrir því heimildir
að hann sé að vinna að því að kaupa
fyrirtækið ásamt Ámunda Ámunda-
syni, fyrir 3,5 milljónir króna. Manni
þykir það skrýtið að byrja þá á því að
fara með fyrirtækið í gjaldþrot. Ég
held að Jón Magnússon hafi ekki
kynnt sér stöðu félagsins og ég tel
ekki ástæðu til að fara með það í
gjaldþrot. Ég tel það eiga fyrir skuld-
um. Ég held að þeir séu með þessu
að þrýsta á okkur að gera eitthvað
sem við höfum ekki fallist á,“ sagði
Páll.
Hann er í persónulegri ábyrgð fyr-
ir miklum fjármunum hjá Lesmáli
sem hann verður að standa skil á.
Sömuleiðis sé Árni Björn, fyrrum
framkvæmdastjóri Helgarpóstsins, í
miklum persónulegum ábyrgðum.
Páll var spurður hvort það væri rétt
að skuldir hans vegna þessara
ábyrgða næmu 4 til 5 milljónum
króna?
„Þú ert heitur við hærri töluna,"
sagði Páll Vilhjálmsson. -S.dór
Er Ámundi ennþá að?
Páll var spurður hvort það væri rétt að skuldir hans vegna þessara
ábyrgða næmu 4 til 5 milljónum króna?
„Pú ert heitur við hærri töluna,“ sagði Páll Vilhjálmsson.
Örbylgjuþurrkari,
lás á vídeóspólur,
tjakkur, rifjilkíkir,
hringlaga púströr
og áhald til að losa
alla bolta með einu
handtaki þegar
skipta á um dekk.
Jónas Gunnarsson er alltaf
að finna eitthvað upp. Að-
allega tengist hugvitið bíl-
um og nú er hann búinn að út-
færa hugmynd að þægilegri
tjakki og áhaldi sem losar allar
rær samtímis þegar skipt er um
dekk. Ekki lítill tímasparnaður.
„Tjakkurinn er með tveimur
fölsum með skrúfugöngum og
síðan er dregið í línu til að setja
hann upp eða niður. Ég er líka
búinn að hanna púströr sem
liggur í hringi og þannig mynd-
ast botnfall í hverjum hring og
einhvers konar hreinsun á sér
stað. Eordverksmiðjurnar hafa
sýnt þessu áhuga og ég er kom-
inn með stimpil frá þeim.“
Stela hugmyndum
Jónas var kosinn maður ársins í
fyrra hjá Landssambandi hug-
vitsmanna en sagði sig úr þeim
félagsskap þar sem honum
finnst menn ekki vera þar af
heilum hug.
„Ég hef verið að hanna ýmsa
hluti síðan ég lenti í slysi, en er
núna að jafna mig á því og á
leið aftur til vinnu. Ég dunda
við teikningar og sendi síðan
flestar hugmyndirnar út til bíla-
verksmiðjanna. Sérstaklega hef
ég fengið góðar undirtektir frá
Þýskalandi, frá Benzumboðinu.
- En á annars mikið safn bréfa
með áhugayfirlýsingum og
hyggst kannski halda sýningu á
þeim.“
Hefurðu grœtt eitthvað á
þessu?
„Nei, rúðuþurrkan sem ég
hannaði og tengdi við sígarettu-
kveikjarann er t.d. komin í
framleiðslu í Kanada en ég var
ekki með einkaieyfi. Kerfið hér
er seinvirkt og frekar úrelt. Ég
sendi líka hugmynd til Frakk-
lands á sínum tíma og stóð í
bréfaskriftum við Renault verk-
smiðjurnar og get ekki betur
séð en sú hugmynd sem var
líka rúðuþurrka sé komin á
Renault Twingo. Þeir hafa
greinilega hagnýtt sér hug-
myndina eða m.ö.o. stolið
henni.“
Lás á vídeóspólur
Stundum fer hugvit Jónasar í
eitthvað annað en bfla. Nú er
„Þetta áhald er sett upp á felguna
og síðan er boltunum snúið öllum í
einu. Tækið er að sögn Jónasar
hentugt á dekkjaverkstæðum og
þá rafdrifið.
hann búinn að hanna lás á
vídeóspólur þannig að fjölföld-
un er ótæk. Þessi hugmynd er
langt á veg komin og að sögn er
stutt þangað til slíkur lás verð-
ur á öllum spólum. „Þá hef ég
verið að hugsa um að teikna
upp örbylgjuþurrkara fyrir
fatnað. í venjulegum þurrkur-
um fer mikið efni úr fatnaðin-
um en það mun ekki gerast við
örbylgjurnar og síðan verður
þetta fljótvirkara. Síðan hef ég
hannað riffilkíki með gler-
hringjum í kross og það er
alkahól inni í kíkinum þannig
að það frýs ekki og loftbóla er
skotmark. Þetta gæti verið
ágætis æfingakíkir." -mar
Jónas Gunnarsson á orðið
safn bréfa og samninga frá
bílaverksmiðjum Banda-
ríkjanna, Frakklands og
Þýskalands. Akkilesar-
hællinn er hins vegar
einkaleyfi á hugvitinu.
Mynd: ÞÖK
Allar rærnar í einu