Dagur - Tíminn Akureyri - 17.09.1997, Side 4

Dagur - Tíminn Akureyri - 17.09.1997, Side 4
16- Miðvikudagur 17. september 1997 ^tgur-Œímtrm UMBÚÐALAUST „Þeir físka sem róa“ Sverrir Leósson skrifar ............."" tgerðarfélag Akureyringa er gamalgróið félag sem Akureyringar bera sterk- ar taugar til. Bæjarbúum er hreint ekki sama hvernig því er stýrt eða hvernig að því er búið. í uppvextinum fór félagið um ólgusjó, þannig að brotin gengu yfir það hvert af öðru. En þá voru hyggnir menn og útsjónar- samir í brúnni, sem stýrðu fé- laginu heilu í höfn úr hverri raun, þannig að það var sterk- ara á eftir. Fyrir vikið ávann fé- lagið sér virð- ingu, þannig að litið var til þess sem fyrirmynd- ar í íslenskum sjávarútvegi, hvort heldur sem var í útgerð eða vinnslu. En nú er öldin önn- ur. Það heyrist ekki minnst á Útgeðrarfélag Akureyringa til góðra verka, það er helst að þess sé getið þegar rætt er hvernig ekki á að bera sig að við rekstur um- fangsmikillar útgerðar. Rangt áralag Á síðasta ári var tap á rekstri félagsins og nýlega var upplýst, að enn er taprekstur. ÚA er ekki Iengur til fyrirmyndar í ís- lenskum sjávarútvegi. Það er staðreynd. Stjórnendur félags- ins hafa ekki notað rétt áralag á undanförnum árum, það hef- ur jafnvel gengið svo langt, að þeir hafi ekki náð að róa í takt. Slíkt kann ekki góðri lukku að stýra. En á sama tíma og Útgerðar- félagi Akureyringa hefur verið róið út og suður sigla aðrir beitivind með staðfasta stefnu. Og þeirra fyrirtæki græða. Þar sannast enn, að „þeir fiska sem róa“ - með réttu áralagi og í takt. Þá kemur sér einnig vel, að hafa undir árum menn, sem geta tekið fastar á um stund á meðan samræðarar koma ár sinni betur fyrir borð og safna kröftum. Líkt er því varið í út- gerðinni; þar er nauðsynlegt fyrir stór og mannmörg fyrir- tæki að hafa ítök á sem flestum sviðum. Þannig geta verið tíma- bundnir erfið- leikar í einni grein, t.d. í veiðum á okkar hefðbundnu fisktegundum og vinnslu þeirra. En það þarf ekki að koma að sök ef viðkomandi út- gerð hefur skapað sér svigrúm á öðr- um arðbærari sviðum, t.d. í rækju og veið- um og vinnslu uppsjávarfiska. Reynslan sýnir, að það verða sveiflur í veið- um og aflaverð- mæti, en aldrei samtímis í öll- um tegundum. ÚA og rangar ákvarðanir Þetta eru staðreyndir, sem stjórnendur flestra útgerðarfyr- irtækja hafa áttað sig á. Þess vegna hafa þeir keppst um að efna til samvinnu eða samein- ingar til að auka breiddina. En ekki ÚA. Þvert á móti hefur burðarstoðum í starfseminni þar á bæ fækkað. Þess í stað er lögð áhersla á að styrkja tvær þeirra, veiðar og frystingu hefð- ekki þurft að tapa ef rétt hefði verið haldið á spöðunum. bundinna tegunda. Það hryktir því í þegar á bjátar í þessum greinum, eins og verið hefur nú um skeið. Vinnslu á skreið og saltfiski var kastað fyrir róða. Og ekki vildu stjórnendur ÚA kaupa Krossanesverksmiðjuna á sínum tíma, þegar Akureyrar- bær seldi. En hvað gerðist? Aðrir keyptu og verksmiðjan malaði upp í kaupverðið fyrir nýja eigendur á tveimur árum. Á sama tíma fór orka ÚA- manna í að koma lífi í andvana útgerðarrisa sem keyptur var í Þýskalandi. Fjaðrafokið út af sölumálum útgerðarfélagsins ætti að vera mönnum í fersku minni. Þá var rifist um hvor væri betri, brúnn eða rauður, Sölumiðstöð hrað- frystihúsanna eða íslenskar sjávarafurðir. Þá gleymdist þriðji kosturinn. Hann var sá að Útgerðarfélag Akureyringa seldi sína framleiðslu sjálft. Eg vildi fara þessa leið þegar ég sat í stjórn ÚA á sínum tíma, en talaði þar fyrir daufum eyrum. Að mínu mati er það mun minna mál en margir vilja vera láta, enda hafa sambærileg fyr- irtæki eins og Samherji farið þessa leið með góðum árangri. Vissulega er félagið stórt á ís- lenskan mælikvarða, en það er ekki stórt fyrir markaði millj- ónaþjóða. Þar að auki eru allar boðleiðir orðnar svo stuttar með nútíma samskiptatækni, að Sú var tíðin að rekstur Utgerðarfé- lags Akureyringa þótti til fyrir- myndar, en nú er öldin önnur. Ekki er minnst á félagið til góðra verka, það er helst aðþess sé getið til dcemis um hvernig ekki á að hera sig að við út- gerð á Islandi. það er alger óþarfi að vera með milliliði í Reykjavík við að selja fisk. Með því að sleppa þessum milliliðum kemst á skilvirkara samband milli vinnslustöðv- anna og kaupanda, báðum aðil- um til hagsbóta. Af hverju tap? Vissulega kostar söludeild inn- an ÚA sitt, en hún má líka gera það miðað við núverandi kerfi. Mér reiknast til að Útgerðarfé- lag Akureyringa greiði um tvö- hundruð og áttatíu milljónir í sölu- og umboðslaun á ári. Það má gera ýmislegt fyrir þessa peninga innan fyrirtækisins. Það yrði Útgerðarfélaginu og Akureyrarbæ til hagsbóta ef það yrði gert. Eins og menn muna var nið- urstaða bardagans milli SH og ÍS manna óbreytt ástand. SH hélt sínu, en til þess þurfti mikla þeninga við atvinnusköp- un á Ákureyri og kaup á hluta- bréfum í ÚA á uppsprengdu verði. Miðað við verðfallið á bréfunum undanfarið voru stjórnendur Akureyrarbæjar, Verkalýðsfélagsins Einingar og KEA klókir að selja. En á móti kemur að Akureyrarbær hefur ekki lengur meirihlutavald í fé- laginu, það eru ekki Akureyr- ingar sem ráða ferðinni í ÚA. Þar eru íjárfestar sestir við katlana, sem vilja ávaxta sitt pund. Og ef það verður raunin, að ávöxtunin verði meiri með því að róa frá Reykjavík, þá verður það gert. Ég hef hér bent á nokkur veigamikil atriði, sem ég tel að eigi þátt í taprekstri Útgerðarfé- lags Akureyringa, atriði sem stjórnendur þar á bæ mættu hugleiða. Þar hefur verið gripið til þess ráðs að endur- skipuleggja vinnsluna með það markmið að auka framleiðsluna með sjálfvirkni og vaktavinnu. Þetta kallar fyrst og fremst á aukið hráefni, en einnig á auk- inn mannskap. Hvoru tveggja hefur verið vandfundið að und- anförnu. Þess vegna óttast ég að þessi Qárfesting skili ekki því sem til var ætlast. f[/\ fj \) Jarðganga-Árni rni Johnsen, alþingis- maður úr Vest- mannaeyjum lýsti því yfir hér í blaðinu um daginn að fráleitt væri að birta op- inberlega viðvistarskrá þingmanna á Alþingi, vegna þess að starf þingmannsins krefðist þess að menn væru víðar en í þingsal. Garra skilst að Árni sé einmitt einn þeirra manna sem stunda þing- mennskuna mik- ið utan veggja þingsins og hafi því ekki tækifæri til að stimpla sig inn með sama hætti og ein- hverjar inni- hlúkur sem allt- af eru í þingsölum eða á nefndarfundum. Nú hefur Árni hins vegar boðað komu sína í þinghúsið í haust og tilkynnt í blaðinu Fréttum í Vestmannaeyjum að hann ætli að leggja fram þings- ályktunartillögu. Tillagan eru um gerð jarðganga milli lands og Eyja, en eins og allir vita eru slík jarðgöng einmitt það sem sárast hef- ur vantað á íslandi. Þrátt fyrir hina augljósu neyð sem skortur á svona jarðgöngum veldur hefur þó enginn þingmaður annar en Árni Johnsen haft rænu á að leggja til að úr þessu verði bætt. Vegaáætlun Garri getur ekki annað en dáðst að stórhug Árna og auðvitað er íjármögnun á slíkum göngum ekki slíkt stórmál að ekki megi leysa. Á vegaáætlun eru ýmsar framkvæmdir sem í raun eru ekki nema miðlungi nauðsynlegar eins og Árni veit manna best, enda er Árni ekki skertur af því að hafa hlustað á nöldur og röfl annarra þingmanna í þingsölum um krónur og aura til vegagerðar í sinni heimabyggð. Hann hefur einfaldlega verið að sinna sínum þingstörfum í Vestmannaeyjum, þar sem kjósend- urnir hans og bjálkahúsið eru. Hann er ekki í vinnu hjá þingfor- setanum heldur kjósendum - þess vegna stimplar hann sig inn í Eyj- um en ekki á Ál- þingi. Ef hugsan- legt er að gleðja kjósendur með jarðgöngum þá er líka sjálfsagt að gera það. Fleiri Árna! Garri veltir því líka fyrir sér hvílíkt draumaland ísland yrði ef allir þingmenn væru jafn frjóir og sniðugir og hann Árni Johnsen. Þá snerust stjórnmálin um jarðgöng milli húsa, milli Qarða, og milli bæja. Þá væri ekki þetta endalausa karp í þingsölum því stjórn- málamennirnir væru að tala við íólkið en ekki hverja aðra. Þá væru ekki þessar endalausu áhyggjur af því hvað hlutirnir kostuðu og enginn væri að væla yfir skuldasöfnun þjóðarbúsins eða öðrum slíkum leiðind- um. Þá myndu menn bara kýla á það og gera hlutina með stæl. Bara ef fleiri væru eins og Árni Johnsen. Garri.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.