Dagur - Tíminn Akureyri - 17.09.1997, Page 5

Dagur - Tíminn Akureyri - 17.09.1997, Page 5
Pigur-mímtrat Miðvikudagur 17. september 1997 -17 MENNING OG LISTIR María er hætt í Borgarleikhúsinu María Ellingsen leikkona hefur sagt upp störfum í Borg- arleikhúsinu. Upp- sögnin hefur þegar tekið gildi. Ástœð- an? María vill hafa frið til að vinna að list sinni. Aýmsu hefur gengið í mál- efnum Borgarleikhússins undanfarin misseri, stjórnendur komið og farið og leikarar jafnvel líka. Nú er svo komið að María Ellingsen, ein þekktasta og vinsælasta leik- kona landsins, er hætt í Borgar- leikhúsinu og hlýtur það að vera mikill missir að fá ekki notið hennar þar, sérstaklega fyrir þá sem hafa fylgst með Maríu slá í gegn undanfarin ár. En auðvitað verður hægt að fylgjast með henni á öðrum vettvangi. Nýtist betur á frjálsum markaði María vill ekki gefa viðtal um uppsögnina en segir að það liggi í augum uppi að ástæður uppsagnar sinnar hafi meðal annars verið ástandið innan- húss hjá Borgarleikhúsinu og Leikfélagi Reykjavíkur undan- farin misseri. Ekki þurfi að velta mikið vöngum yfir því. Petta hafi verið erfitt umhverfi að vinna í og því hafi hún tekið þá ákvörðun að yfirgefa leik- húsið. Hún vilji fá að starfa að list sinni í friði án þess að blandast í önnur mál. „Mér fannst mínir kraftar nýtast betur á frjálsum mark- aði,“ segir María en í Borgar- leikhúsinu var það í fyrsta skipti sem hún var á föstum samningi. Nóg að gera María hefur haft nóg að gera í sumar og svo verður áfram næstu mánuðina. Frumsýning var nýlega í Loftkastalanum á stykkinu Bein útsending eftir Þorvald Þorsteinsson þar sem María leikur eiginkonuna. Hún mun einnig leika í myndinni Blóðskömm eftir Egil Eðvarðs- son sem tekin verður upp í lok september og svo verður hún með í uppfærslu Hafnarijarðar- leikhússins „Síðasti bærinn í dalnum“ síðar í haust. Það stykki verður frumsýnt í janúar. -GHS i i® María Ellingsen leikkona sagði upp störfum í Borgarleikhúsinu síðasta vor til að geta unnið að list sinni í friði. Uppsögnin hefur þegar tekið gildi og mun María vinna að ýmsum verkefnum í haust. Stefán Jón Hafstein skrifar Klisjufólk Eggert Þorleifsson, aðalleikari í „Beinni útsendingu". Mynd: Hilmar orvaldur Þorsteinson skrifar heilt leikrit um klisjur og klisjufólk, og velur því ramma við hæfi: spjallþátt í sjónvarpi. „Bein út- sending" var á dagskrá Loft- kastalans á sunnudag (frum- sýning) og það var með örlítið efablandinni eftirvæntingu sem gamall sjónvarpsþáttastjórn- andi gekk til sýningar. Eftir- væntingu, því Þorvaldur Þor- steinsson hefur sýnt góð tilþrif og var virkilega snjall höfundur Vasaleikhússins (fyrir nokkrum árum á Rás 2). Efablandin var eftirvæntingin því það er vissu- lega að ráðast á garðinn þar sem hann er einna lægstur að „taka fyrir“ spjallþátt í sjón- varpi. Nánast bara Áramóta- skaupsvert. Ekki nóg Smám saman færist ærslaleikur sjónvarpsþáttarins (sem áhorf- endur eru hluti af: „eru ekki allir í stuði") yfir á „viðfangs- efnin“ sem að þessu sinni eru mikil listahjón með aðsetur í Berlín, hún komin til að setja upp meistarastykki hans, ásamt ungri stúlku, skjólstæðingi. Lof- ar svo sem góðu þegar manni skilst að bak við þá framhlið búi leyndarmál. Það getur ekki klikkað að láta Eggert Þorleifsson stjórna spjallþættinum sem súper Hemmi Gunn. Þorvaldur leggur honum í munn hverja klisjuna á fætur annarri, spurningarnar og taktarnir eru samansafn af nokkrum verstu augnablikum íslenskrar dagskrárgerðar af þessu tagi - fyrr og síðar. Maður lendir auðvitað í því að bera Eggert stöðugt saman við Hemma vin vorn Gunn, og sem betur fer er hann með takta úr öðrum áttum til að dýpka sinn grunna karakter. En grunnur er hann. Þrátt fyrir fín tiþrif verð- ur því ekki neitað að Eggert er stöðugt að gera það sem allir núlifandi íslendingar hafa spreytt sig á: að gera grín að og apa eftir frasa innantómu spjallþáttanna. Og grín með „styrktaraðilja" þáttarins er bara barnaskólalegt. Þess vegna þurfa hjónin sem eru í „einlæga en umfram allt mannlega" viðtalinu að gefa dýptina í verkinu. Þau eru í þessu venjulega vændishlut- verki listamannanna sem þurfa að koma sér á framfæri á óvið- eigandi vettvangi - og það er í raun efni „beinnar útsending- ar“: hvernig allir verða að selja sig, vera aðrir en þeir eru, en þykjast „koma til dyranna eins og þeir eru klæddir". Vanda- málið er að þátttakendur eru ekki aðrir en þeir þykjast. Þetta gæti verið spennandi „stofu- drama“ og sálfræðitryllir, ef persónurnar væru ekki eintóm- ar klisjur. Þess vegna skortir mann raunverulegan áhuga á þessu fólki. Framvinda sögunn- ar kemur með óvæntar vend- ingar í lokin, og snjallar fyrir sinn hatt, rétt eins og öll fram- vindan: með leikriti um sjón- varpsþátt sem er með leikrit inni í leikriti og sjálft leikrit. En. Það vantar blóðið. Maður nenn- ir engan veginn að æsa sig yfir þessu klisjufólki, en langar til að kynnast manneskjunni sem grætur undir yfirborðinu. En um það er bara ekki þetta leik- rit. Svo? Misheppnuð sýning? Engan veginn. Alveg þess virði að fara á hana og þegar búið verður að stytta hana (Já Þor- valdur, það getur þú lært af spjallþáttum sjónvarpsins) þá verður hún enn betri.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.