Dagur - Tíminn Akureyri - 17.09.1997, Page 12
inagur-Omttttt
Miðvikudagur 17. september 1997
Venjulegir og
demantsskomir
trúlofunarhringar
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI ■ SÍMI 462 3524
Fámennt kauptún nú -
en áður nafli „alheims“
eir sem aka þjóðleiðina
norður og suður um
Hrútafjörð eiga það til að
gjóa augum yfir ijörðinn á litla
byggð sem kúrir á eyri. Borð-
eyri var áður „nafii alheimsins"
en nú er þar fremur fámennt.
En góðmennt? Það virtist vera
þegar Borðeyringar héldu ný-
lega upp á 150 ára afmæli stað-
arins. Sennilega er Borðeyri fá-
mennasta kauptún á íslandi,
þar búa um eða yfir 20 manns.
Borðeyri átti sína stórveldis-
tíma fyrrum, því þar var helsti
verslunarstaður íslands á þjóð-
veldisöld. Gríðarleg verslun var
á Borðeyri allt framundir síð-
ustu aldamót. Staðurinn var
mjög miðlægur fyrir íjölmennar
byggðir á Ströndum, í Húna-
þingi, Dölum og Borgarfirði,
þangað sótti fólk lífsbjörgina.
Skip komu siglandi með varn-
inginn inn Hrútaijörðinn og
settu hann á land á Borðeyri.
Árið 1846 fékk Borðeyri lög-
gildingu konungs sem verslun-
arstaður.
Á þessari öld hefur veldi
Borðeyrar hnignað með bættum
samgöngum. Á þessu hausti
mun ekki verða slátrað fé á
staðnum í fyrsta sinn í áratugi
eða aldir sem dregur enn úr
mikilvægi Borðeyrar. Fram á
miðja öldina var þar þó eins-
konar líftaug milli landsfjórð-
unga þar sem símstöðin mikla
var.
Á Borðeyri fæddust margir
góðir fslendingar, og sumir
þjóðfrægir, t.d. Þorvaldur
Skúlason, listmálari, en myndir
hans voru sýndar í tilefni af-
mælis hans.
En Borðeyri átti hug margra
á afmælinu. Þrátt fyrir leiðinda-
veður mættu hátt á annað
hundrað gestir og tóku þátt í af-
mælisdagskrá allan daginn og
fram á nótt, meðal annars
geysiskemmtilegri gönguferð
sem Georg Jón Jónsson, bóndi
á Kjörseyri, stjórnaði af miklum
skörungsskap.
Það er svo glatt sem góðra vina fundur ...
Frá hátíðarhöldunum á Borðeyri. Strandamenn fögnuðu vel eins og sjá
má.
Fjör í Tungnarétt
Sl. laugardag var réttað í Tungnarétt í Biskupstungum. Þar var
margt góðra gesta eins og meðfylgjandi myndir bera með sér.
Guðlaugur TVyggvi Karlsson, réttarkóngur var staddur þar með
myndavélina og fangaði réttu augnablikin.
Helga Classen,
formaður
kvennadeildar
Fáks í Reykjavík,
faðmar góðvin
sinn úr
Hveragerði, sem
líkaði það ekki
illa.
Sendiherra Rússlands á Islandi louri Rechitov var í Tungnarétt og hafði á orði að ekkert
jafnaðist á við íslenska rétt. Söngur, gleði og jarm áttu hug hans allan.