Dagur - Tíminn Akureyri - 01.10.1997, Blaðsíða 1
LIFIÐ I LANDINU
Blcið
Miðvikudagur 1. október 1997 - 80. og 81. árgangur - 184. tölublað
Björgvin Sigurðs-
son, tólf ára strákur
í Garðinum, fer á
sunnudag í hjarta-
aðgerð til Boston.
Hann var heiðurs-
gestur á körfubolta-
leik í Keflavík á
sunnudag, meist-
arakeppni KKÍ, og
fékk áritaðan bolta
frá leikmönnum.
Körfuboltamenn og
aðrir hafa veitt hon-
um og hansfólki
stuðning vegna ut-
anfararinnar.
Auðvitað er óg kvíðinn en
læknarnir hafa sagt mér
að batalíkur séu góðar,"
segir Björgvin Sigurðsson, tólf
ára strákur í Garðinum. Næst-
komandi sunnudag fer hann,
ásamt móður sinni og systur,
vestur til Boston í Bandaríkjun-
um þar sem hann gengst undir
hjartaaðgerð hjá færustu sér-
fræðingum. Björgvin er með
meðfæddan hjartagalla og allt
frá fæðingu hefur blasað við að
skipta þyrfti um hjartalokur.
Það er einmitt það sem gert
verður vestra; tekin verður
hjartaloka úr lungnaslagæð og
hún sett í stað ónýtrar í ósæð
sem liggur að hjarta. Ný ígrædd
loka verður svo sett í lungna-
slagæð. í aðgerð sem Björgvin
fór í á Landspítalanum í maí sl.
voru þrengsli í ósæðum blásin
út.
Björgvin með boltann góða sem hann fékk, áritaðan af leikmönnum úrvalsliða Keflavíkur og KR í körfubolta.
„Það hefur hangið yfir okkur alla tíð, að við þyrftum að fara með Björgvin í hjartaaðgerð," segir Ragna.
Heiðursgestur á
körfuboltaleik >
Björgvin var síðastliðinn sunnu-
dag heiðursgestur á leik bestu
liða íslands í körfubolta, meist-
arakeppni KKÍ, það er Keflavík-
ur og Grindavíkur í kvenna-
flokki og Keflavíkur og KR í
karlaflokki. Leikurinn var háð-
ur í Keílavík. Að leikslokum
fékk Björgvin knöttinn, sem
notaður var í leiknum að gjöf,
áritaðan af leikmönnum karla-
liðanna, sem þarna kepptu. Þá
færðu körfuknattleiksmenn
Neistanum - félagi hjartveikra
barna - inntekt leiksins að gjöf
sem styrk, og hluti hans, eða
réttar 100 þús. kr. renna til
Björgvins og hans fólks sem
styrkur vegna utanfararinnar.
„Já, ég hef mikinn áhuga á
körfubolta og fer oft á leiki með
mági mínum. Ég held með
Keflavík og mínir uppáhalds-
leikmenn eru Falur Harðarson
og Guðjón
Skúlason,"
sagði Björgvin.
Eins og í
bómull
„Það hefur
hangið yfir okk-
ur alla tíð, að
við þyrftum að
fara með Björg-
vin í hjartaað-
gerð,“ segir
Ragna Svein-
björnsdóttir,
móðir Björg-
vins. „Vissulega
hafa veikindi hans snert alla í
íjölskyldunni mikið og hann hef-
ur fengið vernd frá okkur öllum.
Ilann er yngstur fimm systkina,
og auðvitað fær yngsta barnið
alltaf mikla vernd og athygli. í
raun og veru tekur öll fjölskyld-
an þátt í þessu og veildst hálf-
partinn með barninu. Við höf'um
sérstakar áhyggjur haft af
Björgvin í sumar; því nú hafa
veikindi hans verið sem verst og
hann hefur þurft að vera eins
og ungi í bóm-
ull. Það hefur
verið honum
erfitt, því á litl-
um stöðum úti á
landi eins og
hér í Garðinum
snýst allt um
íþróttir og á
þeim hefur
Björgvin brenn-
andi áhuga,“
segir hún enn-
fremur.
Hróðmar
Ilelgason hefur
verið læknir
Björgvins í
gegnum árin og lætur Ragna
sérlega vel af liðveislu hans.
Ilún segir llróðmar vera vakinn
og sofinn yfir velferð sinna
skjólstæðinga. Hann hafi verið
þeim stoð og stytta í undirbún-
ingi ferðarinnar, sem nú stend-
ur fyrir dyrum. „Björgvin er eitt
af fyrstu börnunum sem Ilróð-
mar tók við þegar hann byrjaði
störf sem hjartalæknir og hann
hefur reynst okkur vel alla tíð.“
Höfum verið kvíðin
Að sögn Rögnu gera læknar ráð
fyrir því að gangi allt vel í að-
gerðinni ytra taki ferðin vestur
til Bandaríkjanna tvær til þrjár
vikur. „Vissulega höfum við ver-
ið kvíðin. Upphaflega var að-
gerðin áformuð snemma í sept-
ember en þá var henni frestað
með tveggja daga fyrirvara. Það
varð óskaplega mikið spennnu-
fall hjá okkur og nú hefur sama
spennan aftur verið að hlaðast
upp,“ segir Ragna. - Sem áður
segir fer dóttir hennar Ingi-
björg, 23ja ára gömul, hjúkrun-
arnemi á Akureyri, með henni
og Björgvin vestur um haf. Hún
segist hafa orð fyrir góðri þjón-
ustu á sjúkrahúsinu vestra -
svo sem túlkaþjónustu. „En ætli
maður geti ekki bjargað sér á
enskunni," segir hún.
Mynd: Hilmar Bragi.
Maður undir manns
hönd
Sem áður segir fókk Björgvin
100 þús. kr. styrk frá Neistan-
um vegna ferðar sinnar. Þá
greiðir Tryggingastofnun ríkis-
ins fargjald Björgvins og móður
hans, en fyrir systur hans verða
þau að greiða úr eigin vasa.
„Þeim reglum finnst mér að
megi breyta, því mér er mikill
stuðningur í því að fá Ingibjörg
með mér,“ segir Ragna. Þá hafa
bekkjarsystkini Björgvins lagt
honum lið og gáfu honum átta
þúsund kr. vegna ferðarinnar út
- og einnig hafa foreldrar
þeirra gengið í hús í Garðinum
og safnað peningum í sama til-
gangi og orðið vel ágengt.
Þannig hefur það verið suður
með sjó að maður hefur gengið
undir manns hönd að hjálpa
Björgvini og ijölskyldu hans.
Sannar það enn og aftur hve
samhjálpin er ríkur þáttur í
hinu fámenna samfélagi á ís-
landi. -sbs.
„Viðhöfum haft
áhyggjur afBjörg-
vin t sumar; því
nú hafa veikindi
hans verið sem
verst og hann hefur
þurft að vera eins
og ungi íhómull.((
Bjartsýnn
bolta-
strákur