Dagur - Tíminn Akureyri - 01.10.1997, Síða 2
14 - Miðvikudagur 1. október 1997
ÍDagur-'ðlötTtrat
Vigdís
Stefánsdóttir
skrifar
Viltu spf/rja um eitthvað? Vantar þig eitthvað?Viltu skipta eða gefa? Flóamarkaðurinn erfyrir þig! Vigdís svarar í
símann þriðjud-fimmtud. kl. 9-10 f.h. Sími: 563 1629, Símbréfanr.: 551 6270,
Tölvupóstur: vigdis@itn.is
Frábær
Svona eiga eiginkomir að vera!
gulrótar-
kaka
essi gulrótarkaka er mjög
bragðgóð en hitaeininga-
lítil.
225 g hveiti
175gsykur
1 tsk. lyftiduft
1 tsk. matarsódi
1 tsk. kanill
'/ tsk. salt
175 g ananaskurl úr dós, látiö
renna af því
3 tsk. olía
2 þeytt egg
350 g rifnar gulrœtur
2 appelsínur, rífiö hýöið af og
kreistið safann
50 g rúsínu
Krem
255 g rjómaostur
4 matsk. flórsykur
Blandið þurrefnum saman í
skál. Setjið allt annað en eggin
og appelsínuhýðið saman við og
hrærið. Blandið þeyttu eggjun-
um varlega samanvið. Setjið í
vel smurt mót og bakið við
180°C í 40-60 mín. Kælið.
Þeytið saman rjómaostinn og
flórsykurinn. Setjið ofan á kök-
una. Setjið smávegis sykur á
pönnu og hitið að bræðslu-
marki, bætið ofurlitlu vatni
samanvið og setjið þar útí app-
elsinuhýðið sem hefur verið
skorið í smátt. Hrærið vel í
þessu og ýátið kólna. Skreytið
kökuna með þessu.
Til að búa ungar
konur undir lífið
sem eiginkonur,
þurftu að vera til
ákveðnar siðaregl-
ur og hugmyndir
um það hvernig eig-
inmanninum gœti
liðið sem best í
hjónabandinu. Eft-
irfarandi er tekið
upp úr bók um
heimilisfrœði, sem
gefin var út árið
1950 í Bandaríkj-
unum.
að er ekkert minnst á það
hvernig eiginmenn áttu að
gera konum sínum lífið
léttara ...
1. Hafðu kvöldmatinn tilbúinn
á réttum tíma. Það veitir
honum þá tilfmningu að þú
hafír verið að hugsa um
hann og að þér sé annt um
þarfir hans. Flestir karl-
menn eru svangir þegar
þeir koma heim og tilbúinn
matur er hluti af því að láta
hann íinna fyrir því hvað
hann er velkominn heim,
en það er karlmönnum
nauðsynlegt.
2. Notaðu 15 mín. til að
snyrta þig og skipta um föt
áður en hann kemur. Hann
er að koma heim úr leiðin-
legri og þungri vinnu er
þreyttur. Vertu svolítið
hress og skemmtileg til að
hressa hann við.
3. Taktu upp allt rusl og dót.
Farðu eina umferð í gegn
um húsið og safnaðu saman
skólabókum, leikföngum,
pappír og blöðum. Renndu
svo tusku yflr borðin til að
þurrka af og þrífa þau
svolítið. Eiginmanni þínum
mun finnast hann kominn í
friðarparadís og það hefur
mikið að segja fyrir hann.
4. Snyrtu börnin til. Það tekur
aðeins nokkrar mínútur að
þrífa hendur og andlit
þeirra og greiða þeim. Ef
þarf, skaltu láta þau skipta
um föt. Þau eru fjársjóöur
og hann vill sjá þau þannig.
5. Sjáðu til þess að húsið sé
hljóðlátt. Slökktu á öllum
vélum s.s. uppþvottavél,
þvottavél, þurrkara og
ryksugu. Reyndu að sjá til
þess að börnin hafi hljótt.
Taktu á móti honum með
glöðu brosi.
6. Gættu þess að hella ekki
yfir hann kvörtunum þegar
hann kemur. Ekki heldur
kvarta þó hann komi of
seint í mat. Vertu viss um
að þínar kvartanir eru
minniháttar í samanburði
við það sem hann hefur
þurft að ganga í gegnum
yfir daginn.
Frd lesendum
HcimilisfangÍð cr: Dagur-Tíminn, Strandgötu 31.
pósthólf 58, 602 Akureyri eða Kerohi 14 Reykjavík.
• • # Netfang; ritstjori0<lagur.is, Fax; 460 6171
Tvær saman
„Láttu draumana rætast", „Tvær saman“ „Nýj-
ar stelpur í hverjum mánuði“ og álíka upphróp-
anir dynja á mér og minni ijölskyldu á Stöð 2 og í
DV. Ég er eflaust gamaldags fyrst
þetta gengur svona fram af mér,
en sú lítilsvirðing sem mér finnst
konum sýnd, er algjör.
Eða finnst okkur karlmönnum
það yfir höfuð sjálfsagt að kaupa
konur í gegnum síma? Og láta
draumana rætast? Eflaust mörg-
um okkar, því að velta þessara
símavændisþjónusta skiptir tugi
milljóna, en það finnst þeim ekki
nóg og auglýsa nú eftir karl-
mönnum til að lesa fyrir aðra
karlmenn með svipaða óra og
kannski fáum við áskrifendur
Stöðvar 2 von bráðar að sjá skjá-
auglýsingu af léttklæddum körl-
um „Tveir saman" og eflaust
geta þeir látið drauma einhverra
rætast, því nóg virðist vera af „perrunum" og ég
tala nú ekki um barnaníðingana, má sá stóri hóp-
ur eiga von á „línu“ við sitt hæfi? Eflaust, því allt
snýst þetta um peninga og aug-
lýsingatekjur fyrir Stöð 2 og DV
og þegar þetta tvennt fer saman
er allt í „orden“ því siðferði og
auglýsingatekjur eru öndverðir
pólar og Jónas Kristjánsson,
einn af siðapostulum þjóðarinn-
ar, talar trúlega ekki yfir hausa-
mótunum á auglýsingadeild-
inni. Því hann munar jú um
blessað kaupið.
En hvað er þá til ráða? Hvað
getur ein fjölskylda gert? Það er
bara eitt. Hætt að borga áskrift
þessara Qölmiðla, því það eina
sem þeir skilja er peningar.
Með þökk
Ríkharður Harðarson
7. Sjáðu til þess að hann hafi
það þægilegt. Láttu hann
halla sér aftur á bak í hæg-
indastól eða stingdu upp á
því að hann halli sér smá-
stund í rúmið. Vertu tilbú-
inn með kaldan eða heitan
drykk handa honum.
Bjóddu honum að klæða
hann úr skónum og hag-
ræddu púðunum undir hon-
um. Ræddu við hann með
rólegri, mjúkri röddu.
Leyfðu honum að slaka á.
8. Hlustaðu á hann. Þú hefur
áreiðanlega margt að segja
Svona
Síminn hringir alltaf þegar
maður er í baði, að mála
loftið eða baða barnið. En
hann hringir aldrei þegar mað-
ur er virkilega einmana og þarf
á því að halda að heyra í ein-
hverjum.
Þegar þú hefur gefið dóttur
þinni síðasta smápeninginn úr
buddunni, kemur blaðberinn að
rukka.
Börnin þín hafa aldrei jafn
hátt og þegar hringt er í þig frá
útvarpsstöð til að leyfa þér að
svara nokkrum einföldum
spurningum og vinna þér inn
ferð til sólarlanda.
Hafir þú geymt eitthvert
pappírssnifsi í 5-6 ár, aldrei
þurft á því að halda og hendir
því, þá eru yfirgnæfandi líkur á
því að þetta sé einmitt blaðið
sem þú þarft mest af öllu að
nota næstu vikuna.
Krukkan með tómatmaukinu
sem þér var ómögulegt að
opna, opnast sjálfkrafa þegar
þú gengur yfir nýskúrað (helst
nýbónað) eldhúsgólfið með
hana.
Daginn eftir að þú hendir öll-
um gulu, röndóttu fötunum þín-
um, vegna þess að þau hafa
ekki verð í tísku árum saman,
koma gul, röndótt föt í tísku.
Þú hittir aldrei neinn þegar
þú kemur nýsnyrt og klippt af
hárgreiðslustofunni, en farir þú
út með hárið allt í kleprum og í
druslulegustu fötunum þínum,
þá má bóka það að þú hittir
draumaprinsinn.
honum, en þegar hann
kemur heim, þá á það að
vera hans stund. Leyfðu
honum að tala fyrst.
9. Láttu hann ráða kvöldinu.
Ekki kvarta þó hann fari
ekki með þig út að borða
eða á aðrar skemmtanir,
reyndu í stað þess að skilja
að hann hefur fengið sinn
skerf af streitu og látum
yfir daginn og þarfnast
hvfldar heima.
10. Markmiðið er að gera
heimilið að stað, þar sem
eiginmaður þinn getur
fundið frið og reglu og get-
ur slakað á.
er lífið
Um leið og þú finnur hinn
fullkomna varalit, er fram-
leiðslu á þeim lit hætt.
Þegar þú vilt sanna það fyrir
vinkonu þinni að sápuóperan
sem henni leiðist sé skemmti-
leg, hittir svo á að verið er að
sýna þann þáttinn sem hún þol-
ir síst.
Börn gera aldrei neitt
skemmtilegt eða fyndið þegar
gestir eru og foreldrarnir vilja
sýna þau.
Tengdamamma kemur í
óvænta heimsókn (hún hefur
ekki sést í 5 mánuði) þegar
húsið er í rúst og öll börnin í
hávaðarifrildi.
Þeir sem hringja í þig og fá
skakkt númer, hringja yfirleitt
tvisvar og eru alveg steinhissa á
því að þú skulir svara aftur.
Það skiptir engu máli hvað
þú átt margar tegundir af raf-
hlöðum, nýja tækið þitt gengur
alveg örugglega fyrir einhverri
tegund sem þú hefur aldrei séð.
Um leið og þú hefur saumað
merki í föt barnanna þinna,
vaxa þau upp úr þeim.
Börnin þín leggja ekki sama
skilning og þú í orð eins og taka
til, loka, ljúka við og pakka nið-
ur.
Rétt fyrir ijölskyldumynda-
tökuna fær unglingurinn bólur,
miðbarnið missir tönn og smá-
barnið fær rauða hunda.
Fólk sem kemur í heimsókn
og segist hafa farið í það fyrsta
sem það greip, en lítur samt
glæsilega út, skrökvar.