Dagur - Tíminn Akureyri - 01.10.1997, Page 5
,©agur-®TOttrat
Miðvikudagur 1. október 1997 -17
MENNING OG LISTIR
Sjónhverfingar
Gunnar
Stefánsson
skrifar
Loftkastalinn:
BEIN ÚTSENDING eftir
Þorvald Þorsteinsson.
Leikstjóri: Þór Tulinius.
Leikmynd og búningar:
Stígur Steinþórsson.
Hljóðmyndir: Máni
Svavarsson.
Lýsing: Jóhann Bjarni
Pálmason.
Tœknihönnuður: Hjörtur
Grétarsson.
Frumsýnt í Loftkastalan-
um, Héðinshúsinu
14. sept.
að fórst fyrir að ég sæi
Beina útsendingu á frum-
sýningunni og hafði ég
því séð og heyrt umsagnir um
sýninguna áður en ég sá aðra
sýningu á sunnudagskvöldið.
Og best að segja það strax að
ég skemmti mér ágætlega á
sýningunni. Þetta er mér sér-
stök ánægja að taka fram eftir
að hafa horft upp á vandræða-
leg viðbrögð ýmissa í fjölmiðl-
um, leikdómenda og annarra.
En kannski á þetta þá skýringu
að menn eiga erfitt með að taka
gríni á þann sýndarheim sem
þeir lifa sjálfir í, efnið er þá
hreinlega of nærri áhorfandan-
um?
Þorvaldur nær því
Eftir að hafa horft á Maríusög-
ur borvalds Þorsteinssonar í
Nemendaleikhúsinu um árið
hef ég beðið eftir nýju verki frá
honum. Ég get skilið að
Baitasar Kormákur leikhús-
stjóri Loftkastalans skyidi hætta
að leita höfundar að samtíma-
verki handa ieikhúsi sínu þegar
hann sá Maríusögurnar, að því
er hann skýrir frá í leikskrá.
Styrkur Þorvalds felst í því, eins
og þar mátti sjá, að hann skrif-
ar lipran texta og er býsna góð-
ur að afhjúpa hversdagslegar
klisjur. Og svo hefur hann, eins
og sást í Maríusögum, dálítið
gróteskt element sem setur
hinn nauðsynlega hroll í sýn-
inguna. Það brást ekki í Beinni
útsendingu. Eftir að hafa velt
sér upp úr klisjum spjallþátt-
anna allt kvöldið, að ógleymdu
jargoni gagnrýnenda, snýr höf-
undur við blaðinu, afhjúpar
grínið, sýnir okkur framan í
veslings þáttarstjórnandann og
sjónvarpsstjörnuna sem venju-
lega manneskju svolitla stund, -
til þess að strá loks salti í sárið.
En auðvitað segi ég ekki meira
um það, þetta eiga menn að
upplifa í Loftkastalanum.
Leikhús og sjónvarp
Sem sagt: Leikurinn er „bein
útsending" frá sjónvarpsstöð
sem gæti hvort sem væri verið
Sjónvarpið eða Stöð tvö. Þar er
að heijast þáttur hjá Jóni Loga
sem ætlar að taka afhjúpandi
viðtal við listahjón sem búa í
Berlín. Það er leikskáldið Krist-
inn Freyr og leikkonan Anna
Ólsen. Nú eru þau komin heim
og ætla að sýna nýjasta snilld-
arverk skáldisns, Galdur, um
konurnar Maríu (sem Anna
leikur) og Mörtu sem Freyja
Magnúsdóttir, ung leikkona sem
orðið hefur hjónunum hand-
gengin, fer með, en leikur þessi
snýst um flókið samband
kvennanna við skáldmenni
nokkurt. í sjónvarpsþættinum
eru leikin atriði úr Galdri milli
þess sem Jón Logi ræðir við
þessi þrjú, skáldið og leikkon-
urnar, og leitast við að grafa
upp viðkvæma hluti um þau.
Umhverfis eru sjónvarpsstarfs-
menn og kveður þar mest að
Didda og upp úr honum renna
án afláts vitlausir klisjubrand-
arar um leið og hann farðar
þátttakendur.
Mig brestur að vísu þekk-
ingu á vinnu á sjónvarpsstöð til
að dæma um hversu trúverðug-
ur sá þáttur er, en ég get svo
sem trúað þessu öllu eins og
nýju neti. Sú tækni að hafa leik-
ara í senn á sviðinu og á sjón-
varpsskjá, bæði yfir sviði og til
hliðar, var svolítið truflandi í
fyrstu en vandist fljótt og þegar
leikurinn tók að æsast skipti
það engu máli hvort maður var
að horfa á leiksvið eða sjón-
varp.
Alveg þess virði
Leikhús er leikarinn, segir gott
orð. Sá leikari sem ber uppi
sýninguna er Eggert Þorleifsson
í hlutverki Jóns Loga. Eggert er
hörkugóður í hlutverkinu, allar
tuggur hinna innilegu og nær-
göngulu sjónvarpsspyrla renna
upp úr honum eins og ekkert
væri og hann nær líka að nota
sér þá möguleika sem gefast á
að sýna bak við yfirborð Jóns
Loga, - að svo miklu leyti sem
þar er eitthvað. Það merkilega
við þennan ýkta ærslaleik sem
svo má kalla er það, að hann
hefur nægilegt jarðsamband við
þekktar aðstæður í ijölmiöla-
heiminum til að maður taki
hann gildan. Textinn er kannski
ekki mjög beittur eða stórlega
fyndinn en hann rennur vel og
heldur áhorfandanum við efnið
allan tímann.
Mótleikarar Eggerts eru ekki
allir jafn góðir. Einn ber af,
María Ellingsen í hlutverki
Önnu Olsen. Alltaf tekst Maríu
að gefa karakterum sínu sterkt
svipmót, einnig hér, ekki síst í
leikatriðunum í leiknum.
Sveinn Geirsson er nokkru síðri
í hlutverki Kristins Freys og
ræður varla við sveifluna miklu
í lokin, þá er dálítið eins og
vindurinn fari úr persónugerð-
inni. Þrúður Vilhjálmsdóttir
kemur einkar vel fyrir í hlut-
verki Freyju Magnúsdóttur, hef-
ur furðu skýran svip. Þrúður er
nýbrautskráð úr Leiklistarskól-
anum og „stígur hér sín fyrstu
skref í atvinnuleikhúsi," að
sögn leikskrár. Er ástæða til að
binda vonir við hana. - Veikasti
hlekkurinn, líka frá hendi höf-
undar, er Diddi sviðsstjóri sem
aldrei verður með verulegu
mannsmóti í meðförum Ólafs
Guðmundssonar. En kannski er
ekki ætlast til þess, maðurinn
lifir náttúrlega í gerviheimi! -
Þór Tulinius leikstjóri virðist
hafa leyst ýmis tækniatriði vel,
mun hafa hagrætt ýmsu frá
frumsýningu, og hann leggur
verkið upp með liðlegum og
sannfærandi hætti, slfkt sem
það er.
Efnið í Beinni útsendingu,
sýndarheimur sjónvarpsins,
ætti að höfða til margra, eins og
sagt er í markaðssetningunni.
Ég varð ekki var við annað en
áhorfendur á annarri sýningu
skemmtu sér býsna vel og get
með góðri samvisku hnykkt á
orðum ritstjóra þessa blaðs í
grein um verkið á dögunum,
að Bein útsending sé alveg
þess virði að fara á hana.“
Leikfélag
Akureyrar
4 TROMPÁHENDI
*
Hart
S
bak
eftir Jökul Jakobsson.
Frumsýning
á Renniverkstæðinu
föstudaginn 10. október kl. 20.30
UPPSELT
2. Sýning
laugardaginn 11. október kl. 20.30
UPPSELT
3. Sýning
Föstudaginn 17. október
4. Sýning
Laugardaginn 18. oktober
Leikritið sem skipaði Jökli á
bekk með fremstu leikskáldum
okkar. Hnyttinn texti - hjartnæm
saga.
Leikarar:
Sigutðut Hallmatsson,
Guðbjörg Thoroddsen,
Halldór Gylfason
Mana Nordal
Hákon Waage
Þráinn Karlsson
Aðalsteinn Bergdal
Marinó Þorsteinsson
Agnes Þorleifsdóttir
Eva Signý Berger
Ólafur Sveinsson
Lýsing: Jóhann Bjami Pálmason
Leikmynd: Hallmundur Krisdnsson
og Eyvindur Erlendsson
Leikstjóm: Eyvindur Erlendsson
♦ Á ferð með frú Daisy
eftir Alfred Uhry
Kynni auðugrar ekkju og óbrouns
alþýðumanns.
Hjörtum martnanna svipar saman
í Adanta og á Akureyri.
Frumsýniugá Reimrverkstœðinu 27. dcs
Titilhlutverk:
Sigurveig Jónsdóttir
^ Söngvaseiður
eftir Rodgers og Hammerstein
annan
Ástin og tónlistin takast á við
ofurvald nasismans.
Hrífandi tónlist - heillandi
frásögn.
Frumsýning t Samkamubtísinu 6. mars
Aðalhlutverk:
Þóra Einarsdóttir
é Markúsarguðspjall
Víðkunnasta saga hins vestræna
heims.
Frumflutningur á íslensku
leiksviði.
Prumsýningá Rennrverksttcðinu 5. apn1
Leikari:
Aðalsteinn Bergdal
Leikfélag Akureyrar
Ljúíar stundir í leikhúsinu
Korta og miðasala f fulium gangi
s.462-1400
fDagur-©ntTOti
et ttytkUraðtli Leikfólags Akureytar