Dagur - Tíminn Reykjavík - 14.02.1997, Blaðsíða 1

Dagur - Tíminn Reykjavík - 14.02.1997, Blaðsíða 1
Akureyri Fær 18 mán. fyrir árás með hnífi Sautján ára piltur frá Egils- stöðum hefur í Héraðs- dómi Norðurlands eystra verið dæmdur í 18 mánaða fangelsi, óskilorðsbundið, fyrir að stinga 22 ára gamlan pilt úr Kópavogi í brjósthol laugardag- inn 3. ágúst 1996 á útihátíðinni „Halló Akureyri“. Pilturinn var einnig dæmdur til að greiða all- an sakarkostnað, þ.m.t. sak- sóknaralaun í ríkissjóð, 75 þús- und krónur, og 150 þúsund króna málsvarnarlaun skipaðs verjanda. Hann hefur tekið sér frest til þess að ákveða hvort dómnum verður áfrýjað til Hæstaréttar. Til átaka kom að morgni laugardagsins milli þess dæmda og þess sem varð fyrir hníf- stungunni eftir að sá síðar- nefndi reyndi ásamt félaga sín- um að skilja að slagsmál milli þess dæmda og annars pilts. Peir voru síðan skildir að, m.a. af eldri bróður þess dæmda. En þegar pilturinn frá Kópavogi hvarf af vettvangi hljóp sá dæmdi á eftir honum og stakk hann með vasahnífí. Hann kvaðst ekki hafa ætlað að myrða piltinn og lýsti verulegri eftirsjá vegna verknaðarins. Hinn dæmdi dvaldi um þriggja mánaða skeið á Geðdeild FSA eftir verknaðinn, auk þess sem hann hefur dvalið á meðferðar- heimilinu Tindum vegna áfeng- isofneyslu. GG Verslunarrád Skylduaðild skotið til Strassborgar Verslunarráð hefur ákveð- ið að styðja málarekstur vegna skylduaðildar að lífeyrissjóðum fyrir Mannrétt- indadómstólnum í Strassborg. Kolbeinn Kristinsson, formaður Verslimarráðsins, skýrði frá þessu á Viðskiptaþingi samtak- anna í gær. Hæstiréttur stað- festi nýlega dóm héraðsdóms um skylduaðild að einstökum lífeyrissjóðum og rennur áfrýj- unarfrestur út fljótlega. Versl- unarráð hefur lengi barist gegn skylduaðild og telur efni til þess að skjóta málinu til Mannrétt- indadómstólsins. Á sieða í Ólatsnrðl Þeir sjást ekki orðið víða skíðasleðarnir sem hvert mannsbarn renndi sér á fyrir nokkum árum eða áratugum. Þær Margrét Anna Guðmundsdóttir 9 ára og Sædís Sæmundsdóttir 10 ára undu sér vel á sleðanum og sendu Ijósmyndaranum fallegt bros þegar hann hitti þær á förnum vegi í Ólafsfirði. Mynd: gs Kröfugerð ASÍ Vilja fá fímm þús- und kall á mann Snær Karlsson VMSÍ Þetta er sigur fyrir Verkamannasam- bandið, sem vildi krónutöluhœkkanir. Sjötfu þúsund króna lág- markslaun og 5000 króna hækkun á laun þar fyrir ofan, era meðal krafna sem Landssambönd ASÍ kynna atvinnurekendum f dag. Rætt um samning til mars 1909. Landssambönd Alþýðusam- bandsins hafa náð samkomu- lagi um launastefnu og kröfur, sem þau kynna atvinnurekend- um og ríkinu í dag. Hún gengur út á 70 þúsund króna lág- markslaun, að taxtar verði færðir að greiddu kaupi og laun fyrir ofan 70 þúsund kr. hækki um 5000 krónur. Þá vilja lands- samböndin að skattkerfmu verði breytt, svo að obbinn af þessum launahækkunum verði ekki hirtur jafnóðum í formi skatta. Jafnframt er gert ráð fyrir bótum eða opnun samninga, ef aðrir sem á eftir koma, semja um meiri hækkanir. Þess er krafist að lægstu taxta- laun hækki strax við undirskrift samninga um 15 þúsund krónur, eða úr 50 þúsund krónum í 65 þúsund krónur. Það er um 30% hækkun. Við lok samningstímabilsins, eða í mars 1999, vilja ASÍ menn að lægstu taxtar hældci um 5 þús- und krónur til viðbótar, eða í 70 þúsund krónur. Innifalið í þessu eru breytingar á starfsaldurs- hækkunum og gert ráð fyrir að hluti bónusgreiðslna fari inn í kauptaxta. Allt miðar þetta að því að færa taxtakaupið að greiddu kaupi. Ekki prósentuhækk- anir Snær Karlsson hjá VMSÍ segir að þessi leið sé sigur fyrir Verkamannasambandið, sem hafi viljað króntöluhækkanir en ekki prósentu. Þetta hafi náðst án átaka við önnur landssam- bönd. Þrátt fyrir þessa sameig- inlegu launastefnu landssam- banda Alþýðusambandsins, ætla þau að semja hvert fyrir sig eins og verið hefur. Þá gera landssamböndin, Verkamannasambandið, Lands- samband iðnverkafólks, Sam- iðn, Rafiðnaðarsambandið og Landssamband verslunarfólks þá kröfu til rfldsins að það verði tekið upp fjölþrepa skattkerfi, þar sem láglaunahópar verða með lægstu skattprósentuna. Þar fyrir utan er krafist tollalækkana á innfluttum mat- vælum, breytinga á tekjuteng- ingu bótagreiðslna og jöfnun líf- eyrisréttinda. Síðast en ekki síst verður farið fram á lækkun á ýmsum kostnaðarliðum í vel- ferðarkerfinu og þá einkum í heilbrigðiskerfinu. -grh/vj Lífið . í landinu j Líf og i blaðinu í dag Bls. 6 Kjörín á eyrinni og i bönkunum MUNIÐ TILBOÐ Á SMÁAUGLÝSINGUM FYRSTA BIRTING 800 KR. ENDURBIRTING 400 KR. ". Ofangreind verð miðast við staðgreiöslu eða VISA / EURO |

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.