Dagur - Tíminn Reykjavík - 15.02.1997, Page 14

Dagur - Tíminn Reykjavík - 15.02.1997, Page 14
Bleikt og barbflegt Bleikt er í tísku! Bleikir augnskugg- ar, sem þekja ekki bara augnlokin heldur lika svæðið þar fyrir ofan og jafnvel fyrir neðan augun. Smart? Sjálf- sagt fer tvennum sögum af því. Kannski líka erfitt að hafa skoðun á málinu þegar við sjáum myndimar bara í svart-hvítu. En hvað sem fegurðartiliinningin segir okkur breytir það ekki að þeirri stað- reynd að tískublöðin keppast um þessar mundir við að birta flennistórar myndir af rauðeygðum fyrirsætum. Förðunarfræðingar erlendu stórblað- anna segja að bleiki liturinn sé óskaplega fallegur og kynþokkafullur, sé honum beitt á réttan hátt. En það er eins gott að vanda sig, annars gæti einhver vaðið í þeirri villu að konurnar haf! verið að gráta. Sem er auðvitað hið versta mál. Hér koma nokkrar ráðleggingar fyrir þær sem langar til að prófa hið „nýja“ út- ht. Mest bleikt innst og síðan lýsist liturinn smám saman þar til hann rennur saman við húðlitinn. • Forðastu svartan maskara með bleika augnskugganum. Andstæðumar verða of miklar. Betra er að nota t.d. blá- an maskara. • Til að bleika útlitið virki á réttan hátt er bráðnauðsynlegt að varimar h'ti út fyrir að vera silkimjúkar. Þessu er að sjálfsögðu hægt að bjarga á einfaldan hátt. Settu á þig svoh'tinn varasalva og burstaðu síðan yfir varirnar með göml- um tannbursta til að losna við gamlar, dauðar húðfmmur. • Ef þú ert með lítil augu, varastu þá að nota augnblýant imdir augun því allar h'nur hafa þau áhrif að augun virðast minni, ekki stærri. • Rétt eins og svartur maskari er ekki æskilegur þýðir ekki að maka augnabrýr út í dökkum Ut. Augnabrýrnar eiga að vera snyrtilegar, vel plokkaðar en jafn- framt náttúrulegar. Hér kemiu gamh tannburstinn aftur að góðum notum. Passið bara að hann sé hreinn. • Kinnaliturinn á að vera í sama tón og augnskugginn, en ljósari, og ekki nota of mikið. Ef þú ert með rauðleita húð er spurning hvort borgar sig ekki að sleppa bara kinnalitniun? Skugginn í kring um augun á þessum fögru fljóðum stafar ekki af svefnleysi. Þær eru máiaðar svona viljandi. Og ef myndin væri í lit, sæuð þið bleika litinn í öllu sínu veldi. Stelpur, hvað finnst ykkur um þessa? Þetta munu vera tveir af fimmtíu boðleg- ustu piparsveinum Bret- lands. Svoh'tið ungir, en með flotta brjóskassa. Fatastíllinn er umdeilan- legur. Þó þeir séu stæltir er kannski fullmikið að vera berir að ofan, a.m.k. á miðjum vetri. Þessi vinstra megin er tvítugur og heitir Sean Long. Hann mun vera mikill íþróttakappi, er leikmaður með rugby liði og segist þrífast best í mikilli samkeppni. Draumakonan hans verð- ur að vera í góðu formi og að hafa bein í nefinu. „Einhver sem lætur mig ekki komast upp með hvað sem er,“ segir Sean. svernar Sá hægra megin er nokkrum árum eldri, eða 27 ára. Hann heitir Leshe Gibson og vinnur fyrir sér sem grínisti. Þegar hann er ekki að segja brandara lyftir hann lóðum eða glápir á sjónvarp. „Ég horfi á allar amerísku sápurn- ar, lögguþætti og MTV vegna þess að þar fæ ég mik- ið af efni sem ég nota í vinnunni,“ segir hann. Leslie heillast helst af glanspíum sem klæða sig eftir nýjustu tísku. En það er ekki nóg að þær séu vel vaxnar og flottar í tauinu. Þær þurfa líka að hafa húmor, vera félagslyndar og finn- ast gott að kela. jfkgur-^mróm Húfii- tískan í Hollywood Vandamál vetrarins eru mörg. Lát- um vera þó bílhnn festist í ófærð- inni, við renninn til á svellinu eða þurfum að borga himinháan hitaveitu- reikning. En þegar hárið fer allt í klessu í þokkabót þá er nóg komið. Fínu og frægu frúrnar í útlöndunum kunna ráð við þessu eins og öðru. Til að hattar og húfur eyðileggi ekki flottu hárgreiðslima velja þær sér greiðslu sem þola hvað sem er. T.d. er hægt að setja hárið í stert, flétta það eða spenna upp. Hug- myndin er að finna greiðslu sem h'tur eins út, með eða án höfuðfats. Lítum á nokkur dæmi. Strandvarðastíll Gena Lee Nolan, leikkona sem flestir kannast við úr þáttuninn um Strandverði, vifi að faUega hárið njóti sín í skíðabrekkunni sem og á strönd- inni. Hún velur því frekar eyrnaband en húfu og leyfir hárinu að flæða frjálsu um axUrnar. Smart stíU en kannski ekki mjög hentug- ur í stórhríð! Frjálsleg og flott Leikkonan Sally Field bregst ekki frekar en fyrri daginn. Þá hún líti hálfdruslu- lega út með rytjulega fléttu og hafnarbolta- hatt er hún samt algjört krútt. Frjálslegt og flott hjá Sally. Feluleikur Hárvandamálið leyst á einfaldan hátt. Angela Bassett felur það einfaldlega und- ir húfunni. Hatt- urinn er töff, brosið fallegt og eymalokkarnir gera útslagið. Henni gæti þó orðið kalt á eyr- unum í miklu frosti en að öðru leyti ekkert út á stflinn að setja. Hvað er nú þetta? Elle MacPher- son, yfirstrump- ur, er með allt of stóra húfu og rétt tyllir henni á hausinn. Kannski tímir hún ekki að hylja hið fagra hár sem hún er fræg fyrir. En þegar hún brosir sætt og lætur augun tindra, eins og á þessari mynd, hverjum er þá ekki sama um húfuna?

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.