Dagur - Tíminn Reykjavík - 18.03.1997, Qupperneq 9

Dagur - Tíminn Reykjavík - 18.03.1997, Qupperneq 9
T Þriðjudagur 18. mars 1997 - 21 1907 Skemmtilegt sumar framundan Nú styttist í að knattspyrnuvertíðinn heíjist og það má með sanni segja að þetta verði sumar ungmenna- félaganna. Fjögur ungmenna- félög verða mikið í sviðsljósinu og má þar fyrst nefna Leiftur frá Ólafsfirði. Leiftur hefur verið að sækja í sig veðrið undanfarin ár og margir eru á því að í sumar blandi þeir sér virkilega í baráttuna um íslandsmeistara- titilinn. Ólafsfirðingar hafa fengið til sín menn eins og Arnar Grétarsson, Daða Dervic og Lazorik en þeir tveir fyrrnefndu hafa átt nokkuð víst sæti í íslenska landsliðinu. SkaUagrímur tryggði sér sæti í Sjóvá-Almennar deildinni eftir harða rimmu við Prótt Reykjavík. Ólafur Jóhannesson virðist vera að gera góða hluti og það verður gaman að fylgjast með því hvort Borgnesingar feta í fótspor nágranna sinna frá Akranesi. Ðalvíkingar unnu sér sæti í 1. deildinni (var 2. deild) í sumar og er stefnan sett á að halda sér þar. Björn Friðþjófsson, formaður knatt- spyrnudeildar, sagði í samtali við blaðamann fyrr í vetur að reynt yrði að nota leikmenn sem alist hefðu upp hjá félaginu en auðvitað þyrftu þeir eitthvað að styrkja sig ef þeir ætluðu ekki beint niður aftur. KVA er sameinað lið Austra Eskifirði og Vals Reyðarfirði. KVA gerði sér h'tið fyrir og vann 4. deildina s.l. sumar án þess að tapa einum einasta leik. KVA munu leika í 2. deildinni í sumar og það verður gaman að sjá hvernig þessi litlu bæjarfélög standa sig þar. Fréttir úr starfi UMFÍ Á héraðsþingi HSK í Gunnarshólma voru úrslit lír kjöri íþróttamanns HSK árið 1996 kunngjörð og fyrir valinu varð Sigríður Anna Guðjónsdóttir, frjálsíþróttakona úr Umf. Selfossi. Hún náði mjög -góðum árangri á árinu, setti meðal annars íslandsmet í þrístökki kvenna bæði innan- og utanhúss. Þing HSÞ var haldið um helgina og var Anna Sigrún Mikaelsdóttir kjörin formaður en fráfarandi formaður, Ketill Tryggvason gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Þá var Kristján Yngvason sæmdur gullmerki UMFÍ fyrir góð störf í þágu hreyfingarinnar. Það voru ungmennafélög sem tryggðu sér deildarmeistaratilinn í karla- og kvennaflokki í handbolta. Stjörnustelpur úr Garðabæ unnu titilinn eftir harða rimmu við Hauka en það voru svo strákarnir í Umf. Aftureldingu sem nældu sér í deildarmeistaratitilinn í karla- flokki, einnig á kostnað Hauka. Á aðalfundi Umf. Heklu var Björgvin Helgason valinn íþróttamaður ársins. Umsjón Jóhann Ingi Árnason s: 568-2929 MsMfl Nú lyftist brúnin eflaust á mörgum gestum þjónustumiðstöðvar UMFÍ því skömmu eftir áramótin voru teknar þar í notkun sturtur. Einnig var gistirýmið málað í desember og til stendurað bæta aðstöðuna frekar með fjölgun kojum, eldhúsáhöldum og öðrinn innanstokksmunum. Fyrir þá sem ekki þekkja skal það upplýst að í gistiaðstöðunni er svefn- pokapláss og eldunar- aðstaða og stendur hún til boða öllum aðildar- félögum UMFÍ gegn mjög vægu gjaldi. Nánari upplýsingar fást í síma 568-2929 Meistaramtlskndsog Grunnskálamótið í glímu Það var mikið ijör í íþróttahúsi þeirra Fjölnis- manna um síðustu helgi en þar fóru fram tvö Qölmenn glímumót á tveimur dögum. Á Iaugardeginum fór fram Grunnskólamótið í glímu þar sem um 100 krakkar kepptu í sjö aldursflokkum. Það var hart barist bæði hjá strákunum og stelpunum en í lok dagsins stóðu eftirtaldir uppi sem sigurvegarar; 4. bekkur Halldór Guðjónsson Húsaskóla Halldóra Markúsdóttir Barnaskóla Gaulverjab. 5. bekkur Guðni Jensson Fljótshlíðarskóla Gréta Þórisdóttir Melaskóla 6. bekkur ívar S. fvarsson Melaskóla Harpa Særós Pálsdóttir Laugalandsskóla IJugrún Geirsdóttir Barnaskóla Gaulverjab. 7. bekkur IJeimir Hansson Hamraskóla Andrea Ösp Pálsdóttir Laugalandsskóla S.bekkur Einir Freyr Helgason Lauglandsskóla Inga Gerða Pétursdóttir Grunnsk. Skútustaðahrepps 9. bekkur Jón Smári Eyþórsson Grunnsk. Skútustaðahrepps Tinna Björk Guðmundsdóttir Grunnskóla Sauðárkróks 10. bekkur Stefán Geirsson Sólvallarskóla Selfossi Hvað finnst ungmennafélaganumí Finnt þér það rétt ákvörðun að hafá fríttinn fyrir áhorfendur á Landsmót UMFÍ í Borgamesi í sumar? Sigurður Geirdal Bæjarstjóri Kópavogi Ég ilutti nú á sínum tíma tillögu um að þátttökugjald yrði á keppendur eins og nú hefúr verið ákvoðið. Ég held að þetta sé skref í rétta átt en eitt er víst að það verður að ná tekjunum með öðrum leiðum. Reynir Karlsson íþróttaful ltrúi ríkisins Það þarf auðvitað að tryggja innkomu fyrir útgöldum mótsins en ég held að það sé ekkert sjálfsagt að fjölskyldur komi og borgi stórfé inn á svona mót. Þátttökugjald á keppendur vegur upp á móti. » Sigurlaug Þóra Hermannsdóttir stjómamaður UMFÍ Að sjálfsögðu var það rétt ákvörðun. Það hefur stundum kostað svo mikið á mótið að fjölskyldur hafa ekki haft ráð á að koma. Núna verður Landsmótið sannkallað fjiilskylduniót þar sem við gefum öllum kost á að koma og vera með. Steinunn Eysteinsdóttir Grunnskóla Hólmavíkur Á sunnudeginum tók svo meiri alvara við þegar 49. Meistarmót íslands fór fram. Þar voru mættir allir bestu glímumenn landsins og hefur þátttaka á mótinu aldrei verið meiri. Alls voru þátttakendur 135 sem er mikil aukning en gamla metið var 99 þátttakendur. Keppni var jöfn og spennandi í mörgum flokkum en samt bar upp úr úrslitaglíman í +90 kílógramma flokki þar sem Ingibergur Sigurðsson og Arngeir Friðriksson áttust við. Þeir kappar glímdu í tæpar sex mínútur en þá hafði Ingibergur loksins betur. En lítum á sigurvegara mótsins; Hnokkar Guðni Jensson Umf. Þórsmörk Piltar Júlíus Jakobsson Umf. Víkverja Sveinar Benedikt Jakobsson Umf. Víkverja Drengir Ólafur H. Kristjánsson HSÞ Unglingar Pétur Eyþórsson HSÞ -68 kg Sigurður Nikulásson Umf. Víkverja -74 kg Helgi Kjartansson Hvöt -81 kg Arngeir Friðriksson HSÞ -90 kg Helgi Bjarnason KR +90 Ingibergur Sigurðsson Umf. Víkverja Hnátur Sigrún Edda Ármanssdóttir Umf. Fjölni Telpur Auður Ösp Pálsdóttir íþf. Garpi Meyjar Inga Gerða Pétursdóttir HSÞ -60 kg Karóhna Ólafsdóttir Umf. Laugdæla +60 kg Karólína Ólafsdóttir Umf. Laugdæla

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.