Dagur - Tíminn Reykjavík - 21.03.1997, Blaðsíða 6

Dagur - Tíminn Reykjavík - 21.03.1997, Blaðsíða 6
6 - Föstudagur 2t. mars 1997 jOagur-®mtímt „Kókópöffs-kynslóðin“ komin í handboltann Björn Þorláksson skrifar Handbolti er mál mál- anna á íslandi sem stendur og þá ekki síst á Akureyri þar sem áhuginn er almennari en víðast annars staðar. Alfreð Gíslason, þjálf- ari KA, náði að stýra sínum mönnum til stórsigurs í fyrra- kvöld gegn Stjörnunni og er staðan 1 -1 í innbyrðis viður- eignum liðanna. í kvöld ræðst hvort KA-menn eða Garðbæ- ingar fagna því skrefi að kom- ast í undanúrslit ásamt Aftur- eldingu og þá eru enn með í pottinum Valur, Haukar, Fram og ÍBV. - Hvað olli þessum viðsnún- ingi í leik ykkar? „Við fórum bara að spila eðli- lega, mjög vel bæði í vörn og sókn. Allir áttu mjög góðan dag.“ - Þú spilaðir í peysu númer 17. Af hverju ekki 7? „Ég byrjaði ferilinn alltaf í 7 en þegar ég kom heim fór ég að spila í 14, sem ég hafði líka not- að í landsliðinu. Ég kunni ekki við að taka peysuna af Sverri Björnssyni, sem hefur spilað mjög vel fjrir okkur í vetur, þannig að ég fór bara í það númer sem var laust.“ Hjátrúin að drepa mig - Hvað með hjátrúna? „Hún er alveg að drepa mig. En það var a.m.k. 7 í tölunni!" - Það hefur gengið upp og ofan í vetur hjá KA. Finnst þér þú hafa náð því besta út úr lið- inu? „Nei. Ég er ekki sáttur við þennan vetur. Við höfum ekki spilað jafnvel og ég vonaðist eftir, hvorki í vörn né sókn. Ástæðurnar eru íjölmargar en ég hef t.d. verið að vinna mikið með nýja menn eins og Heið- mar Felixsson, sem hefur verið látinn spila stanslaust. Við þurftum á örvhentum manni að Mynd: GS halda og hann hefur vaxið með hverjum leik en það kostar náttúriega að vinna nýja menn inn í dæmið. Svo hafa að mínu mati of margir í mínu liði verið að spila undir ____ getu. Það hefur verið vanda- mál“ - Tekurðu það persónu- lega til þín sem þjálfara liðs- ins? „Það er ekki mitt að meta það. Margt hef- ...... — ur áhrif á slíkt en eflaust hefur þjálfarinn sitt um það að segja. En það tekst ekki alltaf að ná því besta út úr mönnum.“ - Orðrómur á Akureyri segir að móralskt hljóti eitthvað að vera að hjá liðinu. Er það rétt? „Nei, ég er ekki sammála því. Það er margt skrafað á göt- „Það er margt skraff- að á götum Akureyrar og sannast þar að ís- lendingar eru sögu- þjóð. Og þá ekki í já- kvæðum skilningi!" um bæjarins og þar sannast iðulega að íslendingar séu söguþjóð og þá ekki í jákvæðum skilningi! Ég tel að mórallinn hafi alltaf verið styrkleiki okkar, ... hvernig sem hefur gengið, okkar sterkasta vopn. En eins og ég segi: Það er sama hver á í hlut. Það er alltaf auðveld- ara að ráðast á náungann frek- _______________ ar en sjálfan sig þegar illa gengur.“ - Þú nefndir áðan að all- margir leikmenn hefðu spilað undir getu. Hvað með þær væntingar sem gerðar voru t.d. til lykilmannsins Duranona? „Við sáum það f gær hve mikilvægur hann er fyrir liðið. Annars vil ég ekki tjá mig um einstaka leikmenn á þessum tímapunkti." Frekar Hauka en Val - Hverjar telurðu líkurnar á sigri gegn Stjörnunni í kvöld? „Það fer hreinlega eftir hvort við höldum áfram núna á okkar braut. Hvort viljinn og skyn- semin verður fyrir hendi. I gær [fyrradag] var ég í fyrsta skipti í mjög langan tíma virkilega ánægður með leik liðsins og ef við höldum þannig áfram vinn- um við þennan leik. En gallinn við okkur er að við getum dottið alveg ótrúlega langt niður á milli, það verður að viðurkenn- ast. Þá töpum við þessum leik en ég á samt eftir að sjá að við töpum tvisvar fyrir sama liðinu á heimavelli." - Meturðu þá likurnar rúm- lega 50%? „Já. Þær eru heldur meiri.“ - Ef sigur vinnst, hvort viltu fá Haukana eða Val? „Valsararnir hafa vaxið seinnipart móts og reyndar mjög mikið. Þeir ráða yfir mik- illi reynslu og ef maður skoðar liðið á pappírunum eru þetta einir sex landsliðsmenn hjá þeim á síðustu árum. Þeir eru óeðlilega neðarlega í deildinni miðað við styrk sinn. Haukarnir eru hins vegar með mjög góðan og breiðan hóp en þeir eru farnir að hiksta dá- lítið. Ég á því mjög erfitt með að spá fyrir um hvort liðið væri betra að fá. Guðmundur Hrafn- kels hefur oft undanfarið varið tiltölulega lítið á keppnistímabil- inu en þegar kemur í úrslita- keppnina verður hann allur ann- ar markmaður. Hann vex mjög mikið við álag og ekki síst af þeim sökum gæti verið mjög var- hugavert að lenda á móti Val.“ Handboltinn í millibilsástandi - Hvaða lið hefur spilað jafn- asta og besta handboltann í vetur? „Úffffff. Þetta hefur verið óvenju sveiflukennt en kannski má segja að Afturelding hafi unnið mótið á stystu lægðunum. Lið eins og Fram og Vest- mannaeyjar hafa komið mjög á óvart og verið á svipuðu róli allt mótið.“ - Hvernig er handboltinn í dag? „Hann er í þessu millibils- ástandi sem oft kemur upp þeg- ar margir fara á einu bretti til útlanda. Kannski óvenju góður miðað við hve margir nýir leik- menn hafa spreytt sig. Deildin er ekki jafn góð og í fyrra en samt hefur hún ekki valdið neinum vonbrigðum." - Taktík og þjálfun? Eitthvað nýtt að gerast? „Nei, í rauninni ekki. Við stöndum mjög vel hvað varðar unglingaþjálfun og erum að fá marga Ijölhæfa leikmenn upp. Okkur vantar hins vegar stærri leikmenn. Margir af þessum ungu eru mjög teknfskir en þeir eru flestallir svo djöfulli litlir. Það er spurning hvort Kókó- pöffs-kynslóðin sé endanlega komin til að vera!“ Urslitakeppni Islandsmótsins í handbolta KA-Stjarnan f KA-heimilinu íkvöld, föstudaginn 21. mars kl. 20. Nú tökum við öll saman á Valda Gríms og félögum!

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.