Dagur - Tíminn Reykjavík - 21.03.1997, Blaðsíða 11
<JDagm--©mírat
Föstudagur 21. mars 1997 - 11
Myndin er af Sigurjóni Arnarssyni GR, atvinnumanni í golfi, sem nú keppir á Tommy Armour mótaröðinni á Flór-
ída. Ýmsum lesendum Golftímans hnykkti við er þeir lásu frétt um Sigurjón í siðasta Golftíma, en með fréttinni
birtist mynd af „vitlausum" Sigurjóni. Beðist er velvirðingar á mistökunum.
Samvinnuherðir - Landiýn
fiefur um langt árabil boðið
glœiilegar golhherðir um heim
allan. Við ikipuleggjum
golhherðir til Spánar og
Mallorca og iameinum jahnvel
golh og iiglingu! Allir harþegar
okkar í golhherðum geta gengið
í golhherðaklúbbinn iem veitir
þátttökurétt á hið vimœla
Sprengjumót á Hellu iem
Ný mótaröð hinna ungu
mótið verður í Portúgal í lok
október.
lanúsýn
feTtþrt:tettrflnM»»> W 1111«teÉrtltt?HU*WlIHSUaIW • Iwlrtili»t.Mll/l
m m * mm •«w nn • w m uiMUrtr i«w n. i. ws i m. t** sb m
btovfc IHi« iS • 1421 )4U • 421MH AtaroHln« 1*14111)11 •:*« 4111IB
Nnmrt Wnminl I • S 412 72M • JiUrti 4(111% Veslmnxyþr tetraiMnU tt • t. 4111271 • tábréf 4112/12
baqiir«r UvffM 7 • t. 4SI Ull • táH «1UI2 • EkM nrtntam n M M
Sem fyrr segir er nýja móta-
röðin án þess íburðar sem aðal-
mótaröðunum fylgir, en barátt-
an er sú sama, ef ekki meiri,
aðeins þeir hæfustu komast
áfram.
Hinn þekkti kylflngur Cost-
antino Rocca segist telja það
nauðsynlegt fyrir unga kylflnga
að fá tækifæri til þess að leika á
þessari mótaröð. „Hún er af-
bragðs undirbúningur, líkam-
lega og andlega fyrir Evrópsku
mótaröðina," segir Rocca.
Margt að læra og
reyna
Knud Storegaard segir: „Þú
lærir svo mikið. Ekki aðeins að
leika þitt besta golf, heldur og
ekki síður að ferðast og takast á
við hótellífið og einmanaleik-
ann.“
Ef hinn ungi kylfingur nær
árangri getur það þýtt pening í
vasann og framhaldslíf í hörð-
um heimi atvinnumennskunnar.
Þessa kröftugu golfsveiflu á Gunnar Þórðarson, fyrrum félagi í Golfklúbbi
Akureyrar. Þengill vinur hans Valdemarsson tók myndina á níunda ára-
tugnum, en báðir hófu þeir golfleikinn kornungir, ásamt Björgvini Þor-
steinssyni. Allir voru þeir ungir og efnilegir, en nú eru þeir bara ungir.
Sett hefur verið á laggirnar
ný mótaröð fyrir unga at-
vinnumenn í Evrópu. Hin
nýja mótaröð er um flest ólík
þeim mótaröðum sem við
þekkjum úr heimsfréttum. Pó
hafa verið tryggðar tvær millj-
ónir sterlingspunda í verð-
launafé, þannig að eftir nokkru
er að slægjast.
Gert er ráð fyrir að allt að
fimmtíu keppendur, frá tuttugu
og einu landi, getí „flotið" á
mótaröðinni, en hún fer fram í
tveim heimsálfum, Evrópu og
Afríku.
Þessi nýi evrópski „áskor-
endatúr“ hófst fyrir nokkru á
Fílabeinsströndinni, þar sem
u.þ.b. tvöhundruð ungir kylf-
ingar tóku þátt og reyndu með
sér.
bráðabana við Finnann Anssi
Kaukkonen, með því að fá fugl
á fyrstu holu bráðabanans.
Sigur Danans er enn einn
„landvinningurinn" í danskri
golfsögu.
Fyrir aðeins tveimur árum
vakti Thomas Bjorn athygli sem
áskorandi. Árið 1996 varð hann
hrókur ársins, „Rookie of the
Year“ á Evrópumótaröðinni.
„Ég hef fylgst náið með frá-
bærum árangri Tómasar, síðan
hann gerðist atvinnumaður,"
segir Knútur, „enda erum við
góðir vinir og vorum saman í
áhugamannalandsliði Dan-
merkur.“
„Velgengni hans hefur verið
mér hvatning og ég lít björtum
augum til komandi leiktíðar,“
bætir Knútur við.
Danskur sigur
Sigurvegar varð Daninn Knud
Storegaard, sem varð nýlega
atvinnumaður, en Knud vann
Afbragðs
undirbúningur
Næsta mót í þessari mótaröð er
í Kenýa í Afríku, en síðasta
haldið verðurj. ágúit.
Samvinnuíerúir
Golfreglan
Ef bolti mótherja þúis
liggur í púttlínu
þinni, máttu biðja
hann að merkja bolta sinn
og fjarlægja hann. Ef þú
álítur að merki mótherjans
trufli þitt eigið pútt má
færa merkið um einn pútt-
ershaus eða meira til
hvorrar hliðar sem er. Þeg-
ar þú hefur púttað færist
merki mótherjans á upp-
runalegan stað.
LEK
Landssamband eldri kylfinga
Frá því var sagt í síðasta
Golftíma, að Landssamtök
eldri kylfinga hefðu verið
stofnuð árið 1985. Þar var þess
getið að Sveinn Snorrason hefði
verið kjörinn fyrsti formaður
þeirra.
Annar formaður samtakanna
var Hörður Guðmundsson Golf-
klúbbi Suðurnesja og er á eng-
an hallað þó þess sé getið að
hann hafi unnið samtökunum
manna best.
Fyrsta alvörumótið
í myndarlegu 50 ára afmælis-
blaði GSÍ í blaði þess „Golf á ís-
landi“ er grein eftir Hörð, þar
sem hann segir frá stofnun og
starfi LEK.
Sem fyrr sagði voru samtök-
in stofnuð í Borgarnesi 1985.
Sömu helgina og samtökin voru
stofnuð fór fram fyrsta alvöru
íslandsmeistaramót eldri kylf-
inga á Hamarsvelli þeirra Borg-
nesinga. „Leiknar voru 54 holur
eins og tíðkast á stórmótum er-
lendis í þessum aldursfiokki,"
eins og Hörður segir í grein
sinni.
Far sem mjög hefur ljölgað í
samtökunum, eðli málsins sam-
kvæmt, hefur starfið sífellt orð-
ið viðameira og um leið mark-
vissara.
„Þessir gömlu karlar“
I grein sinni segir Hörður orð-
rétt:
„Áður en LEK kom til sög-
unnar voru verkefni fyrir þenn-
an aldurshóp heldur fá og smá,
nokkur 18 holu mót á vegum
stærstu klúbbanna og á Lands-
móti GSÍ var keppt í svokölluð-
um öldungaflokki en þar var
um hálfgerða aukakeppni að
ræða þegar aðrir léku 72 holur.
Það var s.s. ekki von eða
Umsjónarmaður
Ragnar Lár
Fax og sími:
557 6516
ástæða til lengi vel að í mikið
væri lagt fyrir þennan aldurs-
flokk, „þessa gömlu karla", sem
lengi vel var mjög fámennur.
Ekki eru nema örfá ár síðan
konur í þessum aldursflokki
urðu svo ijölmennar að hægt
væri að efna til keppni þeirra í
milli. Þessi fámenni hópur var
þó alls góðs verðugur, enda um
að ræða flesta af frumherjum
golfíþróttarinnar í landinu."
Mikil félagafjölgun
Eldri kylfingum fjölgar verulega
ár hvert, eðli málsins sam-
kvæmt. Sérmót þeirra eru nú
fjölmörg, milli 20 og 30 opin
mót ár hvert fyrir utan sérmót
hinna ýmsu klúbba.
Evrópumeistaramót
Seniora
LEK taka árlega þátt í Evrópu-
meistaramóti eldri kylfinga,
(Seniora) sem haldið er til
skiptis í hinum ýmsu Evrópu-
löndum. Hápunkturinn í starf-
semi LEK var vafalaust umsjón
samtakanna með mótinu þegar
það var haldið hér á landi á
Grafarholtsvellinum og á Hólm-
svelli í Leiru. Mótin fara þannig
fram, að tólf keppendur taka
þátt frá hverju landi, sex sem
leika án forgjafar í A flokki og
sex sem leika með forgjöf í B
flokki.
Bjartir tímar
framundan
í lok greinar Harðar Guð-
mundssonar, sem var formaður
LEK þegar þessi stórviðburður
fór fram, segir hann:
„Nú er komið á dagskrá
Norðurlandamót bæði karla og
kvenna og verðum við áreiðan-
lega þar með áður en langt um
líður.“
Nú er mjög til umræðu að
konurnar innan LEK taki þátt í
stórviðburðum erlendis, enda
eigum við orðið harðsnúinn hóp
kvenkynskeppenda og fer hann
stækkandi með hverju árinu
sem líður.