Dagur - Tíminn Reykjavík - 27.03.1997, Blaðsíða 1

Dagur - Tíminn Reykjavík - 27.03.1997, Blaðsíða 1
(JDagur'®tmitm ISLENDINGAÞÆTTIR Fimmtudagur 27. mars 1997 - 80. og 81. árgangur - 60. tölublað ■ ■ ' ................................................. : Afhverjuvar Mkarim daundur af Hermanni? sem Hermann vann, var komið á áskorunar viðureignum við sigur- vegarann. Tveir gáfu sig fram og lutu í grasið fyrir Hermanni. Meðal áhorfenda á þessu móti var í hópi námssveina bændaskólans á Hólum Sigurður Greipsson frá Haukadal. Hann dáðist að því hve snöggur Her- mann var að koma viðfangsmönnum sínum af fótunum. Sagði Sigurður að Hermann hefði látið mikið og verið ögrandi. Sigurð langaði mikið til að takast á við Hermann, en hann hafði verkjað í höfuðið allan daginn og svimað, því að hestur hafði um morguninn slegið hann. Hefði úr orðið, mundi söguleg og eftirminni- leg glíma hafa átt sér þarna stað. Sigurður vann Grettis-beltið árið 1922. Tók við því, án þess að Her- mann verði konungdóminn, sem hann vann sér fáum dögum fyrir hina örlagaríku Konungsglfmu 28. júní 1921 á Mngvöllum. Frá 1917-1920, er Hermann stundaði nám undir stúdentspróf hóf hann að æfa glímu hjá Glímufélaginu Ármanni og lagði sig svo fram við fé- lagsstöðrf, að hann var kosinn ritari í stjórn félagsins. Hann var í því starfi vel virkur. Skráning fundar- gerða og ársskýrslna frábær. Tillögumaður um hús- byggingu, byggingar- sjóð, slysasjóð, end- urbætur á kennslu og þjálfun. Fékk t.d. Guðmund Kr. Guðmundsson úl að gerast ghmukenn- ari félags- Þannig hljóðaði ein þeirra spurninga sem borin var upp við greinarhöfund um framgöngu Hermanns Jónassonar og viðfangsmanna hans í Konungsglímunni 1921. Spurningin er tvíræð. Sama má segja um þann texta greinar er Morgunblaðið birti og Sjónvarpið, stöð 1, lét frá sér heyra í sambandi við 100 ára minningu Hermanns Jón- assonar í upphafi ársins í ár. Eg sagði þeim sem spurði að svarið þarfnaðist langrar skýringar, sem ég lofaði að birta. Þá voru önnur þrjú atriði sem fólk hafði lifandi áhuga á að fá svar við. Undravert hve margir hafa áhuga á þessari glímu og eru á leið með að gera úr henni þjóð- sögu. Síðastliðinn jóladag voru hundrað ár liðin frá fæðingu Hermanns Jónassonar lögreglustjóra í Reykjavík, alþingismanns og forsætisráðherra. Ævi þessa mæta forystumanns margra þjóðmála var maklega getið í blöðum og sjónvarpi. Eitt áhugamál Hermanns voru íþróttir. Glíman var honum hugstæðust. Hann var félagi í Umf. Æskan í Út-Blönduhlíð í Skagafirði. Til eru greinar eftir Hermann í handskrifuðu ungmennafélagsblaði í Akrahreppi. Ungmennafélög í utanverðum Skagafirði efndu til íþróttamóts árlega á sendinni grassléttu undan Garðsbrekkum að Litla-Garði í Hegranesi. Þar voru fluttar ræður, sungið, keppt í fþróttum og farið í leiki. Eitt árið, er glímukeppni var lokið ms Hermann Jónasson girtur Grettisbeltinu. Hann heldur á bikar, sem hann hlaut fyrir bestu glímur í Skjald- arglímu Ármanns 1921. Hinh bikarinn er sá, sem á er grafið: „Sigurvegarinn í Kon- ungsglímunni 1921“.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.