Dagur - Tíminn Reykjavík - 10.04.1997, Síða 2

Dagur - Tíminn Reykjavík - 10.04.1997, Síða 2
14 - Fimmtudagur 10. apríl 1997 HJÖLALIFIÐ I LANDINU • • AÐVORUN: Algengast er að slys við reiðingar verði þegar barnið stingur fæti á milli teina hjólsins. Þá snýst upp á fót barnsins og oft brotna við það öll bein í ristinni. Sá sem er að hjóla getur líka stórslasast því hjólið getur stöðvast mjög snögglega. Því er afar mikilvægt að kaupa plasthlíf og festa hana undir gjörðina svo barnið geti ekki troðið fæti milli tein- anna. í Svíþjóð hafa 6 börn hengst í hjólahjálmum. Börnin hafa þá klifr- að upp í tré eða leiktœki, hjálmurinn fest og vegna þess að hann er hannaður til að losna ekki af höfðinu við högg þá hefur spennan ekki losnað þó að þungi barnsins þrýsti á. íframhaldi af því var framleidd svokölluð græn spenna semfylgir með nokkrum tegund- um hjálma fyrir 6 ára og yngri sem seldir eru hér á landi. Grœna spennan opnast við 12 kílóa þrýsting en hjálmurinn kemur því ekki að miklu gagni ef barnið lendir fyrir bíl því spennan opnast viðfyrsta högg. 2. Svamparnir eru til að skorða hjálminn á höfði fólks. Þannig þurfa grannleitir t.d. að nota þykkari púða við hliðarnar en þynnri gerðina frá enni og yfir á hnakka. 4. Mikilvægt er að stilla hökubandið vel svo hjálmurinn hreyfist ekki þegar þú dettur. Bandið á ekki að vera lausara en svo að 1- 2 fingur komist á milli. 3. Þá er að stilla festingarnar. Byrjaðu á að stilla aftara bandið og gættu þess að böndin liggi alitaf slétt. Eyrað á að vera í miðju V- forminu og hjálm- urinn á að sitja þannig að hann verji vel ennið. Margir krakkar kvarta yfir því að bandið klemmir þau undir hökunni en þá hefur fólk spennuna á röngum stað. Spennnan á að vera til hliðar. 5. Þú getur prófað sjálf/ur hvort hjálmurinn situr rétt með því að grípa utan um hann og reyna að færa hann harkalega fram og til baka og til hlið- anna. Eðlilegt er að hann hreyfist bara um nokkra millimetra. Ef hann flýgur fram og til baka þá er hann ekki rétt festur, ekki af réttri stærð eða svamparnir of þunnir. Ekki er allt upptalið: • Hjálmar endast ekki til eilífðar. Miðað er við 5 ár en börn sem henda hjálminum frá sér í forstofunni og missa hann reglulega í götuna mega eiga von á að hjálmurinn endist ekki nema 2-3 ár. • Ekki setja aukah'mmiða á hjálminn þá gefur plastið á hjálminum ekki eðlilega eftir við högg. • Tússlitir veikja korkinn - merkið hjálmana með því að setja lít- inn límmiða ofan á þann sem fyrir er. Eða bara á hökubandið. • Ekki vera með húfu eða með eyrnarband undir hjálminum. Not- aðu lambúshettu ef það er kalt. Hjálmurinn vill skekkjast þegar höfuðfatið er laust og slys í Svíþjóð hafa verið rakin til þess. Það er auðvelt að kippa þessu í liðinn. Nú er víða orðin auð jörð og börnin því farin að taka fram hjóiin. Hvort sem barnið þitt á hjálm eða ætlunin er að kaupa nýjan er rétt að minnast eftirfarandi ráðlegginga Herdísar Storgaard hjá Slysavarnafélagi íslands því rétt sitjandi hjálmur getur dregið verulega úr höfuðáverk- um þegar dottið er af hjóli. 6. Algengt er að ganga fram á svita- mettaða hjólreiða- garpa af yngri kyn- slóðinni sem hafa ýtt hjálminum aftur á höf- uðið. Með hjálminn svona er hann engin vörn fyrir ennið ef garpurinn steypist fram af hjólinu. Hjálmarnir virðast oft angra börn í hita leiks en ef hann situr rétt eiga þau ekki að þurfa að finna fyrir honum. Hjálmar eru ekki bara fyrir börn. Gerð var könnun í haust sem sýndi að 32% allra hjól- andi fullorðinna voru með hjálma og var Herdís afar sátt við þá niður- stöðu vegna þess að áróðri fyrir hjálmanotkun á ís- landi hefur ekki verið beint tilfull- orðinna. Herdís Storgaard. Það er ekki nóg að kaupa hjálm og skella honum á höfuð barns- ins. Hjálmurinn einn og sér veitir haldlitla vörn ef hann sit- ur ekki rétt á höfðinu. Sam- kvæmt rannsóknum á slysa- deild hefur fjöldi barna með hjálma fengið höfuðáverka sem má alltaf rekja til þess að hjálmarnir hafa verið ranglega festir... 1. Hafðu barnið með þér til að máta hjálm- inn - eða hvern þann sem ætlar að nota því höfuðlag fólks er mjög mis- jafnt. m jölmargir nota hjól sem samgöngutœki enda m~4 margfalt ódýrari í rekstri en sá peningagleypir JL sem bíllinn er. Þá eru keyptir stólar til að reiða yngstu börnin en minnist þess að. • Ekki skal reiða börn fyrr en þau geta setið sjálf upprétt (um 9 mánaða). • Börnin eiga að vera með sérstaka ungbarnahjálma. • Herdís ráðleggur fólki að kaupa stóla með danska DS staðlinum. DS-stóll er bæði festur við hnakkstöngina; og bögglaberann. Þegar stólar eru bara festir við bögglaber- ann er hætta á að skrúfur losni við þann þrýsting sem myndast þegar hjólað er á ósléttu. • Stóllinn verður að vera nógu hár til að styðja við höfuð barnsins ef högg kemur á hjólið.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.