Dagur - Tíminn Reykjavík - 24.04.1997, Page 1

Dagur - Tíminn Reykjavík - 24.04.1997, Page 1
JOagur-Œtmtrm LIFIÐ I LANDINU Fimmtudagur 24. apríl 1997 - 80. og 81. árgangur - 77. tölublað Blað „Gerði mitt besta og gat ekki betur þegar ég setti brúðar- vöndinn saman, “ segir Björg Jóna Sigtryggsdóttir. Mun sjálf búa til eigin brúðarvönd s g hugsa að ég myndi sjálf vilja búa til brúðarvöndinn minn þegar ég gifti mig. Ef ég verð þá ekki alltof stressuð að hugsa fyrir einhverjum öðrum atriðum í sam- bandi við giftinguna. Nei, ég er ekki búin að gifta mig - en á kærasta,“ segir Björg Jóna Sigtryggsdóttir, nemi við Garðyrkjuskóla ríkisins á Reykjum í Ölfusi. Á verklegu prófi í blómaskreyting- um, sem þreytt var í síðustu viku, fékk Björg 10,0 í einkunn fyrir brúð- arvönd sem hún gerði. Frá því blóma- skreytingabraut við skólann hófst fyr- ir sjö árum hefur enginn af 26 nem- endum hennar fengið svo glæsilega einkunn. „Ég gerði einfaldlega mitt besta og gat ekki gert betur þegar ég setti þennan brúðarvönd sam- an,“ segir Björg. Brúðarvöndur- inn snortri sam- anstóð af sóllilj- um, rósum og prestafíflum. „Þetta voru þau blóm sem ég hafði til að vinna úr, en þeim varð svo að raða saman eftir kúnstarinnar reglum þannig að rétt hlutföll næðust og heildarsvipur vandarins væri góð- ur. Ætli ég hafi ekki verið eina tvo tíma að setja vöndinn saman og mikið varð ég hissa þegar mér var sagt að ég hefði fengið 10,0 í einkunn," segir Björg, sem er frá bænum Hriflu í Ljósavatnshreppi í Þingeyjarsýslu. Hún hefur síðustu misseri starfað hjá Blómabúðinni Akri í Kaupangi á Ak- ureyri og er nú á öðru námsmisseri af tveimur við Garðyrkjuskólann. í dag, fyrsta sumardag, bjóða nem- endur við Garðyrkjuskóla ríkisins til opins húss í skólanum, þar sem gest- um og gangandi gefst tækifæri til að kynna sér það sem í skólanum er; þar á meðal hundruð garðplantna, blómstrandi epla-, plómu- og kirsu- berjatré og rósir og sitthvað fleira. Verður opið í skólanum milli kl. 10 og 18 í dag. -sbs. Stúlka úr Þingeyjarsýslu fékk 10,0 í einkunn við Garðyrkjuskóla ríkisins fyrir brúðarvönd sem hún gerði. Opið hús í skólanum í dag.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.